Morgunblaðið - 21.09.2012, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 265. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. 14 myndir af Kate berbrjósta
2. 100 milljóna glæsihús í Garðabæ
3. Himnasýning við Elliðavatn
4. Þekkir þú manninn á myndinni?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Auður Ava Ólafsdóttir hefur verið
tilnefnd til Femina-verðlaunanna í
Frakklandi fyrir skáldsögu sína Rign-
ing í nóvember en bókin kom út þar í
landi í síðasta mánuði. Femina eru
ein virtustu bókmenntaverðlaun
Frakklands.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Auður Ava tilnefnd
til Femina-verðlauna
Jólaóratóría
J.S. Bachs verður
flutt af Mótettu-
kór Hallgríms-
kirkju í Eldborg í
Hörpu 29. og 30.
desember nk. Til-
efnið er 30 ára af-
mæli kórsins. Al-
þjóðlega barokk-
sveitin í Den Haag leikur á tón-
leikunum, Hörður Áskelsson stýrir
kórnum en einsöngvarar verða Herdís
Anna Jónasdóttir sópran, Daniel Ca-
bena kontratenór, Benedikt Krist-
jánsson tenór og Stephan MacLeod
bassi en MacLeod er einn þekktasti
barokkbassasöngvari samtímans.
Jólaóratóría Bachs
á afmælistónleikum
Vetrardagskrá Söguloftsins í
Landnámssetrinu í Borgarnesi
hefst í kvöld með uppistandi Ótt-
ars Guðmundssonar, geðlæknis og
rithöfundar, sem hlotið hefur heitið
Geðveiki í Egils-
sögu. Í því sál-
greinir Óttar
Egil Skalla-
grímsson
og hans
fólk.
Geðveiki í Egilssögu
í Landnámssetrinu
Á laugardag, sunnudag og mánudag Austlæg átt, 8-13 m/s og
talsverð rigning SA-lands, en annars dálítil væta með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan 10-15 m/s og víða rigning eða súld,
en hægara og þurrt að kalla NA-lands. Hiti 5 til 12 stig að deginum.
VEÐUR
Eyjamenn standa best að
vígi í baráttunni um tvö
sæti í Evrópudeild UEFA í
fótbolta eftir sannfærandi
sigur á Valsmönnum, 3:0, á
Hlíðarenda í gærkvöld. Þeir
eru með þriggja til fjögurra
stiga forskot á keppinaut-
ana og mjög góða marka-
tölu þegar tveimur umferð-
um er ólokið. Fram og
Selfoss eru hnífjöfn í botn-
baráttunni og Valsmenn eru
ekki sloppnir. »1-5
Eyjamenn komnir
í mjög góða stöðu
Akureyri og FH líkleg en
óvissa með Framara
Íslands- og bikarmeistarar
Njarðvíkur í körfuknattleik
kvenna hafa orðið fyrir mikilli
blóðtöku fyrir átökin á kom-
andi Íslandsmóti. Þrír leik-
menn frá Grindavík hafa snúið
aftur heim og munu í vetur
spila aftur með Grindavík sem
er nýliði í efstu deild að þessu
sinni. »1
Meistarar missa
lykilmenn til nýliða
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjórir íslenskir ræðarar undirbúa
nú róður án fylgdarbáta frá Noregi
til Kanada. Saga Film hyggst gera
heimildarmynd um undirbúninginn
og róðurinn og takist ætlunarverkið
verður það skráð í heimsmetabók
Guinness.
Vestfirðingarnir Kjartan Jakob
Hauksson, skipstjóri ferðarinnar,
frá Ísafirði, sem varð fyrsti
Íslendingurinn til að róa einn síns
liðs umhverfis Ísland, og Súgfirð-
ingarnir Svanur Wilcox og Eyþór
Eðvarðsson eru þaulvanir ræðarar
og hafa margsinnis keppt í kapp-
róðri. Selfyssingurinn Einar Örn
Sigurdórsson kynntist íþróttinni
þegar hann var í skóla í Boston í
Bandaríkjunum og leiðir fjórmenn-
inganna lágu saman í fyrra.
Mikill undirbúningur
Þeir eru um og yfir fertugt, á
réttum aldri til að takast á við þessa
áskorun, að sögn Einars Arnar.
„Yngri menn geta verið kraftmeiri
en við höfum reynsluna og úthald-
ið,“ segir hann og áréttar að undan-
farið ár hafi þeir verið í alhliða lík-
amlegri uppbyggingu. Þeir hafi
unnið með breska þjálfaranum Edd-
ie Fletcher, sem hafi meðal annars
þjálfað nokkra ólympíumeistara
Breta í kappróðri. „Við áætlum að
taka bátinn út í mars á næsta ári til
að æfa róður á Faxaflóa,“ segir
hann.
Fyrri áfanginn er frá Noregi til
Íslands 2013 og tekur einn til einn
og hálfan mánuð. Sá seinni frá Ís-
landi til Kanada með viðkomu á
Grænlandi sumarið eftir tekur um
tvo mánuði. Gert er ráð fyrir að
leggja upp frá Kristiansand í Nor-
egi á þjóðhátíðardegi Norðmanna,
17. maí 2013, og róa til Íslands með
viðkomu í Skotlandi og Færeyjum.
„Þetta ræðst af veðri og straum-
um,“ segir Einar Örn um hvar þeir
koma að landi á leiðinni og tímann
sem fer í róðurinn.
Vistir til þriggja mánaða
Báturinn er um 1,6 tonn, ellefu
metra langur og um tveir metrar á
breidd. Samkvæmt öryggisreglum
Ocean Rowing verða þeir að hafa
vistir til þriggja mánaða. „Við borð-
um mest þurrmat á leiðinni en verð-
um með veiðistöng með í för og von-
um að við getum búið til sushi á
þilfarinu,“ segir Einar Örn.
Hann leggur áherslu á að fyllsta
öryggis verði gætt. „Við erum ekki
ofurhugar heldur mjög yfirvegaðir,
önum ekki út í neina vitleysu, erum
allir fjölskyldumenn og öryggið
verður alltaf í fyrirrúmi.“
Útbúa sushi á þilfarinu
Fjórir Íslend-
ingar róa frá Nor-
egi til Kanada
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ræðarar Kjartan Jakob Hauksson, Svanur Wilcox, Einar Örn Sigurdórsson og Eyþór Eðvarðsson.
Siglingaleiðin
Grænland
Ísland
Skotland
Noregur
Kanada
Færeyjar
Keppni í N1-deild karla í handknatt-
leik hefst á mánudaginn kemur og
Morgunblaðið heldur áfram að kynna
liðin. Í dag er fjallað um þrjú lið, Ak-
ureyri, FH og Fram, en bæði Akureyri
og FH þykja líkleg til að slást um
efstu sætin. Meiri óvissa er um styrk-
leika Framara sem hafa minni breidd
en áður. »6, 7, 8