Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.11.2012, Blaðsíða 37
Kveðja frá bekkjarsystkinum Vinur okkar og skólafélagi, Sigurður Eyjólfsson, hefur nú kvatt um aldur fram. Okkur bregður við, erum enn á ný minnt á það hversu hverfult og stutt lífið er. Minningarnar leita á okkur frá námsárunum í Menntaskól- anum á Akureyri og frá háskóla- árunum hér heima og erlendis. Við vorum 22 bekkjarsystkinin í 6.SA sem urðum stúdentar vorið 1967. Við héldum að við værum orðin fullorðin en alvara lífsins beið okkar handan við hornið. Sum okkar höfðu þekkst frá barnæsku, önnur höfðu fyrst kynnst þegar þau byrjuðu í menntaskólanum. Við komum alls staðar að af landinu en þekktum hvert annað orðið býsna vel. Okkur þótti vænt hverju um annað og kennararnir töluðu oft um hve gott væri að koma inn í bekkinn okkar. Í horninu aftast við gluggann sat Sigurður eða Siggi eins og hann var alltaf kallaður. Hann var frá Eiðum, íslenskur sveitastrákur í bestu merkingu þess orðs. Við bárum öll virðingu fyrir honum. Framganga hans var slík. Siggi var óvenjulega prúður ungur maður en þó fastur fyrir og ein- arður í skoðunum. Hann var framúrskarandi námsmaður sem veittist létt að vinna með öðrum og að rétta hjálparhönd þeim sem eitthvað höfðu verið að slá slöku við. Hann kunni að gleðjast með glöðum en gat einn- ig tekið þátt í vandamálum ann- arra þegar þess þurfti. Siggi var glæsilegur í sjón, há- vaxinn, dökkur á brún og brá. Á menntaskólaárunum bjó hann alltaf á Gömlu vistum ásamt nokkrum öðrum félögum okkar. Þar var þröngt og lágt til lofts. Ekki voru þeir félagarnir að gera sér rellu út af smámunum. Það tók því til dæmis ekki að festa eina tölu þótt hún dytti af. Betra var að bíða þangað til allar voru farnar og festa þær þá allar í einu. Sigga leið vel í menntaskólan- um og stundaði námið af alúð. Hann hlakkaði samt til að út- skrifast og hefja nám í háskóla. Þegar þar var komið sögu lagði hann stund á byggingaverkfræði við Háskóla Íslands og síðan Tækniháskólann í Þrándheimi þaðan sem hann útskrifaðist með meistaragráðu árið 1973. Hann starfaði að námi loknu sem verk- fræðingur hjá VST og síðan Verkís eftir sameiningu. Ávallt stundaði hann starf sitt af sömu samviskuseminni og námið áður. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Sigga og mannkostum hans. Heilindi, drengskapur og hjálpsemi voru hans einkenni. Með honum er genginn maður sem lagði sitt af mörkum til upp- byggingar í þjóðfélaginu af sam- viskusemi og heiðarleika. Margréti, Eyjólfi, Ingu Láru, Ævari Páli og öðrum aðstand- endum sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. F.h. 6. bekkjar sa veturinn 1966-67, Jóhanna Margrét Guðjónsdóttir, Steinar Friðgeirsson, Svava Þorsteinsdóttir. Stöðugleiki, styrkur, öryggi, seigla, traust og þol eru orð sem koma upp í hugann þegar nafn Sigurðar Eyjólfssonar er nefnt. Orðin eru einnig lýsandi um mik- ilvæga eiginleika vandaðra burð- arvirkja sem voru viðfangsefni hans á farsælum starfsferli sem byggingarverkfræðingur, sér- fræðingur í húsagerð og hönnun burðarvirkja. Orðin eiga vel við um verk Sigurðar. Sigurður Eyjólfsson var sam- starfsmaður okkar á Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen (nú Verkís). Við fundum fljótt eftir að við hófum þar störf, ungir og óreyndir verkfræðingar, að gott var að leita til Sigurðar um ráð og leiðbeiningar varðandi hönn- un burðarvirkja. Með fáum orð- um ásamt handteiknaðri skýr- ingarmynd lýsti hann flæði krafta um burðarvirki yfir í traustar undirstöður. Stundum hengdi hann kraftana upp og flutti í járnum frá veikari hluta burðarvirkis