Morgunblaðið - 18.01.2013, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.01.2013, Qupperneq 25
Rigning Regnhlífar komu höfuðborgarbúum að góðum notum í gær en utan stöku hverfandi snjóskafla er ósköp fátt í þessari hlýindatíð sem minnir á veturinn. 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2013 Ómar Aðfaranótt 22. desember sl. sam- þykkti Alþingi frumvarp til laga um loftlagsmál sem varðar skráningarkerfi losunarheimilda. Málinu hafði ítrekað verið frestað og endaði sem síðasta mál þingsins fyrir jólahlé. Minni hluti um- hverfis- og samgöngunefndar skilaði 17 blaðsíðna faglegu lögfræðilegu áliti ásamt fylgiskjölum um að frumvarpið fæli í sér framsal á fullveldi Íslands, á framkvæmdavaldi og dómsvaldi til ESB og bryti gegn stjórnarskránni. Í nið- urstöðu minni hlutans segir orðrétt: „Ljóst er að núgildandi stjórnarskrá heimilar ekki framsal opinbers valds til alþjóðlegra stofn- ana. Minnt er á þá megin lögskýringarreglu að túlka beri alla vafa stjórnarskránni, lýðveldinu og einstaklingum í hag. Túlkun meirihlutans er and- stæð þessari grundvallar lögskýringarreglu. Hún felur í sér þrönga lagahyggju sem gagnrýnd var í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og skýrslu þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rann- sóknarnefndar Alþingis.“ Með öðrum orðum, þessi þrönga lagahyggja sniðgengur stjórnarskrána. Niðurstaða minni- hlutans er beinlínis viðurkennd í frumvarpi til stjórnskipunarlaga sem Alþingi hefur til umfjöll- unar. Þar er brugðist við „vandanum“ með ákvæði sem heimilar valdframsal með ákveðnum skilyrðum. Og niðurstaða einnig afdráttarlaust samþykkt í „Greinargerð um breytingar á stjórn- arskrá sem tengjast mögulegri aðild að Evrópu- sambandinu og leiðir til að leita samþykkis þjóð- arinnar fyrir aðild.“ Þessi greinargerð var unnin af ESB-samningahópi utanríkisráðherra um laga- lega málefni og er dagsett 22. október 2012. Ut- anríkisráðherra hefur hvorki hampað þessari greinargerð né blásið til fjölmiðla, enda ekki bjart yfir Betlehemsumsókn að ESB samkvæmt greinargerðinni. Í lokaorðum greinargerðarinnar segir meðal annars orðrétt: „Mikilvægasta álitaefnið lýtur að breytingum sem nauðsynlegt er að gera á stjórnarskránni, einkum varðandi heimild til að framselja vald til alþjóðastofnana, hvaða skilyrði skuli setja fyrir slíku framsali og hvaða reglur skuli gilda um málsmeðferð við slíka ákvörðun.“ Síðar segir: „Eðlilegt að undirbúningur verði þegar hafinn að breytingu á stjórnarskrá í þessu skyni og miðað við að þær yrðu samþykktar í síðasta lagi á vor- þingi 2013 áður en næstu reglulegu kosningar fara fram. Setja ætti þetta mál í forgang, án til- lits til þess hvort víðtækari breytingar verði gerðar á stjórnarskránni samkvæmt tillögum stjórnlagaráðs eða hvort samningaviðræðum við ESB verði lokið við það tímamark. Þegar aðild- arsamningur liggur fyrir mun málsmeðferð um samþykki Al- þingis fylgja þeim reglum sem koma fram í hinu nýja stjórn- arskrárákvæði.