Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012
JÓLAHLAÐBORÐ
Skútan
BJÓÐUMGLEÐILEGAHÁTÍÐ
www.veislulist.is Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
*Þú getur lesið allt um
verð, veislur og veislusal á
heimasíðu okkar
Við leggjum ávalt áherslu á
framúrskarandi matreiðslu
og góða þjónustu.
Glæsileg jólahlaðborð
fyrir smærri og stærri hópa.
Úrval kræsinga á góðu verði.
4.900.-
Verð frá
fyrir stæ
rri hópa
*
Steikarh
laðborð
2
5.500.-
Verð frá
fyrir 1-10 manns*(sjá: veislulist.is)
www.avon.is
Jólin koma
hjá Avon
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Að minnsta kosti fimmtán Palestínu-
menn, þeirra á meðal börn, og þrír
Ísraelar hafa beðið bana í loftárásum
Ísraelshers á Gaza-svæðið og flug-
skeytaárásum Hamas-samtakanna á
Ísrael síðustu tvo daga.
Blóðsúthellingarnar hófust eftir
að Hamas-samtökin hófu nýja hrinu
flugskeytaárása á Ísrael. Ísraelsher
svaraði með loftárásum á Gazaborg í
fyrradag og yfirmaður hernaðar-
arms Hamas beið bana í einni þeirra.
Hamas-menn skutu hundruðum
flugskeyta á Ísrael og þrír Ísraelar –
tvær konur og karlmaður – létu lífið
þegar flugskeyti lenti á efstu hæð
byggingar í bænum Kiryat Malachi,
um 25 km norðan við Gaza. Fjögurra
ára piltur og tvö kornabörn særðust í
árásinni.
Minnst sjö Palestínumannanna
sem biðu bana voru vopnaðir
Hamas-menn en á meðal þeirra voru
einnig þrjú börn, kona og tveir
aldraðir karlmenn.
Útilokar ekki landhernað
Óttast er að blóðsúthellingarnar
leiði til nýs stríðs milli Ísraela og
Hamas eins og fyrir fjórum árum
þegar að minnsta kosti 1.200 manns
biðu bana. Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra Ísraels, sagði að til
greina kæmi að hefja landhernað á
Gaza-svæðinu ef Hamas héldi áfram
flugskeytaárásunum. Hann sakaði
Hamas um að hafa framið stríðs-
glæpi gagnvart Ísraelum og
Palestínumönnum með því að skjóta
flugskeytum á óbreytta borgara í
Ísrael og fela sig meðal óbreyttra
borgara á Gaza-svæðinu. Ísraelar
segja að Hamas-mennirnir hafi kom-
ið flugskeytunum fyrir í íbúða-
hverfum af ásettu ráði.
Willam Hague, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði að Hamas-samtökin
bæru mesta ábyrgð á blóðsúthelling-
unum en hvatti einnig Ísraela til að
gera ekki árásir sem stefndu lífi
óbreyttra borgara í hættu eða gætu
leitt til stríðs.
Mohammed Mursi, forsætisráð-
herra Egyptalands, fordæmdi árásir
Ísraela og kallaði sendiherra Egypta
í Ísrael heim. bogi@mbl.is
Óttast að nýtt
stríð blossi upp
Fimmtán Palestínumenn og þrír
Ísraelar biðu bana í árásum
AFP
Eyðilegging Piltur við húsarústir
eftir árás Ísraela á Gazaborg.