Morgunblaðið - 07.12.2012, Page 47
Litríkar
jólagjafir
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Fæst í eftirfarandi verslunum: Verslanir Húsasmiðjunnar, Verslanir ELKO, Byggt og Búið, Verslanir Ormsson,
BYKO Akureyri, Þristur, Hljómsýn, Geisli, Skipavík, Kaupfélag Skagfirðinga og Johann Rönning.
George Foreman
vinsælu heilsugrillin
Fjöldi fylgihluta
- kynnið ykkur verðið
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Árlegir aðventutónleikar
Karlakórs Reykjavíkur
verða haldnir í Hallgríms-
kirkju um helgina, 8. og 9.
desember, þeir fyrstu kl.
17 á laugardaginn og
tvennir á sunnudaginn kl.
17 og 20. Viðar Gunn-
arsson bassi syngur ein-
söng með kórnum, Lenka
Mátéóvá leikur á orgel,
Ásgeir H. Steingrímsson
og Eiríkur Örn Pálsson á
trompet og um slagverk
sér Eggert Pálsson.
Stjórnandi kórsins er sem
fyrr Friðrik S. Krist-
insson.
Kórinn gerði góða ferð
til Færeyja sl. helgi, hélt
þar þrenna þéttsetna tón-
leika, þá fyrstu í Friðriks-
kirkjunni í Tóftum á laug-
ardegi og tvenna í
Vesturkirkjunni í Þórs-
höfn á sunnudegi. Tórs-
havnar Manskór, þ.e.
Karlakór Þórshafnar,
söng einnig eigin efnisskrá
á tónleikunum í Þórshöfn
og tvö lög með Karlakór
Reykjavíkur og var kórunum fagnað ákaft af gestum að loknum tón-
leikum. Karlakór Reykjavíkur mætir því vel upphitaður til söngs í Hall-
grímskirkju og flytur fjölbreytta efnisskrá með sígildum jólalögum og
sálmum og má af þeim nefna „Hallelujah!“ eftir G.F. Händel, „Agnus
Dei“ eftir G. Bizet, „In the bleak midwinter“ eftir G. Holst og „Lofsöng“
eftir L.v. Beethoven.
Miðasala fer fram á vef kórsins, karlakorreykjavikur.is, og í Hall-
grímskirkju fyrir tónleika.
Aðventutónleikar Karlakór Reykjavíkur
mun flytja fagra tóna í Hallgrímskirkju.
Hátíðleg stund í
Hallgrímskirkju
Karlakór Reykjavíkur heldur
þrenna aðventutónleika um helgina
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Grasasnar sendi í
haust frá sér breiðskífuna Til í tusk-
ið sem hefur að geyma erlend lög að
mestu og frá ólíkum tímum, við ís-
lenska texta.
„Grasasnar þróuðust í gegnum
upptökuferli eftir að góðri stúd-
íóaðstöðu var komið upp í Borg-
arnesi. Byrjaði sem prufa en þróað-
ist síðan sem plötuverkefni. Ýmsar
tilviljanir urðu á veginum en þær
leiddu allar til þess að kjarni hljóm-
sveitarinnar varð til og sú tónlist-
arstefna sem er gegnumgangandi á
Til í tuskið. Það sem er óvenjulegt er
að menn eru komnir nokkuð vel á
aldur þegar þeir ákveða að leggja á
þessa braut og tilhneiging til að
halda að þar með hafi menn uppfyllt
gamlan draum. Til í tuskið er hins-
vegar bara fyrsta stopp á vegferð
Grasasnanna – við lítum fyrst og
fremst fram á veginn,“ segir Steinar
Berg, forsprakki Grasasna, um
hljómsveitina. Grasasnar sæki í al-
þýðutónlist og þá þróun þegar sú
tónlist hafi farið að renna saman við
rokk og popp austan og vestan hafs.
Steinar segir lögin þó ekki endilega
frá því skeiði, sum það gömul að þau
flokkist undir þjóðlög og önnur frá
upphafi síðustu aldar og fram á fyrr-
nefnt tímabil. Þá megi einnig finna
frumsamin lög á plötunni. „Lögin
eru sótt í sjóð tónlistaráhuga og
hlustunar meðlima. Tónlistarlínan
er nokkuð vel samhangandi í fjöl-
breytileik sínum, viljum við meina,
en textarnir eru líka afar mik-
ilvægur hluti og þeir eru yfirleitt
sögutengdir, miðla reynslu, kímni og
þroska, vonum við.“
– Nafn hljómsveitarinnar bendir
til þess að þið takið ykkur ekkert of
hátíðlega. Er það rétt mat?
„Við viljum umfram allt að tónlist-
in, textarnir og spilamennskan veiti
hlustendum skemmtun – það er al-
gjört lykilatriði þegar hlustað er á
tónlist af þessum toga jafnvel þó um-
föllunarefni textanna geti verið um
alvarleg efni. Hinsvegar tökum við
alvarlega að það sem frá okkur fer
sé vel gert og vandað. Fyrir nýja
hljómsveit sem er reist á jafn göml-
um grunni í árum talið þá er ljóst að
Grasasnarnir þurfa að fara yfir auka
þröskuld til að vera marktækir en
ekki flokkaðir sem heimilisiðnaður
einhverra karla utan af landi. Þann-
ig að það er um að gera að taka þetta
allt á léttum nótum.“
Grasasnar ætla að halda útgáfu-
teiti í byrjun desember í Fossatúni
þar sem Steinar er staðarhaldari. Þá
er stefnt að útgáfutónleikum í jan-
úar og frekara tónleikahaldi á nýju
ári á höfuðborgarsvæðinu og víðar
um land.
Ekki heimilisiðnaður ein-
hverra karla utan af landi
Til í tuskið er fyrsta stopp á vegferð Grasasna
Grasasnarnir Steinar Berg, Sigurþór Kristjánsson, Gunnar Ringsted og
Halldór Hólm Kristjánsson sitja þröngt en sáttir í gömlum Land Rover.