Morgunblaðið - 07.11.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Opið virka daga frá 9-18
og lau frá 10-16
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
SMÁFRÆSARAR FRÁ P.G. MINI
ÚRVAL AUKAHLUTA
Verð frá 7.680 kr.
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Ný heimasíða www.brynja.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég hef alla tíð haft óbil-andi áhuga á öllu sembragðast vel, hvort semþað eru ostar, vín eða
eitthvað annað sem hefur ótal áferð-
ir. En ég hef ekki sökkt mér á kaf í
neitt eins og kaffið,“ segir Pálmar
Þór Hlöðversson, ungur maður sem
opnaði Pallett Kaffikompaní í sumar
í miðbæ Hafnarfjarðar við Norð-
urbakka. „Ég valdi þessa staðsetn-
ingu af því að ég er fæddur og upp-
alinn í Hafnarfirði, en mig langaði
líka til að gefa Hafnfirðingum
breiðari flóru í kaffimenningu,“ seg-
ir Pálmar sem er tvöfaldur Íslands-
meistari kaffibarþjóna og hefur
unnið Íslandsmót bæði í mjólkurlist
og í Kaffi í góðum vínanda. „Eftir að
hafa tekið þátt í heimsmeist-
arakeppnum og virkilega kynnst því
hvað kaffi hefur upp á að bjóða, þá
var ekki aftur snúið. Ég er kaffi-
nörd og stoltur af því.“
Fastagestir komnir
á bragðið
Pálmar hefur unnið sem kaffi-
barþjónn undanfarin fimm ár en
rúm tvö ár eru síðan hann tók þá
ákvörðun að opna sitt eigið kaffihús.
„Þá fór ég að leggja fyrir og nú er
draumurinn orðinn að veruleika.
Pallett Kaffikompaní er fyrst og
fremst kaffihús þar sem ég legg of-
uráherslu á kaffidrykkina og gæðin
í þeim. Þetta er ekki matsölustaður
en ég er með vel valið meðlæti með
kaffinu,“ segir Pálmar sem er bjart-
sýnn á framtíðina. „Fólki líkar vel
við það sem er gott á bragðið. Þetta
hefur spurst vel út og ég er strax
kominn með þónokkuð af fastagest-
Ég er kaffinörd
og stoltur af því
Hann vill gefa Hafnfirðingum breiðari flóru í kaffimenningu
með nýja kaffihúsinu sínu Pallett Kaffikompaníi. Hann er tvö-
faldur Íslandsmeistari kaffibarþjóna og kaffi er ástríða hans.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Alúð í handbragðinu Pálmar vandar sig við að búa til gott kaffi.
Vefsíðan indulgy.com er svipuð síða
og Pinterest en þar getur fólk einnig
safnað saman skemmtilegum hug-
myndum og myndum af flottum föt-
um og hlutum sem það vill halda til
haga. Líkt og nafn síðunnar gefur til
kynna er margt að finna á vefsíðunni
sem maður vildi gjarnan láta eftir sér
að dekra dálítið við sig. Þarna má sjá
flotta skó og kjóla, girnilegar kökur
og konfekt og fallegar og líflegar
lausnir fyrir heimilið. Skemmtileg
vefsíða fyrir fagurkera heimsins.
Vefsíðan www.indulgy.com
Súkkulaðisæla Auðvelt er að láta eftir sér jafn girnilega mola sem þessa.
Dekur og dúllerí fyrir fagurkera
Heineken Music kallast ný frí-
tónleikasería á Slippbarnum - Hótel
Marina. Aðrir tónleikar í seríunni
verða á morgun, fimmtudaginn 8.
nóvember, og þá mun stuðboltinn
Berndsen koma fram ásamt með-
reiðarsveinum sínum og flytur raf-
magnaða danstónlist í anda 9. ára-
tugarins. Berndsen hefur lítið
komið fram undanfarna mánuði og
haldið sig á suðrænum slóðum við
lagasmíðar og verður afrakstur
þess spilaður ásamt eldri slögurum.
Tónleikar Berndsen hefjast
stundvíslega kl. 22.00. Slippbarinn
er til húsa á Hótel Marina, Mýr-
argötu 2, 101 Reykjavík (við gamla
slippinn).
Endilega…
…hlustið á
Berndsen á
Slippbarnum
Morgunblaðið/Ernir
Berndsen Sviðsframkoman er lífleg.
Söngvaskáldin Uni & Jón Tryggvi
bjóða til tónleika með Láru Rúnars á
heimili sínu Merkigili á Eyrarbakka
næstkomandi sunnudag klukkan 16.
Lára Rúnars hefur nú sent frá sér
sína fjórðu breiðskífu, Moment, en á
henni kannar hún nýjar slóðir og
leyfir dekkri og ögrandi hliðum að
njóta sín meira en áður. Við gerð
plötunnar var Lára undir áhrifum frá
tónlistarkonum eins og PJ Harvey og
svo tónlistarmönnum eins og John
Grant en þau áhrif má finna í mel-
ódísku og angurværu indí-poppi
Láru.
Með Láru á plötunni Moment leika
þeir Arnar Þór Gíslason á trommur,
Jakob Smári Magnússon á bassa,
Birkir Rafn Gíslason á gítar, Magnús
Árni Öder á hljómborð og Hrafn
Thoroddsen á hljómborð. Öll lög eru
eftir Láru sjálfa en textar eru eftir
Láru og vin hennar Matthew Sever
frá Austin, Texas. Upptökustjórn var í
höndum Magnúsar Árna Öder en um
hönnun umslags sáu systurnar í
Skrattakorni, þær Harpa Einars og
Gígja Einars. Tónleikar í Merkigili eru
styrktir af Menningarráði Suðurlands
og er frítt inn en frjáls framlög vel
þegin. Nánari upplýsingar hjá unijon-
@unijon.com
Lára Rúnars í Merkigili
Melódískt og angurvært
indí-popp á Eyrarbakka
Ögrandi Á fjórðu breiðskífu sinni Moment kannar Lára Rúnars nýjar slóðir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.