Morgunblaðið - 07.11.2012, Síða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2012
Smáauglýsingar
Garðar
Faglærðir garðyrkjumenn
geta bætt við sig verkefnum.
Trjáklippingar, trjáfellingar, hellu-
lagnir og viðhald garða.
Ingvar s. 8608851
Jónas s. 6978588.
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Saumavélar- saumavélaviðgerðir
Nýjar og notaðar saumavélar í úrvali.
Viðgerðir á flestum gerðum sauma-
véla. Skoðaðu úrvalið á saumavelar.is
eða hringdu í s. 892 3567 eftir
hádegi alla daga.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Húsviðhald
Fer yfir þök og negli niður
eftir rokið.
Hreinsa þakrennur og tek að
mér ýmis smærri verk .
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Múr- og lekaviðgerðir
Sveppa- og örverueyðing
Vistvæn efni notuð
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Vönduð vinna
Áratuga reynsla
Sími 555-1947 Gsm 894-0217
Kaupi silfur
Vantar silfur til bæðslu og endurvinn-
slu. Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - sími 551 6488.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlý-
hug og elsku vegna fráfalls
THEODÓRS STEINARS
MARINÓSSONAR.
Sérstakir þakkir fyrir umönnun fær starfsfólk
11 E, göngudeildar krabbameinslækninga,
heimahjúkrun og Karitas.
Magdalena S. Elíasdóttir
og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
HELGU JÓNSDÓTTUR
frá Reynistað, Akranesi
síðast til heimilis að Sóltúni,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 12. október.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sóltúns í Reykjavík.
Sigrún Stella Jónsdóttir, Jón Þorvaldsson,
Þórarinn Jónsson, Sigríður Halla Sigurðardóttir,
Magnús Þór Jónsson, Þórunn Þórisdóttir,
og fjölskyldur.
✝ Kristín Sig-urlaug Benja-
mínsdóttir fæddist
í Hafnarfirði 30.
nóvember 1921.
Hún lést á Hrafn-
istu í Hafnarfirði
26. október 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Steinunn
Sveinbjarnardóttir
kaupkona, f. 1892
og Benjamín Ást-
sæll Eggertsson verkamaður, f.
1893. Systir Kristínar er Soffía
Elísabet Benjamínsdóttir, f.
1927, sem hefur verið búsett í
Bandaríkjunum frá árinu 1950.
Hún á fjögur börn.
Kristín giftist 21. apríl 1943
eiginmanni sínum Guðmundi
Björnssyni, f. 1917, augnlækni
og prófessor. Guðmundur lést
árið 2001. Börn þeirra eru:
Hildur Guðmundsdóttir, f. 1943,
maki Ólafur Baldur Ólafsson, f.
1945, d. 1999. Dóttir þeirra er
Kristín Lára Ólafsdóttir, f.
1973, maki Magnús Eyjólfsson,
f. 1970. Börn þeirra eru: Tómas
Óli, f. 1999, Bergur Orri, f.
2002, og Tinna Brá, f. 2004.
Dagný Guðmundsdóttir, f. 1949,
maki Sævar Hjálmarsson, f.
1946. Synir þeirra eru: Guð-
f. 1990. Hrafnkell Guðmunds-
son, f. 1991. Gunnar Guðmunds-
son, f. 1962, maki Rakel María
Óskarsdóttir, f. 1958. Dætur
þeirra eru: Kristrún Gunn-
arsdóttir, f. 1989, í sambúð með
Vilhjálmi Steingrímssyni, f.
1985. Brynja Gunnarsdóttir, f.
1990. Auður Gunnarsdóttir, f.
1995.
Kristín ólst upp í Hafnarfirði,
stundaði nám við Barnaskóla
Hafnarfjarðar og Flensborg-
arskóla. Hún lauk verzl-
unarprófi frá Verzlunarskóla
Íslands 1939. Steinunn móðir
hennar var með handavinnubúð
í Hafnarfirði og starfaði Kristín
við hana eins og tími hennar
leyfði. Faðir Kristínar, Benja-
mín var vegna veikinda sinna
25 ár inni á sjúkrastofnunum.
Guðmundur maður Kristínar
fór 1944 til náms í Bandaríkj-
unum og fylgdi Kristín honum
eftir 1946. Eftir heimkomu
bjuggu þau alla tíð í Reykjavík
lengst af í Brekkugerði 5. Hús-
móðurstörfin voru hennar að-
alstarf framan af en seinna varð
hún aðalhjálparhella Guð-
mundar á augnlækningastofu
hans og aðstoðaði hann ennig
við margskonar ritstörf. Kristín
bjó eftir andlát Guðmundar á
heimili þeirra á Grandavegi 47
en flutti 2003 á hjúkrunarheim-
ili Hrafnistu, fyrst á Vífils-
stöðum og síðar í Hafnarfirði.
Útför Kristínar fór fram í
kyrrþey frá Fossvogskapellu 2.
nóvember 2012.
mundur Sæv-
arsson, f. 1973,
maki Hrönn Hilm-
arsdóttir, f. 1972.
