Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Komdu við og kynntu
þér samskiptatæki
sem gætu opnað nýjan
heim fyrir þig og þína.
Ellisif Björnsdóttir
heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur
Sími 534 9600 · heyrn.is
Opið kl. 9.00-16.30
Verð nú
27.455 kr.
Einfalt
og ódýrt
samskiptatæki
með
15% jóla-
afslætti
til áramóta
Jólagjöfin fyrir þá sem vilja heyra betur
Milan Kolovrat, 33 ára gamall Kró-
ati, var í gær dæmdur í 14 ára fang-
elsi í Færeyjum fyrir að verða Dán-
jal Petur Hansen (Pidda), 42 ára
Færeyingi, að bana í nóvember á
síðasta ári.
Að sögn færeyskra fjölmiðla voru
dómari og kviðdómur sammála um
að Kolovrat ætti sér engar máls-
bætur. Honum verður einnig vísað
úr landi í Færeyjum eftir að hafa af-
plánað refsingu sína. Loks var hann
dæmdur til að greiða 800 þúsund
danskar krónur, jafnvirði 17,5 millj-
óna króna, í bætur til fyrrverandi
eiginkonu Hansens og dætra þeirra.
Kolovrat getur kært refsiákvörð-
unina til hæstaréttar Færeyja en
niðurstaða Føroya Rættar um að
sakfella hann stendur.
Kolovrat var á mánudag fundinn
sekur um morðið þótt hann neitaði
sök og lík Hansens hafi ekki fundist.
Á miðvikudag reifuðu bæði
ákæruvaldið og verjendur kröfur
sínar fyrir réttinum. Hefðbundin
refsing fyrir manndráp í Færeyjum
er 12 ára fangelsi en Linda Hessel-
berg, saksóknari, krafðist 16 ára
fangelsisrefsingar á þeirri forsendu
að morðið hefði verið framið að yfir-
lögðu ráði og að Kolovrat hefði ekki
vísað á líkið. Gefið var hins vegar til
kynna að refsikrafan yrði milduð ef
Kolovrat skýrði frá því hvar líkið
væri falið.
Í kjölfarið ávarpaði Kolovrat rétt-
inn, játaði morðið á sig og sagðist
hafa varpað líkinu í sjóinn við Mor-
skranes á Austurey, skammt frá
heimili Pidda. Að sögn færeyskra
miðla sagðist Hesselberg ekki trúa
þessari frásögn þar sem lögregla
hefði leitað vandlega á þeim stað þar
sem Kolovrat segist nú hafa losað
sig við líkið.
Milan Kolovrat.
14 ára fangelsi fyrir
morð í Færeyjum
Dánjal Petur Hansen.