Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. N Ó V E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  261. tölublað  100. árgangur  www.kaupumgull.is Græddu á gulli Kringlunni 3. hæð í dag frá kl. 11.00 til 18.00. Loka dagurinn. Upplýsingar og tímapantanir: Sverrir s. 661-7000 KINWINS ER MANNBÆTANDI SÍMALEIKUR LENGI VERIÐ AÐDÁANDI GUÐBERGS PÁLMAR ER KAFFINÖRD OG STOLTUR AF ÞVÍ STÓRMERK RIT 38 KAFFIÐ ÁSTRÍÐA HANS 10FYRSTUR SINNAR TEGUNDAR 16 Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Maður veltir fyrir sér hvort óvissa um gengistryggðu lánin og fleira hafi í för með sér að margir séu að bíða og vona að málin leysist einhvern veginn. Talan er ekki á leiðinni niður og mér sýnist á öllu að hún hafi ekki verið hærri síðan árið 2006 þegar við hófum að taka þetta saman,“ segir Samúel Ásgeir White, forstöðumað- ur fyrirtækjasviðs hjá Creditinfo. Tilefnið er úttekt fyrirtækisins á vanskilum, sem gerð var að beiðni Morgunblaðsins, en Samúel Ásgeir undirstrikar að hann hafi enga rann- sókn til að styðjast við þegar grein- ing á aukningunni er annars vegar. Stöðug fjölgun á þessu ári Samkvæmt úttektinni voru 26.868 einstaklingar í alvarlegum vanskil- um 1. nóvember og hefur þeim fjölg- að jafnt og þétt í ár. Þeir voru til samanburðar 25.734 í nóvember í fyrra og 20.413 í janúar 2010, þróun sem kemur Samúel á óvart. „Umræðan í samfélaginu er á þann veg að efnahagslífið sé á upp- leið. Samt fjölgar einstaklingum sem eru í alvarlegum vanskilum.“ Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðs- maður skuldara, segir 50 umsóknir hafa borist um ráðgjöf og greiðslu- aðlögun í síðustu viku. Hún kallar eftir greiningu á vanskilunum. Fjölgun á vanskilaskrá  Um 27.000 í alvarlegum vanskilum  6.000 fleiri á skránni en í janúar 2010  Umboðsmanni skuldara bárust 50 umsóknir um greiðsluaðlögun í síðustu viku MAlvarleg vanskil aukast enn »2 Margir búa erlendis » Af þeim 26.868 sem eru í al- varlegum vanskilum býr 14.421 á höfuðborgarsvæðinu. » Athygli vekur að 4.341 er búsettur erlendis. » Þá búa 2.498 á Reykjanesi og 1.745 á Suðurlandi.  Þrjú skandinavísk skipafélög hafa sýnt áhuga á strandsiglingum hér við land sem hefjast í mars eða apríl á næsta ári ef áætlanir stand- ast. Guðmundur Kristjánsson, for- maður starfshóps um strandsigl- ingar sem skilaði tillögum sínum í upphafi ársins, segir að félögin hafi óskað eftir því að fá að fylgjast með gangi mála. Jafnframt segist hann búast við að stóru skipafélögin tvö hér á landi, Eimskip og Samskip, taki þátt í útboði. Hjá Eimskip og Samskipum feng- ust þær upplýsingar að fyrirtækin myndu skoða málin þegar nánari upplýsingar lægju fyrir. »20 Áhugi erlendis á strandsiglingum Morgunblaðið/Ómar Flutningar á sjó Áætlanir gera ráð fyrir að siglt verði vikulega umhverfis landið. Gestir á kosningavöku bandaríska sendiráðsins á Hilton Nordica-hótelinu í gærkvöldi fengu sjálfir að greiða atkvæði um hvort þeir vildu heldur Bar- ack Obama eða Mitt Romney sem næsta forseta Bandaríkjanna. Fyrstu tölur í hinum raunverulega forsetakosningum lágu ekki fyrir þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi en fyrstu kjörstöðum var lokað í kringum miðnætti að íslenskum tíma. Spáð hafði verið hnífjafnri baráttu á milli frambjóðendanna tveggja. Fregnir í gærkvöldi hermdu að kjörsókn hefði verið með mesta móti í lykilríkjunum Flórída og Virginíu. Kusu með Bandaríkjamönnum á kosningavöku Morgunblaðið/Kristinn  Áverkar í munni fundust í um 45% þeirra hrossa sem komu til keppni á Landsmóti hestamanna í Reykjavík í sumar og hjá meira en helm- ingi þeirra hrossa sem komust í úrslit. Er þetta töluvert hærra hlutfall en verið hefur á undanförnum landsmótum. Tíðni alvarlegra áverka jókst þegar komið var í úrslit, var 16% í stað 9% fyrir forkeppni. » 15 Fleiri alvarlegir áverkar í munni Kristján Jónsson kris@mbl.is Sú staða gæti hæglega komið upp að veðuraðstæður kæmu í veg fyrir að mikilvægir leikir færu fram á Laug- ardalsvelli á haustin. Völlurinn er ekki upphitaður en mikil viðhalds- vinna við hann hefur falið hversu mikið vandamál það er að gras þjóð- arleikvangsins sé gamalt og án undirhita. Þetta segir Ágúst Jens- son, formaður Samtaka golf- og íþróttavallastarfsmanna á Íslandi. Kostnaðurinn við að leggja hita undir Laugardalsvöll gæti numið í kringum 80 milljónum króna að sögn Ágústs. Nýr grasvöllur með öllu til- heyrandi kosti á bilinu 80-100 millj- ónir. Ágúst segir að völlurinn hafi verið byrjaður að frjósa í hálfleik þegar karlalandsliðið í knattspyrnu lék við Sviss í október. „Vallarstarfsmenn gátu ekki lagað völlinn eftir leik því hann var frosinn.“ » Íþróttir Gæti sett leiki úr skorðum  Kostnaður við að hita upp Laugardalsvöll gæti numið um 80 milljónum króna  Vandamál hvað grasið er orðið gamalt Frost Völlurinn er ekki upphitaður og er breitt yfir hann fyrir frost. Morgunblaðið/Ómar  Blaðamaður tímaritsins Roll- ing Stone, David Fricke, lofar „hina árlegu rokkparadís“ Iceland Air- waves. Segir hann hljómsveit- irnar Dirty Proj- ectors og Sigur Rós hafa verið hápunkta hátíð- arinnar nú, en fjallar um marga flytjendur í grein sinni. Fricke hreifst m.a. af íslenska tríóinu Epic Rain, rímnaflutningi Steindórs Andersen og félaga, og ákafa The Vintage Caravan. Fricke hefur oft sótt hátíðina og segir hana sífellt koma sér á óvart. »39 Segir Airwaves „ár- lega rokkparadís“ David Fricke

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.