Morgunblaðið - 21.09.2012, Síða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
VINSÆLASTA RJÓMATERTAN Í 45 ÁR
fæst hjá
Reyni Bakara
Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000
husgogn.is
Heill heimur
af ævintýrum
Ekki er útilokað að Gildi lífeyris-
sjóður, sem hefur ákveðið að nýta
sér ákvæði í gjaldþrotalögum til að
leita til héraðsdóms um að fá sund-
urliðaðar upplýsingar frá Slita-
stjórn Glitnis um greiðslur til
starfsmanna slitastjórnarinnar,
muni gera slíkt hið sama gegn slita-
stjórn Kaupþings. „Við ákváðum að
láta reyna á eitt mál og við sjáum
hvernig það gengur og metum í
framhaldinu hvort við krefjum aðra
um sömu upplýsingar,“ sagði Árni
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
sjóðsins, í samtali við mbl.is.
Viðskiptablaðið greindi frá því í
gær að bæði lögfræðingum Gildis
og Lífeyrissjóðs verslunarmanna
hefði verið falið að fara með málið
fyrir dómstóla.
Að sögn Árna er dómstólaleiðin
nú valin þar sem kröfum lífeyr-
issjóðanna hefði hingað til verið fá-
lega mætt, bæði eftir skriflegar
fyrirspurnir og á kröfuhafafund-
um.
Hann segir að ekki séu uppi
grunsemdir um óeðlilegar
greiðslur, en hins vegar telji lífeyr-
issjóðirnir, sem kröfuhafar, eðlilegt
að þessar upplýsingar liggi fyrir.
„Þeir hafa svarað almennt um
heildarkostnað og með tilvísun um
að þetta þyki ekki óeðlilegt miðað
við það sem gerist erlendis. En við
höfum ekki fengið sundurliðaðar
upplýsingar um einstaklinga og að-
ila á þeirra vegum og það er það
sem við erum að óska eftir.“
thorsteinn@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Dómsmál Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Tveir
lífeyrissjóðir vilja upplýsingar um greiðslur til starfsmanna búsins.
Lífeyrissjóðir
krefjast upplýsinga
Vilja vita um greiðslur til slitastjórnar
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga