Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.11.2012, Blaðsíða 15
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suð- vesturkjördæmi fer fram í dag, laug- ardag. Kjörfundur hefst kl. 9.00 og honum lýkur kl. 18.00. Kosið er á sex stöðum í kjördæminu. Atkvæði í prófkjörinu verða talin í Lindaskóla í Kópa- vogi. Fyrstu tölur verða kynntar í Valhöll klukkan 19. Síðan verða töl- ur birtar á hálf- tíma fresti á www.xd.is. Búist er við því að talningu ljúki á milli klukkan 22.30 og 23. Sextán einstaklingar gefa kost á sér í prófkjörinu. Þeir eru: Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokksins, Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri íslenskra bóka, Elín Hirst, fjölmiðlafræðingur og sagn- fræðingur, Friðjón R. Friðjónsson ráðgjafi, Gunnlaugur Snær Ólafsson upplýsingafulltrúi, Jón Gunnarsson alþingismaður, Karen Elísabet Hall- dórsdóttir, varabæjarfulltrúi og skrifstofustjóri, Kjartan Örn Sig- urðsson bæjarfulltrúi, Óli Björn Kárason, ritstjóri og varaþingmað- ur, Ragnar Önundarson viðskipta- fræðingur, Ragnheiður Ríkharðs- dóttir alþingismaður, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir framkvæmda- stjóri, Sveinn Halldórsson húsa- smíðameistari, Sævar Már Gúst- avsson, sálfræðinemi við HR, Vilhjálmur Bjarnason viðskipta- fræðingur og Þorgerður María Hall- dórsdóttir háskólanemi. sisi@mbl.is Fyrstu töl- ur birtar klukkan 19  Prófkjör hjá Sjálf- stæðisflokknum FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 www.sigurlauganna.is Sigurlaug Anna 3.-5. sæti Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í SV- kjördæmi 10. nóvember. Kosningaskrifstofa að Linnetsstíg 2, Hf. Kosningakaffi í dag frá 14-18 Verið hjartanlega velkomin Við styðjum Sigurlaugu Önnu Jóhannsdóttur í 3.-5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í SV- kjördæmi því hún stendur fyrir vönduð og málefnaleg vinnubrögð og við treystum henni til þess að vinna með heimilunum og atvinnulífinu í landinu að öflugri uppbyggingu og kraftmikilli athafnastefnu. Almar Guðmundsson, Garðabæ. Anna María Daníelsdóttir, viðskiptafræðingur Hafnarfirði. Arthúr V. Jóhannesson, forstöðumaður Garðabæ. Axel Guðmundsson, verkefnastjóri Hafnarfirði. Ásgeir Örvarr Jóhannsson, húsasmiður Hafnarfirði. Áslaug G. Harðardóttir, fv.fjármálastjóri Seltjarnarnesi. Áslaug Hulda Jónsdóttir, framk.st. og bæjarfulltrúi Garðabæ. Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hafnarfirði. Edda Sveinsdóttir, ljósmóðir Kópavogi. Einar Páll Tamimi, lögfræðingur Garðabæ. Elín S. Óladóttir, sérfræðingur Hafnarfirði. Geir Jónsson, bæjarfulltrúi Hafnarfirði. Gróa Ásgeirsdóttir, Kópavogi. Guðmundur Á. Guðmundsson, sölu og þjónust. Hafnarfirði. Guðmundur G. Gunnarsson, bæjarfulltrúi Álftanesi. Guðný Pálsdóttir, Kópavogi. Guðrún Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Hafnarfirði. Gullveig Sæmundsdóttir, fv. ritstjóri Garðabæ. Hanna Lilja Jóhannsdóttir, lýðheilsufræðingur Garðabæ. Haraldur Þór Ólason, fv. bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Helga Vala Gunnarsdóttir, aðstoðarforstöðum. Hafnarfirði. Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri Seltjarnarnesi. Hildur Björk Guðmundsdóttir, verslunareigandi Álftanesi. Hildur Dungal, lögfræðingur Garðabæ. Jóhann Scheither, leiðsögumaður Garðabæ. Jóhann Tómas Egilsson, tæknifræðingur Kópavogi. Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri Seltjarnarnesi. Jón Rúnar Halldórsson, framkvæmdamaður Hafnarfirði. Katrín Ósk Ásgeirsdóttir, nemi Hafnarfirði. Kjartan Arnfinsson, endurskoðandi Hafnarfirði. Kristinn Arnar Jóhannesson, tæknifræðingur Hafnarfirði. Kristín E. Harðardóttir, forstöðumaður Garðabæ. Lára Árnadóttir, forstöðumaður Hafnarfirði. Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hafnarfirði. Mjöll Flosadóttir, viðskiptafræðingur Hafnarfirði. Ólafur Ingi Tómasson, slökkviliðsmaður Hafnarfirði. Ragnheiður Kristín Guðmundsdóttir, Kópavogi. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi Hafnarfirði. Sigrún Mathiesen, Hafnarfirði. Sólveig Kristjánsdóttir, stjórnmálafræðingur Hafnarfirði. Steinar J. Lúðvíksson, rithöfundur Garðabæ. Svana Helen Björnsdóttir, formaður SI Seltjarnarnesi. Unnur Lára Bryde, Hafnarfirði. Valdimar Svavarsson, bæjarfulltrúi Hafnarfirði. Þorgerður Anna Arnardóttir, skólastjóri Garðabæ. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður Hafnarfirði. Þorsteinn Víglundsson, Garðabæ. Þórunn Erna Clausen, leikkona Garðabæ. Mæðradagurinn hefur verið hald- inn hátíðlega á Íslandi frá árinu 1934 en feðradagurinn er til- tölulega nýkominn fram á sjón- arsviðið og var haldinn hátíðlegur fyrst á Íslandi árið 2006. Heimir Hilmarsson, starfandi formaður Fé- lags um foreldrajafnrétti, segir vert að huga að stöðu feðra á þess- um degi. „Þó meginreglan um sam- eiginlega forsjá foreldra hafi verið tekin upp í lög árið 2006 er mikill meirihluti barna eða nærri því 95 prósent þeirra sem eiga foreldra á tveimur heimilum með lögheimili sitt skráð hjá móður. Hvergi í jafn- réttisumræðunni hallar meira á karlmenn en þar,“ segir Heimir en hann bendir á að þó forsjá sé sam- eiginleg hafi lögheimilisforeldrið meira vald yfir barninu og fái alla aðstoð s.s. barnabætur og aðra aðstoð. Hrefna Friðriksdóttir, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands, segir að í þeim tilvikum þegar fólk sættist á sameiginlega forsjá ætti það að geta tekið sameiginlegar ákvarðanir um barnið. „Það er þó auðvitað ekki alltaf þannig. Und- irstöðuatriðið er fólgið í því að meðan hætta er á togstreitu verður að tryggja samfellu í líf barnsins og löggjafinn geri það með því að fara fram á fasta búsetu hjá öðru hvoru foreldri. Það hefur þá vissar heim- ildir til að taka ákvarðanir í lífi barnsins.“ Önnur réttindi sem lúta að lög- heimilisforeldri er annað mál að sögn Hrefnu. „Réttarstaða fólks að öðru leyti eins og mæðralaun, húsa- leigubætur, barnabætur og önnur réttindi koma hins vegar barna- lögum ekki við og er allt annar flötur á umræðunni.“ Að mati Hrefnu væri ekki heppi- legt að hrófla við búsetu t.d. með skiptri búsetu til að jafna rétt for- eldra til bóta og annarra réttinda. Hún telur heppilegra að nálgast um- fangsefnið út frá umgengni foreldra við barnið. „Það liggja inni í ráðu- neyti fullbúin drög að nýju meðlags- kerfi sem m.a. taka mið af um- gengni sem við gerum ekki í dag.“ Hallar á feður á feðradaginn  Lögheimili barna í 95 prósentum til- vika hjá móður eftir skilnað Morgunblaðið/Arnaldur Feðradagurinn Var fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi árið 2006. Ósk Vilhjálms- dóttir tekur þátt í forvali Sam- fylkingarinnar í Reykjavík- urkjördæmum fyrir alþing- iskosningar 2013 og sækist eftir 6. sæti. Ósk er myndlistarmaður, leið- sögumaður og rekur fyrirtæki í ferðaþjónustu. Hún nam frönsku við Sorbonne í París og myndlist við Hochschule der Künste í Berlín. Er með meirapróf og próf úr Leið- söguskóla Íslands. Jafnframt hefur hún unnið við gönguleiðsögn og al- menna leiðsögn í 20 ár, auk þess að starfa við myndlistarkennslu. Hún var ein af stofnendum Framtíðar- landsins og var stjórnarformaður í Nýlistarsafninu í nokkur ár. Ósk segist hafa brennandi áhuga á skapandi hugsun í samfélaginu og á umhverfisvernd. Þar séu mikil tækifæri í nýsköpun og atvinnu- uppbyggingu. Á því sviði hafi hún talsverða reynslu. Sækist eftir 6. sæti hjá Samfylkingu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.