Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. N Ó V E M B E R 2 0 1 2  Stofnað 1913  269. tölublað  100. árgangur  KARATEKAPPI SÓPAÐI AÐ SÉR VERÐLAUNUM ÚTILISTAVERK ÚR TÖPPUM ÓHEFT ÍMYNDUNAR- AFL OG DJÚPUR SKÖPUNARKRAFTUR REGNBOGABRÚIN 21 TÓNLEIKAR Í KALDALÓNI 46HEIÐAR BENEDIKTSSON 10 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Í sumum tilvikum veldur það töf- um á rannsóknum í sakamálum al- mennt, að það skuli ekki vera neinn til að ganga í málið og klára það. Það er bagalegt og aldrei gott að mál tefjist,“ segir Sigríður Friðjóns- dóttir ríkissaksóknari, aðspurð um hvort það tefji rannsóknir mála, að hér á landi sé ekki starfandi rétt- armeinalæknir í fullri stöðu. Starf réttarmeinalæknis er nú hlutastarf. Hingað til landsins kemur reglulega þýskur réttarmeinalæknir. Enginn Íslendingur hefur sinnt starfinu eft- ir að Þóra Steffensen starfaði sem slíkur. „Við erum með útlenda réttar- meinalækna í hlutastarfi hjá okkur. Staðan hefur verið með þeim hætti frá því löngu fyrir hrun og tengist því ekki sparnaði á neinn hátt,“ seg- ir Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans. Hann segir það dýrara að fá erlenda lækna til að sinna starfinu. Þetta sé lendingin því enginn Ís- lendingur hefur fengist í starfið. „Ég held að gangur mála hér á landi sé ekki frábrugðinn öðrum löndum, þó vissulega sé þetta öðru- vísi í sjónvarpsþáttunum CSI,“ seg- ir Björn. Hann bendir á að rann- sóknirnar sem ættu sér stað þar væru ekki í takt við raunveruleik- ann. „Það hefur verið okkar vandi und- anfarin ár að við höfum þurft að reiða okkur á útlenda réttarmeina- fræðinga í nokkur ár. Flestir hafa komið frá Þýskalandi,“ segir Bjarni A. Agnarsson, yfirlæknir á rann- sóknarstofu í meinafræði við Landspítalann. Tveir Íslendingar hófu nýverið framhaldsnám í rétt- arlæknisfræði í Svíþjóð. „Það eru blikur á lofti um heimkomu ís- lenskra lækna og því veit maður ekki hvað verður. Það er vandamál sem ég reikna með að margar sér- greinar glími við. En auðvitað vona ég að það fólk sem er að læra snúi aftur heim,“ segir Bjarni. Jafnframt segir hann að „það væri betra að hafa meinafræðing sem væri hér alltaf. Þetta leiðir til þess að hlutirnir taka lengri tíma. En ég tel að það sé verið að sinna því sem þarf að sinna.“ Enginn réttarmeinalæknir á landinu  Getur tafið rannsókn sakamála  Þýskur læknir kemur reglulega Morgunblaðið/Ómar Læknar Hlutirnir taka lengri tíma með réttarmeinalækni sem er í hlutastarfi en ekki í fullri stöðu. Í gærkvöldi féll fyrsti snjórinn í höfuðborginni sem staldraði við lengur en í smástund. Borgin klæddist sínu hvíta vetrarteppi sem óneitanlega er fag- urt nýfallið og ósnert. Ekki taka þó allir vetrarkomunni fagnandi, sumir kæra sig lítt um hálkuna á götunum sem fylgir Kára í jötunmóð. Fyrsti snjórinn í borginni Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is „Á þessu stigi get ég sagt að ég hef aldrei séð lögtækni gert jafn hátt und- ir höfði í íslenskri réttarsögu. Þetta er gert með því að einskorða umboðið til þess að fara yfir grundvallarlög landsins með lögtækni, hugtaki sem enginn veit hvað er. Það er áberandi þversögn falin í því hjá forsætisráð- herra að biðja um lögtæknilega úttekt en nefna úttektina engu að síður degi seinna lögfræðilegan gæðastimpil,“ segir Kristrún Heimisdóttir, lögfræð- ingur og lektor við Háskólann á Ak- ureyri, aðspurð um niðurstöður sér- fræðihóps um tillögur stjórnlagaráðs. Kristrún og Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, halda er- indi á sameiginlegum fundi háskól- anna um niðurstöðu sérfræðihópsins í Háskólanum í Reykjavík í dag. „Ég sé ekki betur en að í ábending- unum felist að einhverju leyti efnis- legar breytingar. Enda er kannski vandrataður meðalvegurinn á milli þess að gera lagatæknilegar og efnis- legar breytingar. Að öðru leyti finnst mér þetta verk vel unnið að flestu leyti. Þeir sníða af ákveðna vankanta en koma svo með efnislegar ábend- ingar í almennum athugasemdum,“ segir Bryndís. „Vönduð, djúp og þverfagleg“ Kristrún er á því að sérfræðihóp- urinn hafi gert sér grein fyrir þeim annmörkum sem á því eru að vinna út frá svo þröngu umboði og þess vegna leggi hópurinn áherslu á það í skila- bréfi sínu að nauðsynlegt sé að gera heildstæða úttekt á réttaráhrifum til- lagnanna. „Ég held að það sé skylda Alþingis og þingmanna hvar í flokki sem þeir standa að fara fram á að slík úttekt verði gerð, hún verði vönduð, djúp og þverfagleg,“ segir Kristrún. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að skoða vandlega þau áhrif sem til- lögur stjórnlagaráðs og ábendingar sérfræðihópsins hafa á stjórnskipun landsins. Alþingi fer með málið en hefur að sjálfsögðu umboð til að fela öðrum að gera slíka úttekt, sé vilji fyrir slíku,“ segir Bryndís. MStjórnarskrármálið afgreitt »2, 26 Þversögn hjá ráðherra  „Aldrei séð lögtækni gert jafn hátt undir höfði,“ segir Kristrún Heimisdóttir  Íbúðalánasjóður og lífeyris- sjóðirnir myndu gróft á litið tapa um 600 milljörðum króna ef hjón sem stefnt hafa Íbúðalánasjóði vinna málið. Þetta er lausleg áætlun Yngva Harðarsonar, framkvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Analytica, sem tekur dæmi af því hvaða endur- greiðslum lántakendur gætu átt rétt á ef dæmt verður að verðbætur skuli endurgreiddar. Lántaki sem hafi tekið 10 milljóna króna lán árið 2002 geti átt endur- kröfurétt á verðbótum, greiddum og ógreiddum, að fjárhæð 8.525.394 kr. Áhrifin á fjármálakerfið yrðu því gífurleg. »4 Myndu tapa 600 milljörðum króna Morgunblaðið/Arnaldur Íbúðir Deilt er um verðbætur vegna lána.  Styrmir Gunn- arsson, fyrrver- andi ritstjóri Morgunblaðsins, hefur ritað bók- ina Sjálfstæðis- flokkurinn – Átök og uppgjör, um átökin innan flokksins á ár- unum 1970-1985. Fjallar hann m.a. um deilurnar um bandaríska varnarliðið í Keflavík en í inngangi bókarinnar segir hann að e.t.v. eigi ungt fólk erfitt með að skilja við- horf og hugsunarhátt þeirra sem tóku þátt í átökum kalda stríðsins. „Ég held að yngri kynslóðin eigi kannski erfitt með að setja sig inn í andrúmsloftið sem ríkti á þessum tíma og var mjög hart,“ segir Styrmir. »4 Átök og uppgjör Sjálfstæðisflokks Styrmir Gunnarsson Fram kom í umræðum á Alþingi í gær að þörf væri á 500 milljóna króna aukafjárveitingu til að koma í veg fyrir frekari uppsagnir og fækk- un lögreglumanna en Snorri Magn- ússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir þá upphæð að- eins dropa í hafið þegar útgjöld til lögreglunnar hefðu dregist saman um 2,8 milljarða á síðustu tveimur árum. „Þetta er gríðarlega mikið högg sem stéttin hef- ur orðið fyrir. Það er verið að biðja um hið ómögulega að ætla lögreglu- stjórum að reka embættin með þess- um hætti,“ sagði Snorri í gær. Hann sagði stöðuna í lögreglu- embættum landsins mismunandi eft- ir stöðum en hún væri alls staðar slæm. »20 Slæm staða í öllum lög- regluumdæmum landsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.