Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 07.11.2012, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012 ✝ Vigfús Ólafs-son fæddist í Sigtúnum á Kljá- strönd í Höfða- hverfi 7. nóvember 1922. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 19. október 2012. Foreldrar hans voru Ólafur Gunn- arsson frá Höfða í Höfðahverfi, f. 27.7. 1878, d. 15.1. 1964 og Anna María Vigfúsdóttir frá Hellu á Árskógsströnd f. 28.11. 1888, d. 10.7. 1973. Systkini Vigfúsar eru Anna Gunnur f. 7. maí 1911, d. 30. nóv 1945, Dóra f. 6. júlí 1912, Guðríður f. 25. apríl 1916, d. 25. okt 2005, Gunnar f. 1. okt. 1917, d. 6. sept 1991, Baldvin f. 26. des 1919, Árni f. 1. okt 1925, d. 26. maí 2003, Þóra Soffía f. 18. apríl 1931. Vigfús kvæntist Halldóru Jóhönnu Sigurð- ardóttir frá Brautarhóli á Svalbarðsströnd f. 24. nóv 1927, d. 14. janúar 1997. Börn ín Rut f. 15.5. 1999 og Mikael Mar f. 22.4. 2003, núverandi maki er Ámundi Sjafnar Tóm- asson, barn þeirra er Rebekka Lind f. 31.1. 2007. 7) Ásdís f. 6.6. 1970, d. 16.3. 1971. Barna- barnbörn Vigfúsar eru 13 tals- ins. Vigfús stundaði sjómennsku á sínum yngri árum. Hann kvæntist Halldóru frá Braut- arhóli 4. janúar 1948 og var þeirra fyrsta heimili á Siglu- firði. Árið 1949 stofnaði hann fatahreinsun á Siglufirði með Árna bróður sínum, en árið 1952 flyst Vigfús og fjölskylda til Akureyrar og reka þeir bræður þar fatahreinsun um árabil, en hin síðari ár stóð Vigfús einn að rekstrinum ásamt fjölskyldu sinni. Fata- hreinsunin var síðan seld árið 2002. Vigfús var mikill áhugamað- ur um alla veiði en þó sér- staklega laxveiði. Önnur áhugamál voru brids og ber- jatínsla á haustin enda var hann mikið náttúrubarn. Útför Vigfúsar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 7. nóv- ember 2012 og hefst athöfnin kl. 13.30. Vigfúsar og Hall- dóru eru: 1) Anna Gunnur, f. 8. 4. 1948, maki Anton Sölvason og eiga þau einn son, Sölva, f. 6.12. 1979. 2) Sigurlaug María f. 9.2. 1950. hún var gift Jónasi Franklín. Börn þeirra eru, Ásdís María f. 26.9. 1978, Auður Dóra f. 26.7. 1981 og Hildur Þóra f. 19.12. 1985. 3) Sigurður f. 17.1. 1954, maki Þóra Elísabet Leifsdóttir og eiga þau tvö börn, Erlu Hrönn f. 4.10. 1975 og Leif, f. 9.11. 1978. 4) Hulda f. 5.1. 1957, maki Ómar Stefánsson, börn þeirra eru Vigfús f. 22.7. 1975, Stefán f. 7.10. 1978 og Ester f. 24.5. 1990. 5) Gunnar, f. 22.4. 1960, maki Jóhanna María Friðriksdóttir, og synir þeirra eru Samúel og Friðrik, báðir f. 23.10. 1989. 6) Dóra Vigdís f. 23.11. 1967, var gift Þórði Mar Sigurðssyni, börn þeirra, Katr- Nú þegar komið er að kveðju- stund, þá langar mig að minnast föður míns í fáeinum orðum. Margs er að minnast úr uppvexti mínum og það voru forréttindi að fá að alast upp á heimili eins og hjá foreldrum mínum. Vigfús, faðir minn, var mikill veiðimaður og áttu laxveiðar hug hans allan. Um leið og ég var orð- inn nógu stór til að koma með þá fórum við saman í allar veiðiferðir og var hver ferð eitt allsherjar æv- intýr. Helst var farið í Fnjóská, Húseyjarkvísl eða í Vopnafjarðar- árnar. Veiðin á þessum árum var af- skaplega mikil og ekkert í líkingu við það sem nú þekkist. Einnig höfðum við mjög gaman að fara út á Kljáströnd, þar sem faðir minn fæddist og ólst upp. Þar var róið til fiskjar og oft beitt