Morgunblaðið - 21.09.2012, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2012
Maðurinn má sín lítilsgagnvart náttúruöfl-unum. Það vita íslensk-ir sjómenn sem barist
hafa við Ægi í aldanna rás og margir
lotið í lægra haldi fyrir honum, end-
að í votri gröf. Kvikmyndin Djúpið
er tileinkuð íslenska sjómanninum
og er byggð á sannsögulegum at-
burði, sjóslysi sem varð við Vest-
mannaeyjar árið 1984, þegar Hellis-
ey VE 503 var við togveiðar um 5 km
austur af Stórhöfða og festi trollið
með þeim afleiðingum að báturinn
sökk. Fjórir skipverjar létust en
einn lifði af með undraverðum hætti.
Það var stýrimaðurinn Guðlaugur
Friðþórsson, eins og frægt er orðið,
en hann synti í land og gekk svo yfir
úfið hraun til byggða. Guðlaugur var
í marga klukkutíma í sjónum sem
var nánast við frostmark. Þetta
magnaða þrekvirki var mönnum
mikil ráðgáta og var jafnvel talað um
kraftaverk.
Dr. Jóhann Axelsson, lífeðlisfræð-
ingur og prófessor við Háskóla Ís-
lands, gerði rannsókn á Guðlaugi ár-
ið 1985 og einnig var gerð rannsókn
við lífeðlisfræðideild Læknaskóla
Lundúnaspítala. Var það niðurstaða
Jóhanns að afrek Guðlaugs skýrðist
ekki eingöngu af líkamlegu atgervi
hans heldur einnig andlegu.
Í Djúpinu er byggt á þessum at-
burði en myndin fjallar ekki síður
um þann mikla missi sem fjölskyldur
þeirra sem fórust urðu fyrir og sekt-
arkennd þess sem lifði af. Hér er því
bæði sögð saga af einstöku afreki,
sigri andans, sorg og þjáningu. Balt-
asar fer hvergi yfir strikið í þeirri
frásögn, myndin er raunsæ og laus
við tilfinningasemi og hann nálgast
efnið af varfærni og umhyggju.
Áhorfandinn finnur fyrir nístandi
kuldanum úti á hafi og smæð manns-
ins í sjónum, ekki síst í einni tökunni
þar sem myndavélin fjarlægist Ólaf
Darra Ólafsson sem fer með hlut-
verk Gunnlaugs, aðalpersónu mynd-
arinnar, þar sem hann er á sundi og
verður á endanum aðeins örsmár
punktur í kolsvörtu hafinu.
Atriðin sem gerast í sjónum, allt
frá því að skipið sekkur þar til Gunn-
laugur kemst að landi, eru hreint út
sagt mögnuð. Baltasar vildi hafa þau
sem raunverulegust og því var ekki
annað í stöðunni en að sökkva báti
og láta Ólaf Darra glíma við hafið.
Það skilar sér svo sannarlega og
ljóst að mikið var á leikarann lagt,
ekki síst þegar tekið var í fjöru og
öldurnar börðu miskunnarlaust á
honum.
Ólafur Darri túlkar Gunnlaug með
eftirminnilegum hætti, leikur hans
er trúverðugur og þá ekki síst í
seinni hluta myndarinnar þegar
Gunnlaugur þarf að takast á við
sorgina, samviskubit hins eftirlif-
andi og að vera orðinn fjölmiðla-
matur. Enginn virðist hafa áhyggjur
af andlegri líðan hans, öll athygli
beinist að þrekrauninni. Eitt atriði í
seinni hluta myndarinnar er öðrum
sterkara, þegar Gunnlaugur heim-
sækir Höllu, ekkju eins þeirra er
fórust í slysinu og hughreystir börn
þeirra. Margir komust þá við í bíó-
sal. Aðrir leikarar í myndinni, líkt og
Ólafur Darri, skila sínu vel og má
þar nefna sérstaklega Þorbjörgu
Helgu Þorgilsdóttur í hlutverki
Höllu.
Inn í frásögnina fléttast svo minn-
ingar Gunnlaugs frá eldgosinu í
Heimaey, líkt og áminning til áhorf-
andans um hvað hafi mótað Eyja-
menn og þá baráttu sem þjóðin hef-
ur háð í aldanna rás við náttúruöflin.
Er þar notast bæði við raunveruleg-
ar myndir frá gosinu sem og leikið
efni með góðum árangri.
Kvikmyndatakan er svo kafli út af
fyrir sig, hún er feikilega góð. Atrið-
ið þegar báturinn sekkur er hroll-
vekjandi enda var honum raunveru-
lega sökkt. Sjórinn æðir inn í hann
með sínum ógnarkrafti og áhorf-
endur standa á öndinni. Tökurnar af
Ólafi Darra á sundi kröfðust þess að
leikstjórinn synti með honum og sú
nákvæmni Baltasars skilar sér,
áhorfandinn er með Gunnlaugi í
sjónum í stað þess að fylgjast með úr
fjarlægð sem hefur mikið að segja.
Ef einhverja galla skal finna á
myndinni þá er það helst óskýrt talið
í upphafi hennar, erfitt reyndist að
skilja leikarana í fyrstu og myndin
missir eilítið dampinn þegar á líður,
þegar Gunnlaugur tekst á við lífið
eftir sjóslysið.
Niðurstaðan er engu að síður sú
að hér er afar áhrifamikið og heil-
steypt verk á ferðinni, unnið af
ástríðu og nákvæmni. Eða eins og
kollegi undirritaðs sagði, degi eftir
hátíðarfrumsýningu á myndinni:
„Það er varla hægt að gera betur.“
Það eru orð að sönnu. Með þennan
efnivið er það varla hægt.
Lífsbarátta Ólafur Darri í hlutverki Gunnlaugs í Djúpinu. Í þessu tiltekna atriði hefur Gunnlaugur brotið íshellu í
baðkari á víðavangi og svalað þorsta sínum, að loknu margra klukkustunda sundi í ísköldum sjó.
Varla hægt að gera betur
Smárabíó, Háskólabíó, Laug-
arásbíó og Borgarbíó
Djúpið bbbbm
Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Handrit:
Baltasar Kormákur og Jón Atli Jónas-
son. Leikarar: Ólafur Darri Ólafsson, Jó-
hann G. Jóhannsson, Stefán Hallur
Stefánsson, Björn Thors, Þröstur Leó
Gunnarsson, Walter Geir Grímsson, Þor-
björg Halla Þorgilsdóttir, Theodór Júl-
íusson, María Sigurðardóttir og Guðjón
Pedersen. Ísland, 2012. 90 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Auk kvikmyndarinnar Djúpið (sjá
gagnrýni fyrir ofan) verða tvær
kvikmyndir frumsýndar í dag í
kvikmyndahúsum landsins.
Lawless
Sögusvið myndarinnar er Banda-
ríkin á bannárunum. Segir af þrem-
ur bræðum sem stunda ólöglegt
brugg og þurfa að kljást við spilltan
lögreglumann sem vill fá hluta af
gróðanum og harðsvíraða keppi-
nauta. Leikstjóri myndarinnar er
John Hillcoat og í aðalhlutverkum
Tom Hardy, Shia LaBeouf, Guy Pe-
arce, Jason Clarke, Gary Oldman,
Jessica Chastain, Dane DeHaan og
Mia Wasikowska.
Metacritic: 58/100
Rotten Tomatoes: 65%
Dredd 3D
Teiknimyndapersónan Judge
Dredd snýr aftur en hún var túlkuð
af Sylvester Stallone í kvikmynd
frá árinu 1995. Í þrívíddarmyndinni
Dredd 3D segir af Bandaríkjum
framtíðarinnar sem eru rústir einar
eftir kjarnorkuhamfarir. Sögusvið-
ið er borgin Mega City One en í
henni ráða glæpamenn ríkjum sem
svífast einskis. Hinir sk. dómarar
eiga að stemma stigu við óöldinni,
eins konar lögreglusveit á vegum
yfirvalda. Sá harðskeyttasti í röð-
um dómara er Dredd og er honum
falið að ganga milli bols og höfuðs á
þeim er dreifa eiturlyfinu Slo-Mo.
Leikstjóri myndarinnar er Pete
Travis og í aðalhlutverkum Karl
Urban, Lena Headey og Olivia
Thirlby.
Metacritic: 66/100
Rotten Tomatoes: 85%
Bíófrumsýningar
Glæpir í fortíð og framtíð
Lögleysa Úr kvikmyndinni Dredd
3D sem verður frumsýnd í dag.
