Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
Efnalaug Garðabæjar ætlar að láta
30% af andvirði
hreinsaðra gluggatjalda
renna til mæðrastyrksnefndar
í nóvember
Komið tímanlega
Í dag er ekki aðeins dagur íslenskrar tungu heldur líka afmælis-dagur Bjarka Sigurðssonar, fyrrverandi landsliðsmanns íhandbolta, þjálfara og sölufulltrúa hjá Jónum Transport.
Bjarki er 45 ára í dag og heldur upp á tímamótin í faðmi eiginkon-
unnar og fjögurra barna þeirra með góðri máltíð og tónlist í kvöld.
„Þegar við vorum í Noregi byrjuðum við á því að spila jólalögin á
þessum degi og höfum haldið þeim sið síðan,“ segir Bjarki.
„Þetta hefur verið stór þáttur í lífinu,“ segir Bjarki um handbolt-
ann og bætir við að fjölskyldan sé á fullu í íþróttum. „Tíminn saman
er því óhjákvæmilega minni en hjá meðalfjölskyldum.“
Bjarki hefur lengi verið áberandi sem leikmaður og þjálfari. Vík-
ingurinn spilaði til dæmis vel á þriðja hundrað landsleiki, var at-
vinnumaður með norska liðinu Drammen 1997-1998 og byrjaði að
þjálfa meistaraflokk hjá Aftureldingu um aldamótin en áður hafði
hann þjálfað yngri flokka hjá Víkingi. Hann þjálfar nú ÍR-inga
þriðja keppnistímabilið í röð. „Ég er mjög sáttur,“ segir hann um
gengi nýliðanna í úrvalsdeildinni til þessa.
Bjarki var með fljótari mönnum en segir að helsti munurinn nú og
þegar hann var að spila sé aukinn hraði. Betur sé hlúð að leik-
mönnum en áður og menn meðvitaðri um mikilvægi hvíldar og mat-
aræðis. „Lið eldri leikmanna gætu samt haft betur.“ steinthor@mbl.is
Bjarki Sigurðsson þjálfari 45 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Feðgar í handboltanum Bjarki Sigurðsson og tveir af þremur son-
um hans, Kristinn Bjarkason og Örn Ingi Bjarkason.
Nú má byrja að
spila jólalögin
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
90 ára Stefán Anton Jónsson frá Sjón-
arhóli á Stokkseyri er níræður í dag, 16.
nóvember. Hann vann mestalla sína
starfsævi hjá RARIK við rafmagnseftir-
lit og ýmis störf. Stefán var með fyrstu
mönnum til ná að gefa blóð 100 sinn-
um í Blóðbankanum. Hann er góður
hagyrðingur og hefur samið margar
vísur.
Árnað heilla
Reykjavík Magdalena Rós fæddist 15.
febrúar kl. 8.12. Hún vó 3.255 g og var
48 cm löng. Foreldrar hennar eru
Dragana Anic og Ásgeir Sigurðsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Aron Berg fæddist 11. febr-
úar kl. 20.14. Hann vó 3.165 g og var
50,5 cm langur. Foreldrar hans eru
Ester Aldís Friðriksdóttir og Sverrir
Gauti Ríkarðsson.
Á
sbjörn fæddist í
Reykjavík en ólst upp
á Hellissandi. Hann
var í Grunnskóla Hell-
issands, stundaði síðar
nám við Stýrimannaskólann í
Reykjavík og lauk þaðan skip-
stjórnarprófi 1983.
Fór 15 ára fyrst til sjós
Ásbjörn var 15 ára er hann fór
fyrst til sjós, 1978, var þá háseti á
aflaskipinu Skarðsvík, var síðan á
bátum frá Rifi, stýrimaður frá
1983, stofnaði útgerð 1985 og stofn-
aði, ásamt öðrum, fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtækið Nesver 1987, og
á og rekur fyrirtækið frá 2003.
Ásbjörn sat í bæjarstjórn Snæ-
fellsbæjar 1994-2009, var forseti
bæjarstjórnar frá 1998, sat í bæj-
arráði Snæfellsbæjar 1994-98, í
siglingaráði 1999-2007 og ýmsum
Ásbjörn Óttarsson, alþm. og útgerðarmaður – 50 ára
Haldið undir skírn Frá vinstri: Margrét Scheving; Friðbjörn Ásbjörnsson; afmælisbarnið heldur á nafna sínum; Íris
Tryggvadóttir og Óttar Sveinbjörnsson. Myndin er tekin haustið 2009 er Ásbjörn yngri var skírður.
Sandari í húð og hár
Á bryggjunni Þeir nafnarnir, Ásbjörn eldri og yngri að athuga lyftarann.