Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 36

Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 ✝ Þuríður ÁrnaJóhannesdóttir fæddist í Hafn- arfirði 13. ágúst 1928. Hún lést á Landspítalanum, Fossvogi, 20. nóv- ember 2012. Foreldrar henn- ar voru Jóhannes Jóhannesson bak- ari í Hafnarfirði, f. 31.1. 1899, d. 29.12. 1974 og Jóna Guðlaug Jóhann- esdóttir, fædd í Eyrarbakka- sókn 8.12. 1901, d. 22.11. 1986. Syskini Þuríðar voru þrjú. Geir Guðmundsson, f. 20.2. 1928, d. 27.6. 1978. Eiginkona Sigurðar er Kristín Á. Kjartansdóttir, f. 1.2. 1950. Börn þeirra eru 1) Kjartan Sig- urðsson, f. 4.10. 1966, eiginkona hans er María Sverrisdóttir, f. 17.11. 1967. Börn þeirra eru Kristín Ágústa, f. 28.5. 1988, Unnur Bára f. 4.10. 1990, Sig- urður Þór, f. 26.1. 1995. 2) Sig- urður Björgvin Sigurðarson, f. 9.4. 1974, í sambúð með Kristínu Þ. Guðmundsdóttir, f. 24.7. 1973 og eiga þau sonin Guðmund Atla, f. 8.10. 2005. Sigurður Björgvin á tvær dætur frá fyrra sambandi, Söru Mjöll, f. 25.10. 1995 og Katrínu Írisi, f. 11.5. 1997. Þuríður vann ýmis störf, lengst af við verslunarstörf og fiskvinnslu. Útför Þuríðar fór fram í kyrr- þey. Hulda Hrefna Jó- hannesdóttir, f. 12.8. 1924, d. 26.3. 2000. Ingvi Jó- hannes Jóhann- esson, f. 19.5. 1925, d. 25.12. 1985. Ragnar Jóhann Jó- hannesson, f. 10.10. 1930. Þuríður eign- aðist einn son, Sig- urð Þór Sigurðs- son, f. 13.2. 1949. Faðir Sigurðar er Sigurður B. Skarp- héðinsson f. 5.5. 1921, d. 1.2. 1964. Seinni maður Þuríðar var Ég skrifa um konu sem kynntist ég ung. Um tíma hún reyndist ævin henni þung. En eins og klettur úti við ballarhaf, stóð hún allt af sér og hafði það af. Þetta er konan sem prýddi mig dýrustu klæðum þó það þýdd’að hún sjálf geng’í hræðum. Konan sem aldrei dró kost minn í efa sú sama og kenndi mér hvað það er að gefa. Konan sem lét mig aldrei í friði við það að kenna mér góða siði. Konan sem þerraði tárin mín sú sama og græddi öll sárin mín. Konan sem eldaði matinn minn og hélt mér í örmum sér, fyrst um sinn. Hún er konan sem með nauðum mig ól sú sama og hefur æ verið mitt skjól. Þetta er konan sem kenndi mér flest er ég kann elsku mamma mín sem ætíð ég ann. Sú eina kona sem fram á þennan dag hugsar frekar um minn en sinn eigin hag. Þú hefur sýnt mér að kærleikurinn er vel þess virði að gefa frá sér. Því þó í lífinu slái ég fullt af feilnótum þá kenndir þú mér að ganga á þessum fótum. (Birta Jónsdóttir) Elsku mamma, hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Sigurður Þór og Kristín. Fallin er frá föðursystir mín Þuríður Árna, eða Lilla frænka, eins og ég kallaði hana. Lilla var næstyngst í fjögurra systkina hópi, næst á undan pabba mínum Ragnari Jóhanni sem var yngst- ur. Þau systkinin voru öll kennd við Hábæ þar sem þau ólust upp, í húsi sem Jóhannes afi byggði á Suðurgötu 52 í Hafnarfirði. Sjálf man ég eftir Lillu frá því ég var lítil. Fyrstu fimm ár ævi minnar bjuggum við öll í sama húsi, að Melholti 1 í Hafnarfirði. Lilla og Siggi Þór sonur hennar bjuggu í risinu, Jóna amma og Jói afi á miðhæðinni og pabbi og Mjöll mamma á neðstu hæðinni. Samgangurinn var mikill eins og gefur að skilja en eftir að við fluttum varð samgangurinn held- ur minni. Svo er það árið 1982 að móð- uramma mín, Elínborg, flyst í sama hús og Lilla frænka og þá