Morgunblaðið - 18.01.2013, Síða 43
Birgir hefur starfað mikið í Blæð-
arafélagi Íslands, hefur setið í
stjórn þess frá 2008 og er formaður
félagsins frá 2010. Hann hefur
starfað í Sjálfstæðisflokknum um
árabil, situr í stjórn Félags sjálf-
stæðismanna í Háaleitishverfi frá
2000 og er formaður félagsins frá
2010. Þá situr hann í stjórn Varðar
– fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík og í utanríkismálanefnd
flokksins. Hann situr auk þess í
stjórn Heimssýnar frá 2011.
Skólameistari í Skák
Birgir er fljótur að svara þegar
hann er spurður um áhugamál.
Hann hefur áhuga á skák, brids og
lestri góðra bóka: „Ég var nú ekk-
ert undrabarn í skák því ég hef lík-
lega verið orðinn 12 ára þegar ég
byrjaði að tefla. En svo tefldi ég
töluvert mikið á unglingsárunum og
ég man að ég náði að verða skóla-
meistari í Fjölbrautaskólanum við
Ármúla.
Með árunum dró ég svo úr tafl-
mennskunni og það var orðið hend-
ing að maður tefldi þó að maður
fylgdist alltaf með því sem var efst
á baugi í skákheiminum og hefði
gaman af skákþrautum.
Í seinni tíð hef ég hins vegar far-
ið að tefla aftur, hef teflt töluvert á
netinu og tefldi t.d. með Skák-
sambandi Sauðárkróks á síðasta Ís-
landsmóti félagsliða.
Ég var svo heldur ekkert bráð-
þroska í spilamennskunni því ég
byrjaði ekki að spila brids fyrr en
um tvítugt. En ég hef haldið mig
betur að spilamennskunni en skák-
inni, hef verið meðlimur í Bridge-
félagi Kópavogs um árabil, spila þar
reglulega, hef oft keppt fyrir félagið
og nokkrum sinnum orðið Reykja-
nesmeistari með því í tvímenningi
og sveitakeppni.“
Og svo lestu góðar bækur seg-
irðu. En hvað eru „góðar bækur“?
„Það eru þær bækur sem vekja
áhuga minn. Það er líklega fulldjúpt
í árinni tekið að segja að ég sé
alæta á bækur. En ég hef verið sí-
lesandi frá því ég var krakki og á
það til að detta ofan í rit um hin
ólíklegustu efni, allt frá eðlisfræði
til guðfræði.
Svo les ég mikið glæpareyfara en
þar er Yrsa Sigurðardóttir í uppá-
haldi hjá mér.“
Fjölskylda
Systkini Birgis eru Sigurður Þór
Steingrímsson, f. 21.3. 1961, flug-
virki, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Fjóla Karlsdóttir kennari
og eru börn þeirra Brynjar, Birkir
og Hinrik; Eva Matthildur Stein-
grímsdóttir, f. 20.1. 1964, hjúkr-
unarfræðingur, búsett í Reykjavík,
en maður hennar er Ágúst Ólafsson
vélvirki og eru börn þeirra Elva,
Steingrímur og Arnar Logi; Einar
Már Steingrímsson, f. 1.1. 1966,
byggingatæknifræðingur í Noregi
en kona hans er Sigþrúður Karls-
dóttir tækniteiknari og eru börn
þeirra Hilmar, Lilja og Finnur.
Foreldrar Birgis eru Steingrímur
Th. Þorleifsson, f. 27.4. 1932, bygg-
ingatæknifræðingur, og Ethel Ma-
rita Þorleifsson, f. 17.2. 1934, ljós-
móðir.
Úr frændgarði Birgis Arnar Steingrímssonar
Birgir Örn
Steingrímsson
Agnes Serafina Bark Jäderholm
húsfr. í Åbu
Leonard Jäderholm
verksmiðjuverkst. í Åbu í Finnlandi
Ethel Marita Þorleifsdóttir
ljósmóðir, af finnskumættum
Anna Sigríður Jónsdóttir
vinnuk. í Geitaskarði
Sigurlaug Hansdóttir
húsfr. í Sólheimum
Þorleifur Ingvarsson
b. í Sólheimum
Steingrímur Th. Þorleifsson
byggingatæknifræðingur
Kristín Gísladóttir
húsfr. í Sólheimum
Ingvar Þorleifsson
hreppstj. í Sólheimum
Fjóla Þorleifsdóttir
ljósm. á Sauðárkróki
Ingvar Þorleifsson
b. í Sólheimum
Guðmundur Örn Ingólfsson
líffræðingur
Þorleifur Ingvarsson
b. í Sólheimum
Afmælisbarnið Birgir Örn Steingrímsson spókar sig á götu í New York.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 2013
Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16
afsláttur
FAMA 3ja sæta sófi 230 cm áður kr. 254.400 nú kr. 199.900
ÚTSALA
Frábært úrval af púðum á
20 - 50% afslætti
METRO leðurstóll
áður kr. 121.900
nú kr. 85.330
TAKMARKAÐ MAGN AF HVERRI VÖRU
20%
afsláttur
30%
afsláttur
30 ára Teitur ólst upp á
Akureyri, hefur stundað
sjómennsku um árabil og
er nú bílstjóri hjá Land-
flutningum á Akureyri.
Dóttir: Aníta Líf Teits-
dóttir, f. 2006.
Systur: Tinna Ösp, f.
1991, og Berglind Ösp, f.
1994.
Foreldrar: Kamilla Han-
sen, f. 1964, hjúkrunar-
fræðingur, og Viðar Frosti
Pálmason, f. 1963, verk-
taki á Akureyri.
Teitur Örn
Viðarsson
30 ára Heiðrún lauk próf-
um frá háskólabrú Keilis
og stundar nú kennara-
nám við HA.
Systkini: Sólrún P. Garð-
arsdóttir, f. 1981; Björgvin
A. Garðarsson, f. 1991, og
Kristófer D. Garðarsson,
f. 1997.
Foreldrar: Garðar Jóns-
son, f. 1964, málara-
meistari á Akranesi, og
Lára Hagalín Björgvins-
dóttir, f. 1963, leikskóla-
kennari.
Heiðrún Sif
Garðarsdóttir
30 ára Helgi fæddist í
Grindavík og er lyfjafræð-
ingur við Lyfju í Keflavík.
Maki: Íris Thordersen, f.
1982, nemi í næringar-
fræði.
Sonur: Heimir Gamalíel,
f. 2007. Stjúpdóttir: Elísa,
f. 2009.
Foreldrar: Helgi Gam-
alíelsson, f. 1947,
starfsm. við Hitaveitu
Suðurnesja, og Svandís
Guðmundsdóttir, f. 1949,
verslunarmaður.
Helgi Már
Helgason
90 ára
Dóra Magnúsdóttir
Kristín Eyvindsdóttir
Sigríður Þórðardóttir
85 ára
Einar Þ. Hjaltalín Árnason
Tryggvi Árnason
80 ára
Sigrún Jónsdóttir
75 ára
Guðrún Ágústa
Sigurðardóttir
Sigrún Sigurðardóttir
70 ára
Alma V. Sverrisdóttir
Edda M. Halldórsdóttir
Jónína Á. Hallgrímsdóttir
Kjartan Kjartansson
Kristín Hermannsdóttir
Margrét Schram
Sigurður Jóhannsson
Tómas Sigurðsson
60 ára
Ásta Friðjónsdóttir
Guðný Anna Tórshamar
Guðrún Björnsdóttir
Ingibjörg Bryndís
Árnadóttir
Sesselja Svava
Svavarsdóttir
Þorbjörg Ingvadóttir
50 ára
Aðalbjörg Þorvarðardóttir
Anna Kristín Halldórs-
dóttir
Barbara Lewocz
Guðlaugur Pálsson
Guðmundur Sigurðsson
Hjördís Aðalsteinsdóttir
Kristín Vilhjálmsdóttir
Snorri Örn Hilmarsson
Særún Steinunn
Bragadóttir
Þórunn Jóhanna
Sigurðardóttir
40 ára
Auður S. Arndal
Bjarki Guðmundsson
Engilbert Gylfason
Grétar Aðils Maríuson
Gunnlaugur Jónsson
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
Kristborg Erla Bjarnadóttir
Sigurbjörn Knudsen
Sigurður Freyr Hafstein
Viðar Ágústsson
Yrma Luz Rosas Rengifo
30 ára
Aasa Elisabeth Emelie
Ljungberg
Atli Geir Gunnarsson
Björn Ingi Björnsson
Dagný Sverrisdóttir
Davíð Ingi Ragnarsson
Dröfn Sæmundsdóttir
Edda Katrín Einarsdóttir
Guðrún Lára
Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir Boyd
Jonathan Leslie King
Van Cam Vu
Þorlákur Helgi Hilmarsson
Til hamingju með daginn
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Jóhannes fæddist að Vallakoti íReykjadal í Suður-Þingeyjar-sýslu 18.1. 1874.
Jóhannes var einn merkasti at-
hafnamaður og framfarasinni síð-
ustu aldar. Hann stundaði trésmíða-
nám á Akureyri og síðan þriggja ára
framhaldsnám í Kaupmannahöfn.
Heim kominn festi Jóhannes ráð
sitt og settist að í Hafnarfirði, stund-
aði húsbyggingar, reisti verksmiðju
við Lækinn í Hafnarfirði, keypti til
landsins átta fullkomnar trésmíða-
vélar og lét vatnsorkuna knýja vél-
arnar. Hjá honum störfuðu að jafn-
aði 12 manns.
Næsta skref þessa eldhuga var að
nýta vatnsorkuna betur með raf-
orku. Hann festi kaup á rafal í Nor-
egi, fékk fyrsta íslenska raffræðing-
inn, Halldór Guðmundsson, til að
koma honum fyrir en einn af tré-
smiðum Jóhannesar sá um raflagnir.
Hér var komin til sögunnar fyrsta
virkjun og rafstöð til almennings-
nota á Íslandi en hún tók til starfa
12.12. 1904. Ljós voru kveikt í verk-
smiðjunni, Góðtemplarahúsinu,
Barnaskólanum og þrettán öðrum
húsum og á fjórum götuljósum í
Hafnarfirði. Rafvæðing var hafin á
Íslandi.
Jóhannes átti eftir að bæta nýju
vatnshjóli við virkjunina og reisa síð-
an nýja rafstöð á Hörðuvöllum sem
þá fullnægði allri eftirspurn eftir
rafmagni í Hafnarfirði. Hún tók til
starfa haustið 1906 og framleiddi 37
kW.
Jóhannes seldi Hafnarfjarðarbæ
virkjanirnar og trésmiðunum verk-
smiðjuna en keypti sjálfur jörðina
Setberg og hóf þar myndarbúskap.
Hann var lengi með 20 kýr í fjósi og
um 200 ær, keypti fystu mjaltavélina
sem kom til landsins og fyrstu drátt-
arvélina, en hún var með framdrifna
vél sem hægt var að tengja við ýmis
vinnutæki. Jóhannes reisti síðan enn
eina rafstöðina við Lækinn, árið
1917. Þá reisti hann timburverslun
og trésmiðju við Setbergsbæinn og
loks reisti hann íshús í Hafnarfirði
sem framleiddi ís fyrir togara Hafn-
firðinga.
Merkir Íslendingar
Jóhannes
Reykdal