Morgunblaðið - 25.08.2012, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
✝ Þórður PálmarJóhannesson
fæddist að Egg í
Hegranesi 20. jan-
úar 1945. Hann lést
á Heilbrigð-
isstofnun Sauð-
árkróks 19. ágúst
2012. Foreldrar
hans voru Jónína
Sigurðardóttir, f.
30.4. 1914, d. 31.3.
2010, og Jóhannes
Hannesson, f. 21.8. 1913, d.
30.3. 2007. Systkini Pálmars
eru: Ingibjörg Jóhanna, f. 1947,
Pálína Sigríður, f. 1949, Elín
Gerður, f. 1951 og Sigurður, f.
1957.
Eftirlifandi eiginkona Pálm-
ars er Sigurbjörg Valtýsdóttir
frá Bröttuhlíð í Svartárdal, f.
8.8. 1950. Pálmar og Sigurbjörg
4 ) Jónína Pálmarsdóttir, f.
1984, unnusti hennar er Halldór
Svanlaugsson, eiga þau þrjú
börn, Brynjar Snæ, Sunnevu Dís
og Karen Sif.
Pálmar hóf sína skólagöngu í
barnaskólanum í Hróarsdal. Ár-
ið 1963 lá leið hans í bændaskól-
ann á Hvanneyri og útskrifaðist
hann þaðan árið 1965. Á ár-
unum 1965 til 1970 vann hann á
skurðgröfu og við löndun, einn-
ig var hann þrjá vetur á vertíð í
Grindavík. Með þessum verkum
vann hann einnig á búi foreldra
sinna og var þeim mjög hjálp-
legur. Pálmar hafði mikið yndi
af söng og tónlist og var hann í
karlakórnum Heimi í nokkur ár.
Vorið 1973 hófu Pálmar og Sig-
urbjörg búskap á Egg og bjuggu
þau þar myndarbúi til vorsins
2012. Pálmar var fyrirmynd-
arbóndi í einu og öllu. Hann
ræktaði vel sína jörð og snyrti-
mennska var þar í fyrirrúmi.
Pálmar verður jarðsunginn
frá Sauðárkrókskirkju í dag, 25.
ágúst 2012, og hefst athöfnin kl.
11.
giftust þann 8.
ágúst 1971. Börn
þeirra eru: 1) Val-
björg Pálm-
arsdóttir, f. 1973, á
hún tvær dætur,
Maríu Ósk og
Berglindi Björgu
með Sigurði Frey
Emilssyni, þau
skildu. Unnusti
Valbjargar er
Birgir Örn Hreins-
son. 2) Halldóra Björk Pálm-
arsdóttir, f. 1975, eiginmaður
hennar er Gunnar Ingi Gunn-
arsson, eiga þau þrjú börn,
Telmu Björk, Pálmar Inga og
Bjarka Frey. 3) Þórður Ingi
Pálmarsson, f. 1981, eiginkona
hans er Sylvía Dögg Gunn-
arsdóttir, eiga þau tvo syni, Al-
exander Franz og Bjartmar Dag.
Elsku pabbi minn, nú er komið
að síðustu kveðjustundinni.
Sjúkdómurinn sem þú hefur bar-
ist svo hetjulega við í rúm þrjú ár
hafði að lokum betur. Þú varst
svo ótrúlega duglegur og barst
þig alltaf svo vel og hughreystir
okkur hin þegar við áttum erfitt.
Mér þykir vænt um hvað ég gat
verið mikið hjá þér og mömmu
og stutt ykkur í þessari erfiðu
baráttu. Það er svo skrítið og
mikill missir að hafa þig ekki
lengur hjá okkur. Ég er afskap-
lega þakklát fyrir allar þær góðu
minningar sem ég á um þig og
mömmu, og okkur öll saman í
sveitinni. Á svona erfiðum stund-
um hjálpar það mikið að rifja
þær upp. Það var yndislegt að
alast upp hjá ykkur mömmu í
sveitinni og mun ég búa að því
alla tíð.
