Morgunblaðið - 25.08.2012, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Virðulega ríkis-
stjórn.
Ferðaþjónustan
þolir ekki ógætilegt
og stórskaðlegt inn-
grip í markaðsstarf
sitt með þeim hætti
sem 18,5% hækkun á
virðisaukaskatti á
gistingu mun hafa í
för með sér.
Ferðaþjónustan er
ung atvinnugrein og þarf að fá
tækifæri til að vaxa og dafna eins
og annað ungviði.
Ferðaþjónustan er mannfrek at-
vinnustarfsemi sem þýðir að
margar vinnufúsar hendur fá störf
við greinina.
Ferðaþjónustan er viðkvæmur
vaxtarsproti íslensks atvinnulífs
og veitir vaxandi
fjölda fólks atvinnu en
trygg atvinna er meira
virði en allt annað á
þessum tímum.
Ferðaþjónustan
sparar ríkissjóði
drjúgar fjárhæðir með
því að ráða fólk í
vinnu í stað þess að
það þurfi að þiggja at-
vinnuleysisbætur.
Ferðaþjónustan er
þéttbýlissvæðinu mjög
mikilvæg, en hún er sér í lagi einn
af bjarghringjum landsbyggð-
arinnar og störfin þar eru afar
dýrmæt.
Ferðaþjónustan á Íslandi á í
mjög harðri samkeppni við önnur
ferðamannalönd, sem leggja
áherslu á að skapa sinni ferða-
þjónustu eðlilegt samkeppn-
isumhverfi.
Ferðaþjónustan er gríðarlega
gjaldeyrisskapandi og fátt er mik-
ilvægara fyrir rekstur þjóðfélags-
ins um þessar mundir.
Ferðaþjónustan er ekki ríkis-
styrkt og borgar sína skatta og
skyldur á við alla aðra. Ummæli í
aðra veru eru til skammar.
Ferðaþjónustan leggur þjóð-
félaginu til gríðarlega fjármuni í
sköttum og gjöldum hvers konar.
Ferðaþjónustan mun halda
áfram að skila sjálfbærum tekjum
í ríkiskassann, en sjálfbærar eru
þær tekjur sem stuðla að heil-
brigðum rekstri til langs tíma.
Ferðaþjónustan biður ekki um
neitt annað en skilning stjórn-
valda.
Þyrmið
ferðaþjónustunni
Eftir Friðrik
Pálsson
Friðrik Pálsson
» Ferðaþjónustan
þolir ekki stór-
skaðlegt inngrip í mark-
aðsstarf sitt með þeim
hætti sem 18,5% hækk-
un á vsk. á gistingu mun
hafa í för með sér.
Höfundur er hótelhaldari.
Eins og ég hefi sýnt
fram á í fyrri greinum
mínum hafa aldraðir
og öryrkjar ekki feng-
ið jafnmiklar kjara-
bætur og launþegar í
stjórnartíð núverandi
ríkisstjórnar. Þar
vantar verulega upp á.
Auk þess hafa aldraðir
og öryrkjar verið
hlunnfarnir ítrekað við
framkvæmd kjarasamninganna sem
gerðir voru á miðju ári 2011.
Lægstu laun hækkuðu strax í júní
2011 um 10,3% en bætur þeirra
bótaþega meðal aldraðra og ör-
yrkja, sem verst voru staddir,
hækkuðu aðeins um 6,5%. Þarna
voru lífeyrisþegar hlunnfarnir veru-
lega. Í ársbyrjun
þessa árs, þegar laun-
þegar (með lágmarks-
laun) fengu 11.000 kr.
kauphækkun, fengu
aldraðir og öryrkjar
aðeins 6.800 kr. hækk-
un. Þarna voru lífeyr-
isþegar aftur hlunn-
farnir.
Alþýðusambandið mót-
mælti því harðlega í
upphafi ársins, að
aldraðir og öryrkjar
skyldu hlunnfarnir á
þennan hátt en allt kom fyrir ekki.
Stjórnvöld gerðu ekkert til þess að
leiðrétta „mistökin“.
Hækkanir ekki í
samræmi við lög
Samkvæmt lögum um almanna-
tryggingar á lífeyrir aldraðra og
öryrkja að hækka jafnmikið og
laun eða hliðstætt hækkun verð-
lags. Eða eins og segir í lögunum:
Við breytingar skal taka mið af
launaþróun, þó þannig að bætur
hækki aldrei minna en verðlag skv.
vísitölu neysluverðs. Þessu hefur
ekki verið framfylgt. Kjaranefnd
Félags eldri borgara í Reykjavík
telur að hækka þurfi lífeyri aldr-
aðra um 20% til þess að jafna met-
in og breyta lífeyri í samræmi við
lagaákvæðin. Öryrkjabandalag Ís-
lands telur að hækka þurfi lífeyri
öryrkja enn meira til þess að jafna
metin eða um tæp 30%. Í öllu falli
liggur fyrir að lífeyrisþegar eiga
inni verulegar hækkanir á lífeyri
vegna krepputímans eða 20-30%
hækkun lífeyris. Þessi leiðrétting
verður að koma strax, ef rík-
isstjórnin vill standa við yfirlýs-
ingar sínar um að hún ætli að
koma hér á norrænu velferðarsam-
félagi.
Launahækkun 33% –
bótahækkun 12,8%
Ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna tók við völdum
2009. Hún hefur verið við völd í
rúm 3 ár. Kosningar fara fram
næsta vor, þannig að það er aðeins
innan við eitt ár eftir af kjör-
tímabilinu . Á valdatímabili rík-
isstjórnarinnar, 2009-2012, hafa
lægstu laun í landinu hækkað um
48 þús. kr. á mánuði eða um 33%
.Á sama tímabili hefur lífeyrir aldr-
aðra og öryrkja, þ.e. hjá þeim,sem
verst eru staddir, hækkað um 23
þús. kr. á mánuði eða um 12,8%.
Það er því alveg ljóst, að í stjórn-
artíð Samfylkingar og VG hafa
aldraðir og öryrkjar verið sviknir
um sömu kjarabætur og láglauna-
fólk hefur fengið. Það þýðir ekkert
fyrir velferðarráðherra að fara í
einhverja talnaleikfimi til þess að
fá aðra útkomu. Það þýðir t.d. ekk-
ert að reikna með kjarabótum líf-
eyrisþega á fyrri tímabilum, þ.e.
áður en núverandi stjórn tók við, til
þess að fegra kjör lífeyrisþega og
segja að þeir hafi fengið jafnmikla
hækkun og launþegar. Við erum að
tala um stjórnartíma núverandi rík-
isstjórnar en ekki tímabil fyrri rík-
isstjórna. Það þýðir heldur ekkert
að koma með fullyrðingar um að
lífeyrisþegar hafi farið betur út úr
kreppunni en launþegar. Stað-
reyndirnar um breytingar á lífeyri
og launum tala sínu máli og eru al-
veg skýrar: Kaup láglaunafólks
hefur hækkað meira en tvöfalt
meira en lífeyrir aldraðra og ör-
yrkja á stjórnartímabilinu.
Lífeyrir aldraðra fylgi
neyslukönnun Hagstofunnar
Aldraðir og öryrkjar, sem ekki
hafa aðrar tekjur en bætur al-
mannatrygginga, hafa í dag 174
þús. á mánuði eftir skatta, þ.e. ein-
staklingar (lágmarksfram-
færslutrygging, framfærsluviðmið).
Það lifir enginn sómasamlegu lífi af
þeirri upphæð enda er þetta langt
undir því, sem neyslukönnun Hag-
stofunnar segir að einstaklingar
noti til neyslu til jafnaðar á mán-
uði. En samkvæmt síðustu neyslu-
könnun Hagstofunnar frá því í des-
ember sl. nema neysluútgjöld
einstaklinga 290 þús. kr. á mánuði,
án skatta. Það þarf að hækka líf-
eyri aldraðra og öryrkja upp í
þessa upphæð í áföngum. Alþingi
kemur saman í næsta mánuði. Þá
gefst tækifæri til þess að leiðrétta
lífeyri aldraðra og öryrkja. Það mál
þolir enga bið.
Leiðrétta verður kjör
aldraðra og öryrkja strax
Eftir Björgvin
Guðmundsson » Það er því alveg ljóst
að í stjórnartíð Sam-
fylkingar og VG hafa
aldraðir og öryrkjar
verið sviknir um sömu
kjarabætur og láglauna-
fólk hefur fengið.
Björgvin Guðmundsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Formaður kjaranefndar Félags
eldri borgara.
Þann 7.september gefur
Morgunblaðið út sérblað tileinkað
börnum og uppeldi.
Víða verður komið við í
uppeldi barna bæði í
tómstundum þroska og öllu
því sem viðkemur börnum.
SÉRBLAÐ
MEÐAL EFNIS:
Öryggi barna innan og utan heimilis.
Barnavagnar og kerrur.
Bækur fyrir börnin.
Þroskaleikföng.
Ungbarnasund.
Verðandi foreldrar.
Fatnaður á börn.
Gleraugu fyrir börn.
Þroski barna.
Góð ráð við uppeldi.
Námskeið fyrir börnin.
Tómstundir fyrir börnin.
Barnamatur.
Barnaljósmyndir..
Ásamt fullt af spennandi efni um börn.
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
•
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
3. september
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 5691105
kata@mbl.is
– Meira fyrir lesendur
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
LAGER
SALA