takast með okkur kynni uppá nýtt, þá er ég ung kona og móðir og Lilla orðin ekkja. Lilla frænka er eftirminnileg, alltaf fallega til höfð og sérlega vel til fara svo eftir var tekið enda einstaklega litaglöð í fatavali. Glæsileg kona með svarta hárið sitt fallega greitt, bakið beint og snyrtingin í toppstandi. Það var skemmtilegt að stinga sér inn til Lillu í kaffibolla og oft spennandi líka því hún spáði bæði í spil og bolla og það þótti manni nú ekki leiðinlegt. Oftar en ekki rataðist henni satt á munn í spá- dómunum og ýmislegt hefur nú ræst af því sem hún sagði, þó mér hafi þótt spádómarnir ótrúlegir þegar hún sagði frá þeim. Lilla var ógleymanlegur per- sónuleiki, hún var glaðsinna og oft ferlega fyndin, færði hlutina í stílinn svo það var stutt í hlát- urinn hjá okkur og oft skellihleg- ið. Hún gat verið óþægilega hreinskilin, dembdi á ættingjana skoðunum sínum á því sem betur mátti fara hjá viðkomandi og fyr- ir vikið átti hún það til að móðga mannskapinn. En hún áttaði sig á því oftar en ekki og þótti þetta leitt, fannst hún hefði betur sleppt athugasemdunum. En ein- mitt þessi þáttur í fari hennar skapaði þennan litríka persónu- leika sem Lilla var. Þetta og margt annað gerði hana öðru vísi en flesta. Hún átti mjög sérstaka og oft afar erfiða ævidaga en allt- af tókst henni að finna björtu hliðarnar á lífinu. Hún vildi vera heima á meðan hún stóð í fæturna og tókst henni það með einstökum og óeigin- gjörnum stuðningi frá Sigga Þór syni sínum og Stínu konunni hans. Þau hafa alla tíð staðið eins og einn maður við bakið á henni og aðstoðað hana í einu og öllu svo aðdáanlegt er. Lilla var einn dyggasti aðdá- andi barnanna minna fjögurra, dásamaði þau og lofaði í hástert og fyrir þeim var hún glöð og skemmtileg, eldri frænka. Okkur frænkunum var vel til vina, en þessum kafla í lífi mínu er nú lokið með eftirsjá. Með henni er genginn elsti meðlimur- inn í föðurfjölskyldunni minni. Gömlu sögurnar verða ekki sagð- ar aftur og kaffisoparnir hjá Lillu verða ekki fleiri í bili en hver veit nema að við eigum eftir að hittast hinum megin og fá okkur heitan sopa saman? Ég sendi Sigga Þór, Stínu og fjölskyldunni þeirra allri okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ásthildur Ragnarsdóttir og fjölskylda. Nú þegar komið er að leiðar- lokum í lífi ástkærrar frænku minnar, Þuríðar Jóhannesdóttur, eða Lillu eins og hún var kölluð, langar mig að þakka henni sam- fylgdina, stuðninginn og alla um- hyggjuna sem hún hefur sýnt mér og fjölskyldu minni í gegnum árin. Hún hefur fylgt mér eins lengi og ég man og mér þótti afar vænt um þessa frænku mína og föðursystur. Lilla var um margt sérstök kona og skemmtileg heim að sækja. Alla tíð fylgdist hún með þjóðfélagsumræðunni og hafði skoðanir á hlutunum, hafði auga fyrir því spaugilega og gat sagt skemmtilega frá. En hún var líka einstaklega ræktarsöm og trygg- lynd, fylgdist af áhuga með fólk- inu sínu og ljómaði af stolti þegar vel gekk og var tilbúin að rétta hjálparhönd þegar á móti blés. Á langri ævi verðum við öll fyrir áföllum í lífinu og þeir sem til þekkja vita að þar var Lilla engin undantekning. Sum áföllin svo stór að mér er til efs að margir hefðu staðist þær raunir. En þó á móti blési stóð Lilla alltaf upp aft- ur með viljann og trúna að vopni, en hún var mjög trúuð kona. Gleðistundirnar voru líka margar og mesta lánið var fjölskyldan sem hún eignaðist; sonurinn Sig- urður Þór og Kristín kona hans, sonarsynirnir Kjartan og Björg- vin, eiginkonur þeirra og barna- börnin, en eiginmaður Lillu, Geir Guðmundsson, varð bráðkvaddur aðeins fimmtugur að aldri. Fáa þekki ég sem hafa sýnt móður sinni og tengdamóður jafnmikla alúð og ræktarsemi og þau Sigurður og Kristín og votta ég þeim báðum og fjölskyldu þeirra mína dýpstu samúð. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Elínborg Ragnarsdóttir. Nú er efsta degi náð hjá elsku- legri föðursystur minni, Þuríði Árnu Jóhannesdóttur húsfrú, sem lést 20. nóvember sl. 84 ára að aldri eftir erfið veikindi. Þur- íður, eða Lilla eins og hún var oft- ast kölluð, fæddist í Gíslahúsi sem nú er Suðurgata 74 í Hafn- arfirði þann 13. ágúst 1928. Hún ólst upp í foreldrahúsum, fyrst í Gíslahúsi en síðar í Hábæ sem nú er Suðurgata 55 sem foreldrar hennar byggðu og fluttu þar inn 1930. Lilla var hæfileikarík kona og einstök. Hún var ákveðin og glæsileg kona, ávallt vel tilhöfð svo haft var á orði. Hún hafði un- un af göngutúrum meðan heilsa og kraftur leyfði, meistari var hún í höndunum við saum og prjón. Og þeir eru ófáir vettling- arnir og sokkarnir sem í minning- unni voru í jólapökkunum. Lilla lærði á hljóðfæri, lék á orgel og píanó og einnig gítar, en hógværðin gerði það að verkum að oftar hefði mátt til hennar heyrast leika af fingrum fram. Hún var trúuð kona og trúði á æðri máttarvöld án allra öfga. Hún spilaði jafnt sálma sem dansmúsík og þá þótti henni óskaplega gaman að dansi. Ein hennar besta vinkona frá 16 ára aldri, Sigrún Þorleifsdótt- ir, eða Dúna í blómabúðinni, sagði mér að þær hefðu verið í dansi fimm daga í viku og ef dans- tímarnir féllu niður þá var bara dansað heima. Þá unnu þær oft á sömu vinnustöðunum, s.s. í Bæj- arbíói og einnig í Alþýðubrauð- gerðinni þar sem faðir Lillu var bakarameistari. Þetta var sann- kölluð vinátta. Einn hæfileika hafði Lilla sem maður bar alltaf ákveðna virð- ingu fyrir og var um margt forvit- inn um, en það voru hennar dul- rænu hæfileikar. Hún virtist geta séð ótrúlegustu hluti um hið ókomna og þau voru mörg skyld- mennin og vinirnir sem þáðu einn og einn spádóm. Og þó maður hafi litið á þetta sem dægradvöl, þá var þetta eitthvað meira. Hún vildi nú ávallt sem minnst úr þessu gera, en þegar spilin voru dregin fram og lesið í bollann varð maður oft orðlaus. Lilla var beinlínis einstök á þessu sviði og það er ekki hægt að lýsa því í orð- um hve glögg og næm hún var. Lilla hélt mikið upp á fjöl- skyldu sína og ávallt fékk maður fréttir af hennar fólki í hverri heimsókn og eftir á að hyggja hefðu heimsóknirnar mátt vera fleiri. En það er gott að vera vitur eftir á. Andlát hennar nú minnir okkur á að dvöl okkar á jörðinni er tímabundin og við eigum að nýta hana vel, eða eins og segir í ljóðatextanum eftir Árna Grétar Finnsson: „Lifðu meðan enn er tími til /en týn ei sjálfum þér í dagsins önnum“. Um leið og ég þakka Lillu föð- ursystur minni fyrir allt það góða bið ég algóðan Guð að blessa Sigga Þór og Stínu, syni þeirra og fjölskyldur. Ykkar er missirinn mestur. Pabbi, Guð blessi þig nú þegar þú hefur horft á eftir öllum þínum systkinum, foreldrum og eigin- konu úr þessari hvikulu jarðvist. Með Þuríði er genginn er einn af þessum gegnheilu Hafnfirð- ingum sem byggðu bæinn, voru frumbyggjar og strituðu fyrir lífsins brauði. Guð blessi frænku mína og megi hann fylgja henni til genginna ástvina, móður, föð- ur, eiginmanns og systkina. Eftir sitjum við fátækari. Góða ferð, frænka. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur og fjölskylda. Þuríður Árna Jóhannesdóttir Elsku Margrét. Það eru nú liðin nokkur ár síðan þú kvaddir þennan heim, en samt er nær- vera þín enn svo sterk. Þú og þín lífsspeki hafa fylgt mér í gegn- um lífið og fært mér góða hluti. Ég var svo heppin að fá að kynnast þér. Þú varst yndisleg, mannleg, fögur og hlý. Sast eins og galdrakona í stólnum þínum, í Margrét S. Blöndal ✝ Margrét Sigríð-ur Sölvadóttir Blöndal geðhjúkr- unarfræðingur fæddist í Stokkhólmi 7. desember 1939. Hún lést á heimili sínu 9. apríl 2006. Útför Margrétar var gerð í kyrrþey. lopapeysunni með hárið í hnút og starðir þar til þú hafðir fengið sann- leikann, kjarna málsins. Þessi minning- arorð koma kannski seint, enda vildir þú þau ekki. En nú ætla ég að fá að ráða, því mig langar það. Í desember hefðir þú átt af- mæli, mín kæra vinkona, mig langar að minnast þín brosandi, gáfaðrar, hrekkjandi og dásam- legrar. Fyrirmyndin mín, Mar- grét Blöndal. Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÁRNA GÍSLASONAR bónda, Laxárbakka. Gísli Árnason, Inga Margrét Árnadóttir, Stefán Tryggvason, Jóhanna Seljan Þóroddsdóttir, Tryggvi Sturla Stefánsson, Árni Steinar Stefánsson, Þórir Steinn Stefánsson, Arnaldur Starri Stefánsson, Álfheiður Ída Kjartansdóttir. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og ömmu, ELSU GRÍMSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Furuhlíðar á dvalarheimilinu Hlíð fyrir kærleiksríka umönnun og hlýju. Arnar Sigfússon, Helga Sigfúsdóttir, Árni Pétur Arnarsson. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra föður, bróður, frænda og vinar, JÓHANNESAR ÁGÚSTSSONAR frá Keflavík, síðast til heimilis í Sléttahrauni 24, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við þeim er stóðu þétt við bak Jóhannesar í veikindum hans sem og heimahjúkrun Karitasar fyrir þeirra einstaka starf. Jorunn Jóhannesdóttir, Hrólfur Brynjar Ágústsson og fjölskylda, Guðrún Ágústsdóttir og fjölskylda, Maria Ohlson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÁLMI ÞÓR PÁLSSON, Hraunholti, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 2. desember. Útför hans fer fram frá Vídalínskirkju miðvikudaginn 19. desember klukkan 13.00. Soffía Friðgeirsdóttir, Gunnar Þór Pálmason, Ida Surjani, Þórhildur Pálmadóttir, Hjörtur Hreinsson, Haukur Örvar Pálmason, Kristín Haraldsdóttir, Sunna Guðný Pálmadóttir, Brynjar Þór Sumarliðason og barnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR REYNIR MAGNÚSSON, löggiltur endurskoðandi, lést á Landspítala, Landakoti, að kvöldi miðvikudags 5. desember. Útförin auglýst síðar. Sigurlaug Zophoníasdóttir, Anna Soffía Gunnarsdóttir, Ólafur Kvaran, Guðný Gunnarsdóttir, Friðþjófur K. Eyjólfsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Valþór Hlöðversson, Emilía María Gunnarsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson, Hákon Gunnarsson, Björn Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.