Morgunblaðið - 07.12.2012, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
AF DJASSI
Vernharður Linnet
linnet@simnet.is
Dave Brubeck hefði orðið 92jaára daginn eftir að hannlést, en einsog flestum tón-
listarunnendum er kunnugt lést
hann þann 5. þessa mánaðar.
Brubeck er ein síðasta stór-
stjarna djassins og það eru ekki
margir djassistar enn á lífi sem
fréttastofur heimsins munu gera jafn
góð skil og Brubeck voru gerð. Það
var platan Time Out og sérstaklega
lag Paul Desmonds, Take Five, sem
kom honum uppá stjörnuhimininn.
Lagið var gefið út á 45 snúninga
plötu sem seldist í risaupplagi, á
hinni hliðinni var lag Brubecks, Blue
Rondo á la Turk, sem ekki var síðra.
Brubeck endurnýjaði taktmál djass-
ins, var gott tónskáld og tvö lög hans
a.m.k. eru gjarnan á dagskrá djass-
leikara: The Duke og In Your Own
Sweet Way. Þegar ég var ungur rót-
tækur djassunnandi voru hvítu
strákarnir, þar á meðal Brubeck og
Getz, ekki efstir í virðingarstiganum.
Mínir menn voru flestir svartir, en
með árunum hef ég lært að meta
snilli þessara kappa og bæst í hóp
manna einsog Cecil Taylors, sem er
mikill aðdáandi Brubecks.
Einsog margir muna kom Dave
Brubeck hér á Listahátíð 1986 með
kvartett sinn, sem að vísu var ekki
sambærilegur við klassíska kvart-
ettinn með Desmond, Gene Wright
og Joe Morello. Ég kynntist honum
ágætlega og tók viðtal við hann í
djassþátt minn á Rás 2 og einnig fyr-
ir sjónvarpsþátt sem Örnólfur Thors-
son stýrði.
Heldur var Brubeck afskiptur af
hálfu Listahátíðar, en þá snerist allt
um Ingmar Bergman. Þau hjón
fengu herbergi á Borginni yfir dynj-
klassískum plötum djassins. Að sjálf-
sögðu verður Time Out jafnan talið
höfuðverk hans, en þar kannaði
hann takttegundir sem djassmenn
höfðu sjaldan eða aldrei notað. Ekki
má gleyma Jazz Impressions of Jap-
an, þarsem hann endurnýjaði hug-
mynda- og hljómaheim sinn. Jazz at
Oberlin verður alltaf í hópi hinna
klassísku Brubeck skífa þarsem
túlkun Brubecks og Desmonds á
söngdönsum nær hæðum. Svo gerði
hann nokkrar góðar plötur með
Mulligan eftir að Desmond hvarf á
braut einsog Live at The Berlin
Philharmonie, og ótrúlegt er hve
sköpunargáfa hans hélst ævina á
enda einsog heyra má á London
Sharp, London Flat (2004), þarsem
Bobby Militello blæs í altinn og
Randy Jones slær trommurnar eins-
og á Broadway, en í stað sonarins
Chris er Michael Moore á bassa.
Ekki er ætlunin hér að kryfja
tónlist Dave Brubecks heldur minn-
ast frábærs tónlistarmanns með
þessum minningabrotum um Ís-
landsheimsókn hans og þær plötur
hans sem ég met mest.
Fyrir um áratug var ég staddur
í Budapest og var Brubeck þar með
tónleika daginn eftir að við héldum
heim. Því miður varð heimferðinni
ekki breytt, en plöturnar ylja og
þær bestu munu lifa eins lengi og
djassinn.
Í minningu Dave Brubecks
Morgunblaðið
Stjarna Brubeck lék á als oddi á Broadway á Listahátíð í Reykjavík árið 1986.
andi diskótekinu og sagðist Brubeck
aldrei hafa séð annað eins fyllerí og
á Austurvelli þá nótt, nema kannski
einu sinni í Kanada. Þá hefði Des-
mond brugðið sér út á götu fyrir
framan hótelið og blásið fyrir pöp-
ulinn.
Strákarnir í kvartettnum komu
eldsnemma næsta morgun og fengu
ekki herbergi fyrr en eftir hádegi.