lína eða farið á handfæri. Mér er fermingardagurinn sér- staklega minnisstæður, því um morguninn þá fórum við pabbi inn á Leirur og vorum að reyna að háfa loðnu, því okkur vantaði beitu fyrir línuna. Man ég að mamma var eðlilega ekki sérstak- lega ánægð með okkur, en við rétt náðum að þrífa okkur áður við átt- um að mæta í kirkjuna. Það var eins gott að ekki voru til gemsar á þessum tíma, en hætt er við að við hefðum verið búnir að fá hring- ingu að heiman. Það má heldur ekki gleyma öllum rjúpnaferðun- um okkar og eru minningarnar um þær afskaplega góðar. Þegar ég komst á fullorðinsár þá fækkaði ferðum okkar, en alla tíð fórum við saman í lax og rjúpu eða þangað til að ellin tók völdin hjá pabba og það var síðan fyrir rúmum 3 árum sem hann dró sinn síðasta lax. Það var í lok júní þeg- ar hann var á 87. aldursári og vor- um við þá á veiðum á neðsta svæð- inu í Fnjóska, en það var alltaf hans uppáhaldsveiðisvæði. Það var 9 punda lax sem hann veiddi á Hríslubreiðu og var það okkar þriðji lax og var þá kvótinn kom- inn og urðum við að hætta veiðum, en í gamla daga hefði það ekki dugað Vigfúsi að mega bara veiða 3 laxa á vakt. Vil ég þakka þér, elsku pabbi, að fá að upplifa allar þessar dýr- mætu stundir okkar saman sem munu ylja mér um ókomna tíð. Gunnar. Elsku pabbi minn. Þá er komin kveðjustund. Mikið er nú lífið tómlegt án þín. Ég sakna þín óskaplega mikið. Ég sakna þess að heyra ekki í þér, þú hringdir venjulega á hverjum degi og stundum tvisvar á dag. Við töluð- um um allt mögulegt, veðrið og krakkana og stundum ástandið í þjóðfélaginu. Það var reyndar yf- irleitt hægt að ganga að því vísu að veðrið væri gott hjá þér, pabbi minn. Þú vissir alltaf hvað var að ger- ast í lífi barnanna minna, hvernig gekk hjá þeim í skólanum og í tómstundum. Ef eitthvað var í gangi þá vissir þú það. Þegar Katrín var að passa hringdir þú venjulega í hana til að athuga hvort allt væri í lagi. Mikið töluðum við um berin þegar það átti við. Það var svo gaman að heyra frá þér, þú varst alltaf með berjafréttirnar á hreinu, hvað fólk hefði fengið mik- ið af berjum á hverjum stað o.s.frv. Einnig var sultugerðin ár- legur viðburður, hún skipti miklu máli. Allt varð að fara mjög ná- kvæmlega fram og þykktin varð að vera rétt. Þú varst í raun miðpunktur fjölskyldunnar og ég fékk fréttir af öllum hinum í gegnum þig því þú fylgdist vel með öllu þínu fólki. Þegar ég hugsa til baka koma óteljandi, yndislegar minningar upp í hugann og ég er svo þakklát fyrir þig. Þú varst svo umvefjandi, þú fannst til með öðrum, þú varst áhugasamur um aðra og duglegur að sjá eitthvað sérstakt við alla, þar með talið börnin mín, og einn- ig sagðir þú mér oft frá barna- barnabörnunum þínum. Það var alltaf tilhlökkunarefni að koma til þín enda vorum við dugleg við að skutlast norður yfir helgi eða í fríum. Börnin mín elsk- uðu að vera hjá þér og ég veit að þau munu búa að því alla ævi að hafa átt þess kost að umgangast þig svona mikið og fá að kynnast kærleika þínum og mannkostum. Þegar ég var að alast upp heyrði ég þig oft segja hvað dugn- aður skipti miklu máli enda varst þú alltaf afskaplega duglegur og vinnusamur. Undir það síðasta, þegar þú gast ekki unnið lengur, áttir þú erfitt með að sætta þig við það. Þegar þú komst suður til okk- ar