Morgunblaðið - 16.11.2012, Page 20
20 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket
eftir óskum hvers og eins.
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað,
reykt, fasað, hvíttað, eða hverning vilt þú
hafa þitt parket ?
Láttu drauminn rætast hjá okkur.
Björn Jóhann Björnsson
Una Sighvatsdsóttir
„Maður er aðeins vonbetri en áður
með að þetta sé að ná til eyrna
ráðamanna og það verði brugðist
við með einhverjum hætti. Allir
gera sér grein fyrir að hér varð
efnahagshrun, við fundum vel reiði
fólksins í mótmælunum á Austur-
velli og vitum
vel hvert
ástandið er. Það
vantar fé í mörg
brýn verkefni
en öryggi borg-
ara og lögreglu-
manna hlýtur að
vera í fremstu
röð þegar kem-
ur að útdeilingu
fjármuna,“ segir
Snorri Magnús-
son, formaður Landssambands lög-
reglumanna, sem var á pöllum Al-
þingis í gær þegar fram fór sérstök
umræða um skipulagða glæpa-
starfsemi og stöðu lögregluemb-
ættanna í landinu. Málshefjandi
var Jón Gunnarsson þingmaður og
innanríkisráðherra til svara.
Öryggi fólks lætur undan
Frm kom í umræðunum að þörf
væri á 500 milljóna króna fjárveit-
ingu aukalega til að koma í veg fyr-
ir frekari uppsagnir og fækkun
lögreglumanna og standa þannig
vörð um öryggi bæði borgara og
lögreglumanna. Voru þingmenn
bæði stjórnar og stjórnarandstöðu
sammála um að aðgerða væri þörf.
Þingmenn vísuðu m.a. í frétt
Morgunblaðsins frá í gær um að
sýslumannsembættið á Selfossi sæi
fram á að segja upp fjórum lög-
reglumönnum vegna fjársveltis.
„Það er ljóst hvað lætur undan og
það er öryggi borgaranna,“ sagði
Tryggvi Þór Herbertsson, Sjálf-
stæðisflokki. „Í Þingeyjarsýslu er
einn lögreglumaður á vakt á svæði
sem er stærra en sem nemur Ísrael
og hluta af Egyptalandi. Einn mað-
ur á vakt, það sér hver maður að
þetta gengur ekki upp.“
Snorri sagði við Morgunblaðið
eftir umræðurnar að 500 milljónir
króna til viðbótar væru dropi í haf-
ið miðað við að útgjöld til lögregl-
unnar hefðu dregist saman um 2,8
milljarða króna undanfarin tvö ár,
framreiknað til dagsins í dag. Það
hefði fengist staðfest í þingumræð-
unni. „Þetta er gríðarlega mikið
högg sem stéttin hefur orðið fyrir.
Það er verið að biðja um hið
ómögulega að ætla lögreglustjór-
um að reka embættin með þessum
hætti,“ sagði Snorri.
Hann sagðist telja að staða lög-
regluembætta væri í mörgum til-
vikum svipuð og á Selfossi. „Hún
getur verið mismunandi eftir stöð-
um en alls staðar er hún slæm,“
segir Snorri og bendir á að lög-
reglumenn hafi undanfarin fjögur
ár ítrekað bent á áhrif fjársveltis-
ins sem löggæslan býr við.
„Lögreglustjórar eru að gera
sitt besta við alveg gríðarlega erf-
iðar aðstæður og þeir hafa í raun
unnið kraftaverk í að nota það fjár-
magn sem til fellur. Alls staðar er
verið að keyra á lágmarksmann-
skap,“ segir Snorri.
Ástandið grafalvarlegt
Á undanförnum árum hefur
stöðugildum innan lögreglunnar
fækkað um 80, sem er vel yfir 10%
af mannskapnum í heild. Árið 2007
voru lögreglumenn í landinu ríf-
lega 700 talsins en eru í dag í
kringum 650. Fram kom í
mannaflagreiningu ríkislögreglu-
stjóra árið 2006 að árið 2012 yrði
þörf fyrir um 900 lögreglumenn til
að sinna lögboðinni skyldu lög-
gæslunnar.
„Ef við förum lengra aftur, og
miðum við þá miklu yfirvinnu sem
þá var unnin, erum við í raun að
tala um mun fleiri ársverk en 80
sem hafa farið úr lögreglunni.
Landssambandið hefur margbent á
að ástandið er grafalvarlegt og hef-
ur verið lengi. Ábyrgð á því ber
fjárveitingavaldið en við lifum í
þeirri von að loksins verði farið að
hlusta á okkur,“ segir Snorri að
endingu.
Morgunblaðið/Ómar
Löggæslan Stöðugildum innan lögreglunnar hefur fækkað um 80 á síðustu 4-5 árum. Lögreglumenn eru um 650 í dag en talið að þeir þyrftu að vera um 900 talsins.
