Morgunblaðið - 14.12.2012, Side 4
FRÉTTASKÝRING
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Bóksala fyrir jólin fer vel af stað,
segja kaupmenn og bókaútgefendur,
en enn eru tvær helgar til jóla og
mesta fjörið eftir. „Þetta er eins og
gott partí sem er að fara í gang,“ segir
Bryndís Loftsdóttir, vörustjóri ís-
lenskra bóka hjá Eymundsson, en 991
nýr titill þekur nú borð og hillur bóka-
verslana og allt bendir til þess að þeir
verði fleiri en nokkurn tímann áður
fyrir þessi jól.
„Mér liggur við að segja að það sé
offramboð á góðum bókum á mark-
aðnum,“ segir Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Forlagsins, en
bætir því við að eftirspurnin sé sömu-
leiðis afar mikil. Hann segir söluna í
október og nóvember í ár betri en á
sama tíma í fyrra og að óhætt sé að
fullyrða að bókin hafi haldið velli frá
hruni.
Egill segir áhuga íslenskra lesenda
mestan á íslensku skáldsögunni ann-
ars vegar, sem lifi mjög góðu lífi, og
handbókum hins vegar, þá sér í lagi
matreiðslubókum.
„Útgáfa skáldsagna á undanförn-
um árum hefur verið mjög góð og
margar spennandi og góðar bækur
komið út. Matreiðslubækurnar hafa
hins vegar sótt mjög í sig veðrið á
undanförnum árum og við sjáum það
ef við skoðum uppsafnaðan metsölu-
lista það sem af er þessu ári, að þá er
þar fjöldi matreiðslubóka sem verma
nokkur efstu sætanna.“
Einyrkjar í sókn
Bryndís Loftsdóttir hjá Eymunds-
son segir bókasöluna enn eiga eftir að
taka alvöru kipp; þar sem bækur selj-
ist sjaldan upp séu þær ekki meðal
þess sem fólk byrjar á að kaupa fyrir
jólin. Hún er sama sinnis og Egill og
segir bækur almenns eðlis koma sterk-
ar inn og að það kæmi henni ekki á
óvart ef þær seldust best fyrir jólin.
„Annað sem er kannski dálítið frétt-
næmt er hvað einyrkjar, útgefendur
sem eru með eina til þrjár bækur á
ári, eru farnir að skila okkur stóru
hlutfalli, yfir 200 bókum þetta árið,“
segir Bryndís. Útgáfa einyrkja hafi
vaxið gríðarlega að gæðum. „Núna
sjáum við að bækur einyrkja eru full-
komlega samkeppnishæfar við bækur
frá stóru forlögunum. Og þeir koma
sterkir inn í þessum flokki, bókum al-
menns eðlis,“ segir hún.
Bryndís segir einyrkja helst standa
höllum fæti þegar kemur að markaðs-
setningu og því að fá umfjöllun í fjöl-
miðlum en þeir eigi þó greiðan að-
gang inn í bókaverslanir árið um
kring, sem þekkist nær hvergi annars
staðar en á Íslandi.
Kristján B. Jónasson, formaður
Félags íslenskra bókaútgefenda, seg-
ir að á síðustu árum hafi bóksalan ver-
ið að falla aftur í gamalt far, fólk sé
hætt að kaupa nýútkomnar bækur
handa sjálfu sér að lesa og bíði heldur
fram að jólum.
„Þú sérð það bara á veltutölum að
skyndilega á þessum tíma, 2005-2008,
þá eykst árleg velta bókabransans um
nærri milljarð á einhverjum tveimur
árum. Og þetta mátti rekja til þess að
í staðinn fyrir að þú frestaðir bóka-
kaupunum, þar til þú varst kominn að
því að gefa fólki pakka, þá langaði þig
kannski að lesa Arnald og þú keyptir
bara Arnald og last hann. Þessi auka-
bók, kannski tvær aukabækur, sem
maður keypti bara til að lesa að gamni
sínu, þetta hafði ekki tíðkast af því að
markaðurinn var alltaf stílaður inn á
gjafir.“ Þannig sé þetta orðið aftur.
Kristján segir að á sama tíma hafi
sala á kiljum, sem dreifist yfir árið,
stóraukist en fórnarlömb þeirrar þró-
unnar hafi aftur verið innbundnar
þýddar bækur, sem eitt sinn voru vin-
sælasta gjafavaran á bókamarkaðn-
um en sjást nú varla lengur á toppi
sölulistanna.
Hann segir bóksölulista Rann-
sóknaseturs verslunarinnnar gefa
góða vísbendingu um hvað sé að selj-
ast en hann sýni m.a. hvernig vinsæl-
ustu kiljur ársins, s.s. 50 gráir skugg-
ar, hafi vikið fyrir jólabókunum.
„Eftir standa krimmar, ævisögur,
skáldsögur og tvær barnabækur. Og
þetta er bara mjög breiður listi og aft-
ur dálítið líkur listi og maður man eft-
ir fyrir kannski 20 árum.“
„Offramboð á góðum bókum“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bókajól Margir voru að skoða jólabækurnar í bókabúð Máls og menningar á Laugavegi í gærkvöldi.
Mikið úrval titla í boði „Eins og gott partí sem er að fara í gang“ Íslenskar skáldsögur og hand-
bækur vinsælastar Ásgeir Trausti fremstur í flokki íslenskra tónlistarmanna sem seljast vel fyrir jól
Jólavertíðin
» Eymundsson hefur nú til sölu
alls 991 nýjan íslenskan bókatit-
il, 302 bækur fyrir börn og 689
bækur fyrir fullorðna.
» Tónlistarsala tók greinilegan
kipp í síðustu viku, þegar hún
jókst um 100% frá fyrri viku.
» Eiður Arnarson hjá Senu seg-
ir líklegt að Ásgeir Trausti brjóti
20 þúsund eintaka múrinn fyrir
áramót en honum þykir ólíklegt
að sölumet Mugison frá því í
fyrra, 27.700 eintök, verði sleg-
ið á næstu árum eða áratugum.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég held að bjórnum sé dreift í öllum ríkjum Bandaríkj-
anna nema ef vera skyldi á Hawaii, þetta hefur gengið
mjög vel og eftirspurnin langt umfram það sem við get-
um framleitt,“ segir Árni Theodór Long, bruggmeistari
brugghússins í Ölvisholti í Flóa, en bjórinn Lava hefur
slegið í gegn á erlendum mörkuðum, aðallega í Banda-
ríkjunum, Svíþjóð og Kanada. Er bjórtegundin lang-
stærsta útflutningsvara Ölvisholts.
Eftirspurnin vestanhafs hefur stóraukist eftir að
Lava bar sigur úr býtum í flokki reyktra bjóra í opna
bandaríska bjórmótinu. Í kjölfarið kom mjög jákvæð
umsögn í virtu fagtímariti, Draft Magazine, þar sem
Lava var valinn einn af 25 áhugaverðustu nýju bjórteg-
undunum á markaði í Bandaríkjunum á þessu ári. Stóð
valið þar á milli um átta þúsund tegunda, að sögn Árna.
Stækka þyrfti brugghúsið
Hann gefur ekki upp hversu mikið hefur verið flutt
út af bjórnum en það séu „nokkrir gámar“ sem hafa farið
til Bandaríkjanna.
Fram kemur á vef brugghússins að framleiðsluget-
an á ári er um 300 tonn, sem jafngildir um einni milljón
af bjórflöskum. Árni segir útflutninginn vera um þriðj-
ung heildarframleiðslunnar.
„Við höfum varla undan að framleiða og þyrftum að
stækka brugghúsið töluvert mikið til að anna eftirspurn-
inni. Það er erfitt að framleiða aðrar tegundir en við
reynum að dreifa framleiðslunni þannig að allir fái eitt-
hvað. Þetta er gott vandamál, þannig séð, en auðvitað
vildum við geta framleitt það sem menn vilja,“ segir Árni
en alls er Ölvisholt með fjórar tegundir í framleiðslu, auk
árstíðabundinna bjóra um jól, þorra og páska.
Lava er kolsvartur að lit og bragðmikill bjór, með
9,4% styrkleika, úr flokki er nefnist Russian Imperial
Stout. Árni segir hann taka lengri tíma í framleiðslu en
aðrar tegundir, eða allt að 45 daga, á meðan hefðbundinn
bjór tekur 20-30 daga að framleiða.
„Þessi bjór er ekki fyrir hvern sem er, hann er mjög
beiskur og grunnmaltið er reykt. Það eru mest harð-
kjarna bjórnördar sem drekka hann þarna úti. Áhuginn
hér heima hefur ekki verið mikill en er þó ört vaxandi,“
segir Árni en Lava er svipaðrar tegundar og Surtur hjá
Borg brugghúsi, sem er í eigu Ölgerðarinnar.
Bjórinn Lava rennandi
heitur í Bandaríkjunum
Brugghúsið í Ölvisholti annar vart eftirspurn erlendis
Bruggmeistari Árni Theodór Long, bruggmeistari í
Ölvisholti í Flóa, með flösku af Lava, sem selst vel.
Ágúst Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Skífunnar, segir
tónlistarsölu fyrir jólin á góðu
róli en þar beri tónlistarmað-
urinn Ásgeir Trausti höfuð og
herðar yfir aðra.
Eiður Arnarson, deildarstjóri
tónlistardeildar Senu, spáir því
að sala á plötu Ásgeirs Trausta,
Dýrð í dauðaþögn, muni fara yfir
20 þúsund eintaka markið fyrir
áramót en þykir ólíklegt að
nokkur önnur plata nái 10 þús-
und eintaka markinu. Hann spáir
ágætum söluniðurstöðum fyrir
árið 2012.
„Árið verður alla vega í mjög
góðu meðallagi og hugsanlega
næstbesta árið undanfarin 5-6
ár. Þetta er búinn að vera ótrú-
lega stöðugur markaður í nokkur
ár,“ segir Eiður.
Hann bendir á að menn hafi
verið duglegir við að spá dauða
geisladisksins en það hafi síður
en svo ræst hvað varðar ís-
lenska tónlist. Hins vegar hafi
orðið hrun í sölu á erlendri tón-
list hérlendis á síðastliðnum tíu
árum en t.d. séu aðeins tvær er-
lendar plötur á topp 50 á sam-
eiginlegum sölulista flestra
helstu tónlistarsmásala á Ís-
landi.
Rífandi sala í íslenskri tónlist
JÓLAGJÖFIN Í ÁR
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Skipverja á togaranum Múlabergi
SI 22 hefur verið saknað síðan á
miðvikudagskvöld, leit hefur ekki
borið árangur. Aðstæður til leitar í
gær voru mjög góðar, veður gott
og náðist að leita tiltölulega vel á
svæðinu að sögn Hrafnhildar
Brynju Stefánsdóttur, upplýsinga-
fulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Leitað var í sjónum norður af
Skagafirði aðfaranótt fimmtudags
og tók þyrla Landhelgisgæslunnar
m.a. þátt í leitinni ásamt Björg-
unarskipinu Sigurvini og nær-
stöddum skipum. Leit var síðan
framhaldið í gær m.a. með aðstoð
varðskipsins Týs, þyrlu Landhelg-
isgæslunnar auk þess sem nær-
liggjandi skipum og bátum voru
send boð um að hafa augun opin
og taka þátt í leitinni. Leitað var
undir myrkur í gær.
Leitarsvæðið er stórt
Hjá Landhelgisgæslunni og lög-
reglunni á Akureyri fengust þær
upplýsingar að óljóst væri hvort
formlegri leit yrði haldið áfram í
dag. Ákvörðun um framhaldið yrði
tekin í fyrramálið (í dag).
Að sögn Hrafnhildar er leitar-
svæðið mjög stórt eða um 35 sjó-
mílur. Töluverður tími leið frá því
að síðast spurðist til mannsins
þangað til hans var saknað. Tog-
arinn lagði af stað á miðin norður
af Skagafirði um kl. 14 á miðviku-
daginn og eftir fjögurra klukku-
stunda siglingu uppgötvaðist að
einn skipverja vantaði um borð. Að
sögn lögreglu er um vanan sjó-
mann að ræða sem hefur verið
lengi í áhöfn skipsins.
Togaranum var snúið til lands
og kom til hafnar á Siglufirði um
miðnætti á miðvikudag. Í kjölfarið
tók lögregla skýrslu af skipverj-
um.
Óvíst hvort leit
verður haldið áfram
Leit Maðurinn sem er leitað er í
áhöfn togarans Múlabergs.
Skipverja saknað síðan á miðvikudag