Morgunblaðið - 10.11.2012, Side 16

Morgunblaðið - 10.11.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Kjósum öflugan mann með skarpa sýn á atvinnuvinnulífið Ragnar Önundarson hefur sýnt með verkum sínum og skrifum um viðskiptalíf og fjármál að hann á mikið erindi í forystusveit Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisfólk í Kraganum, mætum í prófkjörið og tökum þátt í að móta nýja framtíð. Sjálfstæðisfólk í Kraganum, sendum skýr skilaboð veljum Ragnar Önundarson í 1. sætið. Stuðningsmenn Greinar Ragnars og framtíðarsýn: www.ragnaronundarson.is 1. ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Ægisson Siglufjörður Á miðju sumri hófu þeir feðgar Hjalti Hafþórsson og Hafþór Rós- mundsson að endursmíða svokall- aðan Vatnsdalsbát frá 10. öld í gamla slippnum á Siglufirði. Verkið tók um 500 klukkustundir. Laugardaginn 13. október síðastliðinn var báturinn sjósettur og þótti reynast vel.    Hafliðafélagið afhenti Síldar- minjasafni Íslands 21. júlí sl. glæsi- legt líkan Búlgarans Daniels Todo- rov af síðutogaranum Elliða SI 1, en hann var einn af átta nýsköp- unartogurum sem smíðaðir voru fyr- ir íslenska ríkið hjá skipasmíðastöð Cochrane & Sons í Selby í Yorkshire á Englandi. Hann sökk í aftakaveðri á Breiðafirði 10. febrúar 1962.    Tveir 8 ára drengir fundu síð- sumars tvær grænar lirfur hér í bæ og settu í tóma skyrdollu með loft- götum í og hugðust leyfa þeim að púpa sig, til að sjá hvað á bak við leyndist. Sama dag var kominn um þær loðinn vefur og þær lagstar í dvala. Þegar litið var í boxið nokkr- um vikum síðar var fiðrildi komið í ljós. Þetta var gammaygla, sem á heimkynni erlendis. Þegar haft var samband við skordýrafræðing kom hann af fjöllum, hafði aldrei heyrt minnst á að þetta hefði gerst á Ís- landi fyrr. Annar kannaðist við slíkt, en einungis í gróðrarstöðvum og þar sem aðstæður væru mildari og skil- yrði betri. Að heyra um þetta frá Norðurlandi, hvað þá yst af Trölla- skaga, þótti honum merkileg tíðindi.    80 ára vígsluafmælis Siglu- fjarðarkirkju var minnst 28. ágúst síðastliðinn. Hún er talin vera fyrsta opinbera bygging á Íslandi sem kynt er með rafmagni. Því var hleypt á á jóladag 1933.    Margir jarðskjálftar urðu út af Norðurlandi fyrir skemmstu, eins og alþjóð veit, og sumir allharðir. Síðasta dag októbermánaðar boð- aði Almannavarnardeild ríkis- lögreglustjóra til almenns fundar þar sem farið var yfir stöðuna og rædd hugsanleg viðbrögð og næstu skref við enn kröftugri skjálfta. Beygur er í fólki, ekki síst því sem man það sem gerðist 1934 og 1963.    Norðurljósin hafa bragað nokk- uð yfir Fjallabyggð það sem af er vetri og glatt margt augað, íslenskt sem erlent.    Eftir tæpa viku héðan í frá, nánar tiltekið 15. nóvember, hverfur sólin á bak við fjöllin í suðri, fyrst Blekkil og svo þau sem vestar eru, og mun ekki sjást aftur fyrr en eftir 74 daga. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Siglufjörður Sólin er við það að hverfa á bak við fjöllin og hún mun ekki sjást aftur fyrr en eftir 10 vikur. Sólin að hverfa bak við fjöllin Samvinnufélag útgerðarmanna í Neskaupstað styrkti nýverið Nes- skóla til kaupa á 11 bekkjarsettum af skjávörpum, hátölurum og öðr- um búnaði sem þarf til uppsetn- ingar. Félagið greiddi ennfremur fyrir alla uppsetningu. Samtals nemur styrkupphæðin 4,4 millj- ónum króna. Samvinnufélagið, sem fagnaði 80 ára afmæli á árinu, var stofnað af útvegsmönnum í Nes- kaupstað en hlutverk félagsins í upphafi var að útvega salt og veið- arfæri fyrir