þangað sem meiri fyrirstöðu var að finna. Kraftana teiknaði hann upp þannig að örv- ar sýndu stefnu þeirra líkt og um spjót væri að ræða eins og hefð- bundið er í burðarþols- og stöðu- fræðum. Það var sem Sigurður, þéttur á velli og þéttur í lund, gripi þessi spjót á lofti úr hvaða átt sem þau bárust og kæmi þeim tryggilega fyrir þar sem ekkert gæti haggað þeim. Vind- ar mættu blása og jörð skjálfa. Mannvirkið var traust. Sigurður fylgdist vel með sínu fagi, ekki síst nýjungum um allt sem það snerti svo sem um bygg- ingaraðferðir og byggingarefni, nýja staðla eða hugbúnað til greiningar á burðarvirkjum. Hins vegar þegar mikið lá við fletti hann, þrautreyndur og þra- utgóður, upp í gamalli sænskri handbók eða fann leið að lausn með lestri af þýsku línuriti. Allt í bókum þar sem fáum öðrum hefði dottið í hug að leita. Að því loknu sagði Sigurður rólega og yfirvegað eins og hans var hátt- ur: Ætli við getum ekki möndlað þetta svona. Sigurður hafði jafnan meira en nóg af verkefnum á Verk- fræðistofunni, enda færni hans kunn og viðurkennd. Hann gaf sér samt alltaf góðan tíma til að aðstoða aðra í þeirra verkefnum. Það eru forréttindi að hafa unnið með Sigurði Eyjólfssyni. Við munum í störfum okkar ætíð búa að þeim lærdómi og þeirri reynslu sem hann miðlaði til okkar. Minningin um Sigurð Eyjólfs- son er í hugum okkar óhaggan- leg, traust og góð. Fjóla Guðrún Sigtryggs- dóttir og Eggert V. Valmundsson. Sigurður Eyjólfsson bygg- ingaverkfræðingur er fallinn frá, samstarfsmaður minn og góður félagi til tæpra fjörutíu ára. Hann tók til starfa á Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen 1973 eða þremur árum eftir að ég hóf þar störf. Fljótt kom í ljós að þar fór afar vandvirkur og traustur vinnufélagi. Lét fátt hagga sér og sinnti þeim verkefnum sem honum voru falin af samvisku- semi og alúð. Ekki verður hér rakinn allur sá fjöldi verka sem hann leysti af hendi, heldur lýst hvernig hann sinnti þeim. Verkefni sem Sigurður tók að sér var jafnan þar með borgið, skildi ekki við þau fyrr en þau voru fullunnin. Hann naut sín vel við verkfræðistörfin, það mátti sjá á þeirri alúð sem hann sýndi þeim. Sigurður ávann sér strax traust þeirra arkitekta og verk- fræðinga sem með honum unnu, enda var hann ávallt ósérhlífinn við vinnu og fágætur fagmaður. Lausnir voru jafnan traustar og aðgengilegar í framkvæmd. Oft höfðu verktakar orð á að gott væri að vinna eftir teikningum Sigurðar. Ef þeir vildu breyta einhverju til sparnaðar eða ein- földunar, stóð hann jafnan fastur fyrir og sló ekki af þeim gæða- kröfum sem hann hafði sett. En var þó einnig reiðubúinn að taka góðum ábendingum. Nægir að nefna þrjú íþrótta- mannvirki í Reykjavík þar sem Sigurður gaf burðarvirkjum form af kunnáttu og smekkvísi í samvinnu við þá ágætu arkitekta sem með honum unnu. En það eru Árbæjarsundlaug, frjáls- íþróttahúsið við Laugardalshöll og heilsuræktar- og innisund- laugarbyggingin í Laugardal. Við fráfall Sigurðar sakna ég vinar í stað. Ekki verður framar gengið yfir til hans og leitað álits eða ráða og er það mér og okkur félögunum mikill missir. Mestur er þó missir ástvin- anna. Votta ég Margréti, börn- um þeirra og barnabörnum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Sigurðar Eyjólfssonar. Níels Indriðason. Sigurður Eyjólfsson kom árið 1973 til starfa hjá Verkfræði- stofu Sigurðar Thoroddsen (nú Verkís) og starfaði þar alla tíð síðan. Hann kom beint frá Þrándheimi eftir framhaldsnám í byggingaverkfræði en hafði lokið fyrrihlutaprófi frá Háskóla Íslands 1970. Hann var einn af hópi verkfræðinga sem komu til starfa á þessum tíma og mynd- uðu sterkan kjarna í starfsliði fyrirtækisins. Sigurður var mjög hæfur verkfræðingur og burðarþol mannvirkja varð hans aðal- starfsvettvangur. Hann var einn af bestu burðarþolshönnuðum stofunnar og naut mikils álits á því sviði bæði innan stofunnar, hjá samstarfsaðilum og við- skiptamönnum en þeir sóttust eftir Sigurði í hin vandasamari og stærri verkefni. Hann gerðist fljótlega hluthafi í verkfræði- stofunni og tók þátt í uppbygg- ingu hennar og rekstri. Sigurður var afar farsæll í starfi og verkin hans standa sem vitnisburður um mikla fag- mennsku. Hann hafði þá afstöðu að mannvirki yrðu að vera vel byggð, traust og vönduð. Hann hvikaði ekki í þeirri afstöðu en gaf sér þó alltaf góðan tíma til að leita að lausnum sem væru hag- kvæmar og auðveldar í fram- kvæmd. Í virkjanaverkefnum seinni árin var hann bakhjarl í burð- arvirkjum og fór yfir verkefni annarra. Þegar leita þurfti lausna á flóknum kraftayfir- færslum í Kárahnjúkavirkjun var kallað á Sigurð og nýttist þá hans mikla reynsla og yfirsýn. Flókin verkefni uxu honum aldr- ei í augum en hann réðst að þeim með skipulegum og yfirveguðum hætti. Sigurður var hægur, rólyndur og fremur fámáll en þegar hann tjáði sig hlustuðu menn vel því hann lagði ávallt gott til mála og sýndi samstarfsmönnum sínum sanngirni og traust. Okkur vinnufélögum leið vel að vinna með honum í verkefnum og hann hafði góða nærveru. Honum var gefið mikið líkamlegt og andlegt atgervi sem hann nýtti sér vel en hann var ótrúlega vinnusamur og afkastamikill. Við sjáum á bak traustum og góðum félaga og söknum hans, en geymum minningu um mikinn afbragðsmann. Fráfall Sigurðar kom ekki á óvart en hann hafði lengi glímt við erfið veikindi og í þeirri glímu sýndi hann æðru- leysi og jafnaðargeð. Við, félagar og samstarfs- menn Sigurðar hjá Verkís, send- um Margréti og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Samstarfsmenn og vinir hjá Verkís, Viðar Ólafsson. Í dag kveð ég vinnufélaga til 30 ára sem ég kynntist fyrst þeg- ar ég nýkominn úr framhalds- námi hafði hafið störf á Verk- fræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Þetta sumar var ég sendur víða um landið til vinnu við mælingar og eftirlit í gatna- framkvæmdum og tilfallandi verkefnum. Sigurð sá ég fyrst þegar ég var í Neskaupstað og hann kom þangað til að fara yfir, með Loga bæjarstjóra, ýmis verkefnamál sem hann var að sinna þar. Þá strax fann ég fyrir þeirri virðingu sem borin var fyrir honum og verkfræðistörf- um hans. Síðan þá höfum við Sig- urður unnið saman að mörgum verkefnum og hef ég alltaf litið á hann sem einn af mentorum mínum á sviði burðarvirkja- hönnunar og við úrlausn verk- fræðilegra verkefna, enda hef ég og margir fleiri talið hann einn af fremstu burðarvirkjahönnuð- um landsins hvað varðar hag- kvæmar og einfaldar lausnir á flóknum burðarvirkjum. Ófáir arkitektar hafa leitað til hans þegar leysa hefur þurft úr flókn- um vandamálum við að bera uppi hús án þess að rýra fegurð þeirra. Sigurður var fámáll að eðlisfari en sinnti sinni vinnu af alúð og ábyrgð. Hann var mjög vinnusamur enda var oftast leit- að til hans þegar finna þurfti mann til að stýra burðarvirkja- hönnun í stórum verkefnum á stofunni. Þannig var tryggt að verk yrði vel af hendi leyst og innan þess tíma- og kostnaðar- ramma sem til verksins var sett- ur. Sigurður var í upphafi starfs míns á stofunni ein af mínum fyrirmyndum og félagi sem allt- af var hægt að leita til við úr- lausn verkefna enda vann ég þá oft undir hans stjórn. Síðustu árin hafa málin þó þróast þannig að Sigurður