Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 31

Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 31
myndir. Myndir minninga minna af manninum sem nú er kvaddur af ástvinum sínum með söknuði og trega eru æði margar og fjöl- breyttar. Myndirnar eiga þó all- ar eitt sameiginlegt. Þær mynda í sameiningu heilsteypta sýn af sérlega vönduðum og hjartahlýj- um manni sem ég á svo ótal margt að þakka. Það er einmitt þakklæti sem er mér efst í huga þegar ég feta nú braut minning- anna. Þegar móðir mín fæðist í þennan heim er rétt um mán- uður liðinn frá andláti föður hennar. Hún varð af þeim sökum af því að kynnast föður sínum. Hún varð þó þeirrar gæfu að- njótandi að eiga eldri bræður sem gátu gengið henni á vissan hátt í föðurstað. Föðurmynd hennar var að mörgu leyti í formi Hreins og kann ég honum óendanlegar þakkir fyrir að hafa hlúð svona vel að lítilli systur sem seinna átti eftir að ala und- irritaðan. Mínar fyrstu minningar eru tengdar þeim góðu stundum sem ég naut þegar ég fékk að vera í pössun í Bólstaðarhlíðinni hjá Hreini og Hrefnu. Það var alltaf tilhlökkunarefni þegar mér var tilkynnt að nú fengi ég að gista hjá þeim. Mér eru nokkrar stundir sérstaklega minnisstæð- ar, en fyrir utan þann dýrind- ismat sem húsfreyjan í Bólstað- arhlíðinni galdraði fram með bundið fyrir augun, þá var það kærleikurinn sem umvafði and- rúmsloftið sem saddi sálina líkt og krásirnar gerðu fyrir mag- ann. Um 17 ára aldurinn fékk ég sumarstarf hjá Pósti og síma á tengigrind í Múlastöð. Þar voru fyrir báðir móðurbræður mínir og vann ég með þeim þrjú sumur og hluta úr vetri. Þetta er án efa eitthvert mesta gæfuspor í mínu lífi því undir þeirra leiðsögn lærði ég svo ótalmargt. Á þess- um mikilvægu mótunarárum í lífi ungs manns var svo afar hollt að njóta kærleiksríkar leiðsagn- ar frænda minna beggja. Þegar Jón frændi fór í ársleyfi til Nor- egs vorum við Hreinn tveir einir á tengigrindinni og á þeim tíma styrktist okkar samband til muna. Þegar ég ákvað að breyta um farveg á menntaveginum og hefja nám í vélvirkjun var ég studdur með ráðum og dáðum frænda minna. Þann tíma sem Hreinn vann áfram í Múlastöð vandi ég komur mínar iðulega til hans til þess að segja honum undan og ofan af því hvernig gengi á leiðinni um veg mennt- unarinnar. Hann var ávallt áhugasamur og hvatti mig óspart áfram, og svei mér þá, ég held að hann hafi verið nokkuð stoltur af mér. Það stolt var fyllilega verðskuldað, sér í lagi vegna þess að hefði ég ekki stigið það gæfuspor sem hér á undan hefur verið rakið er allsendis óvíst að ég væri á þeim stað sem ég er á í dag. Nú þegar að leiðarlokum er komið vil ég nota tækifærið til þess að færa frænda mínum hon- um Hreini innilegar þakkir fyrir allt það sem hann gaf og kenndi mér með lífi sínu. Ég vil jafn- framt votta aðstandendum hans mína innilegustu samúð og minna á að minningar um ein- stakan mann lifa í hugum og hjörtum okkar allra. Hvíldu í friði. Þinn frændi, Jón Trausti (Dússi). Það var gaman að hitta þig og ræða um daginn og veginn. Ég ætlaði ekki að trúa því að vin- urinn væri farinn. Ég minnist þess þegar við hittumst í Kringl- unni, sátum á bekknum og töl- uðum um Hrefnu þína sem þér þótti svo vænt um. Góður Guð veri með þér, Hreinn minn. Ég vona að þér líði vel. Ég sendi fjölskyldu þinni samúðarkveðjur. Stefán sendill. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 ✝ GuðmundurIngimar Magn- ússon fæddist á Herjólfsstöðum, Skefilsstaðahreppi í Skagafirði, 23. ágúst 1928. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 7. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Magnús Elías Sigurðsson frá Tröð, Bol- ungavík, f. 6.11. 1890, d. 3.7. 1974 og Þórunn Björnsdóttir frá Skíðastöðum í Skefils- staðahreppi, f. 20.8. 1895, d. 9.1. 1970. Systkini Guðmundar: Hjörtur, f. 2.2. 1913, d. 29.7. 1965, Guðrún, f. 4.7. 1914, d. 8.9. 2000, Sigurður, f. 18.11. 1920, d. 2.8. 2002, Birna, f. 15.4. 1923, d. 5.3. 2007, Stefán, f. 27.9.1925, d. 9.6. 1982, Sigurlaug, f. 18.1. 1931. 1. nóvember 1958 kvæntist Guðmundur Guðrúnu Sigurð- Adolf Ársælsson, f. 17.9. 1959, synir þeirra eru: a) Arnar Geir, maki Hafdís Ösp Garðarsdóttir, börn þeirra eru Níels Aron, Birta Rún og Garðar Máni, b) Ársæll, maki Auður Birna Guðnadóttir, synir þeirra eru Alexander Hrafn og Tristan Ernir, c) Egill, d) Guðmundur, e) Styrmir. 4) Hjördís, f. 30.11. 1963. 5) Birna, f. 23.7. 1965, maki Guðni Þór Sigurjónsson, f. 14.9. 1963, börn þeirra eru: a) Katrín Melkorka Hlynsdóttir, b) Auður Eir, dóttir hennar er Birgitta Líf, c) Guðni Þór, d) Sigurjón. 6) Birgir Heiðar, f. 20.8. 1972, maki Helena Björk Pálsdóttir, f. 1.2.1965, börn þeirra eru: a) Einar Andri Ólafs- son, b) Ester Jenný, c) Bjarki Heiðar. Guðmundur var fæddur og uppalinn á Herjólfsstöðum, Skefilsstaðahreppi í Skagafirði. 18 ára gamall flutti hann ásamt foreldrum sínum á Akranes og þaðan til Akureyrar þar sem hann lauk prófi í húsasmíði árið 1952. Frá árinu 1961 bjó Guð- mundur ásamt fjölskyldu sinni í Kópavogi. Útför Guðmundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 16. nóvember 2012, kl. 13. ardóttur frá Mar- bæli, Seyluhreppi í Skagafirði, f. 14.2. 1934, foreldrar hennar voru Ingi- björg Efemía Jóns- dóttir, f. 16.5. 1904, d. 24.8. 2000 og Sig- urður Sig- urjónsson, f. 18.9. 1900, d. 6.8. 1983. Börn Guðmundar og Guðrúnar eru: 1) Sigurbjörg, f. 23.10. 1953, maki Sigurður Pálsson, f. 26.6. 1953, dætur þeirra eru: a) Guðrún, maki Steinmar Heiðar Rögn- valdsson, dætur þeirra eru Sunna Karen og María Björg, b) Þóra Sif, maki Ingi Hrannar Heimisson, synir þeirra eru Sig- urður Kári og Sverrir Páll, c) Heiða Björg, maki Sveinn Orri Vatnsdal, synir þeirra eru Rún- ar Daði og Emil Orri. 2) Þór- arinn Magnús, f. 4.2. 1960, sonur hans er Andri Ingimar. 3) Sig- urlaug, f. 8.1. 1962, maki Níels Elsku pabbi minn, það eru búin að falla mörg tár síðan þú fórst en nú líður þér vel, það er ég viss um. Þú varst mér og son- um mínum góð fyrirmynd. Góð- ur, rólegur og fyndinn eru lýs- ingarorð drengjanna minna á afa sínum. Það var ómetanlegt að vera svona nálægt þér sein- ustu mánuðina. Guð gaf mér engil sem ég hef hér á jörð. Hann stendur mér hjá og heldur um mig vörð. Hann stýrir mér í gegnum lífið með ljósi sínu. Ég er svo þakklát að hafa hann í lífi mínu. Ég vona að hann viti að hann er mér kær. Allar mínar bestu hugsanir hann fær. Hans gleði og viska við alla kemur. Við flestalla honum vel semur. (Katrín Ruth) Minning þín er ljós í lífi okk- ar. Sigurlaug. Elsku pabbi, það er sárt að kveðja og söknuðurinn er mikill, en nú ert þú laus undan þján- ingum veikinda þinna sem voru þér oft svo erfið. Að halda í hönd þína og kreista þegar þú kvaddir var erfið stund. Huggun mín er sú að fólkið þitt sem hef- ur kvatt þennan heim og er þér svo kært tók á móti þér í „Sum- arlandinu“. Pabbi og mamma eiga stóran barnahóp