Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 11

Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 11
Morgunblaðið/Ómar Vinkonur Hér stendur Helena við eina af risastóru portrettmyndunum sem hún teiknaði og eru í Galleríi Tukt. listamenn eru í fjölskyldu hennar. Þó listræna taugin sé til staðar, þá skiptir líka máli að alast upp með listafólki. „Bróðir minn, Haukur Hannes, er tónlistarmaður, afi minn var útskurðarmeistari og mamma mín er myndlistarkennari. Mamma hefur því alltaf sýnt þessari þörf minni til að teikna mikinn skilning og hún hefur líka hjálpað mér,“ seg- ir Helena sem veit nákvæmlega hvað hún ætlar að leggja fyrir sig í framtíðinni: Myndlist. „Ég er stað- ráðin í að fara í myndlistarnám, hvort sem það verður hér heima eða í útlöndum. Vonandi get ég lifað af listinni í framtíðinni, það er draum- urinn.“ Ég gefst aldrei upp Helena er á þriðja ári á mynd- listarbraut í Fjölbrautaskóla Garða- bæjar og hún hefur farið á eitt nám- skeið. „En fyrst og fremst hef ég æft mig frá því ég man eftir mér. Og ég hef aldrei gefist upp. Þó svo að eitthvað sé skakkt eða mistakist, þá held ég bara áfram og reyni aftur,“ segir Helena sem hélt sína fyrstu einkasýningu á kaffihúsinu Energia í Smáralind í fyrra þegar hún var 17 ára. „Þá teiknaði ég myndir af ís- lenskum leikurum og ein þeirra var stór eins og þessar, hún var af Ingv- ari Sigurðssyni. Ég skrifaði undir allar myndirnar að þetta væri ekki viðkomandi manneskja, af því mað- ur veit aldrei hvort leikari er í hlut- verki eða hvort hann er hann sjálf- ur. “ Helena var í öðru sæti í myndlistarmaraþoni Unglistar í vet- ur og þá áttu þátttakendur að vinna út frá fyrirbærinu kynvera. „Ég teiknaði mynd af vinkonu minni og breytti henni í Medúsu.“ Helenu finnst gaman að fara á myndlistarsýningar og sjá hvað aðr- ir eru að gera og nýlega fór hún á yfirlitssýningu Errós. „Í framtíðinni ætla ég til Parísar og skoða Louvre safnið.“ Stór Þessi mynd er rúmir tveir metrar á hæð og tæpir tveir á breidd. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012 Ótrúlegt úrval af gluggatjaldaefnum, þykk, þunn, kappar og allt þar á milli. Við lánum þér gardínulengjur heim til að auðvelda valið. GLUGGATJÖLD Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18 Ef þú staðg reiðir sendum vi ð frítt hvert á lan d sem er Lífið tekur af og til óvæntarbeygjur. Dýfurnar ogstökkin eru óhjákvæmi-lega hluti af hversdegi okkar allra. Þau eru jafnframt kannski það sem gerir lífið jafn fal- legt og raun ber vitni. Reynslan mót- ar okkur, sorgir og gleði sverfa okkur til og gera hverja manneskju að ein- stakri heild. Hver á sína sögu með öll- um sínum hæðum og dölum. Til allrar hamingju þræðum við ekki lífið ein- sömul. Stærsta gæfan í lífinu er að mínu mati að eiga fjölskyldu og vini sem þræða veginn með manni. Að til séu manneskjur sem deila með manni gleðinni og styðja mann þegar eitt- hvað bjátar á. Vitni að öllum smáu sigrunum og skakkaföllunum. Mínar fallegustu minningar eru allar bundn- ar við manneskjur sem mér þykir vænt um, enda verður öll reynsla verðmætari ef henni er deilt með manneskju sem á stað í hjarta manns. Að mínu mati er tímanum skyn- samlega varið í að rækta vináttuna. „Við veljum okkur kannski ekki fjöl- skyldu, en við veljum okkur vini. Þeir verða svo smám saman að okkar eigin, útvöldu fjölskyldu,“ sagði besta vinkona mín einhverju sinni þegar við sátum á eldhús- gólfinu hennar