Morgunblaðið - 01.03.2013, Qupperneq 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við erum að ljúka okkar vinnu og
taka frumvarpið úr nefndinni. Við
erum búin að leggja fram breytinga-
tillögur. Málsmeðferðin í þinginu er
hins vegar ófrágengin. Eftir því sem
ég best veit er ekki búið að semja um
hana,“ sagði Lúðvík Geirsson, þing-
maður Samfylkingar og einn fulltrúa
meirihlutans í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd, um stöðu stjórnar-
skrármálsins í þinginu.
„Okkar vinna í nefndinni hefur
gengið út á heildstæða yfirferð á öllu
frumvarpinu, öllum tillögunum, og
það sem við höfum skilið eftir fór til
Feneyjanefndarinnar, meðal annars
stjórnskipunarkaflinn. Við erum að
yfirfara hann. Stærstu breytingarn-
ar snúa að mannréttindakaflanum.
Það er verið að raða þeim kafla upp á
nýtt með vísan til ábendinga Fen-
eyjanefndarinnar,“ segir Lúðvík en
nefndin gerði athugasemdir við að
ýmis ákvæði í mannréttindakaflan-
um væru ekki nógu skýr. Það gæti
valdið erfiðleikum í túlkun.
Kaflanum ekki breytt mikið
Nefndin fann m.a. að því að ekki
væri gerð aðgreining á milli hefð-
bundinna mannréttindaákvæða og
ávæða sem varða félagsleg réttindi
og réttindi sem kveða á um skyldur
ríkisins gagnvart einstaklingum, svo
sem í gegnum mennta- og heilbrigð-
iskerfið. Lúðvík segir breytingarnar
sem gerðar hafi verið á II. kafla
stjórnarskrárfrumvarpsins, Mann-
réttindi og náttúra, ekki miklar.
„Efnislega eru það ekki stórfelld-
ar breytingar. Hann er settur fram
með öðrum hætti. Orðalag er styrkt
sem og skýringar en það snýr fyrst
og fremst að því að raða saman hlut-
unum. Samfélagslegir þættir og um-
hverfislegir eru teknir í sérstakan
kafla. Uppröðunin er með öðrum
hætti. Áherslan var á að greina þetta
betur þannig að þetta væri ekki allt í
einni heild heldur meira flokkað í
sundur. Mannréttindakaflinn er
settur fram með öðrum hætti en
grunngildin eru hin sömu.“
– Verða einhverjar greinar teknar
út og skoðaðar síðar?
„Nei. Það er ekkert sett á ís. Það
er verið að skerpa á textanum og
samræma hann innbyrðis og taka til-
lit til þeirra ábendinga sem við töld-
um mikilvægastar í áliti Feneyja-
nefndarinnar.“
– Ertu sáttur við stöðu málsins?
„Ég er fyrst og fremst sáttur við
að það sé búið að ljúka þessari
heildaryfirferð og taka tillit til allra
þeirra athugasemda sem fram hafa
komið. Þær hafa verið fjölmargar og
við höfum horft til þeirra sem við
teljum að séu til bóta og styrki þetta
frumvarp.“
Skammur tími eftir
– Verða gerðar fleiri breytingar á
textanum eftir helgi?
„Nei. Ég á ekki von á því.“
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
flokkssystir Lúðvíks og Valgerðar
og einn fulltrúa meirihlutans í nefnd-
inni, segir ríkisstjórnina munu róa
öllum árum að því að ljúka málinu.
„Það er ljóst að það er skammur
tími eftir af þessu þingi en stjórnar-
meirihlutinn hefur staðið með þessu
máli frá upphafi og mun gera allt
sem í hans valdi stendur til að geta
lokið því.“
– Er raunhæft að afgreiða málið
fyrir þingfrestun 15. mars nk.?
„Tíminn er vissulega skammur.
Unnið hefur verið í málinu á grund-
velli tillagana stjórnlagaráðs. Það er
það sem þjóðaratkvæðagreiðslan fól
okkur að gera. Síðan hefur sérfræð-
ingahópur gert tillögur að breyting-
um. Þá hafa tillögur komið fram í
umsögnum ýmissa aðila og frá Fen-
eyjanefndinni. Það var farið yfir
þessi sjónarmið og gerðar ýmsar
breytingar á frumvarpinu en alltaf
hefur það verið haft að leiðarljósi að
fylgja anda stjórnlagaráðs,“ segir
hún.
