Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Katrín Middleton hertogaynja, eiginkona Vilhjálms Bretaprins, sagði að sér liði miklu betur eftir að hún var útskrifuð af sjúkrahúsi í Lundúnum í gær. Katrín hélt á gulum rósavendi þegar hún fór frá sjúkrahúsinu með eiginmanni sínum. Hún á að hvíla sig næstu vikur í Kensington-höll þar sem hjónin eru með íbúð, að sögn talsmanna prinsins. Katrín var flutt á sjúkrahús, sem kennt er við Játvarð VII., á mánu- daginn var vegna mikilla þung- unaruppkasta og morgunógleði. Um það bil ein af hverjum 200 barnshafandi konum fær slík þung- unaruppköst á meðgöngunni, að sögn fréttaveitunnar AFP. Konur sem fá þungunaruppköst eru þrisv- ar sinnum líklegri til að ganga með tvíbura en aðrar barnshafandi kon- ur, að sögn The Telegraph. Íhugar málshöfðun Elísabet Bretadrottning og af- komendur hennar nota oftast Sjúkrahús Játvarðar VII. þegar þau þurfa á læknisþjónustu að halda. Sjúkrahúsið þurfti að biðja fjöl- skylduna afsökunar í fyrradag eftir að tveir ástralskir útvarpsmenn hringdu í sjúkrahúsið, þóttust vera Elísabet drottning og Karl krón- prins og óskuðu eftir upplýsingum um líðan Katrínar. Útvarpsmenn- irnir fengu upplýsingarnar þótt til- raun þeirra til að herma eftir ensk- um hreim hafi þótt hjákátleg. Útvarpsmennirnir báðust afsök- unar en útvarpsstöðin stærði sig af athæfinu, lýsti því sem „mesta kon- unglega hrekk sögunnar“. Stjórnendur sjúkrahússins sögð- ust vera að íhuga að höfða mál gegn útvarpsmönnunum. bogi@mbl.is Katrínu líður miklu betur  Var útskrifuð af sjúkrahúsi í gær AFP Útskrifuð Katrín og Vilhjálmur ganga út úr sjúkrahúsinu. Nýja Bataan. AFP. | Að minnsta kosti 477 manns létu lífið í mannskæðasta fellibyl sem gengið hefur yfir Fil- ippseyjar á árinu. Um það bil 380 til viðbótar er enn saknað og um 250.000 manns misstu heimili sín. Heilu bæirnir eyðilögðust í felli- bylnum og hellirigningu, flóðum og skriðum sem fylgdu honum á eyj- unni Mindanao á þriðjudag. Erinea Cantilla gekk berfætt í tvo daga með fjölskyldu sinni í grennd við bæinn Nýja Bataan í leit að mat og húsaskjóli eftir að hús þeirra og búgarður eyðilögðust í flóðunum. Misstu aleiguna „Allt sem við áttum er horfið. Þeir einu sem eru eftir eru dánir,“ sagði Cantilla þegar hún kom til Nýja Bataan ásamt eiginmanni sínum, þremur börnum og barnabarni. Um 250.000 manns, sem misstu aleiguna, dvelja í skólum, íþrótta- húsum og fleiri opinberum bygging- um. Forseti landsins sendi skip með hjálpargögn til 150.000 manna í bæj- um sem einangruðust þegar skriður féllu á vegi og brýr eyðilögðust. Embættismenn sögðu að margir þeirra sem fórust hafi verið fátækir farandverkamenn sem hafi starfað á stöðum þar sem skriður eru algeng- ar, meðal annars í gullnámum og á bananabúgörðum. Yfirmaður björgunarsveita hers- ins sagði að 36 manns hefði verið bjargað á svæðum sem urðu fyrir aurskriðum. Um 250.000 manns misstu heimili sín í fellibylnum AFP Björgun Mæðginum bjargað á hamfarasvæði nálægt bænum Nýja Bataan.  Óttast að yfir 800 hafi farist í hamförunum á Filippseyjum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.