í heimsókn varstu oft búinn að ryksuga þegar ég kom heim úr vinnunni og þá vissi ég að það var alveg rosalega vel gert, allt tekið fram. Ég gat alltaf leitað til þín og tal- að við þig um allt. Húmorinn var aldrei langt und- an þar sem þú varst annars vegar og daginn áður en þú fórst í síð- asta sinn á spítalann var mikið hlegið og gaman hjá okkur. Við borðuðum saman góðan mat en það fannst okkur gaman. Ekki fannst mér vera neitt fararsnið á þér þá. En þú varst jafnframt bú- inn að gefa það í skyn að nú væri þetta orðið ágætt, þú orðinn valt- ari á fótunum og gast ekki gengið eins og þú vildir. Sérstaklega held ég að hafi verið erfitt fyrir þig að komast ekki í berjamó sem þú þó reyndir í síðasta sinn í haust. Þetta var orðið ágætt, sagðir þú stundum. Mér finnst erfitt að hafa þig ekki lengur hjá mér en ég trúi því að þú hafir það gott núna. Ég er þakklát fyrir þig, elsku pabbi, börnin sakna þín mikið. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi. Dóra Vigdís Vigfúsdóttir. Elsku pabbi, tengdapabbi, afi og langafi Þú komst í heimsókn til okkar til Skövde á hverju sumri í mörg ár. Við áttum yndislegar stundir saman. Við grilluðum saman á pallinum í góða veðrinu og fórum í gönguferðir í skóginum. Við fór- um í mörg ferðalögin saman ég man sérstakega eftir ferðinni til Berlínar og siglingunni til Finn- lands. Ó, elsku pabbi, ég ennþá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. (Hugrún.) Við söknum þín Hulda, Omar Stefan, Annika, Naomi, Saga, Thor og Freyja Ester og Erik Í dag er borinn til grafar Vigfús Ólafsson tengdafaðir minn. Mig langar að minnast hans með nokkrum orðum. Fyrir tæpum 30. árum var ég svo heppin að fá að kynnast Vigga, þegar ég og Gunni minn byrjuð- um saman. Fyrstu árin einkenn- ast af minningum af laxveiðitúr- um sem við fórum nokkuð oft í. Aðallega frá Hofsá og Selá í Vopnafirði. Það voru mikil ævin- týri sem við upplifðum í þessum ferðum og mikið var nú af laxinum í þá daga. Frystikisturnar voru allar fullar af fiski þegar heim var komið. Þetta var alveg frábær tími þar sem ég lærði að veiða lax með alvöru veiðimanni, en Viggi var ætíð mjög fiskinn og slyngur veiðimaður. En hann dró sinn seinasta lax á land fyrir einungis 3 árum úr Fnjóská, geri aðrir betur. Viggi vann alla tíð mjög mikið og fullan vinnudag alveg til ársins 2002 þegar pressan var seld. En eftir það var hann í vinnu og síðan afleysingum hjá nýjum eigendum, því hann gat ekki hugsað sér að hætta að vinna. Vinnusemi og dugnaður voru honum í blóð bor- in. Vigga var alltaf mjög umhugað um fjölskyldu sína og var það með ólíkindum hvað hann vissi alltaf allt um sitt fólk. Hvenær barna- börnin áttu að mæta í próf, keppni eða vinnu og hvernig gengi hjá hverjum og einum, hvort heldur var innanlands eða utan land- steinanna. Hann fylgdist með af óbilandi áhuga fram á síðasta dag. Einn af mörgum kostum Vigga var að hann var alltaf svo jákvæð- ur og glaður með allt sem maður var að gera og taka sér fyrir hend- ur, hvort heldur sem var að skipta um vinnu, fara í skóla eða úr skóla, kaupa hús eða hvað það nú var. Allt var það frábært í hans augum og alltaf fékk maður stuðning í öll- um ákvörðunum. Virðingu sýndi hann öllu sem ég gerði og kom fram við mig eins og sína eigin dóttur. Mun ég sakna þess