Morgunblaðið - 07.12.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
SKÁLHOLTSÚTGÁFAN
www.skalholtsutgafan.is · Sími: 528 4200
Hvað viltu, veröld? og Leit og svör
er heiti pistla eftir Sigurbjörn Einarsson
biskup, sem birtust í Morgunblaðinu
vikulega á þriggja ára tímabili, árin
2007-2009. Pistlarnir vöktu mikla
athygli. Hér birtast þeir á bók ásamt
fleira efni, þar á meðal hugleiðingum
hans um ellina. Einnig má lesa hér
síðustu prédikun hans, sem hann flutti
á Reykholtshátíð 2007.
Kristnar íhuganir á hljóðbók innihalda
fjórtán íhuganir með lestri Sigurbjörns
biskups frá 1996. Ennfremur er komin
út á hljóðbók lestur Sigurbjörns á bók
sinni, Af hverju, afi? Þar les hann fyrir
börn sem hlakka til jólanna.
Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31,
í verslunum Eymundsson, Hagkaup og víða um land.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það er ekkert sem bendir til þess
fyrirfram að nýr Landspítali sem er á
teikniborðinu fari ekki fram úr kostn-
aðaráætlun,“ segir Þórður Víkingur
Friðgeirsson, lektor við tækni- og
verkfræðideild Háskólans í Reykja-
vík.
Hann hefur unnið að rann-
sóknum á opinberum framkvæmdum
um langa hríð, hvernig þær eru und-
irbúnar, áætlanagerð o.fl. Hann er í
hópi fræðimanna sem hafa gagnrýnt
vinnubrögðin við nýja Landspítalann
og benda á að sitthvað megi betur
fara.
50 ára gömul vinnubrögð
„Það besta við vönduð vinnu-
brögð er að allir græða og enginn
tapar til lengri tíma litið. Þegar gerð
er kostnaðaráætlun vegna stórra
verkefna verðum við að búa til sviðs-
myndir þar sem reiknað er út eins ít-
arlega og kostur er hvað gæti komið
fyrir; allt frá verstu mögulegu nið-
urstöðu til hinnar bestu,“ segir Þórð-
ur Víkingur.
Hann segir að í áætlanir eigi að
taka með samfélagsnytjar, núvirði
fjárfestingarinnar, félagsleg áhrif,
fagurfræði, umhverfismál og ekki síst
áhættu.
Mikilvægt sé að valkostinn sem
taka á ákvörðun um eigi að bera sam-
an við þann valkost að fara ekki út í
framkvæmdina sjálfa. „Þarna er það
ekki gert að því er best verður séð.
Kostnaðaráætlunin sem ég hef séð
sver sig í ætt við áætlunargerð sem
ég hélt satt best að segja að heyrði
sögunni til. Það er reiknuð út ein tala
fyrir margra tuga milljarða verkefni
og meira en hundrað þúsund fer-
metra byggingu á erfiðum bygging-
arstað í hjarta Reykjavíkur.“
Hann spyr hvernig menn geti
það og ennfremur setur hann spurn-
ingarmerki við 15% óvissukostnað
sem bætt er við og veltir fyrir sér
hvaðan þessi 15% komi. „Eru þau
fundin með vönduðum greiningum
eða er þetta ágiskun? Þetta líkist
óneitanlega vinnubrögðum sem tíðk-
uðust fyrir 50 árum,“ segir Þórður.
Hann bendir á að margoft hefur
verið sýnt fram á að besta leiðin til að
gera áætlun sé sú að hugsa fyrst og
fremst um það sem getur farið úr-
skeiðis, frekar en að ímynda sér að
allt fari á besta hugsanlega veg. Þórð-
ur Víkingur fullyrðir að ef gengið er
út frá að allt fari á besta veg muni
slíkt aldrei ganga upp.
Og bendir á „að ef það myndi
misfarast, sem við vonum að gerist
ekki, þá myndi þetta hafa gríðarleg
áhrif á þjóðarbúskapinn. Hefur virki-
lega enginn reiknað út hvaða áhrif
það hefur á þjóðarbúskapinn ef þetta
mannvirki reynist vera dæmigerð op-
inber framkvæmd?“ spyr Þórður
Víkingur og vísar til fyrrgreindra
rannsókna sem sýna fram á að níu af
hverjum tíu opinberum fram-
kvæmdum fara fram úr kostnaðar-
áætlun.
Uppsagnir og dýr Landspítali
„Svo er það annað; óskylt en
skylt þó. Ég var að lesa um uppsagnir
hjúkrunarfræðinga. Þetta hlýtur líka
alltaf að vera spurning um hvernig
við forgangsröðum sem hlýtur að
vera efst á blaði þegar stórar ákvarð-
anir eru teknar fyrir hönd almenn-
ings. Heilbrigðiskerfið hangir á blá-
þræði en samt er verið að tala um að
fara út í framkvæmdir þar sem fyrsti
áfangi kostar 45 milljarða og annar
áfangi líklega mun meira,“ segir
Þórður Víkingur.
