Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
Bjarni Benediktsson lýsti þeirriskoðun sinni á þingi í gær „að
ekkert eitt mál geti skipt lífskjörin í
landinu jafnmiklu og ef vel tekst til
við afnám haftanna og stýringu á út-
flæði þess gjaldeyris sem þrýstingur
er á um að greiða út úr landinu.“
Forsætisráðherrahafði á hinn
bóginn engar áhyggj-
ur af þessu og sagði
að við hefðum „öll
tök á málinu“ þar
sem Seðlabankinn
hefði reglugerðar-
valdið.
Bjarni nefndi í þvísambandi að ár-
ið 2009 hefði bankinn
vanreiknað erlenda
skuldastöðu um 800
milljarða króna og sagðist hafa
„verulega miklar áhyggjur“ af svari
forsætisráðherra.
Hann sagði að það væri „alger-lega skýlaus krafa“ að þingið
yrði ekki aðeins upplýst heldur ætti
það einnig síðasta orðið um hvernig
þessum málum yrði háttað. „Það er
engan veginn ásættanlegt þegar um
jafnstór mál er að ræða að þingið
sitji hjá, sætti sig við að fá að fylgjast
með og eftirláti einum manni
endanlega ákvörðun í málinu.“
Jóhanna svaraði því til að það væriekki aðeins einn maður sem
héldi utan um málið heldur „fylgjast
ráðuneytin, ekki síst efnahagsráðu-
neytið og fjármálaráðuneytið, mjög
vel með þessum málum og eins ráðu-
neyti bankamála.“
Vissulega er til bóta að forsætis-ráðherra komi hvergi nærri í
þessu hagsmunamáli, en ætli ein-
hverjum sé létt að vita að Már hefur
Steingrím og Katrínu sér til ráð-
gjafar?
Bjarni
Benediktsson
Áhyggjulaus
forsætisráðherra
STAKSTEINAR
Jóhanna
Sigurðardóttir
Veður víða um heim 15.11., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík 2 snjókoma
Akureyri 3 skýjað
Kirkjubæjarkl. 1 snjókoma
Vestmannaeyjar 3 skýjað
Nuuk -6 snjóél
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 3 alskýjað
Brussel 5 skýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 10 súld
London 7 léttskýjað
París 5 skýjað
Amsterdam 5 alskýjað
Hamborg 7 skýjað
Berlín 0 þoka
Vín 8 heiðskírt
Moskva 5 alskýjað
Algarve 16 skýjað
Madríd 17 skýjað
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 15 skýjað
Winnipeg -11 skýjað
Montreal 1 alskýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 3 alskýjað
Orlando 17 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:02 16:25
ÍSAFJÖRÐUR 10:27 16:09
SIGLUFJÖRÐUR 10:11 15:51
DJÚPIVOGUR 9:36 15:49
Hæstiréttur hefur sakfellt fjóra
karlmenn fyrir að leggja á ráðin um
og standa saman að innflutningi á
samtals 877,81 grammi af kókaíni,
sem unnt var að framleiða um 3,7
kíló af kókaíni úr.
Þyngstan dóm, þriggja ára fang-
elsi, hlaut Andri Þór Eyjólfsson,
fæddur 1987, en hann braut gegn
skilyrðum reynslulausnar. Hafþór
Logi Hlynsson, fæddur árið 1987,
hlaut tveggja og hálfs árs fangelsi og
karlmaður fæddur árið 1982 hlaut
átján mánaða dóm. Fjórði maðurinn,
fæddur árið 1941, hlaut fimmtán
mánaða fangelsi.
Upphaf málsins má rekja til þess
að lögreglu bárust ábendingar um
að Hafþór Logi flytti inn fíkniefni í
ferðatöskum. Gerð var húsleit hjá
honum í janúar 2010. Tæpum mán-
uði síðar var maður handtekinn á
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, með
tvær ferðatöskur þar sem kókaín
var falið. Þó svo að burðardýrið gæfi
ekki strax upp nöfn samverkamanna
sinna bárust böndin strax að Haf-
þóri Loga.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms
Reykjaness í málinu að lögregla
hleraði einnig síma Hafþórs og í einu
símtalinu var honum greint frá því
að ekkert heyrðist í burðardýrinu.
Talað var undir rós og rætt um það
hvort viðkomandi væri týndur uppi á
jökli eða hvort hann væri að „tjilla“.
Í því samhengi er burðardýr sagt
týnt uppi á jökli þegar hann er grip-
inn í tollinum en að „tjilla“ hafi hann
ekki verið tekinn.
andrikarl@mbl.is
Hús Hæstaréttur í Reykjavík.
Burðardýr-
ið „týndist á
jöklinum“
Frummælendur á fundinum verða
Sigríður Benediktsdóttir frá Seðla-
bankanum og Jakob Ásmundsson
frá Straumi.
Illugi Gunnarsson alþingismaður og
Steingrímur J. Sigfússon ráðherra
taka þátt í pallborði. Fundarstjóri
verður Sigríður Hallgrímsdóttir
almannatengill.
Fundurinn er haldinn í Súlnasal Hótels
Sögu föstudaginn 16. nóvember og
stendur frá 12.00 til 13.30.
Pallborð eftir erindi frummælenda.
Fundurinn er öllum opinn.
Skráning fer fram á heimasíðu FVH,
www.fvh.is
Ísland á gjalddaga?
Hver er raunveruleg skuldastaða Íslands og hvað
er til ráða svo hægt sé að aflétta höftunum?
Sigríður Benediktsdóttir
Illugi Gunnarsson
Sigríður Hallgrímsdóttir
Jakob Ásmundsson
Steingrímur J. Sigfússon