Dætur þeirrra eru:
Sif, f. 2000, og Kar-
en, f. 2003. Birgir
Björn Sævarsson, f.
1978, maki Ve-
rushka Johanna
Echevarria Rojas,
f. 1982. Sonur
þeirra er: Matthías,
f. 2012. Davíð Þór Sævarsson, f.
1987. Björn Guðmundsson, f.
1951, maki Helga Lára Guð-
mundsdóttir, f. 1951. Synir
þeirra eru: Guðmundur Björns-
son, f. 1977, maki Þórunn Sif
Garðarsdóttir, f. 1977. Synir
þeirra eru: Óskar Gabríel, f.
2004, Benedikt, f. 2006, og
Tómas Björn, f. 2012. Hall-
grímur Björnsson, f. 1980, maki
Helga Guðrún Vilmundardóttir,
f. 1979. Börn þeirra eru: Þór-
hildur Helga, f. 2004 og Ari, f.
2009. Edda Guðmundsdóttir, f.
1958, maki Guðmundur Víðir
Helgason, f. 1956. Synir þeirra
eru: Helgi Hrafn Guðmundsson,
f. 1984, í sambúð með Mariu Be-
tiönu Salicas, f. 1984. Kjartan
Guðmundsson, f. 1988, í sambúð
með Kristínu Rut Þórðardóttur,
Mér líður vel voru síðustu orð
elskulegu tengdamóður minnar á
dánarbeði. Hún þrýsti hönd mína
og ég fann að hún var sátt að fá
nú loksins að kveðja og fara á
þann stað sem okkur er öllum
ætlaður. Þar vissi hún að biði
hennar elsku afi Guðmundur sem
beðið hefði lengi eftir henni og
mundi fagna samfundum í nýjum
heimi sem ég trúi að til er.
Oft hefur verið sagt að Kristín
tengdamóðir mín hafi verið barn
síns tíma, hvað merkir það? Eig-
inkona, móðir sem hugsaði aldrei
um sinn hag heldur fyrst um þá
sem næst henni stóðu. Guðmund-
ur tengdafaðir minn var því lán-
samur maður, hvílík sem hún var,
stoð hans og stytta í öllu sem
hann tók sér fyrir hendur.
Hún var alltaf útivinnandi.
Hún var því öðruvísi en flestar
samtíma mæður sem voru heima-
vinnandi húsmæður og tóku lít-
inn þátt í vinnu utan heimilis.
Hún var Verzlunarskólagengin,
bráðflink í vélritun og öllu bók-
haldi sem hún sá alfarið um.
Börnin fimm fædd á 19 árum
hjálpuðu mikið til og eldri systur
pössuðu sér yngri systkini. Krist-
ín hljóp alltaf við fót, hún var allt-
af að flýta sér, því alltaf voru
verkefnin næg. Gott var því að
loknum degi að skella sér í bað og
ná mestu þreytunni úr kroppn-
um.
Ég kveð þig nú eftir rúma 40
ára samferð, samferð sem aldrei
bar skugga á og gott er að minn-
ast.
Gamla amma, síðasti hlekkur-
inn af hennar kynslóð í fjölskyld-
unni hefur fengið hvíldina.
Hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir,
Helga Lára.
Það er laugardagsmorgunn og
við bræðurnir erum á leið í
Brekkugerðið til Kristínar ömmu
og Mumma afa. Þegar þangað
var komið beið okkar ristað
brauð með osti og kakómalt. Svo
máttum við horfa á barnatímann
á stöð 2. Frábær uppskrift að lúx-
us-laugardegi.
Amma og afi voru dugleg að
ferðast og sýna okkur myndir og
segja sögur frá ferðalögum sín-
um til framandi landa. Eftir góða
sögustund þá var amma fljót að
henda í pönnukökur ásamt því að
lauma að okkur kandís eða Qua-
lity Street sem hún virtist alltaf
eiga til staðar uppí skáp hjá sér.
Nú eða snakk-skrúfur með salti
og pipar. Og aldrei var maltölið
langt undan, enda gott fyrir
heilsuna.
Eftir því sem árin liðu þá færð-
ust heimsóknir okkar til ömmu
og afa frá laugardagsmorgnum
yfir á mánudagskvöld en þá var
gott að kíkja á Grandaveginn og
fá fiskibollur og grjónagraut.
Amma gerði þær bestu fiskiboll-
ur sem við bræður höfum bragð-
að.
Blessuð sé minning elsku
Kristínar ömmu, núna ertu farin
til afa. Hvíl í friði.
Guðmundur (Mummi) og
Hallgrímur (Halli)
Björnssynir.
