Morgunblaðið - 25.08.2012, Síða 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er góður tími til að koma
skipulagi á líf þitt. Mundu að þú ert að taka
mikilvægt skref inn í framtíðina. Slappaðu
af og gleymdu ekki kímnigáfunni þótt ým-
islegt beri út af.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu opinn gagnvart tillögum sam-
starfsmanna þinna og leyfðu þeim að velta
upp sem flestum flötum þeim til stuðnings.
Hættu að bíða eftir því að aðrir taki fyrsta
skrefið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú pælir sjaldan í hvers vegna lífið
leiki við þig, en gerðu það núna. Mál sem
tengjast ferðalögum, framhaldsmenntun og
lögfræði ættu að ganga vel á þessu ári.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Kannski uppgötvar þú nýja tekjulind
eða kaupir eitthvað sem þig hefur langað í
lengi. Vertu útsjónarsamur og berðu saman
verð og gæði því þá geturðu gert góð kaup.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinur þinn er ósammála þér í einhverju
sem tengist sameiginlegum eigum. Þér
tekst að koma umbótum til leiðar í
vinnunni, þú sérð hvernig hlutirnir mega
betur fara.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinir og kunningjar eru alls staðar
þar sem þú ert og fara þangað sem þú leiðir
þá. Kúrðu með ástvini þínum og hjalaðu
krúttlega í eyra viðkomandi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert klár og sérð hlutina í í ljósi
heimsborgarans. Verkefni sem krefjast ein-
beitingar og úthalds liggja vel fyrir þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ein frumleg hugmynd getur
kollvarpað öllu, ekki síst peningamálunum.
Láttu það ekki vaxa þér í augum því þú ert
ágætlega fær um að leysa það af hendi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú nýtur mikilla vinsælda og því
tekur félagslífið óvenjumikinn tíma. Fólk er
með þrjósksta móti og því munu sennilega
öll samskipti reyna á.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft bara að nefna það að þú
eigir í vanda og sérfræðingar í honum
skjóta upp kollinum. Góður undirbúningur
tryggir farsæla framkvæmd.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú getur lært eitthvað mikilvægt
af einhverjum í kringum þig í dag, t.d. get-
um við lært margt af unga fólkinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er affarasælast að vita gjörla
með hverjum maður deilir sínum innstu
skoðunum. Meira er ekki hægt að biðja ykk-
ur um og aðrir verða að sjá um aðra hluti.
Karlinn á Laugaveginum hafðiekki langan formála, þegar ég
hitti hann í Bakarabrekkunni fyrir
ofan stjórnarráðið heldur sagði:
„Nú halda þau flokksráðsfundi um
helgina bæði tvö, Jóhanna og Stein-
grímur, og auðvitað tala þau ekki
um það sem máli skiptir atvinnu-
leysið og sveltið í heilbrigðiskerf-
inu, – hallelúja!“ Og svo saug hann
upp í nefið.
Stjórnarfarið versnar og versnar
var það bölvað þó
Menn eru löngum lamdir og barðir
í lífsins ólgu sjó.
Valdhafana varðar ekki
um verkamannsins kjör
ég sé þá stinga saman nefjum
með sigurbros á vör.
Nú reikum við um rústir einar
þar sem rauður loginn brann
- en alltaf er nóg af allsnægtunum
í Edens fínum rann.
Eftir langan, vondan vetur
mun vorið koma á ný
upp rís sól og aftur sumar
og enginn fær gert við því!
Guðmundur Arnfinnsson sendi
mér þrjár limrur sem hann leyfði
mér að birta með þessari athuga-
semd „p.s. vaknaði illa í
morgunsárið“:
Ævi manns endar skjótt
og er sem „leiftur um nótt“,
en maður hjarir,
meðan það varir.
Mér er samt ekki rótt.
En þessar eru limrurnar þrjár:
Einn skáldjöfur skondinn ég þekki,
sem skreytt hefur þingsins bekki,
ég veit upp á hár
að Blöndal er blár
en blár er hann vafalaust ekki.
Er hann um Laugaveg lallar
og léttur í bragði spjallar
við Pétur og Pál,
þá er pottþétt mál,
að undir flatt Halldór hallar.