sem eiga yndislegar minningar um æsku sína og allt- af gerðu þau svo gott úr öllu. Þegar ég var barn og unglingur fór ég svo oft með pabba í kröfu- göngur og á miðilsfundi, alltaf fannst mér það jafn spennandi. Pabbi var mín stoð og stytta, ef eitthvað bjátaði á leitaði ég ráða hjá honum. Oft vorum við ekki sammála, en hans skoðanir á líf- inu og dauðanum hafa fylgt mér svo lengi og mótað mínar. Pabbi var smiður af guðs náð og eru verk eftir hann svo víða, alltaf þekkir maður handbragð hans. Afmælisgjöfin til mín frá honum er mikið verk sem mér þykir svo vænt um. Elsku pabbi, við vitum það bæði að við eigum eftir að hitt- ast aftur. Þú vakir yfir mér og börnunum mínum og heldur áfram að leiðbeina okkur í lífinu. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. Ástvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér, blessaði frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson) Takk fyrir allt. Birna. Látinn er tengdafaðir minn Guðmundur I. Magnússon, Álfa- brekku 9, Kópavogi. Okkar kynni hófust þegar fjölskylda þín bjó á Nýbýlavegi 54. Þá fór ég kornungur maður að heimsækja elstu dótturina og dvelja heldur langt fram á kvöld. Eitt kvöldið endaði það með því, að bankað var hressi- lega á herbergishurðina og til- kynnt að síðasti strætó færi eftir smástund. Ekki gegndi ungi maðurinn þessum boðum. Seinna um nóttina læddumst við í símann og hringdum á leigubíl. Svona gekk þetta í nokkrar vik- ur. Þá orðaðir þú við dótturina hvort ekki væri betra fyrir strákinn að taka bara fyrsta strætó um morguninn, þetta væri svo kostnaðarsamt að nota þessa leigubíla. Ekki er það ætlunin að halda einhverja lofræðu um þig, það hefði þér ekki líkað. Eitt af því sem mér líkaði svo vel við í þínu fari var hvað þú varst sposkur og hafðir ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum. Þú fórst þínar eigin leiðir. Einu sinni varst þú að keyra í Reykjavík, svínaðir svona nett fyrir öku- mann sem greinilega bálreiddist og keyrði mjög nálægt þér. Hann þeytti bílflautuna hressi- lega, þá sagðir þú að þessir öku- menn væru stórskrýtnir, ef þeir ná ekki að keyra aftan á mann þá bara liggja þeir á flautunni. Þið byggðuð ykkur hús í Álfa- brekkunni. Í Álfabrekkuna er alltaf gott að koma og tekið á móti mér með hlýju. Ekki gleymi ég hversu hjálpsamur þú varst. Þegar við Sigurbjörg keyptum okkar fyrstu íbúð, þar varstu kominn og settir upp inn- réttingar og gerðir hlé á vinnu þinni til að hjálpa okkur. Árin liðu og við Sigurbjörg eignuðumst okkar fyrstu dóttur sem fæddist á fimmtudagskvöldi í Reykjavík, en þið fjölskyldan voruð norður í Skagafirði. Á laugardegi um hádegið var ég mættur í hlaðið á bænum þar sem þið voruð, steig út úr bíln- um og það fyrsta sem þú sagðir var: „Strákskrattinn hefur dott- ið í það.“ En það var nú ekki svo heldur flaug ég til Akureyrar kvöldið áður og keyrði með for- eldrum mínum til Reykjavíkur þar sem faðir minn var veikur og treysti sér ekki til að keyra. Handtak þitt var alltaf hlýtt og sagði allt sem segja þurfti. Bílskúrinn var ævintýraheim- ur fyrir afabörnin, þar fékk hug- ur og hönd barnanna að njóta sín. En eins og svo margir þurft- ir þú að lúta í lægra haldi fyrir skæðum sjúkdómi sem herjaði á þig. Í hvert sinn sem við hitt- umst reyndir þú alltaf að bera þig vel þó svo staðreyndin væri önnur. Elsku Guðrún og fjölskylda, þó stundin sé sár þá eigum við alltaf minningu um ljúfan mann sem aldrei