Dave hringdi í mig þann morgun og
bað mig að bjarga sér og konu sinni,
Iolu, af þessu hóteli, og fengu þau
inni á Hótel Loftleiðum. Út yfir allan
þjófabálk tók er hann komst að því
að hann ætti að spila á veitingahús-
inu Broadway, en ekki í tónleikasal,
og sagði hann þá að hann ,,hefði
ekki verið hálfa ævina að berjast
fyrir því að losna úr reykfylltum
næturklúbbum Bandaríkjanna til að
leika í einum slíkum í Reykjavík“.
Umboðsmaður hans vildi að hann af-
lýsti tónleikunum, en Dave vildi ekki
gera íslenskum aðdáendum sínum
það, svo sæst var á að ekki skyldu
seldar veitingar á Broadway eða
reykt meðan á tónleikunum stæði.
Dave og Iola, kona hans til sjö-
tíu ára, buðu mér í málsverð á Hótel
Loftleiðum daginn sem þau fóru
héðan og var margt spjallað. Hann
bað mig m.a. að skrifa Henry Re-
naud hjá franska CBS bréf og hvetja
hann til að láta endurútgefa The
Real Ambassadors frá 1962, með
klassíska kvartettinum án Des-
monds, Louis Armstrong, Lambert-
Hendricks & Ross og Carmen
McRae. Platan kom út í seríunni I
love Jazz 1990 og diski í seríunni
Columbia Jazz Materworks með
nokkrum lögum sem ekki voru á
frumplötunni.
Hvort bréf mitt hafði nokkur
áhrif veit ég ekki, en trúlega hafa
hundruð sent Henry þessa bón, auk
þess sem Dave var mjög umhugað
um endurútgáfuna.
Plötur Brubecks eru fleiri en
upp verður talið, en ein sú magnað-
asta er Brubeck & Rushing, þar sem
klassíski kvartettinn og djassblús-
söngvarinn Jimmy Rushing stilla
saman strengi sína. Fáir trúðu því að
samvinna þeirra myndi heppnast, en
raunin varð sú að þetta er ein af
» Brubeck er ein síð-asta stórstjarna
djassins og það eru ekki
margir djassistar enn á
lífi sem fréttastofur
heimsins munu gera
jafn góð skil og Brubeck
voru gerð.
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Í 2D MEÐ ENSKU
TALI/ÍSL TEXTA
L
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
L
L
L
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI3D KL. 3:40 - 5:50
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI KL. 3:40 - 5:50
PLAYING FOR KEEPS KL. 5:50 - 8 - 10:20
PLAYING FOR KEEPS KL. 3:40 - 8
CHRISTMAS VACATION KL. 5:50 - 8
ALEX CROSS KL. 8 - 10:20
ALEX CROSS VIP KL. 5:50 - 10:20
POSSESSION KL. 10:20
TWILIGHT: BREAKING DAWN PART 2 KL. 8 - 10:30
WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI3D KL. 3:40 - 5:50
WRECK-IT RALPH ÍSL.TALI KL.
ARGO KL. 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 3:40
12
16
16
AKUREYRI
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALI3D KL. 6
RISE OF THE GUARDIANS ENSTALI KL. 8
CHRISTMAS VACATION KL. 6 - 8
THE POSSESSION KL. 8 - 10:20
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 8
ALEX CROSS KL. 10:20
L
L
L
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
12
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3DKL.3
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTALKL.3:40 - 5:50
RISE OF THE GUARDIANS ENSTALKL.8
PLAYING FOR KEEPS KL. 5:50 - 8 - 10:20
ALEX CROSS KL. 11
POSSESSION KL. 11
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40
SKYFALL KL. 5:10 - 8 - 10:10
KEFLAVÍK
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3DKL.
PLAYING FOR KEEPS KL. 8 - 10:10
CHRISTMAS VACATION KL. 5:50
ALEX CROSS KL. 10:10
RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3DKL.5:30
RISE OF THE GUARDIANS ENSTALKL.5:50
ALEX CROSS KL. 8 - 10:20
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 5:30 - 8
HERE COMES BOOM KL. 8 - 10:30
ARGO KL. 8 - 10:30
CLOUD ATLAS KL. 10:10
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:40
MAGNAÐUR ÞRILLER FRÁ
LEIKSTJÓRA
FAST AND THE FURIOUS
DONT EVER CROSS ALEX CROSS
LOKAMYNDIN Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA
BOXOFFICE MAGAZINE
80/100
VARIETY