Morgunblaðið - 16.02.2013, Síða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2013
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
hlýtur heiðursverðlaun Íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 2012, en
þetta var tilkynnt í gær. Þorgerður
þykir hafa unnið ómetanlegt frum-
kvöðulsstarf í tónlist og menningar-
uppeldi. Hún stofnaði Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð árið 1967 og
árið 1982 framhaldskór hans,
Hamrahlíðarkórinn. Undir forystu
Þorgerðar hafa kórarnir tveir hald-
ið fjölda tónleika innanlands og
komið fram í 23 löndum heims, m.a.
á mörgum helstu kórhátíðum ver-
aldar í Evrópu, Asíu og Norður-
Ameríku.
Þorgerður stundaði alhliða tón-
listarnám frá sjö ára aldri. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1963, tón-
menntakennaraprófi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1965 og nam í
kjölfarið tónvísindi og kórstjórn á
meistarastigi við University of Ill-
inois í Bandaríkjunum.
Formlegt tónlistarnám hefur hún
einnig stundað í Austurríki og Bret-
landi og nam að auki guðfræði um
tíma við Háskóla Íslands. Auk þess
að stjórna Hamrahlíðarkórunum
kenndi Þorgerður við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík í tæp þrjátíu ár.
Hún er einn af stofnendum Al-
þjóðlega kórasambandsins og á sæti
í ráðgjafarnefnd Heimsleikanna í
kórtónlist. Þorgerður var að-
alstjórnandi æskukórsins Radda
Evrópu sem var viðamesta sam-
starfsverkefni menningarborga
Evrópu árið 2000.
Þorgerður hefur hlotið margvís-
lega viðurkenningu fyrir störf sín
og list, s.s. Bjartsýnisverðlaun
Bröstes, menningarverðlaun DV,
heiðursverðlaun Samfélags-
verðlauna Fréttablaðsins, ridd-
arakross Hinnar íslensku fálkaorðu,
stórriddarakross Hinnar kon-
unglegu norsku heiðursorðu og í
fyrra var hún útnefnd borgar-
listamaður Reykjavíkur árið 2012.
Þorgerður heiðursverðlaunahafi
Heiðruð Þorgerður Ingólfsdóttir.
Magnús Leifsson og Ingibjörg Birg-
isdóttir eru bæði með tvær tilnefn-
ingar til Íslensku tónlistarverð-
launanna fyrir bestu tónlistar-
myndbönd og plötuumslög ársins
2012. Þetta var tilkynnt í gær, en
valið var í höndum fagnefndar sem
skipuð var þeim dr. Gunna, Dögg
Mósesdóttur og Goddi.
Fyrir tónlistarmyndböndin eru
tilnefndir Máni Sigfússon fyrir lag-
ið „Black Shore“ með Úlfi; Addi At-
londres, Þorgeir F. Óðinsson og
Einar Bragi Rögnvaldsson fyrir
„Curling“ með Sykri; Magnús
Leifsson fyrir „Delorean“ með FM
Belfast; Magnús Leifsson fyrir
„Glow“ með Retro Stefson og And-
rew Thomas Huang fyrir „Mutual
core“ með Björk.
Fyrir plötuumslög eru tilnefnd
Ingibjörg Birgisdóttir og Orri Jóns-
son fyrir plötuna The Box Tree
með Skúla Sverrissyni og Óskari
Guðjónssyni; Ingibjörg og Lilja
Birgisdætur fyrir Valtara með Sig-
ur Rós; Bobby Breiðholt fyrir Born
To Be Free með Borko; Halli Cive-
lek fyrir Retro Stefson með sam-
nefndri hljómsveit og Ragnar Fjal-
ar Lárusson fyrir Ojba Rasta
sömuleiðis með samnefndri hljóm-
sveit.
Tilkynnt verður hverjir sig-
urvegararnir eru í Kastljósi RÚV á
næstu dögum, en sjálf tónlist-
arverðlaunin verða afhent í Hörpu
nk. miðvikudagskvöld.
Plötuumslag Born til be free með
Borko er meðal tilnefndra umslaga.
Plötuumslög og
myndbönd tilnefnd
Norrænu tónlistarverðlaunin eða
Nordic Music Prize féllu í skaut
sænsku systrunum í First Aid Kit
fyrir plötuna The Lion’s Roar.
Verðlaunin voru afhent á tónlist-
arhátíðinni by:Larm sem fram fór í
Ósló í liðinni viku. Þetta er í þriðja
sinn sem verðlaunin eru veitt, en
fyrri sigurvegarar eru Jónsi og
hinn sænski Goran Kajfeš.
Tólf manna alþjóðleg dómnefnd
valdi vinningsplötuna, en lögð er
áhersla á listrænt innihald fremur
en frægð og hve markaðsvænar
plöturnar eru. Í umsögn dómnefnd-
ar segir m.a. að tónlist systranna sé
„einstök, laglínurnar tímalausar og
samhljómur þeirra nístandi fal-
legur“. Verðlaunaféð nemur 20.000
evrum sem samsvarar tæpum
þremur og hálfri milljón íslenskra
króna.
Framlag Íslands þetta árið voru
plata Ásgeirs Trausta, Dýrð í
dauðaþögn, og svo þriðja plata
Retro Stefson, sem er samnefnd
hljómsveitinni.
Systur Klara og Johanna Söderberg
skipa þjóðlagadúóið First Aid Kit.
Ljónsöskur
sænskra systra
KRÓNUTILBOÐ
FLUGFELAG.IS
PANTAÐU
Í DAG,
EKKI Á M
ORGUN,
JÁ Í DAG!
ÓDÝRT!
Aldeili
s isl
en
sk
a/
si
a.
is
FL
U
62
78
2
02
’1
3
1 króna fyrir barnið aðra leiðina + flugvallarskattar
(skattar eru 1.725 kr. frá Reykjavík og 1.550 kr. frá öðrum áfangastöðum innanlands)
18. febrúar – 4. mars 2013
Þetta einstaka tilboðsfarg jald
• gildir til allra áfangastaða Flugfélags Íslands innanlands
• er fyrir börn, 2–11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun
• býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is