gleymist. Hvíl í friði, kæri tengdafaðir. Sigurður Pálsson. Elsku afi. Þrátt fyrir að hafa lengi vitað að þetta væri handan við hornið er samt erfitt að sætta sig við það. Ég var alltaf viss um að við ættum að minnsta kosti einn fund eftir. Heimsókn- um slegið á frest um stutta stund, viss um að það kæmi nýr dagur með nýjum möguleikum. Ég ætlaði að koma og lesa fyrir þig en svo varstu bara farinn, aðeins of snemma. Mig langaði svo til að gefa þér þetta að skiln- aði en ég var of seinn. Ég mun samt alltaf hafa þig hjá mér. Minningarnar um þig og gjaf- irnar sem þú gafst mér mun ég alltaf bera í hjartanu. Ég ætlaði að verða smiður al- veg eins og þú. Það rættist reyndar ekki. En það er allt í lagi. Það er svo margt annað sem ég get verið eins og þú. Þú varst svo fyndinn, rólegur og hjartahlýr. Það var ekki hægt annað en að líða vel í návist þinni. Besti maður sem ég hef þekkt. Ég heyrði þig aldrei hall- mæla neinum og sá þig aldrei skipta skapi. Svo varstu líka allt- af til í að gefa mér ís. Ég vona að ég verði jafngóður maður og þú. Ég vona að ég verði jafn- góður afi og þú. Eitt af síðustu skiptunum sem ég hitti þig sastu í stólnum þín- um með bros á vör og sagðir: „Lífið er of stutt til að hafa áhyggjur af dauðanum.“ Þú nýttir þinn tíma vel og gafst svo mikið. Þú mátt vera stoltur af því. Ég vona að þú sért kominn á betri stað. Hvar sem það er og hvort sem sá staður er betri eða verri en sú vist sem þú ert nýbú- inn að kveðja, þá er eitt sem ég veit: Sá staður er, með þinni til- komu, orðinn betri en hann var áður en þig bar þar að garði. Takk fyrir mig afi minn og góða ferð. Ég elska þig. Ársæll Níelsson. Svefninn langi laðar til sín lokakafla æviskeiðs hinsta andardráttinn andinn yfirgefur húsið hefur sig til himna við hliðið bíður drottinn. Það er sumt sem maður saknar, vöku megin við. Leggst út af á mér slokknar, svíf um önnur svið. Í svefnrofunum finn ég, sofa lengur vil. þegar svefninn verður eilífur finn ég aftur til. (Björn Jörundur Friðbjörnsson og Daníel Ágúst Haraldsson) Elsku afi. Nú ertu farinn í ferðalagið sem þú sagðir mér frá síðast þegar við töluðum saman, leiksýninguna þína um lífið. Þú varst á undan okkur í sorgar- ferlinu, þú gerðir þér vel grein fyrir í hvað stefndi og á þig leit- aði kvíði og söknuður með þeim líkamlegu þjáningum sem þú barst. Afi þú ert hetja og skilur svo mikið eftir þig. Svo margar minningar sem við eigum. Minningar um góðan, traustan og hjartahlýjan mann. Minningar um glaðværð þína, húmor og þrjósku. Lyktin af saginu í bílskúrnum, sullið sem þú borðaðir, hlýlegu móttökurn- ar þegar ég kom í heimsókn og umræða um þjóðmálin, það er margt sem rifjast upp þegar ég hugsa til þín. Kallið þitt er komið, þú ert kominn úr þeim líkama sem þig langaði stundum að geta svifið úr. Takk fyrir allt. Kveðja, Guðrún. Elsku afi. Þá er komið að kveðjustund, það er erfitt að kveðja en ég veit að núna líður þér vel og og þú ert hættur að finna til. Eitt af því sem ég á eftir að sakna mest eru hlýju faðmlögin frá þér þegar ég kom og fór úr Álfabrekkunni, væntumþykjan skein í gegnum þau. Minningarnar um þig mun ég geyma, þær munu alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín Heiða Björg. Nú er elsku afi okkar fallinn frá eftir löng og erfið veikindi. Það verður skrítið að fara í Álfa- brekkuna og sjá ekki afa sitja í stólnum sínum inni í stofu og fá ekki afaknús í kveðjuskyni en afi faðmaði okkur