Morgunblaðið - 10.11.2012, Síða 25
Veiðarfæri og afli
Veiðarfæraskipting afla íslenskra skipa fiskveiðiárin 2007/08 - 2011/12
Þorskígildi
hvers árs % 2007/08 2008/09 2009/10 2010/11 2011/12
Botnvarpa 45,5% 45,0% 44,5% 40,1% 41,2%
Dragnót 6,6% 7,7% 5,5% 4,7% 4,0%
Handfæri 1,0% 2,1% 2,3% 3,0% 2,7%
Lína 19,3% 22,4% 19,8% 19,3% 16,6%
Net 4,7% 6,2% 4,8% 5,2% 5,4%
Nót 7,1% 11,1% 16,2% 9,7% 9,1%
Annað 15,8% 5,5% 6,9% 18,0% 21,1%
Eins og undanfarin fiskveiðiár var
botnvarpan mikilvægasta veiðarfær-
ið á Íslandsmiðum á nýliðnu fisk-
veiðiári með tilliti til aflamagns.
Hlutur botnvörpu var 41,2% og hef-
ur aflinn verið reiknaður til þorsk-
ígilda samkvæmt þorskígildisstuðl-
um, að því er fram kemur í Aflahefti
Fiskistofu.
Hlutur línu hefur verið í kringum
20% undanfarin fiskveiðiár en
minnkar heldur þetta árið, fer niður í
16,6%. Nokkuð stór hluti afla sem
flokkast undir önnur veiðarfæri er
flotvarpa. Upplýsingarnar sem
koma fram í meðfylgjandi töflu ná til
meira en 95% af verðmæti heildar-
afla tímabilsins.
Heildaraflinn á fiskveiðiárinu var
rúm 1.443 þúsund tonn og jókst um
27% milli ára. Það skýrist einkum af
290 þúsund tonna aukningu í upp-
sjávarafla frá fyrra ári en hann nam
rétt tæpri einni milljón tonna. Botn-
fiskaflinn jókst um 15 þúsund tonn.
aij@mbl.is
Botnvarpan mikil-
vægasta veiðarfærið
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
Kjörstaðir í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins
í Suðvesturkjördæmi
Kjörstaðir verða opnaðir laugardaginn
10. nóvember kl. 9.00 og lokað kl. 18.00.
Álftanes
Vallarhús við Breiðumýri
Garðabær
Sjálfstæðisheimilið, Garðatorgi 7
Hafnarfjörður
Víðistaðaskóli, Hrauntungu 7
Kópavogur
Sjálfstæðisheimilið, Hlíðarsmára 19
Mosfellsbær
Sjálfstæðisheimilið, Háholti 23
Seltjarnarnes
Sjálfstæðisheimilið, Austurströnd 3 – 3. hæð
Bjarni
Benediktsson
Óli Björn
Kárason
Bryndís
Loftsdóttir
Ragnar
Önundarson
Elín Hirst
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Friðjón R.
Friðjónsson
Sigurlaug Anna
Jóhannsdóttir
Gunnlaugur
Snær Ólafsson
Sveinn
Halldórsson
Jón
Gunnarsson
Sævar Már
Gústavsson
Karen Elísabet
Halldórsdóttir
Vilhjálmur
Bjarnason
Kjartan Örn
Sigurðsson
Þorgerður María
Halldórsdóttir
Nánari upplýsingar á www.xd.is Sjálfstæðisflokkurinn
Yfirdýralæknir reiknar með að
leggja til við ráðherra að naut-
gripir sem greinst hafa með smit-
andi barkabólgu verði felldir. At-
vinnuvegaráðuneytið mun taka
endanlega ákvörðun um aðgerðir.
Fyrir fáeinum vikum kom í ljós
að nautgripir á Egilsstaðabúinu
voru með smitandi barkabólgu sem
getur valdið fósturláti. Nánari
sýnatökur og rannsóknir í umdæm-
inu og um allt land leiddu í ljós að
33 kýr á búinu voru smituð og einn
nautgripur á öðrum bæ en hann
hafði komið frá Egilsstaðabúinu.
Ekkert smit fannst á öðrum bæjum
í umdæminu og rannsóknir á mjólk
benda ekki til þess að sjúkdóminn
sé víðar að finna.
Nú er verið að rannsaka blóðsýni
úr öllum gripum á þessum tveimur
bæjum sem ekki hafa áður verið
rannsakaðir, samtals vel á þriðja
hundrað. Halldór Runólfsson yf-
irdýralæknir segir að þegar niður-
stöður liggja muni hann leggja til
að sýktir gripir verði felldir.
Sýktir
nautgripir
verði felldir
Allir nautgripir á
2 bæjum prófaðir
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Verið er að rannsaka vel á
þriðja hundrað nautgripa.
Magna Björk
Ólafsdóttir sendi-
fulltrúi Rauða
krossins á Íslandi
er á leið til Keníu
þar sem hún mun
næsta árið starfa
við að stýra lækn-
isþjónustu og
samhæfa aðgerð-
ir á hamfara-
svæðum í Afríku.
Hún heldur til Naíróbí í dag, laug-
ardag.
Magna Björk, sem er hjúkr-
unarfræðingur, mun starfa á svæð-
isskrifstofu Alþjóða Rauða krossins í
Naíróbí. Skrifstofan þjónar 54 lönd-
um Afríku.
Magna hefur áður starfað sem
sendifulltrúi Rauða krossins, á Haítí
2010 og í Najaf í Írak 2011. Þá vann
Magna fyrir Lækna án landamæra í
Síerra Leóne fyrr á þessu ári.
Starfar fyrir
Rauða kross-
inn í Keníu
Magna Björk
Ólafsdóttir
Snjóflóð sem féll í Skagafirði, úr
svonefndri Úlfskál í mynni Kol-
beinsdals og Hjaltadals, bar með
sér um 60 tonna stein sem stóð í um
160 metra hæð. Frá þessu er greint
á fréttavefnum Feyki. Haft er eftir
Þorvaldi G. Óskarssyni ábúanda að
flóðið hafi verið með þeim lengri
sem fallið hafa á svæðinu. Það
braut meðal annars niður hlaðinn
stífluvegg uppistöðulóns rafstöðvar
sem sett var upp árið 1947.
Snjóflóð bar með
sér 60 tonna stein