var orðinn undir- maður minn á byggingarsviði Verkís en Verkís varð til við sameiningu nokkurra verk- fræðistofa. Sigurður var einn af máttarstólpum sviðsins á sviði burðarvirkja og naut mikils trausts hjá viðskiptavinum okk- ar og mér ómetanlegur styrkur við rekstur sviðsins. Að hafa mann eins og Sigurð til að stýra verkefnum á sviðinu er ómetan- legt og verður seint þakkað. Erfitt verður að fylla skarð það sem hann skilur eftir í hópnum en við búum þó að því að hann hefur verið ötull við að leiðbeina yngri mönnum. Sigurður greindist með krabbamein fyrir nokkrum ár- um sem hann hefur barist hat- rammlega við og nú orðið að lúta í lægra haldi fyrir. Þessu mót- læti hefur hann tekið af æðru- leysi og reynt að sinna vinnu sinni eins og fyrr en þó með breyttri forgangsröðun. Ég kveð núna góðan félaga og vin sem ég hef borið mikla virð- ingu fyrir og lært mikið af. Ég sendi þér, Margrét, börn- unum og barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur sem og fyrir hönd okkar félag- anna á byggingasviði Verkís. Megi góður Guð styrkja ykkur á erfiðri stund. Flosi Sigurðsson. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 Munið minningarkort Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Pantanir á www.skb.is eða í símum 588 7555 eða 897 8974.Til minningar um hefur Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna verið færð minningargjöf Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna Hlíðasmári 14 - 201 Kópavogur ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐLAUGAR OTTÓSDÓTTUR, Laugarnesvegi 87, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun. Guðjón Eyjólfsson, Eyjólfur Guðjónsson, Ottó Guðjónsson, Guðbjörg Sigurðardóttir, Karólína Guðjónsdóttir, Áslaug Guðjónsdóttir, Steinþór Pálsson, Gunnar Guðjónsson, Marta Svavarsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN KR. ÁRNASON skipasmiður, Njörvasundi 30, Reykjavík, andaðist á Landakotsspítala aðfaranótt föstudagsins 9. nóvember. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 19. nóvember kl. 15.00. Blóm eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Sigríður Magnúsdóttir, Laufey Jóhannsdóttir, Skúli Gunnar Böðvarsson, Árni Jóhannsson, Theódóra Þórarinsdóttir, Kristján Jóhannsson, Jóhanna Jenný Bess Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, tengdadóttir, systir, mágkona og frænka, DRÖFN LÁRUSDÓTTIR, Dalhúsum 73, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítala, Kópavogi, þriðjudaginn 6. nóvember, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið eða önnur líknarfélög. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ásmundur Einarsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS ÞÓRÐARSON framreiðslumaður, Öldugranda 1, Reykjavík, andaðist mánudaginn 12. nóvember. Útförin auglýst síðar. Sanný Jónasdóttir, Darrel F. Schneider, Guðrún Jónasdóttir, Ingibjörg Jónasdóttir, Kristján S. Birgisson, Vignir Jón Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Lækjasmára 4, Kópavogi, sem lést laugardaginn 8. september. Sigríður Rafnsdóttir, Guðmundur Þór Björnsson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigurður Haukur Gíslason, barnabörn og langömmubörn, María V. Guðmundsdóttir, Viðar S. Guðjónsson. Hrefna Daníels- dóttir ✝ Hrefna Daníelsdóttir fædd-ist á Akranesi 16. apríl 1933, hún lést á Sjúkrahúsi Akraness hinn 29. október 2012. Útförin fór fram frá Akra- neskirkju 5. nóv. 2012. Til þín elsku mamma. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Saknaðarkveðja, þín dóttir, Sigrún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.