Blöndal er brattur og glaður
og blæs við á göngu hraður,
hann er blendinn í bland
og býsna grand,
en Halldór er hæglætismaður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Og enginn fær gert við því
Víkverji dagsins ákvað að bregða
sér í Krikann á fimmtudagskvöld til
að fylgjast með viðureign FH og KR
í Íslandsmeistaramótinu í fótbolta.
FH-ingar hafa farið á kostum í und-
anförnum leikjum og sallað inn
mörkum, en KR-ingar hafa verið
öllu brokkgengari og ekki spilað vel,
þótt ekki sé hægt að kvarta undan
því að nú þegar er bikar kominn í
hús og liðið í baráttu um Íslands-
meistaratitil. Hann mætti nokkrum
mínútum of seint á völlinn og ákvað
að lauma sér hljóðlega í stúku gest-
anna úr Vesturbænum. Við eitt hlið-
ið upp í stúkuna sá hann skilti, sem á
var letrað aðkomufólk og taldi víst
að þar ætti hann heima. Brá þá ekki
betur við en að hann kom beint inn
harðasta kjarna stuðningsmanna
FH. Víkverji fipaðist lítið eitt við
þetta, en ákvað að fá sér sæti meðal
stuðningsmanna andstæðinganna,
þótt í honum væri beygur um að það
gæti orðið óskemmtilegt færu FH-
ingar á flug.
x x x
En það var öðru nær. Liðsmenn
FH voru heillum horfnir á meðan
leikmenn KR léku á alls oddi og
sigruðu sanngjarnt. Þessi reynsla
varð Víkverja eftirminnileg fyrir
ýmsar sakir. Víkverji er vanur því á
KR-leikjum að vera innan um KR-
inga, sem iðulega hafa hátt þegar
dómari dæmir brot á KR eða lætur
hjá líða að dæma á andstæðinga KR.
Þá er að lágmarki farið fram á gult
spjald, yfirleitt rautt og formælingar
í garð dómarans látnar fylgja og
finnst Víkverja þeir, sem setja fram
slíkar kröfur yfirleitt hafa nokkuð til
síns máls. Nú upplifði Víkverji hróp
og köll vegna atvika á vellinum, sem
hann sá nákvæmlega ekkert at-
hugavert við með sínu óskeikula
auga og velti því iðulega fyrir sér
hvort stuðningsmenn FH væru að
horfa á sama leik og hann.
x x x
Í seinni hálfleik færði Víkverji sig
til í stúkunni og komst að því að þar
sat fólk, sem hafði mun meira vit á
dómgæslu. Hann kann hins vegar
enga skýringu á þessum mun, hvort
hann er erfðafræðilegur eða sál-
rænn, en hann er vissulega rann-
sóknarefni. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Móðir mín og bræður
eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta
eftir því. (Lúk. 8,21).
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
il
e
g
i
Fe
rd
in
a
n
d
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
ÁSTIN ... ER
HVERFUL.
GR
ET
TI
R
FÉKKSTU 7 Í
SÖGU? ÞAÐ
ER BARA Í
MEÐALLAGI!
HVAÐ MEÐ ÞAÐ? ÉG ER
MEÐALNEMANDI Í MEÐAL-
SKÓLA Í MEÐALBÆ.
HVAÐ ER AÐ
ÞVÍ AÐ VERA Í
MEÐALLAGI?
ÞÚ GÆTIR
GERT MIKLU
BETUR EF ÞÚ
REYNDIR!
ÞETTA SVAR VAR Í MEÐALLAGI.
KASTALAR ERU BARA
EKKI BYGGÐIR LENGUR
EINS OG ÁÐUR FYRR!
ÉG TRÚI ÞVÍ VARLA AÐ
GRÍMUR HAFI FYLLT
TALBLÖÐRUNA SÍNA MEÐ
HELÍUMI OG AÐ HÚN
FLJÚGI NÚ UM Í
TEIKNIMYNDAHEIMI.
HVAÐ ÆTLI
GRÍMUR SÉ AÐ
REYNA AÐ SEGJA
OKKUR?
ÉG
PISSAÐI
Á STOFU-
GÓLFIÐ.
GJÖRIÐ
SVO VEL!HÁDEGISMATUR
TIL FYRIRTÆKJA
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu
heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari
og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta
matreiðslukeppni heims.