Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 46

Morgunblaðið - 16.11.2012, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2012 REDKEN ONLY SALON SALONVEHHÁRSNYRTING: RÁÐGJÖF, KLIPPING OG MÓTUN, HÁRLITUN, HÁRÞVOTTUR MEÐ NUDDI EÐA DJÚPNÆRINGU VÖRUR Í VERSLUN: ALLT Í HÁRIÐ, HÁRLENGINGAR OG -KOLLUR, GREIÐUR, BURSTAR, BLÁSARAR HÚSI VERSLUNARINNAR, KRINGLUNNI s. 568 7305 • salonveh.is Frír djúpnæringarmaski fylgir hverjum þvotti Gildir til 1. desember ÞÚ FÆRÐ PERSÓNULEGA OG FAGLEGA RÁÐGJÖF HJÁ OKKUR Dekraðu við þig Glæsilegt tilboð Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Grunnhugmyndin sem ég lagði upp með er að elta þær vísbendingar sem höfundurinn skrifar inn í verk- ið um það hvernig hann sér leiklist fyrir sér. Ionesco vildi ögra reglum leikhússins og lét hafa eftir sér að hann sæi persónur sínar sem strengjabrúður. Hann tók jafnframt fram að sumar strengjabrúður vilji ekki láta stjórna sér og þar kemur að lykilþætti verksins. Við erum að skoða hvenær við setjum upp grímu til að reyna að geðjast öðrum og hvað við gerum til að berjast gegn þessari tilhneigingu okkar,“ segir Árni Kristjánsson sem leikstýrir leikritinu Nashyrningunum eftir Eugéne Ionesco hjá Stúdentaleik- húsinu sem frumsýnt verður í Norð- urpólnum í kvöld kl. 20. „Verkið, sem er eitt lykilverka absúrdleikhússins, fjallar um lítinn bæ þar sem tilteknir bæjarbúar tapa mennsku sinni og breytast í nas- hyrninga, einhyrnda eða tvíhyrnda. Rökhugsun, tungumál og náunga- kærleikur hverfur úr bænum en við tekur traðkandi taktur nashyrning- anna,“ segir Árni þegar hann er inntur eftir innihaldi leikritsins. „Verkið er náttúrlega skrifað inn í landslag þar sem ótrúlega stórir at- burðir höfðu átt sér stað í Evrópu,“ segir Árni og tekur fram að því sé ekki skrýtið að leikritið hafi á sínum tíma verið túlkað sem uppgjör Ion- escos við nasismann. „En þetta er verk sem sífellt er hægt að túlka upp á nýtt og finna nýja nálgun að því. Grunnþráðurinn í því snýst í raun um baráttu mannsins fyrir að varðveita mennsku sína,“ segir Árni og leggur áherslu á að Ionesco nálg- ist viðfangsefni sitt með húmorinn að vopni. Segir sjón sögu ríkari Nashyrningana skrifaði Ionesco árið 1959, en það var fyrst sett upp hér á landi í Þjóðleikhúsinu 1961 og síðast sýnt fyrir 23 árum af Leik- félagi Menntaskólans við Hamra- hlíð. Spurður hvort hann kunni skýringu á því hvers vegna verkið hafi ekki ratað oftar á svið hérlendis segir Árni skiljanlegt að atvinnu- leikhúsin ráði ekki við það sökum fjölda hlutverka. „Þetta verk er líka dásamlegur höfuðverkur, enda flakkar það milli margra sviðs- mynda. Auk þess þarf auðvitað að finna konsept til að leysa hvernig persónur verksins breytast í nas- hyrninga,“ segir Árni og upplýsir að allir sautján leikarar sviðs- uppfærslu sinnar beri hvítar hálf- grímur. Að öðru leyti vill hann lítið gefa upp um nálgun sína og segir sjón sögu ríkari. Meðal leikara eru Hilda Hrönn Guðmundsdóttir og Alexander Er- lendsson.Tónlist er í höndum Daða Freys Péturssonar, en hann er með- limur í hljómsveitinni RetRoBot sem sigraði í Músíktilraununum í ár. Þess má að lokum geta að sýning- arfjöldi er takmarkaður, en alls verða sýndar sex sýningar á tíma- bilinu frá 16. til 28. nóvember. Umbreyting Alls taka sautján leikarar þátt í uppfærslunni og bera þeir allir hálfgrímu, en það er túlkunarleið leikstjóra og leikhópsins að verkinu. Snýst um baráttu fyrir mennskuna  Stúdentaleikhúsið frumsýnir Nashyrningana eftir Eugéne Ionesco Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Að margra áliti er Wadada Leo Smith einn mikilvægasti tónlist- armaður samtímans,“ segir Örn Þórisson um jazztrompetleikarann og tónskáldið sem heldur tónleika í Kaldalóni í Hörpu á sunnudaginn, 18. nóvember, kl. 20 með þeim Skúla Sverrissyni bassaleikara og trommuleikurunum Matthíasi M D Hemstock og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. „Hann fer nýjar leiðir í tónlistar- sköpun sem einkennist af óheftu ímyndunarafli og djúpum sköp- unarkrafti. Trompetleikur hans rek- ur ættir sínar til Louis Armstrongs, Dizzy Gillespie og að sjálfsögðu Mi- les Davis, en líklega hefur Wadada í sínum fyrstu verkum fyrir 40 árum, ásamt Don Cherry og Lester Bowie, rutt brautina og haft mest áhrif á framúrstefnutrompetleik síðustu áratuga,“ bætir Örn við. Leitandi Smith er einn fremsti djass- trompetleikari samtímans og hefur hlotið mikið lof fyrir tónsmíðar sínar sem og viðurkenningar. Hann er tal- inn til brautryðjenda í bandarískum nútímadjassi og þekktur af leit sinni að ólíkum túlkunarleiðum í djass- inum. Tónlistarferill Smiths spann- ar rúma hálfa öld en Smith varð sjö- tugur í fyrra. Hann hefur komið til Íslands fjórum sinnum áður, fyrst fyrir 30 árum á vegum Jazzvakn- ingar og hafa margir íslenskir tón- listarmenn unnið með honum, m.a. Þorsteinn Magnússon, Hilmar Jens- son, Pétur Grétarsson og Skúli Sverrisson en Skúli hefur leikið á rafbassa í hljómsveit Smiths, Org- anic, til nokkurra ára. Þá hefur Smith samið verk fyrir hina ýmsu flytjendur og verk hans verið flutt af þekktum hljómsveitum, m.a. Kro- nos-kvartettinum. Smith hefur verið ötull við hljóm- plötuútgáfu, gefið út á fimmta tug platna og í vor sendi hann frá sér fjögurra platna kassa, Ten Freedom Summers, með verkum sem tengj- ast frelsisbaráttu þeldökkra í Bandaríkjunum. Þar blandar hann saman djasstónlist og nútímatónlist með sínum einstaka hætti og hefur verkið hlotið mikið lof gagnrýnenda. Smith gegnir stöðu prófessors við California Institute of the Arts, Cal- Arts, stýrir þar meistaranámi í afr- ísk-amerískri spunatónlist. Þar þekkir hann vel til, hefur rannsakað tónlistarhefðir í Evrópu, Afríku, As- íu og Ameríku og hefur þróað sér- stakt nótnakerfi sem hann nefnir Ankhrasmation. Tilraunakennt og kraftmikið En við hverju mega tónleikagest- ir búast á sunnudaginn? „Í Hörpu má búast við að Wadada og félagar leiki tónlist sem hann hefur samið fyrir Organic-sveitina. Þetta er tilraunakennd tónlist með kraftmiklu bíti og skapandi sólóum. Wadada hefur gefið út marga dú- etta með trommuleikurum, m.a. Jack DeJohnette, Ed Blackwell, Gunter Sommer og Louis Moholo- Moholo og því má gera ráð fyrir að trommur og trompet verði áberandi. Þeir Skúli og Wadada hafa líka lengi leitað að tækifæri til að vinna saman dúetta og má búast við þeir leiki tveir saman nýtt efni,“ segir Örn. Smith mun á morgun halda mast- erclass fyrir nemendur Listaháskóla Íslands og Tónlistarskóla FÍH í húsi FÍH við Rauðgerði, veita leiðsögn og ræða um tónlist sína, tónsmíðar, spuna og hlutverk og stöðu tónlist- armannsins í nútímanum. Heimsókn Smiths er samtarfsverkefni Jazzhá- tíðar Reykjavíkur og sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík. Miða- sala á tónleikana fer fram í Hörpu og á vefnum harpa.is. Óheft ímyndunarafl og djúpur sköpunarkraftur  Wadada Leo Smith heldur tónleika í Kaldalóni í Hörpu Ljósmynd/Scott Groller Þekktur Wadada Leo Smith með trompetið. Hann leikur í Hörpu á sunnu- daginn með Matthíasi M.D. Hemstock og Magnúsi Tryggvasyni Eliassen. Fjallað er með af- ar jákvæðum hætti um íslenska kvikmyndagerð í grein á vefnum Indiewire og at- hygli vakin á þeim íslensku kvik- myndum sem væntanlegar eru á næstu árum. Meðal þeirra eru þrjár myndir sem Friðrik Þór Friðriksson er með á prjónunum, heimildarmyndin Steypireyðurin sem fjallar um stærstu skepnu jarðar; Sjóndeildar- hringur sem er heimildarmynd um Georg Guðna Hauksson listmálara sem lést í fyrra og kvikmyndin Magný. Segir í greininni að ellefu kvikmyndir og heimildarmyndir verði að öllum líkindum frum- sýndar á næstu tveimur til þremur árum og að enginn skortur sé á hinu fámenna Íslandi á alþjóðlega viðurkenndum listamönnum. Friðrik Þór stórtækur Friðrik Þór Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.