Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Löngu fyrir krakkið, á dögum
ríkisbanka, stofnuðu nokkrir
bankamenn klúbb upp á spil og
glas. Hlaut hann nafnið Urriði.
Hálfdán léði herbergi í húsi
Steindórsprents á Tjarnargötu
4.
Þar komu saman gleðimenn,
allt frá stm. á plani ofan í banka-
stjóra og lögfræðinga. Samkom-
an var andaktug. Mest var fjörið
er Hálfdán birtist, hraðskreiður,
brattur og brosandi og spurði:
„Jæja drengir, hvað býður
Bakkus?“
Slík voru fyrstu kynnin af
Hálfdáni. Síðar skildi leiðir um
skeið en lágu saman á ný innan
vébanda Oddfellowreglunnar.
Þar kynntist ég nýrri hlið í
návígi; hugsjónum, starfsþreki
og logandi einbeitingu. Hann var
kappsfullur framkvæmdamaður
og framsýnn, gat verið harður í
horn að taka og gleymdi sér
stundum í hita leiksins. Lang-
rækinn var hann þó ekki.
Hálfdán var mikilvirkur í
starfi Oddfellowreglunnar um
áratuga skeið og lagði henni til
starfskrafta sína og hagsýni.
Vinnudagurinn var oft æði lang-
ur, enda mörg járn í eldinum.
Hálfdán og fjölskylda hans
ráku fyrirtæki sín í þágu þjóð-
arheilla og létu sér annt um
starfsfólk sitt. Hagur fyrirtæk-
isins byggðist á því að gera vel
við starfsmenn og verðleggja af
sanngirni. Því voru prentsmiðj-
urnar fjölskyldufyrirtæki í
stærstu og beztu merkingu þess
orðs. Auk þess greiddi hann úr
eigin vasa fyrir ýmislegt er stóð
hjarta hans næst. Það er geymt
– en ekki gleymt.
Hálfdán var frumherji, braut-
ryðjandi og bardagamaður að
Hálfdán
Steingrímsson
✝ Hálfdán Stein-grímsson fædd-
ist á Flateyri við
Önundafjörð 26.
september 1920.
Hann lést á Land-
spítala, Landakoti,
miðvikudaginn 15.
ágúst síðastliðinn.
Útför Hálfdánar
fór fram frá Foss-
vogskirkju fimmtu-
daginn 23. ágúst
2012.
eðlislagi. Hann var
framsýnn, réttsýnn
og yfirvegaður
átakamaður en líka
skapmaður og gat
verið harður í horn
að taka.
Hálfdán var
fulltrúi orðheldni og
festu, gleði og lífs-
listar. Þar með er
ekki sagt að allir
hans dagar hafi
verið bjartir dagar – en það á
við alla. Hann er maður hand-
sals, heiðarleika og hagsýni.
Mættu ógæfumenn þjóðarinnar
– svokallaðir peningamenn –
margt af honum læra.
Hann fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð, en Ingibjörg
Steindórsdóttir k.h. í Rvík. Þar
kynntust þau og giftu sig á
kvenréttindadaginn 19 júní 1943.
Hinn 19. júní 1915 fengu kon-
ur á Íslandi kosningarétt til Al-
þingis þegar Kristján X Dana-
kóngur samþykkti nýja
stjórnarskrá, fyrir 97 árum.
Það þarf hugrekki til að gifta
sig á kvenréttindadaginn, en
slíkir smámunir vöfðust aldrei
fyrir Hálfdáni. Í ár höfðu þau
verið gift í 69 ár. Geri margir
betur!
Orðið öldungur er fallegt orð
og alltof lítið notað. Oddfellowar
nota það um sína elztu bræður. Í
huga okkar er þetta heiðurs-
nafnbót og felur í sér virðingu
fyrir reynslu, ævistarfi, þraut-
seigju og æðruleysi.
Að leiðarlokum hyllum við
manninn, starfsævi hans og eft-
irlifandi maka, frú Ingibjörgu.
Maður verður að rækta garð-
inn sinn, sagði Birtingur Voltai-
res. Hálfdán ræktaði garð sinn
svikalaust, vissi alltaf hvað hann
var að gera og ölvaðist aldrei af
velgengni. Það er heilladrýgst
að sinna því sem er okkur næst.
En þar er hvorki átt við sér-
hyggju, sjálfselsku eða óhóf
heldur þvert á móti. Hann var
sannur drengskaparmaður og
mannvinur.
Blessuð sé minning hans.
Haraldur G. Blöndal
– St. nr. 18 Ara fróða
og María Aldís
Kristinsdóttir
– St. nr. 10 Soffíu IOOF.
Elsku Gunna mín. Nú ert þú
hjá Guði en þú kannast kannski
við þig þar. Þegar ég var lítill
strákur tókst þú svo vel á móti
mér.
Mér fannst ég alltaf velkom-
inn og eins og hluti af fjölskyld-
unni. Þó að við værum ekki
skyld þá varstu amma mín.
Heimilið þitt var svo fallegt og
notalegt og þangað komu vin-
konur þínar gjarnan. Eldhúsið
var staðurinn. Ilmurinn af kaffi
og nýbökuðum pönnukökum
fyllti húsið og lokkaði fimm ára
pjakkinn niður í heimsókn.
Við gátum rætt um alla
heima og geima og stundum
spjölluðum við svo lengi að ég
steingleymdi að fara aftur upp
til pabba og Lóu. En þeim þótti
nú bara vænt um það að ég færi
niður að spjalla við ykkur
Guðrún
Jónsdóttir
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 22. júní
1921. Hún lést á
Landspítala,
Landakoti, 15.
ágúst síðastliðinn.
Útför Guðrúnar
fór fram frá Bú-
staðakirkju
fimmtudaginn 23.
ágúst 2012.
Bjarna, þó að ég
borðaði mig svo
pakksaddan af
pönnukökum að ég
gat lítið borðað af
kvöldmatnum sem
hún Lóa ykkar var
búin að elda sér-
staklega fyrir mig.
Þú sagðir alltaf
við mig að ég ætti
að vera prestur. Ég
sá það ekki alveg
fyrir mér þá, en að einhverju
leyti varstu sannspá. Ég veit
líka að besta leiðin til að boða
kærleika ljóssins er að vera
eins og þú, Gunna mín. Vera
ljósið. Með nærveru þinni og
gjafmildi gafstu mér veganesti
út í lífið. Ég var lánsamur
drengur að fá að kynnast þér
og vil þakka þér fyrir tímann
sem þú gafst mér og bróður
mínum.
Guð geymi þig.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Pétur Þór Benediktsson.✝
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
okkar elskaða föður, bróður, mágs, vinar og
frænda,
INGÓLFS PÁLSSONAR,
Austurbrún 6,
Reykjavík.
Rúnar Páll Gígja Ingólfsson,
Hákon Pálsson, Ingibjörg Hafsteinsdóttir,
Sigurður Pálsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Sigurjón Pálsson,
Halla Pálsdóttir, Sigsteinn Sigurðsson,
Þrúður Pálsdóttir, Þorgeir Yngvason,
Dagmar Pálsdóttir,
Guðbjörg Einarsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
✝
Þökkum ykkur öllum sem sýnt hafið
samúð og hlýhug við andlát og útför
RAGNHEIÐAR VALGARÐSDÓTTUR
kennara,
Dalsgerði 3d,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á öldrunar-
deildum Sjúkrahússins á Akureyri, bæði í Seli og Kristnesi, þar
sem hún naut einstakrar og kærleiksríkrar umönnunar.
Valgarður Stefánsson,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Sigurður Klausen,
Ragnheiður Haraldsdóttir, Veturliði Rúnar Kristjánsson,
Valgerður Valgarðsdóttir, Gísli Jón Júlíusson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Við þökkum innilega samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
vinkonu, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU MARGRÉTAR PÉTURSDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13E á
LSH og á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Hörður Halldórsson, Þórgunnur Skúladóttir,
Gunnlaugur Halldórsson,
Bryndís Halldórsdóttir, Hany Hadaya,
Matthías Bjarnason,
barnabörn og langömmubörn.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu
okkar,
BRYNHILDAR RÖGNU FINNSDÓTTUR,
Staðarhóli,
Eyjafjarðarsveit,
sem lést föstudaginn 10. ágúst.
Sigurgeir Garðarsson,
Garðar Rúnar Sigurgeirsson, Arnbjörg Sveinsdóttir,
Finnur Sigurgeirsson,
Valdimar Sigurgeirsson, Soffía Pálmadóttir,
Unnsteinn Sigurgeirsson, Harpa Gylfadóttir,
Magnús Geir Sigurgeirsson, Linda Robinson,
Sigurgeir Sigurgeirsson, Ásta Heiðrún Stefánsdóttir,
Ragnheiður Sigurgeirsdóttir, Gísli Baldursson,
Kolbrún Sigurgeirsdóttir, Aðalsteinn Ómar Þórisson,
Erla Sigurgeirsdóttir, Finnur Steingrímsson,
Kristrún Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLAFAR JÓHANNSDÓTTUR,
Miðholti 10,
Þórshöfn.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
11-G á Landspítalanum fyrir einstaka hlýju og góðvild.
Úlfar Þórðarson, Kristín Kristjánsdóttir,
Jóhann Ólafur Þórðarson, Freygerður Friðriksdóttir,
Þóra Ragnheiður Þórðardóttir, Bergur Steingrímsson,
Þórður Þórðarson, Líney Sigurðardóttir,
Oddgeir Þórðarson, Sigrún Inga Sigurðardóttir,
Helena Þórðardóttir, Höskuldur Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Neðst á
forsíðu mbl.is má finna upplýs-
ingar um innsendingarmáta og
skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í
hægra horninu og velja viðeig-
andi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, jafnvel
þótt grein hafi borist innan
skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minn-
ingargreina er 3.000 slög.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstand-
endur senda inn. Þar kemur
fram hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks
hvaðan og hvenær útförin fer
fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn, svo og
æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minning-
argreinahöfundar eru beðnir
að hafa skírnarnöfn sín undir
greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa
notuð með minningargrein
nema beðið sé um annað. Ef
nota á nýja mynd skal senda
hana með æviágripi í inn-
sendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent má senda
myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og gera umsjón-
arfólki minningargreina við-
vart.
Minningargreinar
Þrjátíu pör í sumarbrids
Spilamennskan í sumar-
brids fer nú að styttast í ann-
an endann en miðvikudaginn
22. ágúst var spilaður eins
kvölds tvímenningur með
þátttöku 30 para. Efstu pör
voru:
Haukur Ingason – Helgi Sigurðsson
. 59,3%
Erla Sigurjónsdóttir – Guðni Ingv-
arsson 57,2%
Árni Hannesson – Oddur Hannes-
son 56,8%
Sigurjón Harðarson – Guðlaugur
Bessason 56,0%
Sigurður Steingrsson – Gísli Stein-
grímsson 55,9%
Egill D. Brynjólfsson – Helgi Boga-
son 54,9%
Það er spilað í sumarbrids á
mánudags- og miðvikudags-
kvöldum og byrjar spila-
mennska kl. 19. Reynt er að
hjálpa til við myndun para
hverju sinni. Keppnisgjald er
1.000 kr. á spilara og eldri og
yngri spilarar borga 600 kr.
Tíu borð í Gullsmáranum
Þátttakan er í rétta átt í
Gullsmára. Spilað var á 10
borðum fimmtudaginn 23.
ágúst.
Úrslit í N/S:
Samúel Guðmsson – Jón Hannesson
211
Guðlaugur Nielsen – Guðm. Magn-
ússon 197
Kristín Óskarsdóttir – Gróa Þor-
geirsdóttir 179
A/V
Guðbjörg Gísladóttir – Sigurður
Sigurðsson 218
Sigurður Njálsson – Ari Þórðarson
191
Sigurður Björnsson – Stefán Frið-
bjarnarson 190
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is