Þú varst svo góður pabbi og
alltaf til staðar fyrir okkur systk-
inin. Þú varst mín stoð og stytta
og fyrirmynd mín í lífinu. Þú
varst yndislegur afi og börnin
mín eiga ótal margar og góðar
minningar um þig sem mér og
þeim þykir alveg ómetanlegt.
Ég sakna þín svo óendanlega
mikið að engin orð fá lýst því.
Það er svo margt sem mig langar
til að segja en þegar ég las þetta
ljóð fannst mér eins og ég væri
að tala til þín.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Ó, elsku pabbi, ég enn þá er
aðeins barn, sem vill fylgja þér.
Þú heldur í höndina mína.
Til starfanna gekkstu með glaðri lund,
þú gleymdir ei skyldunum eina stund,
að annast um ástvini þína.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Minningar um einstakan
mann og yndislegan pabba munu
lifa í hjarta mínu um alla eilífð.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn, ég mun ávallt elska þig.
Þín dóttir,
Halldóra Björk.
Elsku pabbi, nú er kallið kom-
ið, ég vissi að hverju stefndi en
ég er ekki tilbúin að missa þig.
Þú varst á besta aldri og áttir eft-
ir að gera svo margt. Ég á svo
ótal margar minningar um þig
elsku pabbi minn, þú varst mín
fyrirmynd í lífinu. Að fá að alast
upp hjá ykkur mömmu í sveitinni
var ómetanlegt og hefur það
mótað mig í gegnum árin. Ég var
ekki há í loftinu þegar ég var með
þér úti í verkunum, þú þreyttist
aldrei á að að hafa okkur systk-
inin í kringum þig í nánast hverju
sem var. Það mun hjálpa mér í
sorginni að hugsa um allar þær
stundir sem við áttum saman í
sveitinni við leik og störf.
Þegar ég komst á unglingsárin
varstu alltaf tilbúinn að keyra
mig og vinkonur mínar á böll í
hvaða veðri sem var. Við fórum á
rússajeppanum ef það var snjór
og hálka. Eftir að ég varð full-
orðin varð samband okkar enn
nánara.
Þú varst kletturinn í mínu lífi,
ef eitthvað bjátaði á hjá mér
hringdi ég alltaf fyrst í þig. Þú
áttir alltaf svör við öllum mínum
vandamálum og áhyggjum. Þú
hughreystir mig, bentir mér á
björtu hliðarnar og leystir úr
vandræðum mínum, hversu mikil
sem þau voru. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa fengið að hafa þig
hjá mér þó þennan tíma.
Þú varst svo hamingjusamur
og stoltur þegar ég gerði þig að
afa fyrir 17 árum. Dætur mínar
hafa fengið að njóta góðvildar
þinnar og manngæsku, þú varst
þeim svo góður afi og þær eiga
margar yndislegar minningar um
þig sem þær geyma í hjarta sínu
alla tíð.
Fyrir rúmum þremur árum
greindist þú með illvígan sjúk-
dóm. Þú sýndir svo mikið æðru-
leysi og hugrekki í veikindum
þínum, þú hughreystir okkur hin
og sagðir að við yrðum að halda í
vonina, þannig varst þú. Það var
mér ómetanlegt að geta verið
með þér og stutt þig í þessari
baráttu. Við áttum margar stund-
ir sem við nýttum vel. Ég trúi að
þú hafir það betra núna, þú fylg-
ist með okkur öllum og veitir okk-
ur styrk. Við munum passa upp á
mömmu, þið voruð svo náin og
samstiga í öllu ykkar lífi. Ég veit
að þú munt taka vel á móti mér
þegar minn tími kemur elsku
pabbi.
Mér tregt er um orð til að þakka þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,
unz hittumst við aftur heima.
Þú farinn ert þangað á undan inn.
Á eftir komum við, pabbi minn.
Það huggar á harmastundum.
