Morgunblaðið - 10.11.2012, Side 57

Morgunblaðið - 10.11.2012, Side 57
Þá hefur Sigrún stundað þýðingar fyrir leikhús og útvarp. Sigrún var formaður 4. deildar FÍL og fulltrúi hennar í trún- aðarmannaráði FÍL 1979-82, sat í samninganefnd leikara við Þjóðleik- húsið 1974 og sat í stjórn Hlaðvarp- ans frá stofnun 1985-88. Fjölskylda Sigrún giftist 30.12. 1961 Ragnari Björnssyni, f. 27.3. 1926, d. 10.10. 1998, dómorganista og skólastjóra Nýja tónlistarskólans og stjórnanda Karlakórsins Fóstbræðra um árabil. Hann var sonur Björns Guð- mundar Björnssonar, bónda í Torfu- staðahúsum í Ytri-Torfustaðahreppi og síðar smiðs og organista á Hvammstanga, og k.h., Sigrúnar Ragnheiðar Jónsdóttur, hjúkr- unarkonu, saumakonu og harm- oníkuleikara. Dætur Sigrúnar og Ragnars eru Guðríður Ragnarsdóttir, f. 24.7. 1962, frumkvöðull; Birna, f. 27.12. 1968, söngkona og á hún fjögur börn. Stjúpdætur Sigrúnar og dætur Ragnars eru Hrefna Nellý Ragn- arsdóttir, f. 11.10. 1947, leikskóla- kennari og á hún þrjú börn; Sigrún Ragnarsdóttir, f. 31.5. 1955, fram- haldsskólakennari og leiðsögumað- ur, og á hún einnig þrjú börn; Ólöf Gerður Ragnarsdóttir, f.17.6. 1959 skurðhjúkrunarfræðingur og á hún tvo syni. Systkini Sigrúnar: Ingibjörg Ragnheiður, f. 14.9. 1925, fyrrv. yf- irpóstafgreiðslumaður; Vigfús Björnsson, f. 20.1. 1927, d. 6.1. 2010, bókbandsmeistari og rithöfundur; Sigríður S.P. Björnsdóttir, f. 5.11. 1929, listmálari og listmeðferð- arfræðingur; Oddur Björnsson, f. 25.10.1932, d. 21.11. 2011, leikrita- skáld. Foreldrar Sigrúnar voru Björn O. Björnsson, f. 21.1. 1895, d. 29.9. 1975, prestur, ritstjóri og nátt- úrufræðingur, og k.h., Guðríður Vig- fúsdóttir, f. 2.6. 1901, d. 12.4. 1973, húsfreyja. Úr frændgarði Sigrúnar Björnsdóttur Sigrún Björnsdóttir Sveinn Eiríksson pr. í Ásum Sigríður Sveinsdóttir húsfr. á Flögu Vigfús Gunnarsson óðalsb. á Flögu í Skaftártungum Guðríður Vigfúsdóttir húsfr. á Hálsi Gunnar Vigfússon óðalsb. á Flögu Þuríður Ólafsdóttir húsfr. á Flögu Ragnheiður Sigurðardóttir húsfr. í Stóru-Mörk Benjamín Guðmundsson listvefari á Stóru-Mörk í Svartárdal Ingibjörg Benjamínsdóttir klæðskeri Oddur Björnsson stofnandi Prentverks Odds Björnssonar Björn O. Björnsson prófastur á Hálsi í Fnjóskadal Rannveig Sigurðardóttir frá Marðarnúpi, veitingam. og kennari í Rvík. Björn Oddsson hreppstj. á Hofi í Vatnsdal Guðríður Pálsdóttir húsfr. í Ásum Páll Pálsson pr., alþm. og heyrn- leysingjakennari í ÞingmúlaSveinn Pálsson kaupm. í Vogum Þuríður Sveinsdóttir húsfr. í Rvík Hörður Einarsson hrl. og fram- kvæmdastj. Ragnheiður Pálsdóttir húsfr. að Hryggstekk Arnfinnur Jónss. skólastj. Róbert Arnfinnss. leikari Gísli Sveinsson Alþingsforseti Sveinn Sveinsson b. á Norður-Fossi Páll sandgræðslustj. Runólfur sandgræðslustj. Sveinn Runólfsson landgræðslustj. Róshildur Sveinsdóttir yogakennari í Mýrdal og Rvík. Brynja Benediktsdóttir leikstj., móðir Benedikts Erlingssonar leikhúsmanns Ólöf Ólafsdóttir, húsfr. á Raufarfelli undir Eyjafjöllum Páll Bárðarson b. á Ytri- Skógum Gústaf E. Pálsson borgarverk- fræðingur Sigurður Björnsson prentsmiðjustj. á Akureyri Geir S. Björnsson prentsmiðjustj. á Akureyri Oddur Sigurðsson jarðfræðingur Ragnar Sigurðsson augnlæknir Magnús Björnsson prófastur á Prestbakka Björn Magnússon guðfræði- prófessor Björn prófessor í trúar- bragðasögu Afmælisbarnið Sigrún Björnsdóttir, leikkona og fyrrv. skólastjóri. ÍSLENDINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012 Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900 Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur Allar GSM rafhlöður 2.990.- SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali - Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick Gerið verðsamanburð! iPad borðstandur - Festing fyrir sætisbak fylgir 5.990.- Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum! Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad og aðra spilara eða síma. Innbyggð rafhlaða. 4.990 Allt fyrir IPod og Ipad Ipad bílhleðslutæki 1.490.- Öll GSM bílhleðslutæki 990.- 12V tvídeilir 1490.- Flott úrval 12V fjöltengja í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið. 12V þrídeilir með Micro-USB útgangi og viðvörunarljósi ef raf- geymirinn í bílnum er að tæmast 2.990.- Matthías Jochumsson fæddistþann 11.11. 1835 að Skóg-um í Þorskafirði, sonur Jochums Magnússonar og Þóru Ein- arsdóttur. Þóra var systir Guð- mundar, pr. á Kvennabrekku, föður Ásthildar, móður Muggs myndlist- armanns, og föður Theodóru Thor- oddsen skáldkonu, ömmu Dags Sig- urðarsonar skálds. Systir Þóru var Guðrún, amma Ólínu og Herdísar Andrésdætra. Foreldrar Matthíasar bjuggu við barnaómegð og gestanauð á harð- æristímum og fór því Matthías til vandalausra 11 ára. Hann var til sjós og í vinnumennsku og sinnti versl- unarstörfum í Flatey þar sem hann kynntist fólki sem kom honum til mennta. Hann útskrifaðist frá Prestaskólanum þrítugur að aldri. Matthías var prestur á Kjalarnesi en þar missti hann fyrstu og aðra eiginkonu sína með stuttu millibili. Hann sagði þá af sér prestsskap, fór utan og varð síðan ritstjóri Þjóðólfs. Eftir að Matthías giftist þriðju konu sinni var hann prestur að Odda á Rangárvöllum í nokkur ár en síðan á Akureyri. Matthías og Steingrímur Thor- steinsson voru helstu skáldmær- ingar síðrómantísku stefnunnar. Vinátta þeirra var einlæg þó oft hvessti á milli þeirra. Matthías var skáld mannlífs, örlaga og tilfinninga en Steingrímur skáld hinnar ósnortnu náttúru. Matthías var mælskur, andríkur og tilfinninga- næmur en Steingrímur vitsmuna- legra og líklega vandvirkara skáld. Matthías var auk þess eitt mesta trúarskáld þjóðarinnar. Hann orti lofsönginn sem síðar varð Þjóð- söngur Íslands. Þá samdi hann leik- ritið Skugga-Svein sem var klassískt leikhúsverk hér á landi á fyrstu ára- tugum íslenskrar leiklistar. Að Skógum er minnismerki um Matthías, lágmynd eftir Helga Gíslason og bautasteinn úr Vaðal- fjöllum. Að Sigurhæðum á Akureyri er safn helgað minningu hans. Ævi- saga hans, eftir Þórunni Valdimars- dóttur, Upp á Sigurhæðir, kom út haustið 2006. Hann lést 18.11. 1920. Merkir Íslendingar Matthías Jochumsson Laugardagur 103 ára Jensína Andrésdóttir 90 ára Karl Karlsson Þorsteinn Kristjánsson 85 ára Anna Sveinsdóttir Þorbjörg Sveinsdóttir 80 ára Aðalheiður Jónsdóttir Einar Frímannsson Gréta Bentsdóttir Gunnar Valgeir Sigurðsson Gunnlaugur Indriðason Hreinn Jónsson María Steinunn Gísladóttir 75 ára Halla Valgerður Stefánsdóttir Ingibjörg Þorsteinsdóttir Jóhannes Johannessen Petrína Rósa Ágústsdóttir Sverrir Úlfsson Theódór Árnason 70 ára Elsa Gjöveraa Guðlaugur Ólafsson Jens Eiríkur Helgason Jóhanna Birna Sigurðardóttir 60 ára Andri Jónasson Björg Bjarnadóttir Heiða Helgadóttir Kolbrún Katrín Karlsdóttir Kristín S. Magnúsdóttir Steinunn Björg Björnsdóttir 50 ára Anna Guðlaug Jóhannsdóttir Arnfinnur Auðunn Jónsson Birgir Valdimar Hauksson Halldóra Björk Ragnarsdóttir Helena Ísaksdóttir Oddur Malmberg Ýr Harris Einarsdóttir 40 ára Agnes Ósk Snorradóttir Ágústa Júníusdóttir Bjarki Þór Hilmarsson Friðrik Jón Birgisson Hafsteinn Sigurþórsson Joost Johannes F. van Bemmel Magdalena Vicki Annette Hansen Magnús Þórarinn Thorlacius Olga Eleonora M. Egonsdóttir Sigrún Elva Einarsdóttir Sigurður Valur Fjeldsted Stefán Sigurðsson Þór Jósefsson Þröstur Hringsson 30 ára Anna Guðrún Árnadóttir Arna Steinarsdóttir Bjarni Jónsson Efemia Hrönn Björgvinsdóttir Elísabet Ragna Hannesdóttir Grímur Aspar Birgisson Hildur Halldórsdóttir Inga Rúna Guðjónsdóttir Ingibjörg Árnadóttir Óskar Frank Guðmundsson Silja Þórðardóttir Stefán Örn Hreggviðsson Tatiana Fedorenko Sunnudagur 90 ára Guðfinna Jónsdóttir 85 ára Bjarni Ísleifsson Hörður Hjartarson Matthías B. Axfjörð Njáll Þorgeirsson 80 ára Guðmundur Svavar Valgarðsson Henning Á Bjarnason Sigrún Astrið Kaaber Sigurður Þórólfsson 75 ára Árni Kristmundsson Hulda Erlingsdóttir Ragnheiður Guðbjartsdóttir 70 ára Ásdís Kristmundsdóttir Birgir Sigurðsson Gústaf Magnússon Monika Magnúsdóttir Ólöf Birna Blöndal Sæunn Margrét Sæmundsdóttir Viðar Zophoníasson 60 ára Elísabet Bjargmundsdóttir Guðmundína Hallgrímsdóttir Gunnar B. Ringsted Jóhanna Einarsdóttir Kristín Bjargmundsdóttir Kristín V. Valdimarsdóttir Lára Magnúsdóttir Sigurður Gunnlaugsson Súsanna María Magnúsdóttir Þorbjörg Ársælsdóttir 50 ára Áslaug Guðjónsdóttir Björn Hróarsson Guðbjörg Ásbjörnsdóttir Hrafnhildur Karlsdóttir Ingibjörg Þórólfsdóttir Lára Kristín Sturludóttir Nanna Sigríður Dungal Ragnar Þórisson Skarphéðinn Ólafsson Stefanía Óttarsdóttir Sveinn Giovanni Segatta Valdís Gunnarsdóttir Þorgeir Baldursson Örn Sigurðsson 40 ára Anna María Jónsdóttir Eggert Jóhannesson Guðmundur Alexander Gíslason Hildigunnur Sverrisdóttir Jóhanna Lilja Hjörleifsdóttir Konráð Viðar Konráðsson Nanna Hrund Eggertsdóttir Óskar Svavarsson Rakel Sigurðardóttir 30 ára Árni Björn Pálsson Bozena Bronislawa Raczkowska Davíð Orri Ágústsson Elí Freysson Erla Björnsdóttir Eva Lind Ingadóttir Guðrún Sunna Egonsdóttir Hildur Steinþórsdóttir Hulda Birna Albertsdóttir Jóhann Fannar Guðjónsson Kevin George Gillies Kristín Erla Guðnadóttir Laufey Jóhannsdóttir Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Zuzana Holbicková Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.