alltaf svo fast og hlýlega. Afi var mikið í bílskúrnum sínum og minnumst við þess að oftar en ekki þegar við renndum í hlaðið hjá ömmu og afa þá var opið inn í bílskúr og afi þar að vinna. Bílskúrinn hans afa var okkur sem ævintýraheimur, hann var stærri en venjulegir skúrar því afi þurfti pláss fyrir öll sín verkfæri og efnivið. Við gátum leikið okkur þar enda- laust, hvort sem það var í fjár- sjóðsleit í krókum og kimum eða að smíða það sem okkur datt í hug. Aldrei leiddist okkur í bíl- skúrnum hjá afa. Við minnumst þess einnig að á nánast hverju ári fórum við með afa, ömmu og fjölskyldunni í bústaðinn okkar í Skagafirðinum. Afi las þar og skrifaði og var sérlega duglegur við að dytta að bústaðnum, hann fann sér alltaf eitthvað að gera. Afi lét ekki veikindi sín stoppa sig, hann smíðaði handrið fyrir húsið okk- ar og er það okkur mjög minn- isstætt þegar við festum bílinn okkar í innkeyrslunni hjá afa síðasta vetur. Við hömuðumst við að reyna að moka bílinn út en það var ekki fyrr en afi kom út og hjálpaði okkur að við náð- um að losa bílinn. Afi var alltaf svona duglegur og hjálpsamur og gerði allt fyrir fjölskyldu sína. Elsku afi, við söknum þín. Katrín Melkorka og Sigurjón. Guðmundur Ingi- mar Magnússon Elskulegur bekkjarbróðir minn Halldór Nílsson, eða Doritt eins og hann var oft- ast kallaður af okkur krökkun- um, er dáinn. Við kynntumst í Master Commison Biblíuskólan- um hér á Íslandi. Við bjuggum þar 6 strákar í herbergi, geri Halldór Nilsson ✝ Halldór Nils-son fæddist á Akureyri 27. jan- úar 1982. Hann lést 1. nóvember 2012. Úför Halldórs fór fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 9. nóvember 2012. aðrir betur. Stund- um var hlerað yfir í herbergi stelpnanna og hafðir þú ekki síst gaman af því. Doritt var mikill hagleiksmaður og gat lagað allt frá minnstu hlutum upp í að koma bíln- um hans Varðar, sem var nánast ónýtur, í gang. Hann var harðduglegur og þurfti sko ekki að hvetja hann til vinnu hvort sem var á bók eða verklegt. Mér er mjög minnis- stætt þegar bekkjarsystur okk- ar voru að krulla upp á þér hár- ið einu sinni og hafðir þú gaman af. Doritt var mikill matmaður og var unun að horfa á þá nafna borða. Ef einhverjir afgangar voru eftir var Erna vön að segja, Halldór og Halldór klára þetta. Það sem tengdi okkur saman var kærleikur krists og lærðum við að þekkja styrkleika og takmarkanir hvor annars. Þú varst alltaf til staðar ef mann vantaði hjálp við hvað sem var og ekki var langt í húmorinn hjá þér þó stundum væru sumir dagar erfiðari en aðrir. Ég á bágt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur, svona ungur, við áttum svo margt ógert saman. Að heyra ekki röddina þína og hlátur lengur er ólýsanleg tilfinning. Mikið skarð hefur nú myndast, Doritt minn, í Biblíuskólahópinn. Þú ert ein- stök sköpun Guðs sem hefur nú kvatt þennan heim alltaf fljótt. Stundum er sagt að þeir deyi ungir sem guðirnir elska. Ég vil að endingu þakka þér fyrir það að vera vinur minn og trúbróðir. Okkur virðist hart að þola það Sem þó er létt á móti byrðum hans Er forðum einn á krossi bænir bað um blessun Guðs og náð til sérhvers manns. (H.H.) Ég vil senda stórfjölskyldu Halldórs mínar dýpstu samúðar- kveðjur . Megi algóður Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Hvíl í friði. Þinn bekkjarbróðir úr MCI Biblíuskólanum, Vilhjálmur Karl Haraldsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.