félagsmenn. „Varla þarf að taka fram hversu mikil breyting þetta er fyrir þá sem starfa í skólanum, bæði kennara og ekki síst nemendur sem munu njóta góðs af þessum breyttu aðstæðum, sem sköpuðust með þessum mynd- arlega styrk,“ segir í frétt frá skól- anum. Ljósmynd/Áslaug Lárusdóttir Útgerðarmenn styrktu Nesskóla Mats Persson, forstöðumaður hug- veitunnar Open Europe í Lund- únum, flytur fyrirlestur í boði Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt og Evrópuvaktarinnar, í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, mánudaginn 12. nóvember kl. 12-13 í stofu 201 í Odda. Hann mun ræða um sam- keppnishæfni Evrópu. Björn Bjarnason verður fundarstjóri. Fundurinn fer fram á ensku. Open Europe er hugveita sem starfar í tengslum við for- ystumenn í bresku atvinnulífi og hefur skrifstofur í Lundúnum og Brussel. Ræðir samkeppnis- hæfni Evrópu Málþing um íslenskar og norskar norður- slóðarannsóknir verður haldið í Háskólanum á Akureyri 12.-13. nóvember nk í hátíðarsal háskól- ans. Málþingið er haldið í tengslum við samning um aukið vísindasamstarf Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða, sem utanríkisráðherrar Íslands og Noregs, Össur Skarphéðinsson og Jo- nas Gahr Støre, undirrituðu á síðasta ári. Að málþinginu standa utanríkisráðuneyti Ís- lands og Noregs í samstarfi við nokkrar stofnanir. Aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, Torgeir Larsen, og Einar Gunn- arsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, munu setja málþingið sem hefst kl. 14.00. Í framhaldi munu íslenskir og norskir vísindamenn fjalla um rannsóknir sínar á norðurslóðum. Málþingið fer fram á ensku og er öllum op- ið. Málþing um norðurslóðarannsóknir Háskólinn á Akureyri Ís- landsklukkan er til taks. Öldrunarheimili Akureyrar brydda upp á þeirri nýjung að halda nám- skeið um kynlíf á öldrunarheim- ilum. Námskeið verður haldið mánu- daginn 12. nóvember kl. 13-15 í samkomusalnum í Hlíð. Fyrirlesari verður Jóna Ingi- björg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur og sérfræðingur í klínískri kynfræði. Ræðir um kynlíf á öldrunarheimilum Sykursjúkur slóv- enskur ferðamað- ur, sem kom til Ís- lands í atvinnuleit, hafði með í för insúlín sem dugði honum til 5-6 mánaða. Ís- lenska tollgæslan tók hins vegar af manninum allt in- súlín sem var um- fram það magn sem svarar til 100 daga notkunar. David Lazorik, ættingi mannsins, er búsettur hér á landi. Hann segir að ættinginn hafi fengið þær upplýs- ingar að ef hann verður uppiskroppa með lyfið á þeim tíma sem hann dvel- ur í landinu geti hann fengið fleiri in- súlínskammta. Þar til verði lyfið í geymslu hjá Tollgæslunni. David gagnrýnir að ekki sé sérstök stofnun sem hafi þekkingu á með- höndlun lyfsins og sjái um geymslu þess. „Tollinum er ætlað að skammta honum insúlín eftir að hann er búinn með þennan 100 daga skammt. Þetta á að vera geymt í kæli og mér finnst fáránlegt að það sé í höndum tollsins að geyma þetta. Af hverju er insúl- ínið ekki geymt í stofnun sem hefur þekkingu á því hvernig best er að geyma það?“ segir David. Kári Gunnlaugsson, aðaldeildar- stjóri hjá tollgæslunni, staðfesti að lyfið sé í geymslu þar. „Við gerum þetta í samstarfi við Lyfjastofnun. Við erum ekki með neinn sérstakan kæli frá Lyfjastofnun. Insúlín á að geyma í venjulegum kæli við 3-6 gráðu hita og það gerum við,“ segir Kári. vidar@mbl.is Tollgæslan geymir in- súlínið Insúlín Toll- gæslan geymir skammtana. STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.