Morgunblaðið - 14.12.2012, Side 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Jukkasjärvi. AFP. | Í litlum bæ nyrst í Svíþjóð
eru verkamenn á þönum í þykkum loðskinns-
úlpum á einstæðu byggingarsvæði: þeir eru að
reisa stórt íshótel sem nýtur mikilla vinsælda
meðal ferðamanna.
Verkamennirnir í bænum Jukkasjärvi eru í
þykkum hönskum og með öryggishjálma yfir
loðskinnshúfum þegar þeir raða saman
tveggja tonna þungum ísblokkum, eins og þær
séu stórir Legó-kubbar. Afraksturinn er íshöll
með nokkrum hvolfþökum, hvelfdu lofti og
hvolfgöngum.
Í einum ganga íshallarinnar notar verka-
maður stóran haka til að höggva dyr í þéttan
snjóvegg og dugnaðurinn er svo mikill að hann
svitnar þrátt fyrir frostið á þessum norðlæga
stað.
Á nokkrum vikum keppast verkamennirnir
við að höggva út 65 herbergi og svítur, and-
dyri, móttökusvæði, aðalsal og ísbar til að
hægt verði að opna hótelið í desember. Bætt er
við kapellu fyrir hjónavígslur og skírnar-
athafnir og allt er gert úr ís, til að mynda alt-
arið, skírnarfonturinn og bekkirnir.
Afrakstur erfiðisins er þó skammlífur: öll
byggingin bráðnar og verður að engu um það
bil fimm mánuðum síðar þegar vorið gengur í
garð.
„Við erum algerlega háð veðrinu, við fylgj-
um áætlun en hún breytist milli ára,“ segir
fulltrúi hótelsins, Beatrice Karlsson.
Byggingaraðferðin sem notuð er til að reisa
hótelið er einstæð, að sögn Rasmus Wärns,
sérfræðings í norrænum arkitektúr. „Þetta er
alveg nýtt fyrirbæri. Það er engin hefð fyrir
því í Skandinavíu að reisa hús úr ís.“
Nota 5.000 tonn af ís
Þetta er í 23. skipti sem íshótelið er reist við
bakka árinnar Torne þar sem ísinn er tekinn.
„Um það bil 5.000 tonn af ís eru tekin úr ánni í
mars og geymd í tveggja tonna blokkum í
fimm til átta stiga frosti í tveimur vöru-
geymslum,“ segir Jens Thoms Ivarsson, sem
annast innanhússhönnun hótelsins.
Aðalsalur hótelsins er skreyttur með
íburðarmiklum ljósakrónum og íslistaverkum.
Stólar og rúm hótelsins eru einnig úr ís.
Í hótelinu eru sextán svítur sem eru álitnar
einstæð listaverk, hönnuð af listamönnum sem
eru valdir úr hópi meira en hundrað umsækj-
enda hvaðanæva úr heiminum.
Eigendurnir vilja ekki segja frá því hversu
mikið hótelið kostar á hverju ári en innanhúss-
munirnir einir kosta sem svarar 96 milljónum
króna.
Öllum upplýsingum um hönnun svítanna er
haldið leyndum þar til hótelið er opnað. Það
eina sem vitað er um hönnunina í ár er að lista-
mennirnir koma frá Frakklandi, Argentínu og
Bandaríkjunum.
Listaverk sem lifir í fimm mánuði
AFP
Íshöll Hótelið er gert úr ís úr ánni Torne og bráðnar eftir fimm mánuði. „Við skilum Torne því sem við fengum að láni,“ segir einn hönnuðanna.
AFP
Einstætt Verkamaður býr til dyr. Gestirnir sofa á ísrúmum sem eru klædd hreindýraskinnum.
Einstætt hótel reist
úr ís og snjó í 23. skipti
í Norður-Svíþjóð
Þing Úkraínu samþykkti í gær að
skipa Mykola Azarov aftur í embætti
forsætisráðherra eftir að tugir þing-
manna slógust í þingsalnum, annan
daginn í röð.
Þingmenn klifruðu upp á borð,
hrópuðu og stukku á andstæðinga
sína, slógu og spörkuðu í þá til að
mótmæla því að þingmenn greiddu
atkvæði fyrir fjarverandi félaga sína
með því að ýta á hnappa á borðum
þeirra. Þótt þingmennirnir eigi að
greiða atkvæði sjálfir er algengt að
þingmenn gangi á milli sæta til að
ýta á hnappa fjarverandi flokks-
bræðra sinna.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
reyndu að hindra að andstæðingar
þeirra kæmust að ræðupallinum en
stjórnarsinnum tókst að ýta þeim í
burtu.
Þingmaðurinn og hnefaleikakapp-
inn Vitali Klitschko tók ekki þátt í
slagnum. Hann hefur verið atvinnu-
maður í hnefaleikum, er nú heims-
meistari WBS í þungavigt og fékk
nýlega sæti á þinginu fyrir stjórnar-
andstöðuflokkinn UDAR („hnefa-
högg“).
Daginn áður þurfti að fresta kjöri
forsætisráðherra vegna slagsmála í
þingsalnum.
Slagsmál í tvo
daga í þinginu
AFP
Þingslagur Stjórnarsinnar og
stjórnarandstæðingar fljúgast á.
Börn, flest þeirra stúlkur, eru nú um 27% af þeim sem
seld eru mansali í heiminum og hlutfall þeirra hefur
aukist verulega á síðustu árum, samkvæmt nýrri
skýrslu stofnunar á vegum Sameinuðu þjóðanna sem
annast baráttu gegn fíkniefnum og glæpum (UNODC).
Stúlkur undir átján ára aldri eru um tveir þriðju
allra barna sem seld eru mansali og um 15-20% allra
þekktra fórnarlamba mansals í heiminum, að því er
fram kemur í árlegri skýrslu stofnunarinnar.
Skýrslan byggist á gögnum frá 132 löndum á ár-
unum 2007 til 2010. Konur eru í meirihluta meðal allra
fórnarlambanna, eða um 55-60% allra þeirra sem vitað
er að voru seld mansali á tímabilinu. Um 75% allra
fórnarlambanna eru konur eða stúlkur.
Hlutfallið er mismunandi eftir heimshlutum. Hundr-
aðshluti barna af þeim sem seld voru mansali var 68%
í Afríku og Mið-Austurlöndum og 39% í Suður-Asíu,
Austur-Asíu og Kyrrahafslöndum. Hlutfallið er lægra í
öðrum heimshlutum, 27% í Ameríkulöndum og 16% í
Evrópu og Mið-Asíu, að því er fram kemur í skýrsl-
unni.
Yuri Fedotov, yfirmaður UODC, viðurkennir í
fréttatilkynningu að þekkingin á umfangi mansals er
mjög gloppótt. Hann leggur áherslu á að afla þurfi
frekari gagna um fórnarlömbin, þá sem selja þau man-
sali og hvert þau eru seld. Áætlað er að fórnarlömb
mansals skipti milljónum.
Í skýrslunni kemur fram að fáir hafa verið sakfelld-
ir í mansalsmálum. Í 16% landanna var enginn sak-
felldur fyrir mansal á tímabilinu. bogi@mbl.is
Heimild: UNODC
44
36
49
15
47
9
Asía og
Kyrrahaf
Afríka og
Mið-Austurlönd
Alls í
heiminum
Konur
59 prósent
17
10
Drengir 14
Karlmenn
Stúlkur
68
39
51
44
5
Ameríka
27
Form glæpastarfsemi, %
Kynlífsþrælkun Nauðungarvinna Annað
16
62
31
7
Evrópa og Mið-Asía
Mansal í heiminum
Yfirvöld fundu 42.000 fórnarlömb mansals í heiminum á árunum 2007 til 2010
Hundraðshluti af
börnum sem seld
eru mansali
XX
Börnum sem seld eru mansali
hefur fjölgað hlutfallslega
util if. is
THE NORTH FACE
MCMURDO
DÚNÚLPA
68.990 kr.
HENTAR SÉRLEGA VEL
FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR.
HYVENT ÖNDUNARFILMA
VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR