Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
„Við tökum þetta að sjálfsögðu
mjög alvarlega,“ segir Svanhvít
Jakobsdóttir, forstjóri Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, um
úrskurð kærunefndar jafnréttis-
mála þess efnis að Heilsugæslan
hafi brotið lög um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla við
ákvörðun launakjara.
Í úrskurðinum, sem birtur var
fyrir skömmu, kemur fram að
iðjuþjálfi, kona, hafi hafið störf
hjá Geðheilsu-eftirfylgd í nóv-
ember 2005. Í desember 2007 hafi
karlmaður í meistaranámi í sál-
fræði verið ráðinn til starfa á
sama stað. Í október í fyrra hafi
iðjuþjálfinn óskað eftir skýr-
ingum á launamun milli hennar
og nefnds karlmanns og farið
fram á að bætt yrði úr þeim mun.
Laun kæranda hafi verið hækkuð
um tvo launaflokka og eftir
hækkunina hafi laun viðkomandi
verið nánast þau sömu, en frá 1.
júní 2010 höfðu laun konunnar
hækkað um einn launaflokk þeg-
ar hún varð staðgengill forstöðu-
manns.
Nær fimm ára tímabil
Konan leitaði til Jafnréttisstofu
fyrr á líðandi ári og kemst kæru-
nefnd jafnréttismála að því að
brotið hafi verið á konunni frá 1.
desember 2007 til starfsloka
hennar 30. maí 2012.
Svanhvít Jakobsdóttir segir að
hún geti ekki tjáð sig um málið á
þessu stigi. Verið sé að fara yfir
úrskurðinn og stefnt sé að því að
eiga fund með iðjuþjálfanum á
næstu dögum. Hún segist ekki
halda að fleiri sambærileg mál
séu hjá Heilsugæslunni en verið
sé að kanna stöðuna. „Við munum
að sjálfsögðu fara mjög vandlega
yfir þetta,“ segir hún.
steinthor@mbl.is
Segist taka
launamun
alvarlega
Heilsugæslan
braut jafnréttislög
Morgunblaðið/Golli
Íslenska tísku- og hönnunarhúsið ATMO var opn-
að við hátíðlega athöfn í gær en þar verður að
finna um 60 íslensk vörumerki á þremur hæðum.
Húsið er á Laugavegi 91 og var lengi kennt við
verslunina 17 en þar verður nú að finna fatnað,
skó, gjafavöru, skartgripi, tónlist og bækur, allt
eftir íslenska hönnuði og listafólk. Forsetafrúin
Dorrit Moussaieff tók til máls við opnunina en hún
hefur löngum verið aðdáandi íslensks handverks.
Morgunblaðið/Ómar
Sextíu íslensk vörumerki á einum stað
Íslensk hönnun í hávegum í tísku- og hönnunarhúsinu ATMO
Sigríður Á. Andersen, varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins, hefur
lagt fram frumvarp fyrir Alþingi
um breytingu á starfsmannalögum
sem felst í því að óheimilt verði að
skipa, eða ráða, mann til embættis
ef hann hefur verið settur til að
gegna því á síðustu tólf mánuðum.
Að sögn Sigríðar fór hún að
velta þessu máli fyrir sér eftir að
hún heyrði sjónarmið Umboðs-
manns Alþingis varðandi tíma-
bundnar ráðningar. „Í framhaldinu
af því fór ég að velta því fyrir mér
þessu forskoti sem menn, sem eru
tímabundið
settir eða ráðn-
ir, hafa þegar
staðan sjálf er
auglýst til
frambúðar,“
segir Sigríður
og bætir við:
„Það er þekkt
að oft þegar
menn auglýsa
stöðurnar eru
þær sérhannaðar að þeim sem hef-
ur gegnt stöðunni undanfarna
mánuði. Oft er það þannig að það
er nánast ómögulegt fyrir ein-
hvern annan að sækja um.“
Aðspurð hvort hún hafi fundið
fyrir stuðningi við frumvarpið
segir Sigríður: „Já, ég hef að
minnsta kosti ekki fundið fyrir
neinni andstöðu við það. Ég held
að flestir séu sammála um að
þessar tímabundnu ráðningar
hafa stundum farið út fyrir öll vel-
sæmismörk.“ Þá bendir hún á að
það komi í hlut Birgis Ármanns-
sonar, sem flytur frumvarpið með
henni, að mæla fyrir því.
skulih@mbl.is
Óheimilt verði að gera tíma-
bundnar ráðningar varanlegar
Segir tímabundnar ráðningar stundum hafa farið út fyrir öll velsæmismörk
Tímabundnar ráðningar
» Sigríður Á. Andersen og Birgir
Ármannsson hafa lagt fram frum-
varp um breytingar á starfs-
mannalögum.
» Breytingin felst í því að við sjöttu
grein laganna bætist ný málsgrein:
„Óheimilt er að skipa mann eða
ráða til embættis ef hann hefur á
síðustu tólf mánuðum verið settur
til þess að gegna því.“
Sigríður Á.
Andersen
Lagadeild Háskólans í Reykjavík í
samstarfi við lagadeildir Háskóla
Íslands, Háskólans á Akureyri og
Háskólans á Bifröst, stjórnmála-
fræðideild Háskóla Íslands og
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórn-
mála við HÍ boðar til fundar föstu-
daginn 16. nóvember kl. 12:15-
13:30 í dómsal Háskólans í Reykja-
vík (M-103).
Nýlega skilaði sérfræðinganefnd
niðurstöðum sínum um tillögur
stjórnlagaráðs. Á fundinum verður
vinna, niðurstöður og ábendingar
sérfræðinganna kynntar og rætt
hvað skuli gera næst í stjórn-
arskrármálinu.
Erindi flytja Páll Þórhallsson,
skrifstofustjóri í forsætisráðuneyt-
inu, dr. Oddný Mjöll Arnardóttir,
prófessor við lagadeild HÍ, Haf-
steinn Þór Hauksson, lektor við
lagadeild HÍ, Kristrún Heim-
isdóttir, lektor við Háskólann á Ak-
ureyri, og Bryndís Hlöðversdóttir,
rektor Háskólans á Bifröst.
Loks verða almennar umræður.
Opinn fundur
um næstu skref í
stjórnarskrármálinu