mikið að geta ekki slegið á þráðinn og spjallað eins og áður. Viggi mátti ekkert aumt sjá og ef það kom auglýsing eða frétt um hungursneyð eða vannærð börn þá varð hann að fá símanúmer sem hann gæti hringt í og lagt sitt af mörkum. Þetta var mjög ríkt í honum. Á veturna varð hann svo að fara að kaupa korn handa smá- fuglunum og þeim var gefið alveg reglulega. Það verður auður blett- ur hjá þeim í Víðilundinum í vetur. Í dag hefði hann Viggi orðið ní- ræður, hefði hann lifað, en ég trúi því að nú sé honum haldin veisla í himnasölum hjá góðum Guði. Hafðu þökk fyrir allt, elsku Viggi minn. Þín, Jóhanna. Það er tómlegt án þín, elsku Vigfús. Þegar ég hitti þig fyrst fyrir um 7 árum náðum við strax vel saman enda höfðum við sömu áhugamál, lax, lax, lax og aftur lax. Oft fékk ég að heyra veiðisögur um fjölda stórlaxa sem þú hefur sigrað. Við náðum saman á flestum sviðum en oft var erfitt í eldhús- inu, þá varst þú með fast mótaðar hefðir sem voru óhagganlegar. Ég virkilega naut þess að vera fyrir norðan hjá þér, gestrisnin var alltaf mikil og annað áttum við sameiginlegt: að borða góðan mat. Þú varst límið sem hélt fjölskyld- unni saman, þú safnaðir fréttum frá öllum og deildir þeim áfram. Það hefur myndast mikið tóma- rúm eftir að þú kvaddir, þú vissir alltaf hvað var um að vera og ég fékk stundum fréttir frá þér hvernig krökkunum okkar Dóru gekk í skólanum. Krakkarnir elskuðu að vera hjá þér og þau sakna þín mikið. Þú hafðir marga kosti og ég man engan ókost, þú varst sér- stakur með það hvað þú hafðir áhuga á öðrum. Þegar við Dóra fórum í laxveiði í haust varstu svo spenntur fyrir hennar hönd. Ég get lært mikið af þér og þú varst góð fyrirmynd, bæði fyrir okkur fullorðna fólkið og börnin Þú varst stór hluti af mínu lífi og ég sakna þín mjög mikið. Heilsunni hrakaði hratt hjá þér og þú varst ekki sáttur við að vera óstöðugur og þegar þú komst ekki í berjamó í haust varstu virkilega ósáttur. Ég er þakklátur að hafa fengið að ganga með þér síðasta göngutúrinn, þegar ég spurði þig hvað þú ætlaðir langt þá var svar- ið einfalt: Ég hef alltaf farið út á enda götunnar, og það gerðirðu. Daginn eftir ferð þú á spítalann og komst ekki aftur heim. Þú varst þrautseigur til síðasta dags. Þú hefur afrekað mikið gott um æv- ina og ég veit að þú ferð sáttur. Nú ertu kominn á góðan stað í faðm Föðurins. Minning þín lifir í hjarta mér. Tengdasonur og vinur, Ámundi S. Tómasson. Okkur systkinin langar að minnast Vigga föðurbróður okkar með nokkrum orðum. Viggi var mikið góðmenni og reyndist okk- ur mjög vel og eigum við fjölmarg- ar góðar minningar um hann. Það var mikill samgangur milli fjöl- skyldnanna en þessar tvær fjöl- skyldur bjuggu í sama húsi í rúm- lega tuttugu ár, Viggi og Dóra konan hans á efri hæðinni með börnin sín sem þá bjuggu enn í foreldrahúsum og við systkinin fjögur á neðri hæðinni ásamt for- eldrum okkar. Sóttum við systk- inin mikið á efri hæðina til að hitta frændsystkini okkar og alltaf tóku Dóra og Viggi vel á móti okkur og eru margar góðar æskuminningar tengdar þessum yndislegu hjón- um og börnum þeirra. Viggi hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og oft kom hann niður til okkar og heyra mátti þá bræður rökræða málin með miklum tilþrifum. Viggi gat haft hátt og hafði