eftir strembinn dag í grunnskóla, drukkum Ri- bena og ræddum lífið og til- veruna. Hún er snjöll, þessi vin- kona mín, og þetta var hvorki í fyrsta né síðasta skiptið sem gullkorn hraut af hennar vörum. Það er nefnilega mikill sann- leikur í þessu, við er- um öll svo heppin að eignast aðra fjölskyldu í vinum okkar. Fjöl- skyldu sem við veljum okkur og samanstendur af þeim ein- staklingum sem við kjósum að rækta samböndin við og gefa hlutdeild í lífi okkar. Og eiga hlut í þeirra. Því meira sem ég hugsa um þetta, því vissari verð ég um að þetta sé eitt af því fáa sem einhver vitglóra er í. Í vináttu víkur frumstæð hvötin til að gæta eigin hagsmuna, eðlislæg eigingirnin er víðs fjarri og harkan og vægð- arleysið sem oft virðist sterkasta aflið í heiminum fær að fjúka út um gluggann. Ég er svo þakklát fyrir heimsins bestu vini. Ég veit að engin sorg er svo þungbær að faðmlag frá góðri vinkonu geti ekki slegið á hana. Þegar kökkurinn í hálsinum er of stór til að tala grípa vinirnir orðið, þegar svefnlausu næturnar eru orðnar of margar er fórnfús vinur til í að lesa lífsreynslusögur í gegn- um símann þangað til maður festir svefn. Þegar einsemd- in virðist aldrei ætla að víkja bankar einhver upp á með Vesturbæjarís og súkkulaðisósu. Þegar þögnin er ærandi er yndisleg vinkona reiðubúin að fylla upp í hana með fallegum, huggandi orðum. Vin- áttan er það dýrmæt- asta sem við eigum, ræktum hana og hlúum að henni. »Því meira sem éghugsa um það, því vissari verð ég um að þetta sé eitt af því fáa sem einhver vitglóra er í. Heimur Guðrúnar Sóleyjar Guðrún Sóley Gestsdóttir Málþing ReykjavíkurAkademíunnar verður haldið á morgun, laugardag- inn 22. september, en þingið ber yfir- skriftina Hugmyndir 21. aldarinnar – Iðkun kyns og þjóðar. Þar munu þau Gyða Margrét Pét- ursdóttir, Helga Þórey Björnsdóttir, Kristinn Schram og Ólafur Rastrick kynna rannsóknir sínar, ræða kenn- ingalegar undistöður og aðferða- fræðilega nálgun. Titlar fyrir- lestranna eru eftirfarandi: Ólafur Rastrick: „Íslensk menning: Pæl- ingar, pólitík og praktík“, Helga Þór- ey: „Hervæðing kyns og rýmis“, Kristinn Schram: „Norðurhyggja: nálganir á þverþjóðlega iðkun og framandgervingu norðursins“, Gyða Margrét Pétursdóttir: „Krítísk karl- mennska og kvenska“. Málþingið stendur frá kl. 11-14.30 og fer fram í sal ReykjavíkurAkademíunnar í JL- húsinu, Hringbraut 121. Umræðu- stjóri verður Jón Ólafsson. Skráning fer fram á www.akademia.is. Málþing ReykjavíkurAkademíunnar Menning og karlmennska Morgunblaðið/ÞÖK Málþing ReykjavíkurAkademían. Þegar kólna tekur í veðri verður húðin þurrari og margir fá mikinn varaþurrk. Draga má úr ýmsum slíkum óþægindum með því sem maður borðar. Ef þú ert með mik- inn og viðvarandi varaþurrk er mælt með að vera dugleg/ur við að borða jógúrt og hafra. Varaþurrk- urinn getur nefnilega stafað af B- vítamínskorti en B-vítamín hjálpar meðal annars til við að næra húðina og halda henni heilbrigðri. Matur sem ríkur er af B-vítamíni líkt og jógúrt og hafrar eru því tilvalinn. Í slíkri samsetningu er líka talsvert af sinki sem auðveldar vörunum að jafna sig fyrr ef þær eru mjög sprungnar og þurrar. Jógúrt og hafrar passa líka vel saman og er tilvalið að setja líka ávexti út í. Fleiri slík góð ráð um mataræði fyrir útlitið má finna á vefsíðunni ivillage.co.uk. Jógúrt og hafrar til bjargar Hvimleiður varaþurrkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.