Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 43

Morgunblaðið - 16.11.2012, Side 43
nefndum sveitarfélagsins, sat í kjörnefnd sjálfstæðismanna í Norð- vesturkjördæmi 2003 og hefur ver- ið formaður kjörnefndar frá 2007. Ásbjörn hefur verið alþing- ismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðvesturkjördæmi frá 2009, situr í fjárlaganefnd Alþingis frá 2009, sat í samgöngunefnd 2009-2011 og sat í þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis 2009-2010. Ásbjörn sér ekki sólina fyrir barnabörnunum. Þá er hann áhuga- maður um laxveiði: „Ég hef lengi haft áhuga á laxveiði enda hverfur ekki veiðimannseðlið við það að koma í land. Ég hef farið töluvert í lax víða um land en uppáhaldsáin mín er Miðfjarðará.“ – Lestu mikið Ásbjörn? „Nei. Ég er enginn lestrarhestur. Ætli maður lesi ekki mest gögnin frá fjárlaganefnd. Þar er alla vega nægilegt lestrarefni þótt það sé nú kannski ekki mjög spennandi. Annars hef ég mest gaman af ævisögum og frásögnum ýmiss konar. Ég var t.d. að lesa bókina um Gísla á Uppsölum, en hann var víst eitthvað skyldur mér. Svo hef ég marglesið allan bókaflokkinn hans Steinars J. Lúðvíkssonar, Þrautgóðir á raunastund. Það eru frábær rit. Ég er hins vegar ónýtur við skáldsögur og smásögur og get ekki einu sinni sagt að ég lesi glæpareyfara. Fjölskylda Eiginkona Ásbjörns er Margrét G. Scheving, f. 14.11. 1962, útgerð- armaður. Foreldrar hennar eru Gylfi Guðmundur Scheving, f. 6.1. 1940, verkstjóri og bifreiðastjóri í Ólafsvík, og Jóhanna Guðríður Hjelm, f. 22.4. 1944, húsfreyja. Synir Ásbjörns og Margrétar eru Friðbjörn Ásbjörnsson, f. 24.7. 1984, framkvæmdastjóri Fiskmark- aðar Breiðafjarðar, en kona hans er Soffía Elín Egilsdóttir húsfreyja og eiga þau tvö börn, Ásbjörn og Særúnu; Gylfi, f. 26.9. 1988, sjó- maður á Rifi; Óttar, f. 24.5. 1996, nemi. Systkini Ásbjörns eru Tryggvi Óttarsson, f. 17.5. 1964, fiskútflytj- andi, búsettur í Svíþjóð en kona hans er Kristina Anderson fisk- útflytjandi; Júníana Óttarsdóttir, f. 8.2. 1973, verslunarmaður á Hellis- sandi en maður hennar er Jóhann Pétursson bókari. Foreldrar Ásbjörns eru Óttar Sveinbjörnsson, f. 14.11. 1942, kaupmaður á Hellissandi, og k.h., Guðlaug Íris Tryggvadóttir, f. 14.8. 1941, verslunarmaður. Úr frændgarði Ásbjörns Óttarssonar Ásbjörn Óttarsson Eðvarð Einarsson fiskmatsm. á Hellissandi, frá Fagurey Stefanía Kristjánsdóttir húsfr. frá Fagurey Tryggvi Eðvarðsson sjóm. og bílstj. á Hellissandi Gunnleif Þ. Bárðardóttir húsfr. á Hellissandi Guðlaug Íris Tryggvadóttir verslunarm. á Hellissandi Bárður Jónasson fiskmatsm. á Hellissandi Guðlaug Pétursdóttir húsfr. frá Ingjaldshóli Benedikt Benediktsson kaupm. og útgerðarm. á Hellis- sandi og systkinabarn við Gísla Gíslason á Uppsölum Geirþrúður Kristjánsdóttir húsfr. á Hellissandi Sveinbjörn Benediktsson stöðvarstj. Pósts og síma á Hellissandi Ástrós Friðbjarnardóttir húsfr. á Hellissandi Óttar Sveinbjörnsson kaupm. á Hellissandi Friðbjörn Ásbjörnsson skipstj. á Hellissandi, bróðusonur Kristjáns, langalangafa Ásmundar Einars Daðasonar alþm. Júnínana Jóhannesdóttir húsfr. og verkakona á Hellissandi Ingólfur Eðvarðsson sjóm. á Hellu Eðvarð Ingólfsson sóknarpr. á Akranesi Unnur Benediktsdóttir húsfr. á Selfossi Lovísa Eðvarðsdóttir húsfr. í Hafnarf. Sigríður Oliversdóttir húsfr. í Hafnarf. Finnur Árnason í Hagkaupum Morgunblaðið/Árni Sæberg Brugðið á leik Afmælisbarnið og Kristján Þór Júlíusson alþm. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 Árin segja sitt1979-2012 BISTRO Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is Jón Sveinsson (Nonni) fæddistað Möðruvöllum í Hörgárdal16.11. 1857. Hann var sonur Sveins Þórarinssonar, amtskrifara á Möðruvöllum i Hörgárdal, og k.h., Sigríðar Jónsdóttur húsfreyju. For- eldrar hans eignuðust átta börn en þrjú þeirra létust haustið 1860 úr barnaveiki. Árið 1865 flutti fjölskyldan til Akureyrar og settist að í svokölluðu Pálshúsi. Faðir Nonna lést 1869 úr sullaveiki. Þá var búið tekið til gjald- þrotaskipta og varð Sigríður að láta öll börnin frá sér nema Ármann. Hún flutti síðar til Kanada og giftist þar aftur. Nonna var hins vegar boðin náms- dvöl í Frakklandi og fór utan 1870. Hann dvaldi fyrst í Kaupmannahöfn en lauk síðan stúdentsprófi frá Coll- ége de la Providence, Jesúítaskóla í Amiens í Frakklandi, 1878. Þá lærði hann heimspeki og nam guðfræði í Ditton-Hall í Lancashire á Englandi. Nonni vígðist prestur í Jesúíta- reglunni 1891 og var kennari við St. Andreas Collegium í Ordrup í Dan- mörku til 1912. Þá gerðist hann rit- höfundur og flutti fyrirlestra víða um heim, mest um Ísland, sögu þess og bókmenntir. Barnabækur Nonna um hann og Manna, bróður hans, og um bernskuár þeirra við Eyjafjörðinn urðu mjög vinsælar í Þýskalandi og víðar í Evrópu og voru þýddar á þriðja tug tungumála. Nonni kom til Íslands 1894 og ári síðar átti hann samstarf við kaþólska biskupinn í Danmörku, Johannes von Euch, um fjársöfnun fyrir holds- veikraspítala á Íslandi. Danskir Oddfellow-bræður stofnuðu slíkan spítala í Laugarnesi 1898 en söfn- unarfé Nonna rann til stofnunar Landakotsspítala. Hann kom aftur til Íslands á Alþingishátíðina 1930 í boði ríkisstjórnarinnar. Nonnasafn á Akureyri er bernskuheimili Nonna og á þjóð- deild Þjóðarbókhlöðunnar í Reykja- vík er sérsafn Nonna þar sem sjá má bréf hans, skjöl og rit á hinum ýmsu tungumálum. Nonni lést 1944. Merkir Íslendingar Jón Sveinsson 90 ára Guðbjörg Bergmundsdóttir Gunnar Bjarnason Kjartanía Vilhjálmsdóttir Kristbjörg Magnúsdóttir Stefán Anton Jónsson 85 ára Guðlaug Bergþórsdóttir Jóna Bergjónsdóttir Jón Bergsson Katrín Hjartardóttir Steinunn Kristjánsdóttir 80 ára Eyjólfur Högnason Magnea Guðrún Jónsdóttir Magnús Sigurjónsson Sigfús Auðunsson 75 ára Gylfi Guðnason Margrét Sæmundsdóttir 70 ára Aðalheiður Hafsteinsdóttir Egill Thorlacius Helga Lára Hólm Margrét Þ. Thorlacius Tómas Vilhelm Kristinsson 60 ára Ásgeir H. Þorvarðarson Erna Sigurbjörg Óskarsdóttir Jensína Valdimarsdóttir Jens Tollefsen Kristín Axelsdóttir Kristján Hermannsson Ólafur Ágúst Gíslason Þóra G. Thorarensen Þórhallur H. Þórhallsson Þuríður H. Kristjánsdóttir 50 ára Aðalheiður Ásgeirsdóttir Bryndís Anna Rail Egill Jóhann Ólafsson Gerður Kristjánsdóttir Guðlaug Ásgeirsdóttir Ingibjörg Hrefna Guðmundsdóttir Knokkunya Teerachai Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Stefán Eyjólfsson Stefán Logi Haraldsson Tindur Gabríel Hilmarsson 40 ára Aðalbjörg Ívarsdóttir Alfreð Gunnarsson Baarregaard Ásta Einarsdóttir Bergþóra Ósk Guðmundsdóttir Björn Þór Björnsson Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir Gestur Þór Kristjánsson Gunnar Gunnarsson Jóhanna Selma Sigurðardóttir Karen Þóra Sigurkarlsdóttir Kristjana Hrund Bárðardóttir Nökkvi Sveinsson Steinar Bragi Sigurðsson Vincent Gísli Pálsson Þorgerður Þorvaldsdóttir Þorleifur Kristófersson 30 ára Anna Truchel Atli Geir Þorsteinsson Ásdís Sigurðardóttir Chomyong Suemklang Davíð Jón Sigurðsson María Salóme Bjarkan Ólafur Waage Sara Lind Gísladóttir Veigar Arthúr Sigurðsson Ægir Guðmundsson Til hamingju með daginn 30 ára Vilborg lauk prófi í læknisfræði frá HÍ 2012 og er aðstoðarlæknir við Sjúkrahúsið á Akureyri. Maki: Hjörtur Snær Þor- steinsson, f. 1979, vél- smiður. Börn: Helgi Hjörvar, f. 2003, og Guðrún Hanna, f. 2009. Foreldrar: Agnes Þór Björnsdóttir, f. 1962, starfar hjá Iðju, og Jón Helgi Ingimarsson, f. 1961, atvinnurekandi. Vilborg Jónsdóttir 40 ára Páll ólst upp á Bessastöðum í Hrútafirði og starfar nú hjá ALCOA. Maki: Helga Guðrún Hin- riksdóttir, f. 1972. Börn: Eyþór Logi Ágústs- son, f. 1996 (stjúps.); Marek Ingvi Helguson, f. 2000, (stjúps.) og Hinrik Elvar Pálsson, f. 2003. Foreldrar: Ólöf Pálsdóttir, húsfreyja og tónlistar- kennari og fyrrv. b., og Björn Einarsson, nú lát- inn, b. á Bessastöðum. Páll Sigurður Björnsson 30 ára Róbert ólst upp í Garðabæ, lauk stúdents- prófi frá VÍ og er móta- stjóri HSÍ. Maki: María Yngvins- dóttir, f. 1982, grunn- skólakennari. Sonur: Jóhann Dagur, f. 2008. Foreldrar: Gísli Björns- son, f. 1948, atvinnurek- andi, og Jóhanna Ósk Halldórsdóttir, f. 1956, rekstarstjóri mannvirkja hjá knattspyrnuf. Fram. Róbert Geir Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.