Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 23

Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 Hörður Ægisson hordur@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það „eng- an veginn ásættanlegt“ að Alþingi muni sitja hjá og „eftirláta það ein- um manni [seðlabankastjóra]“ hvernig útgreiðslum úr þrotabúum föllnu bankanna verði háttað. „Það er algjörlega skýlaus krafa að þingið verði ekki bara upplýst heldur verði haft með í ráðum þegar búið er um hnútana í svona miklu hagsmunamáli“ og hafi um það loka- svar hvernig málum verði háttað, sagði Bjarni í óundirbúnum fyrir- spurnatíma á Alþingi í gær. Fram kom í svari Jóhönnu Sigurð- ardóttur, forsætisráðherra, við fyr- irspurn Bjarna hver aðkoma þings- ins yrði að þessu máli að mikilvægt væri að farið væri skynsamlega í af- nám gjaldeyrishafta og útgreiðslur úr þrotabúunum. „En ég held að við höfum alveg tök á þessu máli,“ sagði Jóhanna og vísaði til þess að það væri í höndum Seðlabankans að setja sérstakar reglur um hvernig útgreiðslum verði háttað. Hún sagð- ist þó sammála því að þingið þyrfti „að fylgjast vel með ferlinu.“ Bjarni var ekki sáttur við svör for- sætisráðherra og sagðist hafa „veru- lega miklar áhyggjur“ af afstöðu hennar í þessu máli og benti á að það væri óásættanlegt að þingið myndi einungis „sitja hjá og sætta sig við að fylgjast með“ í jafn stóru hags- munamáli þjóðarinnar þar sem um væri að ræða „útgreiðslur gjaldeyris upp á hundruð milljarða“. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gaf ennfremur lítið fyrir svör fjármála- og efnahagsráðherra, Katrínar Júl- íusdóttur, um hver væri staðan í við- ræðum Seðlabankans og slitastjórna þrotabúanna. „Ekki er hægt að fá upplýsingar um það hver hefur um- boð til slíkra viðræðna og hvort við- ræður standa yfir,“ sagði Sigmund- ur. Hann hvatti forseta Alþingis til að fylgja málinu eftir. Alþingi á að hafa lokasvar Morgunblaðið/Ómar Alþingi Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins.  Þingmenn vilja meiri aðkomu þingsins að nauða- samningum Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. bizhub C35 er sannkallað fjölnotatæki bizhub C35 er prentlausn sem hentar flestum fyritækjum. Prentari, ljósritunarvél, faxtæki og skanni í einu nettu tæki sem prentar 30 blaðsíður á mínútu, hvort sem er í svart-hvítu eða lit. Kynntu þér rekstrarkostnaðinn því hann kemur á óvart. Þú þarft ekki annað tæki en bizhub C35. Verð: 379.900 kr. Konica Minolta fjölnotatækin eru margverðlaunuð fyrir hönnun, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16 Simone - sófi 230 cm frá kr. 212.000 einnig fáanlegur í 203 og 183 cm Asanti - 3ja sæta sófi 213 cm kr. 232.800 Day - armstóll kr. 86.900 Gyro - armstóll kr. 198.400 Recast - svefnsófi þykk og góð springdýna Dýnustærð 140x200 Rúmfatageymsla Kr. 149.800 Supreme Deluxe - svefnsófi Extra þykk og góð springdýna Dýnustærð 140x200 Svefnpláss fyrir 2 - Rúmfatageymsla - kr. 169.800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.