“ Þrátt fyrir þessa afdrátt- arlausu niðurstöðu var frum- varpið um loftslagsmál, sem felur í sér skýrt valdframsal, keyrt í gegnum Alþingi að næturlagi og samþykkt umræðulítið. Stjórn- arskráin var fótum troðin þessa nótt. Minnihluti umhverfis- og samgöngunefndar krafðist þess að málið fengi ítarlega umfjöllun nefndarinnar, utanríkismálanefndar, stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar, stjórnskipunarsérfræð- inga, réttarfarsnefndar og skrifstofu Alþingis. Þessi krafa var hunsuð. Þess í stað var þingfundi að kvöldi 21. desember sl. frestað og sameig- inlegur fundur utanríkismálanefndar og umhverf- is- og samgöngunefndar haldinn með gestum frá Icelandair, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og áliðnaðarins og sérfræðingum utan- ríkismálaráðuneytisins sem viðruðu miklar fjár- hagslegar áhyggjur. Ný lögskýringarregla kom fram. Réttlætanlegt sé að brjóta stjórnarskrána ef miklir meintir fjárhagslegir hagsmunir eru í húfi. Þetta var hótanafundur skipulagður af framkvæmdavaldinu sem slíkur. Þannig var um hnúta búið og þeir héldu. Fjórir þingmenn greiddu atkvæði gegn frumvarpinu og með stjórnarskránni en þingmenn Sjálfstæðisflokksins o.fl. sátu hjá. Eftir fundinn velti ég því fyrir mér hvernig lönd utan Evrópu, Kína, Bandaríkin, Indland, Ástralía, ríki Suður-Ameríku og svo mörg fleiri gætu lifað án ESB. Eitt er víst, umsóknarferlið að ESB er í öng- stræti. Það verður ekki lengra gengið í aðlögun íslenskra laga að regluverki ESB án þess að breyta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Össur, bakdyraleiðin sem farin hefur verið til þessa við ESB-umsóknarferlið dugir ekki lengur. Hættum að blekkja þjóðina og horfumst í augu við stað- reyndir. Fróðleiksfúsum bendi ég á álit minnihluta um- hverfis- og samgöngunefndar á heimasíðu Al- þingis, þingskjal 812 – 381 mál. Eftir Atla Gíslason » Það verður ekki lengra gengið í aðlögun íslenskra laga að regluverki ESB án þess að breyta stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Atli Gíslason Höfundur er alþingismaður. Össur, víglína ESB-umsóknarinnar er um stjórnarskrána Samþykkt Alþingis 14. janúar sl. á þings- ályktun um vernd og orkunýtingu land- svæða, svonefnd Rammaáætlun, telst til tíðinda, bæði í þing- sögunni og í vinnu að náttúruvernd og skipu- lagi hérlendis. Sam- þykktin byggist á stefnumarkandi ferli sem staðfest var með lögum sem samþykkt voru sam- hljóða vorið 2011. Þótt ekki hafi ríkt jafn mikil eindrægni um þingsálykt- unina fékk hún þó meiri stuðning en búist var við fyrirfram, 36 þingmenn greiddu atkvæði með en 21 á móti. Ég hygg að sjaldan eða aldrei hafi jafn margir innan og utan Alþingis komið að undirbúningi máls og látið sig það varða á mótunarstigi þann röska áratug sem Rammaáætlun hefur verið í mótun. Þessi áhugi fer saman við aukin kynni fólks af land- inu, einkum óbyggðunum, og vax- andi skilning á gildi náttúruverndar. Sögulegt baksvið Rætur Rammaáætlunar liggja rösk 40 ár til baka og eru í senn rammíslenskar og alþjóðlegar. Deila mývetnskra bænda við stjórn Laxárvirkjunar um vatnsmiðlun í Mý- vatni og sprenging Miðkvíslarstíflu í ágúst 1970 féllu saman við náttúruverndarár Evr- ópu og setningu nýrrar löggjafar um nátt- úruvernd. Nátt- úruverndarráð undir formennsku Eysteins Jónssonar 1972-1978 tók strax upp viðræður við yfirvöld orkumála og næstu áratugina starfaði Samstarfsnefnd iðn- aðarráðuneytisins og Náttúruvernd- arráðs um orkumál (SINO-nefndin). Ráðið sendi árið 1975 tvo fulltrúa, undirritaðan og Vilhjálm Lúðvíks- son, til Noregs til að kynna sér sam- spil náttúruverndar- og iðnaðar- stefnu þarlendis. Norðmenn höfðu þá nýlega komið á fót umhverf- isráðuneyti og fyrir forgöngu þess og Stórþingsins varð til fyrsta „Ver- neplan for vassdrag“ þarlendis sem síðan hefur verið þróað í áföngum. Á Alþingi veturinn 1984-1985 flutti ég tillögu um úrbætur í umhverf- ismálum og náttúruvernd þar sem sagði m.a.: „Náttúruverndarráð undirbúi í samráði við yfirvöld orkumála áætl- un um verndun vatnsfalla og jarð- hitasvæða, fossa og hvera. Slík áætl- un verði lögð fyrir Alþingi til kynningar og staðfestingar.