Þótt hjörtun titri af trega og þrá,
við trúum, að þig við hittum þá
í alsælu á grónum grundum.
Þú þreyttur varst orðinn og þrekið
smátt,
um þrautir og baráttu ræddir fátt
og kveiðst ekki komandi degi.
(Hugrún)
Minning um hjartahlýjan
mann og yndislegan pabba mun
lifa í hjarta mér um ókomna tíð.
Elsku pabbi, takk fyrir allt, ég
mun alltaf elska þig.
Þín dóttir,
Valbjörg.
Elsku pabbi.
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta
mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get
breytt og vit til að greina þar á milli.
(Reinhold Niebuhr.)
Það er svo erfitt að þurfa að
sætta sig við að elsku besti pabbi
minn sé látinn. Eftir sitjum við
ástvinir hans og félagar, skiljum
hvorki upp né niður og spyrjum
okkur sjálf af hverju hann fékk
ekki að vera lengur hjá okkur. Ég
trúi því að afi og amma taki á
móti pabba á æðri stað og þeim sé
öllum ætlað stórt hlutverk þar,
sem þau þurfa að vinna í samein-
ingu. Þessi trú styrkir okkur auk
þess sem allar góðu minningarn-
ar um pabba hjálpa okkur að
milda sorgina
Það er gott að eiga minningar.
Það er gott að lifa lífinu. Það er
gott að eiga fjölskyldu. Það er
gott að eiga vini. Það er gott að
hugsa til þess að pabba líði vel
núna. Það er gott að eiga mömmu
sem þykir vænt um mann.
Þessi orð mín eru nú ósköp fá-
tækleg til minningar um elsku
besta pabba minn sem átti svo
skilið að lifa miklu lengur.
Fyrir hönd pabba og fjölskyld-
unnar okkar vil ég þakka öllum
þeim, sem önnuðust pabba í veik-
indum hans og studdu okkur fjöl-
skylduna, kærlega fyrir okkur.
Elsku besta mamma mín, við
verðum öll með þér og styðjum
þig í sorginni. Við verðum að
muna allar góðu stundirnar með
pabba og trúa því að hann sé allt-
af með okkur. Blessuð sé minn-
ing elsku besta pabba míns.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okk-
ar hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og
góðleg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú
á braut
gleði og gæfa okkar fylgdi með þig
sem förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
eru fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Denver/Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Hvíldu í friði, elsku besti pabbi
minn.
Þórður Ingi.
Elsku pabbi minn!
Mikið getur lífið stundum ver-
ið ósanngjart. Að þú, þessi
hrausti og heilbrigði maður
skyldir fá þennan ömurlega sjúk-
dóm sem tók þig í burtu frá okk-
ur alltof snemma. Það var rosa-
lega erfitt að horfa uppá hvernig
sjúkdómurinn yfirtók líkama
þinn og geta ekkert gert til að
hjálpa, en ekki kvartaðir þú,
sagðir alltaf að þér liði bara
ágætlega og hélst alltaf í vonina.
Nú verðum við að trúa því að þú
sért kominn á betri stað og laus
við allar þjáningar.
Þú varst svo góður pabbi og
góður afi. Snerist í kringum afa-
börnin og gafst þeim súkku-
laðirúsínur, sem þér sjálfum
þóttu alltaf svo góðar. Ég á svo
ótal margar minningar um þig,
elsku besti pabbi, sem ég geymi í
hjarta mér.
Ég vil þig, pabbi, kveðja, þótt brostin sé
þín brá
og bleikt og fölt sé ennið, er kossi’ þrýsti
ég á.
Ég veit ógerla enn þá, hve mikið ég hef
misst,
en mér er ljóst, að fölt er ennið, sem ég
hefi kysst.
Þótt lát þitt góði faðir, nú leggist þungt
á mig
þá lengst af finn ég huggun við minn-
inguna’ um þig.