Kristín Sigurlaug
Benjamínsdóttir
Það var ekki létt
að fá þær fréttir að vinnufélagi og
góður drengur væri látinn. Við Óli
G. eins og hann var kallaður unn-
um saman í allmörg ár hjá BP sem
nú heitir OLÍS, við afgreiðslu á
flugvélabensíni á flugvélar Loft-
leiða og eins á erlendar flugvélar
sem hér höfðu viðkomu. Þær eru
svo margar minningarnar sem
Ólafur Gunnar
Jónsson
✝ Ólafur GunnarJónsson fæddist
í Hafnarfirði 2. júní
1926. Hann lést á
Landakotsspítala
30. september 2012.
Útför Óla G. fór
fram í kyrrþey frá
Kópavogskirkju 12.
október 2012.
fara í gegnum hug-
ann, vegna þess að
vinna með þvílíkum
dugnaðar- og öðl-
ingsmanni lánast
ekki öllum. Það var
alveg sama hvað
gera þurfti í þessari
krefjandi vinnu þar
sem öryggis var
krafist, alltaf var Óli
tilbúinn, öruggur og
glaðbeittur, nótt sem nýtan dag.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast Óla í lífi og starfi og sé nú á eft-
ir honum yfir móðuna miklu.
Góða ferð elsku vinur.
Elsku Mæja og fjölskylda, ég
votta ykkur samúð mína á þessum
erfiðu tímum. Guð blessi ykkur
Guðmundur (Gúndi).
Kæri Felix.
Mér er eiginlega orða vant til
að lýsa sorg minni. Erfiðasti dag-
ur sem ég hef upplifað er dag-
urinn sem ég fékk að heyra að þú
værir látinn. Þú ert búinn að vera
Ólafur Felix
Haraldsson
✝ Ólafur FelixHaraldsson var
fæddur á Patreks-
firði 14.10. 1970,
hann lést 20. októ-
ber síðastliðinn af
slysförum.
Útför Felix fer
fram frá Patreks-
fjarðarkirkju 3.
nóvember 2012 og
hefst athöfnin kl.
14.
partur af mínu lífi
síðan ég var ung-
lingur og við geng-
um saman í gegnum
margt á okkar lífs-
leið. Við erum búin
að sitja hérna, ég og
börnin okkar, og
rifja upp svo ansi
margar og góðar
minningar. Komu
ansi margar góðar
minningar upp í
hugann, t.d. dagurinn sem við
byrjuðum að búa saman hérna á
Patró sem var nýársdagur 1990
og ég ólétt að henni Alexöndru.
Þú skaust smá út að hjálpa ein-
hverjum sem var fastur í skafli og
ætlaðir bara að vera í smástund.
En hálfátta um kvöldið komstu
heim blautur og sæll. Þú fórst að
leika þér í snjónum á jeppanum og
gleymdir alveg tímanum.
Það eru svo margar stundir
sem ég gæti skrifað um. En allra
stærsta gjöf sem hægt er að gefa
gafst þú mér, og það eru börnin
okkar. Og núna standa þau í þeirri
mestu sorg sem þau hafa upplifað,
en ég lofa þér að þau mun ég passa
og vernda af öllu mínu hjarta.
Finnst mér lífið óréttlátt að þau
eru svipt því að fá að eiga sínar
sorgir og sigra í komandi framtíð
föðurlaus. Litli drengurinn okkar
verður 12 ára bara eftir rúmar 3
vikur og það verður enginn pabbi
til að hlakka til að fá í afmæli. Þú
munt ekki standa við hlið hans
þegar hann fermist. Þau munu
ekki fá að upplifa að hafa þig við
hlið sér þegar þau útskrifast úr
námi, dætur þínar hafa þig ekki til
að leiða sig upp að altarinu og þú
munt aldrei upplifa það að sjá
barnabörnin þín. Þetta er allt svo
óréttlátt. Eina sem ég get lofað er
að börnin mun ég passa og við
munum alla tíð láta minningu
þína lifa í okkar hjörtum.
Það er svo hræðilega sárt að
þurfa að kveðja. Ég veit að þú
vakir yfir börnunum þínum sem
þú elskaðir meira en allt annað og
varst afskaplega stoltur af alla
tíð. En núna ertu frjáls og flýgur
um fagra fjallasali. Þakka þér
fyrir að hafa verið til, þú átt alltaf
stað í hjarta mér. Far vel, ljúfi
drengur.
Ég börnin mín vef, mjúkum móður
örmum
Svo mildað ég geti, öll þeirra lífsins
mein.
Með þolinmæði ég þurrka tár af
hvörmum
læt þau vita þau standa aldrei ein
(Heiða Jónsdóttir.)
Bjarnveig Guðbjartsdóttir.
Þig ég kveð, þá húmið fellur á,
þér ég þakka góðar gamlar stundir.
Það er sárt, þú hverfur okkur frá,
þín bíða grænar blómum skrýddar
grundir
Hvíldu í friði.
Innileg kveðja.
Ingibjörg Lilja
frá Feigsdal.
HINSTA KVEÐJA
Elsku pabbi, ég sakna
þín svo mikið og elska þig.
Ég mun alltaf elska minn-
ingarnar okkar sem við eig-
um saman. Ég gleymi þér
aldrei.
Þinn,
Guðbjartur.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju,
Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar