Morgunblaðið - 25.08.2012, Page 43
MESSUR 43Á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 20. Magnea G. Sigurðardóttir, um-
sjónarmaður safnaðarheimilis, kvödd
eftir tveggja áratuga starf. Veitingar til
heiðurs Magneu. Messa kl. 12.45 á
Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
AKUREYRARKIRKJA | Akureyr-
armessa kl. 11. Akureyrsk tónlist og
akureyrskir sálmar. Félagar úr Kór Ak-
ureyrarkirkju syngja, organisti er Ey-
þór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
þjónar fyrir altari og prédikar. Org-
anisti er Peter Maté, kirkjukórinn leið-
ir safnaðarsöng.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sig-
urður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari. Forsöngvari er
Tinna Sigurðardóttir og organisti er
Magnús Ragnarsson. Kaffisopi á eft-
ir. Sjá askirkja.is.
BESSASTAÐAKIRKJA | Bæna- og
íhugunarmessa kl. 11. Lögð verður
áhersla á bæn og íhugun. Jóhanna
Ósk Valsdóttir söngkona og Bjartur
Logi Guðnason organisti leiða tónlist-
ina ásamt Írisi Dögg Gísladóttur fiðlu-
leikara. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
leiðir íhugun og prédikar. Einnig verð-
ur fyrirbænarstund. Messunni verður
útvarpað á Rás eitt.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Prestur sr. Gísli Jónasson. Fé-
lagar úr kór Breiðholtskirkju leiða
söng, organisti er Douglas Brotchie.
Molasopi á eftir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr kór Bústaðakirkju syngja.
Jónas Þórir kantor við hljóðfærið.
Messuþjónar aðstoða, prestur sr.
Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestar sr. Gunnar Sigurjónsson og
Magnús Björn Björnsson. Fræðslu-
messa fyrir fermingarbörn. Messan
er í raun hefðbundin messa en skýr-
ingar eru gefnar á flestum messul-
iðum. Foreldar fermingarbarna sér-
staklega velkomnir. Organisti er
Zbigniew Zuchowich og kór Digra-
neskirkju leiðir safnaðarsöng. Á eftir
er hádegisverður og framhald ferm-
ingarfræðslu. Sjá www.digra-
neskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn
syngur, organisti er Kári Þormar. Kola-
portsmessa kl. 14.
EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir pré-
dikar, sr. Sveinn Valgeirsson þjónar
fyrir altari. Kórar Eyrarbakka- Stokks-
eyrar- og Gaulverjabæjarkirkna
syngja. Kaffi í Stað á eftir.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 20. Ragnhildur Ásgeirsdóttir
djákni leiðir stundina og flytur hug-
leiðingu. Tónlistarnemar Ólafs Elías-
sonar, Ingibjörg Sól Ingólfsdóttir og
Hróbjartur Böðvarsson annast undir-
leik. Jóhanna Skúladóttir, Íris og
Marta Andrésdætur syngja þrísöng.
Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl.
16.30. Tónlist, söngur og Greg Aikins
prédikar. Aðstaða fyrir börn. Á eftir er
kaffi og samvera.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Anna Sigga og kór Fríkirkjunnar í
Reykjavík leiða tónlistina ásamt Að-
alheiði Þorsteinsdóttur, orgelleikara.
Þetta er jafnframt síðasta guðsþjón-
usta sem Anna Sigga og Aðalheiður
annast tónlist í.
GAULVERJABÆJARKIRKJA | Bent
er á messu í Eyrarbakkakirkju.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 20. sr.
Gunnlaugur Garðarsson þjónar, fé-
lagar úr kór Glerárkirkju leiða söng.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Íbúar í Fannafold taka
þátt í athöfninni. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Ari Trausti Guðmundsson les ljóð,
Benedikt Kr. Magnússon leikur á
harmónikku, Pálín Ósk Einarsdóttir og
Magnús Ásgeirsson lesa ritning-
arlestra og Guðrún Jónsdóttir les
bænir. Organisti er Hákon Leifsson,
Kristín Sigurðardóttir leiðir safn-
aðarsöng. Kaffi á eftir.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður
kl. 10, bænastund kl. 10.15. Messa
kl. 11. Altarisganga og samskot til
langveikra barna. Messuhópur þjón-
ar, kirkjukór Grensáskirkju syngur,
organisti Árni Arinbjarnarson. Prestur
sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á
eftir.
GRUND dvalar- og hjúkr-
unarheimili | Guðsþjónusta kl. 14 í
hátíðarsal á vegum Félags fyrrum
þjónandi presta. Sr. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson, fyrrverandi sóknarprestur,
þjónar. Grundarkórinn leiðir söng und-
ir stjón Kristínar Waage organista.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Þórhallur
Heimisson. Organisti er Guðmundur
Sigurðsson og Barbörukórinn syngur.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Foreldrafundur ferm-
ingarstarfsins eftir messu. Skráning í
fermingarstarf vetrarins stendur yfir á
hafnarfjardarkirkja.is.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson skóla-
prestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni.
Messuþjónar úr röðum nemenda og
stúdenta aðstoða. Sögustund fyrir
börnin, félagar úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngja. Organisti Björn
Steinar Sólbergsson. Ensk messa kl.
14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnason-
ar.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Fé-
lagar úr Kammerkór Háteigskirkju
syngja, organisti Kári Allansson.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir. Vænst er þátttöku ferming-
arbarna vorsins 2013 og foreldra
þeirra, skráning í fermingarfræðsluna
fer fram að messu lokinni.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar.
Félagar úr kór kirkjunnar syngja og
leiða safnaðarsöng, organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Sjá hjallakirkja.is.
HÓLADÓMKIRKJA | Kveðjumessa
kl. 14. Vígslubiskup sr. Jón Að-
alsteinn Baldvinsson messar og er
þetta jafnframt síðasta messa hans í
embætti á Hólum. Sr. Gunnar Jó-
hannesson þjónar fyrir altari, kór
Hóladómkirkju syngur, organisti og
kórstjóri er Jóhann Bjarnason. Kaffi á
eftir.
HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 14.
Steinunn Jóhannesdóttir flytur erindi,
Birna Rúnarsdóttir syngur, organisti
er Steinar Guðmundsson. Prestur er
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 20 með lofgjörð og fyrir-
bænum. Friðrik Schram prédikar.
Kaffi á eftir samkomu. Auka-
aðalfundur kirkjunnar kl. 19.30.
KAÞÓLSKA kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl.
11 og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa
kl. 11. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa
kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30
(nema föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði |
Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa
kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30, kl. 13.00 á pólsku og á ensku
kl. 18. Virka daga er messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11 og virka daga kl.
18.30. Laugardaga er messa á
ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs-
kirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová, kantors kirkjunnar.
KVENNAKIRKJAN | Útimessa verð-
ur á Bríetartorgi á horni Þingholts-
strætis og Amtmannsstígs kl. 17. Sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir flytur hug-
vekju og Aðalheiður Þorsteinsdóttir
stjórnar söng. Kaffi á eftir í stofum
Kvennakirkjunnar að Þingholtsstræti
17.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Bjarni Karlsson þjónar og
Gunnar Gunnarsson leikur á orgel.
Kaffi á eftir. Sjá laugarneskirkja.is.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Kór
Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson þjónar.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Skírnir Garðarsson þjónar.
Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir,
kirkjukór Lágafellssóknar og Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngja, m.a. lög við
texta Halldórs Laxness. Brynhildur
Ásgeirsdóttir leikur á þverflautu og
Ágústa Dómhildur Karlsdóttir á fiðlu.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar
úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng,
organisti er Steingrímur Þórhallsson.
Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og þjónar
fyrir altari. Kaffisopi á eftir.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri | Guðs-
þjónusta kl. 11. Meðhjálpari er Pétur
Rúðrik Guðmundsson. Kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Stefáns H. Krist-
inssonar organista.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjón-
usta kl. 20. Maul eftir messu. Sjá
www.ohadisofnudurinn.is.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni |
Guðsþjónusta kl. 11. Signý Sæ-
mundsdóttir óperusöngkona syngur.
Safnaðarsöngur undir stjórn Sigrúnar
Steingrímsdóttur organista. Sr. Krist-
inn Ágúst Friðfinnsson þjónar fyrir alt-
ari og prédikar.
SALT kristið samfélag | Sam-
koman kl. 17 í safnaðarheimili Grens-
áskirkju. Ræðumaður er sr. Kjartan
Jónsson.
SELJAKIRKJA | Messa í Skógarbæ
kl. 16. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik-
ar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór
Seljakirkju leiða söng, organisti er
Tómas Guðni Eggertsson. Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðs-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, org-
anisti er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Prestur er Sigurður Grét-
ar Helgason.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur annast prestsþjónustuna,
organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa kl. 14.
Sr. Axel Árnason Njarðvík þjónar fyrir
altari og prédikar. Ester Ólafsdóttir
organisti leiðir safnaðarsöng. Með-
hálpari er Valgeir Fridolf Backman.
STOKKSEYRARKIRKJA | Bent er á
messu í Eyrarbakkakirkju.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Messa kl. 20.
Söngur, hugvekja og bænastund.
Fermingarbörn og foreldrar sér-
staklega boðuð til messunnar. Prest-
ur er sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa |
Hátíðarmessa kl. 13.30. 100 ára af-
mælis kirkjunnar minnst. Vígslubisk-
upinn í Skálholti, sr. Kristján Valur
Ingólfsson, prédikar og prestar kirkj-
unnar þjóna fyrir altari. Söngkór
Hraungerðis- og Villingaholtskirkna
syngur undir stjórn Inga Heiðmars
Jónssonar og Hermundur Guð-
steinsson syngur einsöng. Hátíð-
arsamsæti í umsjón kvenfélags-
kvenna verður í Þjórsárveri eftir
messu.
ÞINGVALLAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Gunnþór Ingason prédikar
og þjónar fyrir altari, organisti er Guð-
mundur Vilhjálmsson.
Orð dagsins:
Hinn daufi og
málhalti.
(Mark. 7)
Villingaholtskirkja í Flóa.
Mikið varstu góð systir Gréta
mín. Þú varst tíu árum eldri en ég
og fimm árum eldri en Haukur
bróðir okkar. Ég man eftir að þú
sagðir einu sinni hlæjandi við mig
að það hefði verið auðvelt fyrir
þig að passa Hauk þegar hann
var lítill, bara láta hann hafa
nokkra fallega steina meðan þú
fórst frá og hann var á sama stað
þegar þú komst aftur. Annað var
upp á teningnum þegar Haukur
passaði mig, alltaf hlaupandi í
burtu og ég finn hann ekki, sagði
hann mæðulega.
Þegar við fluttum frá Flateyri
til Raufarhafnar varst þú 14 ára
og fórst fljótlega að fara að heim-
an, tvo vetur á Laugarvatni og
svo í Kvennaskólann á Blönduósi
og síðan fórstu að læra hjúkrun,
þannig að þú varst lítið á Rauf-
arhöfn. Flateyri var þinn staður,
þú áttir góðar minningar þaðan
og þar áttirðu þessa frábæru vin-
konu hana Stellu, þið hélduð allt-
af góðu sambandi alla tíð.
Mér er það minnisstætt hvað
mamma var ánægð þegar þú
varst nemi í hjúkrun, hvað þú
fékkst margar gjafir þegar sjúk-
lingar voru að útskrifast. Þetta
var á þeim árum sem fólk þurfti
að standa í biðröð í marga
klukkutíma til að ná í eina skó
Gréta mín, þú varst svona góð
hjúkrunarkona að því að þú gafst
svo mikið af þér og umönnun var
þér í blóð borin, þú hafðir þennan
yndislega húmor að geta gert
Guðný Margrét
Magnúsdóttir
✝ Guðný Margrétfæddist á Flat-
eyri við Önundar-
fjörð 27. desember
1928. Hún lést á lyf-
lækningadeild FSA
1. ágúst 2012.
Útför Guðnýjar
Margrétar fór fram
í kyrrþey 14. ágúst
2012.
hversdagslega hluti
skemmtilega þegar
þú sagðir frá þeim.
Þannig að allir
höfðu gaman af.
Mikið var alltaf
vel tekið á móti mér
á heimili ykkar Val-
garðs þegar ég
strákpjakkur var að
koma til ykkar,
þessi ljúffengi mat-
ur hjá þér, sama
hvað var á borðum, hvergi hef
fengið betri smákökur eða tertur
og hafa dætur þínar erft það frá
þér.
Þú varst gæufsöm að eiga
þennan frábæra eiginmann og
góða kennara sem fór allt of
snemma, aðeins 53 ára að aldri.
Blessuð sé minning hans. Ég
minnist þess þegar ég handleggs-
brotnaði í göngum á Bjarmalandi
í Axarfirði, hvað þú varst rögg-
söm og ákveðin hvernig standa
ætti að verki, sem kom sér vel.
Þú fórst í erfiða hjartaaðgerð
og sagðir að henni lokinni að þú
færir ekki aftur í svona aðgerð
heldur myndirðu taka því sem að
höndum bæri og við það stóðstu.
Elsku systir, það er gott að
hafa átt þig að í gegnum árin.
Þótt langt hafi verið á milli okkar,
ég í Vestmannaeyjum og þú á Ak-
ureyri, þá fannst mér þú ein-
hvern veginn svo nálæg alltaf,
svo artarleg og dugleg að hafa
samband.
Þakka þér fyrir allt og allt.
Því að hvað er það að deyja annað en
að standa nakinn í blænum og hverfa
inn í sólskinið?
Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá
fyrst munt þú hefja fjallgönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns
muntu dansa í fyrsta sinn.
(Kahlil Gibran)
Þinn bróðir,
Björgvin Magnússon.
Amma Hjördís var yndisleg
kona með einstaka skapgerð, já-
kvæð, ljúf og góð og reyndi alltaf
að sjá það besta í fari annarra.
Ég er fyrsta barnabarn ömmu og
afa og var mikið hjá þeim sem
barn. Amma var alltaf með eitt-
hvað gott að borða og þá var
hryggurinn í hádeginu á sunnu-
dögum í sérstöku uppáhaldi hjá
mér. Amma bakaði mikið og átti
alltaf nokkrar sortir til, enda
stöðugur gestagangur í Skipholt-
inu. Stundum fékk ég að hjálpa til
við baksturinn eða búa til kara-
mellur hjá ömmu.
Á kvöldin sagði amma mér oft
sögur frá því hún var barn og
sögur af álfum og huldufólki. Við
fórum alltaf með bænirnar á
kvöldin og kenndi amma mér
margar af þeim bænum sem ég
kann í dag. Amma Hjördís var
svo hlý og góð og ömmuleg. Hún
vann á leikskólanum Nóaborg
þar til hún komst á eftirlaunaald-
ur og kölluðu börnin hana alltaf
ömmu. Þegar ég var unglingur
tók ég stundum vinkonur mínar
með í Skipholtið í heimsókn og þá
Hjördís
Jóhannsdóttir
✝ Hjördís M. Jóhannsdóttir
fæddist í Hafnar-
firði 16. ágúst 1934.
Hún lést 10. ágúst
sl. Jarðarför Hjör-
dísar Magdalenu
fór fram frá Há-
teigskirkju 24.
ágúst 2012.
stjanaði amma við
okkur og fyllti borð-
ið af kræsingum.
Ein vinkvenna
minna spurði mig
hvort hún mætti fá
ömmu Hjördísi lán-
aða þegar hún átti
að skrifa verkefni
um ömmu sína í
ensku. Hún sagði að
amma Hjördís væri
eins og amma úr
teiknimynd eða ævintýrum, lítil,
dúlluleg með gráar krullur og í
plísereðu pilsi, alltaf bakandi og
brosandi. Þegar ég sagði ömmu
frá því þá varð hún hissa og hló
bara og sagði að það væri nú
sjálfsagt. Amma tók vel á móti
öllum og lét fólk finna að það var
velkomið. Ég er þakklát fyrir all-
ar stundirnar sem við amma átt-
um saman.
Hún minnti á kvæði og kossa
og kvöldin björt og löng
og hvíta, fleyga fugla
og fjaðraþyt og söng.
Og svipur hennar sýndi,
hvað sál hennar var góð.
Það hló af ást og æsku,
hið unga villiblóð.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor,
því hún var mild og máttug
og minnti á – jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson.)
Megi Guð blessa minningu
góðrar konu.
Dís Gylfadóttir.