Hún stendur mér svo skýr, og hún er svo
helg og heit
og hreinni’ bæði og ástríkari’ en nokkur
maður veit.
Ég vil hér ekki ljóða neitt lof eða hól um
þig,
en lengst af þessi hugsun mun fróa og
gleðja mig.
Og lengi mun þín röddin lifa’ í minni sál
til leiðbeiningar för minni’ um verald-
arál.
---
Og tár af mínum hrjóta hvörmum
og heit þau falla niður kinn,
því vafinn dauðans er nú örmum
hann elsku – hjartans pabbi minn.
(Kristján Albertsson.)
Takk elsku pabbi fyrir allar
stundirnar sem við áttum saman.
Elsku mamma, þú ert ótrúlega
sterk og dugleg og stóðst við hlið
pabba í gegnum allt eins og klett-
ur. Ég bið góðan Guð um að
styrkja okkur öll og styðja á
þessum erfiðu tímum.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn, og hvíl þú í friði.
Þín dóttir,
Jónína Pálmarsdóttir.
Elsku Pálmar.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast elsku tengdapabba
míns, Þórðar Pálmars Jóhannes-
sonar. Ég hef þekkt hann í mörg
ár en kynntist honum best þegar
ég kom inní fjölskylduna fyrir 9
árum og hann tók vel á móti mér
þó ekki væri hann mjög opinn.
Við höfum átt mörg góð og eft-
irminnileg samtöl sem ég mun
varðveita vel í hjarta mínu.
Pálmar var góður maður sem var
til í að hjálpa öllum og vildi gera
öllum gott í kringum sig. Hann
var yndislegur afi og því kynntist
ég vel þegar við Þórður eignuð-
umst syni okkar sem hafa haldið
mikið uppá Pálmar afa og Sig-
urbjörgu ömmu í gulu sveitinni
Egg.
Elsku Pálmar minn, síðastlið-
in þrjú ár hefur þú barist við ill-
vígan sjúkdóm er sigraði að lok-
um. Hvílíkan dugnað og kraft
sýndir þú á brúðkaupsdegi okkar
í apríl síðastliðnum, þegar þú
tókst þá ákvörðun að vera svara-
maður sonar þíns þrátt fyrir að
vera þá orðinn fársjúkur maður,
en þú stóðst þig eins og hetja og
verðum við óendanlega þakklát
fyrir þann dag.
Söknuðurinn er mikill, þó
einkum hjá Sigurbjörgu, eigin-
konu hans, sem sér nú á bak
traustum eiginmanni, er ætíð var
hennar stoð og stytta. Þau voru
mjög samrýnd og samtaka í öllu
er þau tóku sér fyrir hendur. Þá
ríkir mikil sorg hjá börnum
þeirra og barnabörnum en þau
sjá nú á bak elskulegum föður
sínum og afa í blóma lífsins.
Ég á eftir að sakna þín mikið,
Pálmar, þér hefur verið ætlað
eitthvert mikilvægara hlutverk á
æðri stöðum, en sárt er að missa
svona yndislegan tengdapabba.
Að lokum vil ég tileinka þér
þennan sálm með kveðju frá mér:
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem)
Elsku Sigurbjörg, börn og
barnabörn, megi Guð styrkja
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Þín tengdadóttir,
Sylvía Dögg.
Besti afi í heimi.
Ég man þegar mamma, María
og pabbi fóru til Spánar þá var ég
í sveitinni og ég fór alltaf í fjósið
með afa. Svo þegar mamma,
María og pabbi komu heim frá
Spáni þá vildi ég ekki fara til
mömmu af því að afi var svo of-
boðslega góður og skemmtileg-
ur.
Hvíldu í friði.
Þín afastelpa,
Berglind Björg
Sigurðardóttir.
Elsku afi minn.