sterkar pólitísk- ar skoðanir sem ekki fóru fram hjá okkur þegar hann var í ham en þó að hann ætti það til að æsa sig yfir pólitíkinni var hann fljótur að gleyma því aftur og sjá spaugileg- ar hliðar á málunum og gera grín að hlutunum. Viggi var snar í snúningum og ekkert að tvínóna við hlutina og vildi að þeir gengju hratt fyrir sig. Hann var glaðsinna og alltaf stutt í húmorinn og gam- an að vera með honum. Þeir bræður Viggi og pabbi okkar ráku einnig saman fyrir- tæki í mörg ár og unnum við syst- urnar lengi hjá Vigga þar sem hann sá um allan rekstur. Sem vinnuveitandi var Viggi einstak- lega ljúfur og sérdeilis duglegur. Viggi var mikill veiðimaður og var gaman að heyra hann segja frá veiðiferðum sínum í hinar ýmsu laxár landsins. Hann var fengsæll veiðimaður og nutum við oft góðs af því. Hann var líka mik- ill bridsspilari og munum við sér- staklega eftir spilakvöldunum á fimmtudögum þar sem ákveðin stemning ríkti og var okkur systk- inunum oft boðið að setjast að veisluborði í lok kvöldsins. Það var alltaf gaman að spjalla við Vigga og það eru margar minningarnar úr æsku okkar þar sem Viggi fór á kostum í lýsingum á atburðum eða lýsti skoðunum sínum á mjög svo afdráttarlausan hátt og svo fyndinn og skemmti- legan hátt að ekki var hægt annað en hlæja þó Vigga væri ekki hlát- ur í hug. En svo færðist yfirleitt bros yfir andlit hans og hélt hann lýsingum sínum áfram á gaman- saman hátt. Í stuttu máli má segja að vinsemd og góðvild hafi ein- kennt framkomu Vigga í okkar garð og okkur finnst við heppin að hafa alist upp í svona nánu og góðu nábýli við Vigga, Dóru og börnin þeirra og fyrir það erum við þakklát Að leiðarlokum viljum við þakka Vigga samfylgdina og vin- semdina sem hann sýndi okkur alla tíð. Við sendum börnum hans og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur og einnig eftirlif- andi systkinum hans. Blessuð sé minning Vigfúsar Ólafssonar. Erna, Kristrún, Ólafur og Gunnar. Við systkinin viljum minnast móðurbróður okkar Vigfúsar Ólafssonar með nokkrum orðum. Vigfús, eða Viggi eins og hann var kallaður, var einstakur maður. Hann var hjartahlýr og góður frændi sem alltaf var gott að leita til. Í barnæsku dvöldum við systk- inin oftast sumarlangt á Kljá- strönd, sumarhúsi og ættaróðali fjölskyldunnar í Höfðahverfi við Eyjafjörð. Þar hefur stórfjöl- skyldan átt griðastað og eigum við ófáar minningar þaðan af ljúfum stundum með Vigga og fjölskyldu hans. Viggi ólst upp í hópi margra systkina á Kljáströnd þar sem lífsviðurværið var útgerð og fisk- vinnsla við erfiðar aðstæður. Stað- urinn hefur síðan verið órjúfan- legur partur af sögu okkar og gert okkur kleift að rækta ættartengsl- in. Þegar við systkinin og foreldr- ar okkar fórum til sumardvalar á Kljástönd í gamla daga var ómiss- andi þáttur ferðalagsins að kíkja í kaffi í Þórunnarstrætið til Vigga og Dóru. Í þessum heimsóknum kynntumst við rausnarskap þeirra hjóna sem alltaf voru tilbú- in að greiða götu okkar ferðalang- anna. Eftir því sem tímarnir liðu og við systkinin urðum eldri dvöldum við oft í lengri eða skemmri tíma hjá þeim hjónum vegna sumarvinnu eða í heim- sóknum. Það sem einkenndi alltaf dvölina var hlýja og velvild í garð ættingjanna að sunnan. Viggi var afburðalaxveiðimað- ur og sinnti því áhugamáli