Morgunblaðið - 10.11.2012, Page 18

Morgunblaðið - 10.11.2012, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Brokkolítöflurnar - Cognicore® Daily Fékk gömlu góðu orkuna til baka ! Auk þess sléttari húð og nýtt glansandi heilbrigt hár í kaupbæti. Ég byrjaði að taka brokkolitöflurnar Cognicore efir að hafa séð vin minn sem hafði alltaf verið orkulaus og þreyttur taka ótrúlegum breytingum eftir að hann fór að taka töflurnar. Sjálf er ég alsæl því ég fékk gömlu góðu orkuna mína til baka. Ekki bara það, heldur hrökk meltingin hjá mér líka í lag eftir rúman mánuð og nú fæ ég varla kvef og pestir. Betra útlit ! Það er klárt mál að brokkolítöflurnar vinna gegn öldrunaráhrifum því fínu andlitshrukkurnar sem koma jú bara, eru ekki nærri eins sýnilegar og áður. Húðin er sléttari, ásýndin afslappaðri og mér finnst ég líta betur út. Eins er það með hárið sem alltaf var svo líflaust og þreytt - halló.... það er allt í einu orðið glansandi og vex meira nú en fyrir 20 árum. Það eru forréttindi að hafa kynnst brokkolí áhrifunum ! Hrafnhildur Hákonar 53 ára Brokkolítöflurnar Cognicore fást í helstu apótekum og heilsubúðum www.brokkoli.is Náttúrulegt fagnaðarefni fyrir frumurnar! Kristniboðsdagur þjóðkirkj- unnar er á morgun, sunnudag- inn 11. nóvember. Biskup hvetur presta og starfsfólk safnaðanna til að minnast kristniboðsins í guðs- þjónustum dagsins og taka sam- skot til þess. Kristniboðsalm- anakinu fyrir árið 2013 verður víða dreift í kirkjum landsins. Samband íslenskra kristni- boðsfélaga var stofnað árið 1929 og stóð fyrstu tvo áratug- ina að baki íslenskum kristniboðum í Kína. Frá árinu 1954 hafa íslenskir kristniboðar verið að verki víða í suðurhluta Eþíópíu. Alls hafa rúmlega 30 Íslendingar starfað sem kristniboðar í landinu, flestir í yfir 10 ár. Árið 1978 hóf Kristniboðssambandið starf í Keníu og hafa fulltrúar þess dvalið nánast sleitulaust meðal Pókotmanna í norðvesturhluta landsins frá þeim tíma. Íslenskir kristniboðar eru nú einnig að störfum í Japan, segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga. Skólastarf Glaðir nemendur í einum þeirra skóla sem íslenskir kristniboðar reka í Afríku. Hvatt til samskota á kristniboðsdeginum Formleg opnun framhaldsdeildar á Hvammstanga fer fram mánudaginn 12. nóvember kl. 16.00 í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Þann dag verður einnig opið hús í húsakynnum deildarinnar, á neðri hæð félagsheimilisins kl. 16.00-18.00. Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, verður viðstödd opnunina og mun undirrita samstarfssamning milli Húna- þings vestra og FNV. Boðið verður upp á vöfflur og kaffi á efri hæðinni. Í haust var stofnuð framhaldsdeild frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Hvammstanga. Verkefnið er samstarfsverkefni milli Húnaþings vestra og FNV. Í dreifnáminu geta nemendur úr Húnaþingi vestra stundað nám á framhaldsskólastigi undir stjórn kennara FNV, með aðstoð nútíma- upplýsingatækni. Markmiðið er að nemendur geti stundað almennt bók- nám fyrstu tvö árin í sinni heimabyggð. Umsjónarmaður deildarinnar á Hvammstanga er Rakel Runólfsdóttir og heldur hún utan um starfsemina þar. Öll kennsla fer fram gegnum fjar- fundabúnað frá Sauðárkróki. Nemendafjöldi í dreifnáminu er 17, þar af 12 sem útskrifuðust úr 10. bekk sl. vor. Dreifnámið byggist á að veita nemendum almennan bóklegan grunn fyrstu tvö árin, en almennt má segja að dreifmennt sé góður kostur til að brúa bil milli landshluta og gera einstaklingum kleift að stunda nám hvar sem þeir eru staðsettir, segir í tilkynningu. Nemendur í dreifnámi fara í tvær námslotur á Sauðárkróki á hverri önn, viku í senn. Loturnar eru mikilvægur hluti af náminu, þá gefst nemendum tækifæri til þess að hitta kennara, fá verklega kennslu og stunda félagslíf. Opið hús verður á formlegri opnun fram- haldsdeildarinnar á Hvammstanga Dagskrá á vegum Listvinafélags Hveragerðis, sem frestað var vegna veðurs síðasta laugardag, verður haldin í dag, laugardaginn 10. nóv- ember, í Listasafni Árnesinga við Austurmörk. Dagskráin hefst kl. 13:00 og stendur í klukkustund. Í upphafi kynnir Guðrún A. Tryggvdóttir formaður félagið og sýninguna Listamannabærinn Hveragerði – fyrstu árin. Síðan opna Svanur Jóhannesson og Heið- dís Gunnarsdóttir nýjan vef félags- ins og Páll Svansson vefhönnuður kynnir vefinn. Anna Margrét Stef- ánsdóttir les úr bók sinni Engillinn minn og Magnús Þór Sigmundsson flytur nokkur af lögum sínum. Allir eru velkomnir. Nýr vefur Svanur Jóhannesson og Guðrún A. Tryggvdóttir, formaður félagsins. Listvinafélag Hvera- gerðis opnar nýjan vef á fundi í dag Ráðstefnan Lýðræði á 21. öld verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, laugardaginn 10. nóvember, kl. 10- 15. Þar verður fjallað um eflingu lýðræðis á Íslandi, þátttöku íbúa í fjárhagsáætlanagerð, íbúalýðræði í Reykjavík og barnalýðræði. Ögmundur Jónasson inn- anríkisráðherra heldur fyrirlesturinn: Lýðræði á nýrri öld: Valdið til fólksins. Erlendir fyrirlesarar eru Melissa Mark-Viverito og Donata Secondo og munu þær fjalla um fjárhagsáætlanagerð með þátttöku íbúa í New York. Eftir hádegi mun Ellý Katrín Guðmunds- dóttir borgarritari fjalla um íbúalýðræði í Reykjavík og Jón Gnarr borg- arstjóri um Betri Reykjavík. Síðasti hluti ráðstefnunnar fjallar um barna- og ungmennalýðræði og undir þeim lið verða fluttir fjórir fyrirlestrar. Lýðræði á 21. öld í Ráðhúsi Reykjavíkur Köku- og nytjabasar verður hald- inn sunnudaginn 11. nóvember kl. 12 í safnaðarheimili Áskirkju við Vesturbrún. Á markaðnum verður ýmislegt á boðstólum, svo sem heimabakstur, notaður og nýr varningur. Jafnframt verður kaffi- sala. Allir eru velkomnir. Basar í Áskirkju Sunnudaginn 11. nóvember verður haldinn skemmtilegur handverks- markaður í Víkinni Sjóminjasafni við Grandagarð milli kl. 11 og 17. Til sölu verður íslenskt handverk sem er tilvalið í jólapakkana. Margt verður gert til skemmtunar þennan dag. Harmonikkuleikarar skemmta gestum og jólaföndur verður fyrir börnin – allt efni á staðnum. Heitt verður á könnunni á kaffi- húsinu og heimabakað bakkelsi á boðstólum að vanda. Sjóminjasafn- ið verður opið og boðið upp á leið- sögn um varðskipið Óðin. Allir eru velkomnir í Víkina. Markaður í Víkinni STUTT Batteríið arkitektar í samstarfi við arkitektastofuna Link Arkitektur í Bergen í Noregi sigruðu í arkitekta- samkeppni þriggja arkitektafyrirtækja um framtíð- arsýn fyrir bæjarhlutann Fyllingsdalen í Bergen. Hin tvö fyrirtækin sem tóku þátt voru norska arkitekta- stofan Snøhetta og danska arkitektastofan BIG, Bjarke Ingels Group, hvort tveggja heimsfræg arkitekta- fyrirtæki. Um er að ræða sex hektara svæði og er gert ráð fyrir að á því rísi þétt byggð verslana, skrifstofa og íbúða u.þ.b. 150.000 fermetrar. Heildarkostnaður við fram- kvæmdina gæti numið yfir 60 milljörðum króna og mun um eitt stærsta byggingaverkefni í Noregi að ræða. Vinningstillagan hefur vakið athygli í Noregi, ekki síst tvö 35 hæða hús, sem setja mikinn svip á hverfið. Sóttur var innblástur í staðbundnar hefðir í arkitekt- úr eins og þær birtast t.d. í gömlu bryggjuhúsunum við höfnina í miðbæ Bergen og þau sérkenni túlkuð á nú- tímalegan hátt. Byggðarmynstur tillögunnar felur í sér verulegan sveigjanleika hvað varðar áfangaskil, þétt- leika og framkvæmdaröðun. Hverfið mun tengjast nýju léttlestarkerfi í Bergen. Þá skipa sjálfbærar skipulags- lausnir ríkan sess í verðlaunatillögunni. Batteríið arkitektar hefur starfað í Noregi síðan 2009 og hannað þar fjölda bygginga, ýmist beint eða í samstarfi við önnur arkitektafyrirtæki á vesturströnd- inni í Noregi. Þar á meðal Link Arkitektur bæði í Stavanger og Bergen. aij@mbl.is Tvíburaturnar Vinningstillagan hefur vakið athygli í Noregi, ekki síst turnarnir sem setja mikinn svip á hverfið. Batteríið sigraði í samkeppni í Noregi  Innblástur sóttur í bryggjuhúsin í miðborg Bergen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.