Ég man þegar ég kom í sveit-
ina til ykkar ömmu þá komst þú
mjög oft keyrandi á móti okkur á
dráttarvélinni þinni. Mér fannst
alltaf svo gaman að fara út með
þér á dráttarvélina að gefa
hrossunum eða vinna einhver
önnur sveitastörf svo stundum
sofnaði ég í vélinni þegar ég var
yngri. Ég á svo fullt af minning-
um um þig sem ég mun aldrei
gleyma og ég mun aldrei gleyma
þér. Ég vona að þér líði vel og við
hittumst aftur.
Hvíldu í friði.
Þín afastelpa,
Telma Björk.
Elsku afi.
Þú varst alltaf svo góður og
hjartahlýr maður. Betri manni
hef ég ekki kynnst. Margar góð-
ar minningar á ég um þig, elsku
afi, og eru nokkrar þeirra ofar-
lega í huga mínum núna. Ég man
þegar ég var lítil og þú varst að
gefa kúnum fóðurbæti þá leyfðir
þú mér alltaf að sitja í hjólbör-
unum og keyrðir mig um gang-
inn og ég hjálpaði þér að gefa
þeim. Það voru nú ófáar drátt-
arvélarferðirnar með þér í hey-
skapnum og oft kom fyrir að ég
sofnaði hjá þér í vélinni. Ekki má
heldur gleyma öllum fjórhjóla-
ferðunum sem þú fórst með okk-
ur krakkana í, það þótti okkur
gaman.
Öll góðu og notalegu jólin með
þér og ömmu í sveitinni eru eft-
irminnileg. Ég mun sakna allra
góðu, skemmtilegu og rólegu
daganna í sveitinni með þér og
ömmu.
Ég sakna þín mjög en trúi því
að þú sért kominn á betri stað
núna. Ég er glöð og þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast þér
svona mikið og veit að ég hefði
ekki getað hugsað mér betri afa
en þig, því þú varst besti afi
minn.
Að lokum vil ég þakka þér,
elsku afi, fyrir allt sem þú hefur
gert fyrir mig. Allar góðu minn-
ingarnar um þig mun ég varð-
veita í hjarta mér alla tíð.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst.
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá.
Rita vil ég niður hvað hann var mér kær
afi minn góði guð nú fær.
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo
margt
og því miður get ég ekki nefnt það allt.
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum við eyddum saman.
Hann var svo góður, hann var svo klár.
Æ, hvað þessi söknuður er svo sár.
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt
hann var mér góður afi, það er klárt.
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú.
Því þar getur hann vakað yfir okkur dag
og nótt
svo við getum sofið vært og rótt.
Hann mun ávallt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur senda.
Elsku afi, guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
minn yndislegi afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Þitt barnabarn.
María Ósk.
Elsku afi okkar!
Við söknum þín svo mikið. Það
var svo gott að koma til þín og
vera með þér. Við munum svo vel
þegar við komum í sveitina til þín
og ömmu og þú fórst með okkur á
fjórhjólið og í dráttarvélina. Þeg-
ar við vorum með þér í fjósinu og
þegar þú gafst okkur súkku-
laðirúsínur í vélageymslunni, það
var best. Karen Sif er svo lítil
enn þá en við ætlum að vera dug-
leg að hjálpa henni að muna eftir
þér, sýna henni myndir og tala
um þig.
Nú ertu kominn til Guðs og
hann ætlar að passa þig og við
ætlum að passa ömmu fyrir þig.
Þórður Pálmar
Jóhannesson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi minn.
Nú kveð ég þig í hinsta sinn.
Þú varst minn besti vinur
og sorgin á mér dynur.
Ég vona að við eigum endurfund,
þó ekki sé nema í nokkra stund.
Aldrei mun ég gleyma þér,
þú átt alltaf stað í hjarta mér.
En ósk mín er sú
að betri stað þú sért á nú.
Þú ert stærsta fyrirmyndin mín,
afi, mikið sakna ég þín.
(E.S)
Elsku afi, takk fyrir allt.
Þinn nafni,
Pálmar Ingi Gunnarsson.
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA