Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 2
Óljós framtíð viðræðna Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður VG og formaður utanríkismála- nefndar, reiknar með að hægagang- ur verði í viðræðum við Evrópusam- bandið um eða upp úr áramótum. Hann sagði að þá yrðu stjórnmála- menn væntanlega uppteknir við und- irbúning kosninga, frágang fram- boðslista og landsfundi stjórnmála- flokka. „Það er ekki byrjað að ræða veiga- mikla kafla í þessum viðræðum,“ sagði Árni Þór. Hann nefndi að land- búnaðarkaflinn og sjávarútvegskafl- inn væru enn á undirbúningsstigi og eins væri eftir að ræða t.d. kafla sem fjallar um gjaldeyrishöftin. Hann kvaðst hafa, líkt og sumir ráðherrar VG, viðrað það í haust að hægja á viðræðunum eða leggja þær til hliðar fram yfir kosningar. Hann sagði málið ekki hafa verið rætt við ESB, enda yrðum við að taka ákvörðun um þetta. „Við eigum að leggja þetta strax til hliðar,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks í utanríkismálanefnd, um að- ildarviðræðurnar. „Við eigum að for- gangsraða tíma okkar og fjármunum í annað en þessar viðræður þar sem við erum með sundraða þjóð, sundr- að þing og sundraða ríkisstjórn í þessu ferli.“ Hún sagði ESB einnig hafa nóg annað á sinni könnu þessa dagana. „Við erum að nálgast kosn- ingar og það á að gefa þjóðinni tæki- færi til að tjá sig um þetta í kosning- unum.“ gudni@mbl.is  Þingmaður VG telur að það hægi brátt á ESB-viðræðum  Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill hætta viðræðunum strax Árni Þór Sigurðsson Ragnheiður Elín Árnadóttir 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ein lengsta atkvæðagreiðslan  Atkvæðagreiðsla eftir 2. umræðu um fjárlög tók fjórar stundir og 24 mínútur  Það er langlengsta samfellda atkvæðagreiðslan sem menn þekkja til á Alþingi Guðni Einarsson gudni@mbl.is Atkvæðagreiðsla sem fram fór á Alþingi í gær eft- ir 2. umræðu um frumvarp til fjárlaga 2013 var lengsta samfellda atkvæðagreiðslan sem fram hef- ur farið í seinni tíð á Alþingi. Hún stóð linnulaust í fjórar klukkustundir og 24 mínútur. Ein atkvæða- greiðsla hefur staðið lengur og fór hún fram 21. desember 1985 eftir 3. umræðu um fjárlög ársins 1986. Sú stóð í fjórar stundir og 26 mínútur. Þá var gert matarhlé en ekkert hlé var gert á atkvæða- greiðslunni nú. „Þetta er langlengsta atkvæðagreiðslan sem er samfelld,“ sagði Helgi Bernódusson, skrifstofu- stjóri Alþingis, þegar hann var spurður um hina óvenjulöngu atkvæðagreiðslu sem hófst laust eftir klukkan 10.30 í gærmorgun og lauk ekki fyrr en rétt fyrir klukkan 15.00. Starfsmenn Alþingis könnuðu lengd atkvæðagreiðslnanna tveggja í bókum þingsins og sáu að einungis munaði tveim mínútum á lengd þeirra. Helgi sagði að atkvæða- greiðslan í gær væri vafalaust sú lengsta sem farið hefði fram eftir 2. umræðu um fjárlög. Eins hefðu umræðurnar sem fram fóru í gær við atkvæða- greiðsluna verið þær lengstu sem menn þekktu til við atkvæðagreiðslu. Nokkur atriðið urðu til þess að draga atkvæða- greiðsluna í gær á langinn. Margar atkvæða- greiðslur voru um tekjugreinina, sem er nokkuð óvenjulegt, að sögn Helga. Venjulega hefur tekju- greinin verið afgreidd í einni atkvæðagreiðslu en nú var henni skipt upp. Helgi taldi að það hefði lengt atkvæðagreiðsluna um rúma klukkustund. Í öðru lagi hafa umræður um sjálfa atkvæða- greiðsluna, sem fara fram áður en atkvæðagreiðsl- an hefst, sífellt verið að lengjast og fór langur tími í þær. Helgi sagði þessi tvö atriði, sem fór fyrst að brydda á á síðustu árum, skýra lengd atkvæða- greiðslunnar. Þá vildu margir gera grein fyrir at- kvæði sínu, en það er ekkert nýtt. Lokaatkvæðagreiðslan um fjárlög ársins 1986, sem fór fram laugardaginn 21. desember 1985, þótti söguleg. Þar voru gerð tólf nafnaköll, sem tóku nokkurn tíma. Auk þess lögðu þingmenn Al- þýðuflokksins þá fram 74 breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið. „Þetta er lang- lengsta atkvæða- greiðslan sem er samfelld,“ Helgi Bernódusson. Landbúnaðarkafli aðildarviðræðna Íslands við ESB var ræddur á fundi utanríkismálanefndar í gær. Þar mættu fulltrúar Bændasamtakanna og Neytendasamtakanna. Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, sagði að fulltrúar Bændasamtakanna hefðu skýrt hvers vegna þeir gengu af samn- ingafundi um daginn. Það var vegna óánægju með undirbúning landbún- aðarkaflans, einkum það er lýtur að tollverndinni. Neytendasamtökin gerðu grein fyrir sínum sjón- armiðum en þau eru andstæð sjón- armiði bænda um tollvernd. Árni Þór rifjaði upp nefndarálit utanrík- ismálanefndar frá 2009 þar sem lögð er áhersla á að tollverndin sé ríkur þáttur í stuðningi við íslenskan land- búnað. Verði hún ekki til staðar verði að tryggja sambærilegan stuðning sem geri landbúnaðinn jafnsettan sem fyrr. gudni@mbl.is Á öndverðum meiði um tollverndina Góður gangur hefur verið í framkvæmdum við fiskimjölsverksmiðju Eskju á Eskifirði und- anfarna mánuði. 50 manns hafa að meðaltali unnið við endurbætur og uppbyggingu í verk- smiðjunni. Búið er að reisa 42 metra háan skorstein sem kemur útblæstri inn fyrir byggðina í Eskifirði. Reist hefur verið nýtt hreinsivirki fyrir útblástur frá verksmiðjunni þar sem lykteyðing fer fram. Verksmiðjuhúsið sjálft hefur verið stækkað og hækkað, rafmagnshitarar eru komnir á sinn stað og þessa dagana er verið að koma spennum fyrir og klæða verksmiðjuna. Rarik leggur nýjan streng frá spennustöð að verksmiðju og er það verk í gangi. Búið er að steypa upp fyrstu hæð á nýju starfsmannahúsi þar sem góð aðstaða verð- ur fyrir starfsfólk. Byggingarstjórn á svæðinu er í höndum Mannvits. aij@mbl.is Betra loft með 42 metra háum strompi Ljósmynd/Atli Börkur Egilsson Miklar framkvæmdir við fiskimjölsverksmiðju Eskju á Eskifirði Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál. Lokað í dag ! Föstudaginn 7. desember er lokað hjá ríkisskattstjóra Borgarráðs- fulltrúar Sjálf- stæðisflokks lögðu í gær fram tillögu um að skrifstofu borg- arstjórnar og borgarlögmanni verði falið að greina áhrif frumvarps til stjórnskip- unarlaga á starfsemi og hagsmuni Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar. Kjartan Magnússon borg- arfulltrúi segir að skýra þurfi betur ýmis ákvæði, s.s. þau er snúa að mannréttindum og eignarhaldi á auðlindum. „Það er ýmislegt í þessu frumvarpi sem ég óttast að verði til þess að kostnaður sveitarfélaganna í landinu og ekki síst borgarinnar aukist verulega,“ segir Kjartan. Ákvæði um að ekki megi mismuna vegna tungumáls gæti t.d. valdið því að borgin gæti ekki gert kröfur um íslenskukunnáttu við ráðningar og þá sé það mat lögfræðinga að óvissa gæti skapast um eignarhald á auð- lindum Orkuveitunnar. Afgreiðslu tillögunnar var frestað en frestur til að skila inn umsögnum um frum- varpið rennur út 13. desember nk. Gæti aukið kostnað hjá borginni Kjartan Magnússon  Borgarlögmaður athugi frumvarpið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.