Morgunblaðið - 10.11.2012, Qupperneq 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 2012
Sérsmíðaðar baðlausnir
Speglar • Gler • Hert gler
Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar
Sandblástur • Álprófílar
Máltöku- og uppsetningaþjónusta
Við leggjum metnað
okkar í að bjóða sérhæfðar
og vandaðar lausnir á
baðherbergi.
Við bjóðum upp á
sérsmíðaða spegla,
sturtuklefa og sturtu-skilrúm.
Þá erum við komnir með nýja
útgáfu af ljósaspeglunum
okkar vinsælu.
Á nýrri heimasíðu okkar
glerslipun.is er gott yfirlit yfir
það sem er í boði. Auk þess
bjóðum við alla velkomna
í Vatnagarða 12 þar sem
fagfólk veitir góða þjónustu
og allar þær upplýsingar sem
þarf.
Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú skalt taka þér tíma til að íhuga
framtíðaráform þín. Taktu stjórnina í þínar
hendur og fáðu svo útrás fyrir tilfinningarnar
með skaplegum hætti.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur lagt mikið á þig í vinnu og
skemmtunum upp á síðkastið. Hugsaðu vel
um sjálfan þig. Viðhorf þitt á eftir að breyt-
ast þegar búið er að leggja spilin á borðið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Varaðu þig á að vera ekki svo hag-
sýnn að það geri bara illt verra. Ef þú
ákveður að gefa kost á þér verður þú að
gæta þess vandlega að sýna tillitssemi og
sveigjanleika.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vilji er allt sem þarf, hvort heldur þig
langar að ræða eitthvað eða leysa einhverja
manndómsþraut. Einhver ótti steðjar að þér í
sambandi við það að þú náir ekki takmarki
þínu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Metnaður þinn ýtir þér út í að leika listir
þínar þegar rétta fólkið er að fylgjast með.
Framlag þitt skiptir máli svo gakktu beint til
verks. Flas er ekki til fagnaðar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú tekst á við flækjur sem bæði ergja
þig og skilgreina í senn. Gættu þess að haga
væntingum þínum alltaf í samræmi við það
sem þú veist að er mögulegt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú verður ekki lengur undan því vikist
að taka ákvörðun varðandi starfsvettvang.
En sýndu þolinmæði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert vel upplagður, léttur og
kátur og aðrir sækja í nærveru þína. Leyfðu
fólki að stíga inn á þitt svið. Vertu viðbúinn
breytingum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einkalífið batnar þegar þú
fræðist þig um félaga þinn eða verðandi fé-
laga. Settu mál þitt fram af skynsemi og
sanngirni og þá munu aðrir veita því athygli
og taka afstöðu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Eirðarleysið hefur náð tökum á
þér svo þú verður að fá einhverja tilbreytingu
í líf þitt. Fólk mun þurfa að láta skemmta sér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Velgengni í fjármálum og ást-
armálum kemur og fer. Fólk kann að meta
það hvað þú gerir hlutina af mikilli vand-
virkni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert í toppformi bæði andlega og
líkamlega og vekur almenna athygli. Reyndu
að gera ekki alveg svona miklar kröfur til
sjálfs þín.
Þegar ég gekk upp Skólavörðu-stíginn sá ég karlinn á Lauga-
veginum við hornið á Klappar-
stígnum. Hann hallaði sér upp að
gamla Þjóðviljahúsinu og benti yfir
götuna. „Þarna var verslun Sig-
urðar Tómassonar úrsmiðs og Eyj-
ólfs Árnasonar gullsmiðs sem send-
ur var í byltingarþjálfun í Moskvu
1930. Og hér uppi stóð ritstjórastóll
Svavars Gestssonar. Fyrir milli-
göngu Einars Olgeirssonar fór
hann til Austur-Berlínar haustið
1967. Þeir tortryggðu hann austur
þar. Sögðu hann handbendi Am-
eríkana.“ Og karlinn saug upp í nef-
ið:
Til Berlínar Svavar sendur var
til sérstakra verkefna að þjálfa ́ann
en Stasi náði að negla hann þar
sem njósnara CIA, karl-bjálfann!
Einar K. Guðfinnsson alþingis-
maður sendi mér skemmtilegt bréf,
þar sem hann rifjaði upp vísur vinar
síns, Sigurðar Hansen bónda á
Kringlumýri í Blönduhlíð, og segir:
„annars er einkenni vísnagerðar
Sigurðar léttleikinn, græskulaust
gaman og mikil væntumþykja fyrir
umhverfi sínu.“ Þetta sjáist m.a. í
kvæðinu Í öræfadal sem hann orti á
ferð um hinn fagra og einstaka
Austurdal í Skagafirði:
Gang þú til fjalla ef leið er þín lund
og löngun og þrá eru í dvala,
það vermir þitt hjarta á viðkvæmri stund
ef vitjar þú öræfadala.
Og háttaðu einn undir himinsins sæng
og hlustaðu á þögnina tala,
þar mófuglamóðirin vermir með væng
vorgróður öræfadala.
Gefðu þér tíma og fangaðu frið
sem fýkur með morgunsins svala,
er heyrir þú svanina hefja sinn klið
af heiðarbrún öræfa dala.
Árið 2001 kom út bókin Feykjur
með vísum og kvæðum Sigurðar.
Þar eru þessar stökur:
Helst það sefar hugans þrá
hausts er dofnar skíma
að geyma lítið ljósbrot frá
liðnum sumartíma.
Þó að kali og kyngi snjó
kuldinn næði um dalinn
innst í leynum á hann þó
unaðsgeisla falinn.
Fákum reistum fóta nett
fljótt er þeyst um grundir
fjöri geyst þeir grípa sprett
gatan neistar undir.
Halldór Blöndal
halldorblonmdal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Austur-
Þýskalandi í öræfadal
eftir Jim Unger
„ÉG ER EKKI HISSA Á AÐ
PÍANÓSTILLIRINN HAFI VILJAÐ
4.000 KALL FYRIR ÞETTA!“
HermannÍ klípu
„EF ÞIÐ NÁIÐ EKKI MARKMIÐUM
YKKAR FÁIÐ ÞIÐ EKKERT AÐ FARA Á
NETIÐ Í EINA VIKU.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að setja þarfir
barnanna ofar
sínum eigin.
GRETTIR
ÞARF
LASAGNA!
HVERNIG GERÐIR
ÞÚ ÞETTA?
HA,
ÉG?
VONANDI HÆTTIR ÞÚ NÚ AÐ
KVARTA YFIR ÞVÍ AÐ VIÐ
FÖRUM ALDREI NEITT SAMAN!
SÖLU-
MARKMIÐ
HANDTÖSKUR
BARNAFÖT
Tími endurskoðunar er genginn ígarð. Víkverji stendur í stór-
ræðum þessa dagana: flutningar
eru yfirvofandi. Því er tækifærið
nýtt og farið í gegnum ýmsa leppa
svo ekki sé talað um dót og annað
drasl. Í upphafi var planið að henda
öllu því sem ekki hefur verið notað í
tvö ár eða meira. Henda, henda og
aftur henda. Það er í raun ótrúlegt
hvað manneskja getur sankað að
sér miklu dóti og hefur svo ekki
raunverulegt not fyrir nema brot af
því.
x x x
Þegar Víkverji fór að grafa í fata-skápnum kom ýmislegt fróðlegt
í ljós, ýmsir tískustraumar birtust
þar – misjafnlega smekklegir verð-
ur að viðurkennast. Það sem ekki er
klippt, bætt og lagað fær að flakka í
Rauðakrossgáminn.
x x x
Tískan fer svo sannarlega í hring,það er gömul saga og ný. Það
sannaðist best þegar heilt dress
dúkkaði upp. Um var að ræða föt
sem Víkverji neyddist til að klæðast
í svokölluðu „ljótufatapartíi“. Og
viti menn; fötin eru svo hrikalega
töff í dag að það er engu lagi líkt.
x x x
Tekið skal fram að þetta ljótufata-partí var haldið árið 2007 í Dan-
mörku og tískuvöruverslunin H&M
var að sjálfsögðu nýtt til hins ýtr-
asta. Það herrans ár var nýtt á mis-
viturlegan hátt líkt og umrætt partí.
Markmiðið var að einn gestur
keypti dress á annan vin sinn. Að
sjálfsögðu reyndu allir að kaupa
sem ljótust föt á vininn á sem hag-
stæðastan hátt. Víkverji var engin
undantekning þar á en eins og hon-
um sæmir bar hann þetta allt með
stakri prýði en fékk þó að launum
ríkuleg hlátrasköll.
x x x
Samsetningin á flíkunum var aðsjálfsögðu skelfileg. Brún-
skræpóttur klútur við glansandi
grænar pokabuxur, ljós jakki og
móskulegur bolur við. En viti menn;
jakkinn verður pressaður og ætlar
Víkverji að mæta hreykinn í honum
til vinnu næstu daga. víkverji@m-
bl.is
Víkverji
Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg-
semd, minn örugga klett og athvarf
mitt hef ég í Guði. (Sálmarnir 62:8)