500 milljónir dropi í hafið
Fjársvelti lögreglunnar til umræðu á Alþingi í gær Útgjöld til löggæslu
hafa á tveimur árum dregist saman um 2,8 milljarða „Þetta gengur ekki upp“
Ríkisendurskoðun telur gjafabréf,
sem Sigurður Helgi Guðmundsson,
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri
hjúkrunarheim-
ilisins Eirar, lét
Eir greiða vera
örlætisgerning.
Telur Ríkisendur-
skoðun að gefa
eigi Sigurði Helga
kost á að endur-
greiða bréfið.
Framkvæmdastjóri Eirar, Sig-
urður Rúnar Sigurjónsson, óskaði í
síðasta mánuði eftir rannsókn á
reikningi upp á 200 þúsund krónur
sem Sigurður Helgi lét Eir greiða.
Um var að ræða gjafakort hjá Ice-
landair sem notað var til kaupa á far-
miðum.
Í bréfi Ríkisendurskoðunar til Sig-
urðar Rúnars kemur fram að um ör-
lætisgerning sé að ræða af hálfu
fyrrverandi framkvæmdastjóra sem
honum hafi verið óheimilt að standa
fyrir án sérstaks samþykkis stjórnar
Eirar auk viðeigandi skýringa í bók-
haldi og skýrslu til skattyfirvalda.
Ríkisendurskoðun leggur til að
fyrrverandi framkvæmdastjóra verði
gefinn kostur á að ljúka málinu með
því að endurgreiða andvirði gjafa-
bréfsins innan tiltekins frests. Verði
hann ekki við þeirri málaleitan sé
nauðsynlegt, að mati Ríkisendur-
skoðunar, að huga að næsta skrefi í
málinu og er Ríkisendurskoðun
reiðubúin til að láta í ljós þá mögu-
leika sem eru í stöðinni.
Sagði störf sín
ekki orka tvímælis
Í tilkynningu til fjölmiðla í gær
sagðist Sigurður Helgi Guðmunds-
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Eirar, hafna því alfarið að störf hans
hafi orkað tvímælis. Hann sagðist
fagna því ef gerð verður úttekt á
rekstri hjúkrunarheimilisins. „Hún
mun væntanlega leiða í ljós hvort
eitthvað hafi verið athugavert við
störf mín sem framkvæmdastjóri eða
við störf stjórnar heimilisins á þess-
um tíma. Í því ljósi tel ég ekki rétt að
tjá mig frekar um málið á þessu
stigi.“
Aðspurður segir Sveinn Arason
ríkisendurskoðandi að ekki hafi bor-
ist beiðni um að úttekt verði gerð á
rekstri hjúkrunarheimilisins.
guna@mbl.is
Fái að end-
urgreiða
gjafabréf
Örlætisgerningur
að mati Ríkisendur-
skoðunar
Íslandsmótið í at-
skák verður hald-
ið dagana 16.-18.
nóvember.
Allir bestu og
virkustu skák-
menn landsins
eru skráðir til
keppni. Tefldar
verða 7 umferðir
frá kl. 19.30-22.30
á föstudagskvöld
og frá kl. 12.30-16.30 á laugardegi.
Fjórir efstu tefla síðan á sunnudegi
kl. 14.00 í undanúrslitum.
Teflt verður í Hlöðunni í Gufu-
nesbæ í Grafarvogi. Skákdeild
Fjölnis hefur umsjón. Mótið er helg-
að minningu Sturlu Péturssonar
sem var einn af stofnendum TR.
Skákdeild Fjölnis hefur umsjón með
framkvæmd mótsins. Hjörvar Steinn
Grétarsson, 19 ára Grafarvogsbúi,
hefur unnið Atskákmót Íslands síð-
ustu tvö árin.
Íslandsmótið
í atskák
hefst í kvöld
Hjörvar Steinn
Grétarsson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra staðfesti
fyrirspurn Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, í umræðunum á Alþingi í gær, um
að dregið hefði úr útgjöldum til lögreglu sem næmi
2,8 milljörðum á tveggja ára tímabili. Það helgaðist
af þeim vanda sem þjóðin glímdi við vegna fjár-
lagahalla ríkisins. Ögmundur benti á að á tveggja
ára tímabili hefði um 100 milljónum króna verið var-
ið til að efla lögregluna við að takast á við skipu-
lagða brotastarfsemi. „En þótt ég telji að lögreglan
sé í stakk búin að takast á við það verkefni þá má betur gera.“
„Það má betur gera“
INNANRÍKISRÁÐHERRA Í UMRÆÐUM Á ALÞINGI
Ögmundur
Jónasson
Snorri
Magnússon