Morgunblaðið - 21.09.2012, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kaupmenn, verslunarmenn og
stuðningsmenn þeirra lokuðu járn-
brautum og verslanamiðstöðvum
víða á Indlandi í gær til að mótmæla
áformum stjórnarinnar um að heim-
ila erlendum verslanakeðjum á borð
við Wal-Mart og Tesco að kaupa allt
að 51% hlut í stórmörkuðum.
Stjórnarandstöðuflokkar og
verkalýðssamtök efndu til sólar-
hrings verkfalls vegna áforma
stjórnarinnar sem segir að markmið-
ið með þeim sé að blása lífi í efnahag
landsins. Meirihluti verslana, verk-
smiðja, skóla og skrifstofa var lok-
aður í Kalkútta, Bangalore, Chennie
og fleiri borgum vegna verkfallsins.
Það hafði hins vegar minni áhrif á
starfsemi verslana og fyrirtækja í
Nýju-Delhí og Mumbai.
Segja neytendur og
bændur hagnast
Verkfallsmennirnir óttast að
innreið erlendra stórfyrirtækja í ind-
verska smásölumarkaðinn verði m.a.
til þess að margar indverskar versl-
anir leggi upp laupana, auk þess sem
margir starfsmenn smáfyrirtækja,
sem sjá þeim fyrir vörum, missi vinn-
una. Stjórnin segir hins vegar að
breytingarnar verði til þess að verð
lækki og vörugæði og -úrval aukist.
Sérfræðingar segja að um þriðj-
ungur grænmetis og ávaxta, sem
þola illa geymslu, skemmist á Ind-
landi vegna skorts á kælum. Stuðn-
ingsmenn áformanna segja líklegt að
erlendu fyrirtækin fjárfesti alls um
8-10 milljarða dollara, eða um 1.000
til 1.200 milljarða króna, á næstu
fimm árum í flutningatækjum, kæl-
um og öðrum búnaði til að bæta þjón-
ustuna. Það verði til þess að minna af
matvælum fari til spillis, auk þess
sem verslanakeðjurnar geti losað sig
við dýra milliliði og greitt bændum
hærra verð fyrir afurðirnar.
AFP
Lestir stöðvaðar Verkfallsmenn standa fyrir framan járnbrautarlest í borginni Allahabad til að mótmæla áform-
um stjórnarinnar á Indlandi um að heimila erlendum verslanakeðjum að reka stórverslanir í landinu.
Mótmæla innreið er-
lendra verslanakeðja
Stjórnin á Indlandi heimilar erlendum stórfyrirtækjum að
kaupa meirihluta í stórmörkuðum til að blása lífi í efnahaginn
Áætlað er að viðgerðir og breyt-
ingar sem hafnar hafa verið á höfuð-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í New
York kosti rúma tvo milljarða doll-
ara, eða sem svarar u.þ.b. 250 millj-
örðum króna.
Arkitektinn Michael Adlerstein,
sem stjórnar verkefninu, segir að
áætlað sé að viðgerðarkostnaðurinn
verði 4% hærri en upphaflega var
gert ráð fyrir.
Um 3.000 starfsmenn höfuðstöðv-
anna vinna nú í bráðabirgðahúsnæði
á Manhattan en 2.000 starfa enn í
höfuðstöðvunum, þ. á m. fram-
kvæmdastjóri samtakanna.
Hafnar hafa verið viðgerðir á höfuðstöðvum SÞ og
breytingar sem eiga að gera þær umhverfisvænni
Höfuðstöðvarnar gerðar upp
Asbest fjarlægt: Nóg til að
fylla 5 m djúpt svæði sem
er 110 x 50 m að stærð
Orkunotkun
minnkar um
helming
Losun koltvísýrings
minnkar um 45%
Vatnsnotkun
minnkar um
tvo þriðju
Nýtt loftræsti- og
hitakerfi
Nýir gluggar með
lituðu gleri
Útlit byggingarinnar
frá 1952 helst óbreytt
110 m
5 m
50
m
4 km
New York
MANHATTAN
Hu
ds
on
á
Central
Park
SÞ
Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna árið 1964
Gerðar upp fyrir 250 milljarða króna
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
www.falkinn.is