Fyrstu tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins starfsárið 2012-2013
verða haldnir í Norðurljósasal
Hörpu nk. sunnudag kl. 19.30. Á
efnisskránni eru Kvintett í es-moll
op. 87 eftir J. N. Hummel, Svíta fyr-
ir fiðlu og kontrabassa eftir R.
Glière og Kvintett í c-moll eftir R.
Vaughan-Williams. Flytjendur eru
Greta Guðnadóttir á fiðlu, Guðrún
Þórarinsdóttir á víólu, Margrét
Árnadóttir á selló, Þórir Jóhanns-
son á kontrabassa og Ingunn Hildur
Hauksdóttir á píanó.
Kammermúsíkklúbburinn hélt
sína fyrstu tónleika árið 1957 og
hefur árlega boðið upp á fimm tón-
leika. Síðustu tvo áratugi hafa tón-
leikarnir verið haldnir í Bústaða-
kirkju, en í fyrsta sinn í vetur verða
allir tónleikar Kammermúsík-
klúbbsins haldnir í Hörpu.
Kammermúsík Hópurinn sem leikur
á tónleikunum á sunnudaginn kemur.
Kammermúsík-
klúbburinn í Hörpu
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Rautt – frumsýnt í kvöld kl 20
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Sun 7/10 kl. 20:00 15.k
Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k Þri 9/10 kl. 20:00 16.k
Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas Mið 10/10 kl. 20:00 17.k
Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 5/10 kl. 20:00 13.k Fim 11/10 kl. 20:00 18.k
Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 6/10 kl. 20:00 14.k
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k Lau 13/10 kl. 14:00 11.k
Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k Sun 14/10 kl. 14:00 12.k
Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Lau 6/10 kl. 14:00 9.k Lau 20/10 kl. 14:00 13.k
Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Sun 7/10 kl. 14:00 10.k Sun 21/10 kl. 14:00 14.k
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k
Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k
Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k
Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur
Rautt (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 frums Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Fös 5/10 kl. 20:00 11.k
Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k Lau 6/10 kl. 20:00 12.k
Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k Sun 7/10 kl. 20:00 13.k
Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k Fim 11/10 kl. 20:00 14.k
Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Fim 4/10 kl. 20:00 10.k
Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fös 26/10 kl. 20:00 1.k Lau 10/11 kl. 20:00 6.k Lau 24/11 kl. 20:00 11.k
Fös 26/10 kl. 20:00 2.k Sun 11/11 kl. 20:00 7.k Fim 29/11 kl. 20:00 12.k
Fös 2/11 kl. 20:00 3.k Fös 16/11 kl. 20:00 8.k Fös 30/11 kl. 20:00 13.k
Lau 3/11 kl. 20:00 4.k Lau 17/11 kl. 20:00 9.k Fim 6/12 kl. 20:00 14.k
Fös 9/11 kl. 20:00 5.k Fös 23/11 kl. 20:00 10.k
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Sun 7/10 kl. 13:00 1.k Sun 14/10 kl. 13:00 2.k Sun 21/10 kl. 13:00 3.k
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Við sýnum tilfinningar
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11.
sýn
Sun 4/11 kl. 14:00 17.sýn
Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 18.sýn
Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Lau 20/10 kl. 14:00
AUKAS.
Sun 11/11 kl. 14:00 19.sýn
Sun 30/9 kl. 17:00
TÁKNMÁL
Lau 20/10 kl. 17:00
AUKAS.
Sun 11/11 kl. 17:00 20.sýn
Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 18/11 kl. 14:00 21.sýn
Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 18/11 kl. 17:00 22.sýn
Lau 13/10 kl. 14:00
AUKAS.
Sun 28/10 kl. 14:00 15.sýn
Lau 13/10 kl. 17:00
AUKAS.
Sun 28/10 kl. 17:00 16.sýn
Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út!
Afmælisveislan (Kassinn)
Fös 21/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30 Sun 23/9 kl. 19:30 Síð.sýn
Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Sun 7/10 kl. 20:30 13. sýn.
Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn Lau 13/10 kl. 20:30 14.sýn
Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn
Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Lau 6/10 kl. 20:30 12.sýn
Sýningin sem sló öll aðsóknarmet aftur á svið. Sýnd í september og október.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Mið 7/11 kl. 19:30 Fim 15/11 kl. 19:30
Fim 8/11 kl. 19:30 Fös 16/11 kl. 19:30
Miðasala hafin. Aðeins þessar fjórar sýningar í nóvember.