Nýr Landspítali fram
úr kostnaðaráætlun?
Morgunblaðið/ÞÖK
Landspítali - háskólasjúkrahús Áætlað er að fyrsti áfangi í byggingunni komi til með að kosta 45 milljarða.
Fátt bendir til annars en að nýi Landspítalinn fari fram
úr kostnaðaráætlun Undirbúningurinn ekki talinn góður
Framúrkeyrsla
» Níu af hverjum tíu opin-
berum framkvæmdum síðustu
áratuga hafa ratað í vandræði,
sem að stórum hluta til má
rekja til undirbúningsins.
» Hefur virkilega enginn
reiknað út hvaða áhrif það hef-
ur á þjóðarbúskapinn ef þetta
mannvirki reynist vera dæmi-
gerð opinber framkvæmd?
„Ég hef skoðað stærri opinber verkefni
síðustu áratuga og þær athuganir
benda til að níu af hverjum tíu opinber-
um verkefnum rati í veruleg vandræði
sem að stórum hluta má rekja til þess
hvernig þau eru undirbúin. Það sem er
sorglegt við þetta allt saman, hvort sem
verkefnið heitir Vaðlaheiðargöng, Orku-
veitan, Harpan, eða eitthvað annað, er
að þetta er algjör óþarfi. Það eru til að-
ferðir og verklag sem er til þess fallið að koma í veg fyrir
mistök af þessu tagi. Aðrar þjóðir hafa gert sér grein
fyrir vandanum og brugðist við en ekki við að mínum
dómi þrátt fyrir fögur fyrirheit,“ segir Þórður Víkingur.
Hann segir að hluti vandamálsins sé að fólk taki meiri
áhættu þegar það ráðstafar fé annarra án þess að sæta
sjálft ábyrgð ef illa fer. Lausnin er meðal annars að inn-
leiða aðferðir til að takmarka þessa áhættu, að mati
Þórðar Víkings. „Mér hefur stundum dottið í hug að
banna ætti vonda áætlunargerð með lögum.“
Hann hefur meðal annars farið skriflega fram á að fá
upplýsingar frá verkefnisstjórninni um þær aðferðir sem
notaðar voru við ákvörðunartöku og áætlunargerð
vegna þessarar framkvæmdar en því hefur ekki verið
svarað.
„Það sem þó er hægt að ráða af fyrirliggjandi gögnum
gefur engin sérstök fyrirheit um að þetta verkefni skeri
sig úr öðrum stórum opinberum framkvæmdum, þrátt
fyrir að vera eitt stærsta og vandasamasta fjárfestinga-
verkefni Íslandssögunnar.“
Þórður Víkingur segir að leiðin fram á við sé að end-
urbæta verulega kröfur um ákvörðunartöku og áætl-
unargerð vegna opinberra verkefna. Hann tekur sem
dæmi að ekki sé að finna greinargóða rannsóknir á
áhættu vegna LSH. „Ég finn ekkert sem hönd á festir
um það, sem er með ólíkindum,“ segir Þórður Víkingur.
Vildi helst banna vonda áætlunargerð
„EITT STÆRSTA OG VANDASAMASTA FJÁRFESTINGAVERKEFNI ÍSLANDSSÖGUNNAR“
Þórður Víkingur
Friðgeirsson
Myndlistarkonan Sossa verður um helgina með ár-
legt jólaboð á vinnustofu sinni á Mánagötu 1 í Kefla-
vík. Að þessu sinni verður hún einnig með þrjá gesta-
listamenn. Halla Bogadóttir verður með sérhannaða
skartgripi sína en hún hefur ekki sýnt í mörg ár. Ásta
Guðmundsdóttir fatahönnuður sýnir nokkur verka
sinna en hún hefur að mestu starfað erlendis. Tónlist-
armaðurinn Svavar Knútur Kristinsson mun síðan
spila fyrir gesti kl. 16 á morgun, laugardag. Vinnu-
stofan verður opin bæði laugardag og sunnudag frá
kl. 15-20.
„Þetta er sami hópur og sýndi á vinnustofu minni í
Kaupmannahöfn á síðustu menningarnótt þar í
borg,“ segir Sossa en sjálf verður hún með til sýnis 32 myndir sem hafa
verið málaðar í ár. Undanfarin ár hefur hún aðallega sýnt í Danmörku en
jólaboðið í Keflavík er árlegt, sem fyrr segir, og allir velkomnir á meðan
húsrúm leyfir. Síðustu mánuði hafa handarmeiðsli komið í veg fyrir list-
málun en Sossa vonast til að komast á skrið sem fyrst í listsköpuninni.
Árlegt jólaboð Sossu um helgina
Sossa Björnsdóttir