Morgunblaðið - 14.12.2012, Page 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú finnur til samkenndar með þeim
sem minna mega sín í dag. Vertu varkár og
eyddu ekki of miklu fé í skemmtanir. Leggðu
áherslu á jákvætt hugarfar í uppeldinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Gefðu voninni byr undir báða vængi og
láttu ekkert aftra þér frá því að láta draum
þinn rætast. Reyndu að uppfylla eigin langan-
ir, það gerir það enginn fyrir þig að öllu leyti.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Af öllum líkindum ert þú sá allra
skemmtilegasti á heimilinu. Láttu nið-
urstöður úr rannsókn ekki koma þér á óvart
en notaðu þær eins og þér best hentar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki á hreinu í hvorn fótinn þú
vilt stíga í vissu máli. Það skiptir ekki öllu.
Vandamálin gufa upp á nýju ári og þú tekur
gleði þína aftur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Treystu á hæfni þína til að finna leiðir til
að auka tekjur þínar. Þú ert meistari í sam-
skiptum við erfiða einstaklinga. Láttu ljós þitt
skína á mannamótum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú getur lært margt um sjálfa/n þig
með því að skoða hvernig þú talar við aðra og
bregst við því sem þeir segja. Nú er rétti tím-
inn til að ganga að samningaborði, en lestu
smáa letrið vel.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að melta þá hluti sem nú valda
þér hugarangri. Vertu rólegur því þú munt
njóta árangurs erfiðis þíns í fyllingu tímans.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér kemur alveg ótrúlega vel
saman við aðra – það er eins og fólk skilji
fullkomlega allt sem þú segir. Slepptu takinu
á vandamáli og slakaðu á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gríptu strax í taumana áður en
smámálin hafa vaxið þér yfir höfuð. Sættir
eru að nást í erfiðri nágrannadeilu. Haltu upp
á daginn þegar það gerist.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að komast í burtu og
velta hlutunum fyrir þér. Haltu þig á mottunni
í eyðslunni. Það kemur að skuldadögum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Góðvild þín finnst þér sjálfsagður
hlutur. Dagurinn hentar vel til funda og ráð-
stefnuhalds þar sem hópsamræður verða að
öllum líkindum skemmtilegar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er allt á ferð og flugi í kringum
ykkur en ef þið gætið ykkar tekst ykkur að
halda ykkar hlut og hagnast á öllu saman.
Haltu þínu striki og láttu athugasemdir sem
vind um eyru þjóta.
Sérmerktur mjöður var að minnstakosti um skeið borinn á borð á
hátíðinni Bíldudals grænum í Bíldu-
dal og árið 2003 var hann merktur
Sigga Ben eða Sigurði Benjamínssyni
trésmið. Með þessu hefur verið
minnst þeirra karaktera sem sett
hafa svip á bæjarlífið. Ort var af því
tilefni:
Að mér sækir eymd og slen,
allt mér gengur á afturfótum.
Ég sat of lengi með Sigga Ben
seint um kvöld að Vegamótum.
Sigrún Haraldsdóttir bregður á
leik í limru:
Hann Jómbi var flinkur og flottur
hann flutti inn leirker og mottur
hann keypti sér úr
og kíki og skúr
þar sem hann ræktaði rottur.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á
Sandi, var fljót að taka undir:
Minn sonur í makindum sat
með sannkallað kræsingafat
við vel dúkað borð
en hann átti ekki orð
þegar rotturnar mættu í mat.
Það er gaman að fletta fésbókinni,
enda „statusarnir“ svonefndu sniðnir
að þörfum hagyrðinga. Elsa Aðal-
steinsdóttir setti á fésbók tvær vísur
eftir Árna Grétar Finnsson:
Þú ert það, sem öðrum miðlað getur,
og allar þínar gjafir lýsa þér
og ekkert sýnir innri mann þinn betur
en andblær hugans sem þitt viðmót
ber.
Því líkt og sólin ljós og yl þér gefur
og lífið daprast, ef hún ekki skín,
svo viðmót þitt á aðra áhrif hefur
og undir því er komin gæfa þín.
Það er ekki fyrirhafnarlaust að
vera hagyrðingur, eins og lesa má úr
orðum Ármanns Þorgrímssonar:
Ærslast ég um óðar völl með ærnu
striti
ef ég þarf að yrkja af viti
af mér rennur blóð og sviti.
Vísnagáta Páls Jónassonar úr bók-
inni Vísnagátum birtist í Vísnahorn-
inu í gær.
Ærslabelgur öllum þekk,
eftir henni Johnny gekk,
líka er hún lögð í sjó,
liggur alltaf meðfram snjó.
Lausnarorðið er: Lína.
1. Lína langsokkur.
2. Johnny Cash „I walk the line“.
4. Snjólína.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Eymd og slen og
Lína langsokkur
eftir Jim Unger
„JÁ, ÉG SKAL GIFTAST ÞÉR. EN BARA ÞAR
TIL ÉG FINN EINHVERN BETRI.“
HermannÍ klípu eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að tísta ykkar á milli.
Hér hvílir
Jón Gunnarsson
1954-2012
Söluhæsti
sölumaðurinn
2005-2012
GERIRÐU ÞÉR GREIN FYRIR HVAÐ KOSTAR AÐ HITA ÞENNAN KASTALA Á ÁRI?!
Hver segir að greinar þurfi að veraþurrar og leiðinlegar, sagði
Böddi prentari eftir að hafa gengið
frá enn einum góða pistlinum. Vík-
verji er sama sinnis og heldur sig
sólarmegin.
x x x
Björn Jóhann Björnsson segir frámörgu skemmtilegu í nýút-
komnum Skagfirskum skemmtisög-
um 2 - Meira fjöri. Þar á meðal er
saga af Pétri Sigurðssyni á Hjalta-
stöðum, en hann lést á líðandi ári, 93
ára að aldri.
„Í einni kórferð Heimis milli
landshluta var komið við í ónefndri
vegasjoppu og fengið sér að borða.
Spurði Pétur þá hvað væri á mat-
seðlinum. „Ég er með snitsel,“ svar-
aði matseljan. Pétur hugsaði sig um
og sagði: „Nú, já, ég hef fengið bæði
útsel og landsel, en aldrei smakkað
snitsel áður.““
x x x
Svo er það sagan af Sigmari.„Þegar tengdafaðir Sigmars
Þorleifssonar í Hólkoti í Unadal lá
banaleguna sótti hann lækni, sem lét
meðul af hendi handa sjúklingnum.
Stuttu síðar hitti Sigmar lækninn
sem fór að spyrja hvernig sjúklingn-
um liði.
,,Já, góði minn, honum líður vel,“
sagði Sigmar, „hann dó við aðra inn-
töku!“
x x x
Og að lokum af Jóhönnu SigríðiSigurðardóttur, fyrrverandi
prestsfrú á Miklabæ:
„Jóhanna var einu sinni á heimleið
eftir Blönduhlíðinni að kvöldi til er
hún ákvað að kíkja í heimsókn á
Hjaltastöðum til Ragnheiðar Þór-
arinsdóttur, vinkonu sinnar. Jó-
hanna kom inn í eldhúsið en þá var
Ragna nýbúin að ganga frá öllu eftir
kvöldverðinn og spurði gestinn:
„Varstu nokkuð búin að borða, Jó-
hanna mín?“ Hún viðurkenndi að
svo væri ekki og þá spurði Ragna
hvort hún vildi ekki fá sér smá bita.
„Jú, þakka þér fyrir,“ svaraði
prestsfrúin. Ragna fór þá að stúss-
ast með kjötkássuna í pottinum og
sagði um leið og hún brosti út í ann-
að: „Ég ætlaði hvort eð er að gefa
hundunum þetta!“
víkverji@mbl.is
Víkverji
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið
hvert annað eins og ég hef elskað yður.
(Jóhannesarguðspjall 15:12)
Fátt er betra fyrir meltinguna
á aðventunni en
3PRÓGASTRÓ DDS PLÚS®
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Sykur
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
100%
NÁTTÚRULE
GT
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
2 hylki af PRÓGASTRÓ fyrir stóra
máltíð getur létt á meltingunni.
PRÓGASTRÓ inniheldur hinn öfluga
asídófílus DDS1 sem bæði gall- og
sýruþolin.
www.gengurvel.is
Góð jólagöfhanda þeimsem allt eiga.
Góða
melting
um jólin!