af mik- illi ástríðu. Sum okkar voru svo heppin að fá að fara í veiðitúra með honum og aðrir fengu að sjá stórlaxana í röðum í skottinu á bílnum hans þegar hann kom við á Kljáströnd eftir vel heppnaða veiðiferð í Fnjóská. Viggi hafði náðargáfu þegar kom að því að sjá hvar laxinn hélt sig og ósjaldan kom hann heim með góða veiði þegar aðrir urðu ekki einu sinni varir. Vigfús lagði mikla áherslu á að keyra á góðum bílum og ökuferð í nýja hvíta Rambler American, glæsikerrunni sem hann átti um tíma, situr enn í minni. Þetta var eins og að svífa á skýi yfir mal- arvegina miðað við að skrölta í Volkswagen sem við vorum vön. Viggi var maður hins frjálsa framtaks sem vildi fá að sinna sín- um rekstri án afskipta misviturra pólitíkusa. Við minnumst þess öll þegar við heimsóttum Vigga í fatahreinsunina (Pressuna) sem hann rak um langt skeið á Akur- eyri ásamt bróður sínum, Árna. Viggi var einstaklega duglegur maður sem var alltaf eitthvað að sýsla og sást næstum aldrei sitja kyrr. Hann settist ekki einu sinni niður þegar tekin var pása í Pressunni til að drekka „kaffi og meðíð“ þegar við kíktum við held- ur gekk hann um gólf og rabbaði um daginn og veginn og sagði sög- ur. Viggi var alltaf hrókur alls fagnaðar, sagði skemmtisögur og lýsti skoðunum sínum á mönnum og málefnum með skemmtilegum og lifandi hætti. Það var alltaf hressandi að hitta hann. Hann hafði sterkar skoðanir á landsmál- unum og sagði þær umbúðalaust. Við minnumst Vigga með hlýhug og virðingu, minning hans lifir með okkur. Elsku Anna Gunnur, Siggi, Silla, Hulda, Gunni, Dóra Vigdís og fjölskyldur, við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku Viggi frændi. Ólafur, Anna María, Stefán, Vigdís og Þóra Rósa. Í dag verður móðurbróðir minn, Vigfús Ólafsson, borinn til grafar. Enn einn Kljástrending- urinn hefur verið lagður að velli. Fyrir nokkrum dögum var ég að skoða mynd af ungum mönnum á Kljáströnd við Eyjafjörð. Mynd- in var tekin vel fyrir miðja síðustu öld. Þarna má sjá móðurbræður mína og náfrændur úr Ringste- dætt. Krafturinn skín úr svip strákanna sem lifðu frjálsir við veiðar, leiki og mikla vinnu á heimatorfunni. Áratugir liðu og ungu mennirn- ir – og systur þeirra – fundu sinn farveg í lífinu. Dugnaður ein- kenndi þau öll og ekki síst Vigfús sem ætíð sóttist eftir því að vera eiginn húsbóndi. Áratugum sam- an rak hann fatahreinsun á Ak- ureyri og víðar og ég minnist þess sem strákur að mér þótti afar merkilegt að sjá mann stíga á ped- ala á vél sem skaut út gufu og bux- ur fóru í brot. Veiðar voru Vigga hugleiknar og ég á mér til minn- ingarbrot frá Selá í Vopnafirði þegar Viggi horfir yfir ána og skimar eftir laxi. Mér er Viggi minnisstæður þar sem hann stendur í brekku og leitar að sporðaköstum og dökkum bak- uggum. Þegar leið á ævina átti Viggi það til að spila brids við systur sín- ar og bróður. Það var í raun stór- kostleg sjón að sjá þau systkinin dobla og redobla – og það var ekki að sjá að þarna færi rígfullorðið fólk. Það var eitthvað í uppeldinu, aðbúnaðinum og mataræðinu á Kljáströnd sem mótaði barnahóp- inn. Ósérhlífni og dugnaður þessa fólks er með eindæmum. Um leið og Viggi er kvaddur með söknuði er honum þökkuð samferðin. Áskell Þórisson. Vigfús Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.