“ Endurflutt tillaga um sama efni var samþykkt sem ályktun Alþingis vorið 1989. Það tók framkvæmda- valdið hins vegar áratug að hefjast handa á grundvelli hennar og veita fé til vinnu að verkefninu sem fékk nafnið Rammaáætlun. Margslungið ferli Vinnan að Rammaáætlun hefur þróast og tekið breytingum stig af stigi frá því fyrsta verkefnisstjórnin hóf störf um síðustu aldamót. Fram- an af var áherslan nær eingöngu á vatnsföll en vinna að mati á jarð- varmasvæðum hófst fyrst að marki árið 2005. Jafnframt færðust áherslur stjórnar og faghópa yfir á að meta verndargildi svæða án orkunýtingar. Í tengslum við starfið kom æ betur í ljós þörfin á meiri upplýsingum um náttúrufar, jafn- framt því að nýir matsþættir eins og landslag bættust við og kölluðu á breytta aðferðafræði og nýjar áherslur. Gagnrýni ýmissa alþing- ismanna að undanförnu, einkum í stjórnarandstöðu, um að í meðförum ráðuneyta og meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis hafi verið horfið frá „vísindalegum nið- urstöðum“ verkefnisstjórnar og fag- hópa, er að mínu mati á misskilningi byggð. Hér er um flókið og gagn- virkt ferli að ræða, þar sem saman tvinnast náttúrufræðilegir og sam- félagslegir þættir sem og sið- fræðileg álitamál. Í þeim efnum er ekki komið á neina endastöð, en mikilvæg leiðsögn um verkferlið felst í lögum nr. 48/2011. Jarðvarminn í óvissu Það hefur smám saman komið í ljós hve mikið skortir á fullnægjandi aðferðafræði í mati á jarðvarma há- hitasvæða landsins, ekki síst til raf- orkuframleiðslu. Varðar það m.a. spurningar um sjálfbæra notkun slíkra svæða, svo og mengun og meðferð affallsvatns. Veigamesta gagnrýnin á lokatillögur um flokkun orkukosta snertir þá málsmeðferð að setja jarðhitasvæði eins og Bjarnarflag og háhitasvæði Reykja- nesskaga frá Krýsuvík út á Reykja- nestá í orkunýtingarflokk í stað þess að þau ættu flest heima í verndar- eða biðflokki. Slík stefna getur að mínu mati ekki staðist til fram- búðar. Hvað jarðhitann snertir bíð- ur því stórt viðfangsefni næstu verkefnisstjórnar. Annar þáttur, sem að mestu hefur legið utan við verksvið Rammaáætlunar hingað til, eru flutningslínur raforku sem þó hafa síst minni umhverfisáhrif en einstakar virkjanir. Brýnt er því að orkuflutningur verði metinn jafn- hliða hugmyndum um verndun og röðun virkjanakosta. Jafnhliða þarf að verða til vitræn orkustefna, þar sem leitast er við að skilgreina tak- mörk vinnslu og ná víðtækri sátt um sem flesta þætti. Margir lagt hönd á plóg Í vinnu að mati á vernd og orku- nýtingu hafa fjölmargir komið síð- ustu áratugi. Þar hafa tekist á miklir hagsmunir, ólík sjónarmið og oft heitar tilfinningar. Verndarhugs- unin hefur upp á síðkastið verið í sókn og áhugamenn um virkjanir og orkufrekan iðnað þurft að draga í land. Slíkt er heilbrigt og end- urspeglar styrk í lýðræðislegu ferli. Við Íslendingar búum vel að end- urnýjanlegum en takmörkuðum orkulindum. Það sama á við um landið sjálft, víðerni þess og töfra. Um leið og við fögnum góðum áfanga skulum við strengja þess heit að gera enn betur næst. Eftir Hjörleif Guttormsson » Sjaldan eða aldrei hafa jafn margir komið að undirbúningi máls og látið sig það varða á mótunarstigi. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Rammaáætlun – Áfangi á langri leið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.