Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 48

Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Fallöxin bbmnn eftir Kim M. Kimse- lius. Elín Guðmunds- dóttir þýddi. 271 bls. Urður bókafélag gef- ur út. Sænska stúlkan Ramóna er þeim hæfileika gædd að geta stokkið til í tíma, aðallega aftur- ábak, og þar kynnt- ist hún til að mynda sínum besta vin, Theo, eins og rakið er í fyrstu bókinni um ævintýri hennar, en Theo bjó þá í Pompei á áttunda áratug fyrir Krist. Sá er hængurinn með þennan hæfileika Ramónu að hún lendir ævinlega á skelfingar- og ógnartíma í sögunni eins og til að mynda í þessari bók þar sem hún lendir í miðju blóðbaði frönsku byltingarinnar. Lýsingarnar eru og býsna krassandi og blóðugar, svo blóðugar að manni finnst nóg um. Spennan er talsverð í bókinni, líkt og fyrri bókum um Ramónu, framvindan hröð og sagan endar í lausu lofti ef svo má segja, því Ramónu og Theo auðnast ekki að komast heim, heldur hverfa þau beint í nýtt ævintýri. Arfleifðin bbbnn eftir Christopher Paolini. Guðni Kolbeinsson þýddi. 749 bls. JPV útgáfa gefur út. Christopher Paolini vakti heimsathygli þegar fyrsta bókin um hetjuna Eragon og drekann Safiru kom út, enda bókin spennandi og vel samin þó höfundur væri vart af unglingsaldri. Upphaflega stóð til að bækurnar yrðu þrjár en fjórar þurfti til og sú síð- asta er þeirra veg- legust, 749 blaðsíð- ur – bálkurinn allur rúmar 2.500 síður. Heimurinn sem Pa- olini skapar er æv- intýralegur og vel útfærður og hetj- urnar hrífandi. Þær eru þó full málgefnar og stundum óskar maður þess að þær tali minna og geri meira. Ekki skortir þó dramatíkina í sög- una og hún heldur manni vel við efnið. Paolini gefur sér góðan tíma í að hnýta alla lausa enda í lokin, en skilur þó eftir smá glufu fyrir fram- hald. Særingamaðurinn bbbnn eftir Michael Scott. Guðni Kolbeinsson þýddi. 336 bls. JPV útgáfa gefur út. Særingamaðurinn er fjórða bókin sem segir af ævintýrum tvíburanna Josh og Sophie, en alls verða bækurnar sex. Bækurnar snúast um bráttu góðs og ills, en þau Sophie og Josh eru lykilpersónur í þeirri baráttu, þau einu sem geta bjargað mannkyni að sögn gullgerð- armannsins ódauðlega Nicholas Flamel og seið- konunnar Pernelle eiginkonu hans. Andstæðing- arnir eru ófreskjur og illþýði en þó helst sá gamli galdramaður John Dee sem er líka ódauð- legur. Bækurnar gerast á örskömmum tíma, sú fyrsta hefst 31. maí og sú sem hér er fjallað um 5. júní. Hraðinn í frásögninni er og gríð- armikill, maður er rétt búinn að ná andanum eftir síðustu baráttu upp á líf og dauða er allt fer í hund og kött að nýju. Nú þegar dregur að lokum orr- ustunnar, aðeins tvær bækur eftir, syrtir í álinn smám saman, öll sund virðast lokuð. Spennandi og ævintýralegur bókaflokkur. Þýddar ævintýrabækur Yfirlit yfir nýútkomnar þýddar ævintýrabækur fyrir unglinga Árni Matthíasson arnim@mbl.is Hljómsveitin Sign mun halda tónleika á Gamla Gauknum á annan í jólum ásamt hljóm- sveitunum Nite Rain og End- less Dark. Heyrir þetta til nokkurra tíðinda þar sem Sign hefur ekki haldið tón- leika með trommaranum Agli Erni Rafnssyni í fjögur ár eða allt frá því hann sagði skilið við sveitina og bræðurnir Eg- ill og Ragnar Sólberg fluttu til síns lands hvor. Egill hefur s.s. snúið aftur í hljómsveitina sem var stofnuð fyrir tólf ár- um. Sign gaf út sína fyrstu EP plötu 2. desember sl., Out From the Dirt og samnefnda smáskífu auk myndbands. Sign er snúin aftur. Sign snýr aftur með Agli Endurkoma? Hljómsveitin Sign hefur legið í dágóðum dvala eða í fjögur ár. Hljómsveitin Valdimar hefur sent frá sér sitt fyrsta mynd- band, við lagið „Yfir borgina“ sem finna má á nýútkominni plötu sveit- arinnar, Um stund. Gjörn- ingalistamað- urinn Kristinn Guðmundsson sá um gerð myndbandsins og er það unnið í svonefndum „stop motion“-stíl, með ógrynni ljósmynda sem teknar voru í Kaupmannahöfn. Mynd- bandið má finna á YouTube. Fyrsta myndband Valdimars Valdimar söngvari Valdimars Selkórinn heldur sína fyrstu jóla- tónleika með nýj- um stjórnanda, Oliver J. Kentish, á morgun kl. 17 í Seltjarnar- neskirkju. Dagný Björgvinsdóttir leikur á orgel. Á efnisskrá eru evrópsk jólalög og flest ensk. Lögin eru í anda trúarlegra dans- kvæða eða „carols“ á ensku, sem voru hluti af jólahátíðarhöldum á Englandi á 15. öld, að því er fram kemur í tilkynningu. Þau hafi fólk sungið í hópum sem gengið hafi milli húsa. Kórinn býður upp á veitingar í hléi og verða miðar seldir við inn- gang kirkjunnar. Fyrstu jólatón- leikar Selkórsins Oliver J. Kentish SO UNDERCOVER Sýndkl.4-6-8-10 RISE OF THE GUARDIANS 3D Sýndkl.4-6 RISE OF THE GUARDIANS 2D Sýndkl.4 KILLING THEM SOFTLY Sýndkl.10 SKYFALL Sýndkl.6-9 PITCH PERFECT Sýndkl.8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Bráðskemmtileg gamanmynd í anda MISS CONGENIALITY -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU 12 12 7 16 L L ,,Sú besta í allri seríunni” T.V - Kvikmyndir.is ,,Fyrsta flokks 007” J.A.Ó - MBL ,,Þrælspennandi og skemmtileg frá upphafi til enda” H.V.A - FBL Þ.Þ - FBL SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ÍSLENSKT TAL NÁNAR Á MIÐI.IS -S.G.S., MBL -H.V.A., FBL JACKPOT KL. 6 - 8 - 10 16 SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 - 10.40 CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 - 9 16 DJÚPIÐ KL. 5.50 10 SO UNDERCOVER KL. 8 - 10 L KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10 16 HERE COMES THE BOOM KL. 6 7 SO UNDERCOVER KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L SO UNDERCOVER LÚXUS 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 L GOÐSAGNIRNAR FIMM 2D KL. 3.40 - 5.50 L GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D KL. 3.40 L KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16 SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 10.20 16 HERE COMES THE BOOM KL. 5.40 - 8 7 NIKO 2 KL. 3.40 L SKYFALL KL. 9 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.