Vantraust enn
inn í myndinni
Spurður út í stöðu málsins vildi
Þór Saari gæta trúnaðar gagnvart
viðsemjendum sínum.
„Það er verið að reyna að finna
lausn. Það eru ýmsar lausnir uppi á
borðinu sem er ekki rétt að vera að
tjá sig mikið um á þessu stigi.“
– Verður stjórnarskrárfrumvarpið
afgreitt fyrir þinglok?
„Ég veit það ekki enn þá. Það
kemur sennilega í ljós fyrir lok þess-
arar viku eða á mánudaginn.“
– Ertu að íhuga að draga fram
vantrauststillöguna á ný?
„Það kemur líka í ljós á þeim tíma.
Þetta er allt í deiglu. Það er ekkert
hægt að segja um þetta enn þá.“
Gunnar Bragi Sveinsson, formað-
ur þingflokks Framsóknarflokksins,
sagði engar umræður hafa farið
fram milli þingflokksformanna eða
formanna flokkanna um framhald
málsins.
Viðamiklar breytingar
Mannréttindakafli stjórnarskrárfrumvarpsins tekur breytingum í meðförum
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Enn er ósamið um framhald málsins á þingi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Á fundi Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, lítur upp frá skjölum.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins og einn full-
trúa minnihlutans í stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd, segir fundi
hafa verið seinkað um málið í gær
sökum þess hve viðamiklar breyt-
ingarnar séu.
„Það var fundur á miðvikudag
og þar var boðað að taka ætti
framhaldsnefndarálit út úr nefnd-
inni til að umræður gætu hafist í
þinginu. Álitið var langt frá því að
vera tilbúið og þó nokkuð mörgum
breytingatillögum var dreift í
nefndinni. Fundi var slitið og boð-
að til fundar klukkan níu í morgun
[í gærmorgun] sem varð ekki.
Þetta eru svo umfangsmiklar
breytingar að óskað var eftir því að
fundur yrði ekki fyrr en í kvöld [í
gærkvöldi] en þar átti að kynna
efnismikið framhaldsnefndarálit,
eins og Valgerður Bjarnadóttir, for-
maður nefndarinnar, orðaði það.“
Birgir Ármannsson, annar
tveggja fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins í stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd, segir helstu ágalla frum-
varpsins enn til staðar.
„Okkur sýnist að það sé verið að
setja talsvert fleiri plástra á frum-
varpið og að einhverju leyti er ver-
ið að koma til móts við tæknilegar
athugasemdir sem gerðar hafa
verið af hálfu fræðimanna. Allir
helstu gallar frumvarpsins eru enn
fyrir hendi. En málið er hins vegar
að okkar mati óbreytt í þeim skiln-
ingi að enn stendur til að afgreiða
heildarendurskoðun stjórnarskrár
fyrir vorið án þess að málið hafi
hlotið viðhlítandi vinnslu. Gegn því
leggjumst við auðvitað eins og áð-
ur,“ segir Birgir.
Seinkun vegna umfangsins
KVÖLDFUNDUR Í NEFNDINNI
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
mánudaginn 4. mars, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Louisa
M
atthíasdóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Louisa
M
atthíasdóttir
„Þarna gætir að
mínu mati mis-
skilnings vegna
þess að þarna er
um rammalöggjöf
að ræða og það
sem er verið að
vísa í þarna eru
þá réttar-
geðdeildir,“ segir
Ögmundur Jón-
asson innanrík-
isráðherra spurður út í gagnrýni
fagaðila á sviði geðlækninga á frum-
varp hans um breytingar á hegning-
arlögum (öryggisráðstafanir o.fl.).
Morgunblaðið greindi frá í gær að
fjöldi fagaðila hefur skilað inn nei-
kvæðum umsögnum um frumvarpið.
Á meðal þess sem þeir gagnrýna er
að heimilt verði að dæma sakhæft
fólk til refsivistar á geðdeildum
sjúkrahúsa. Að sögn Ögmundar á
frumvarpið sér langa sögu, allt til
ársins 2008. „Þetta hefur verið í
löngu samráðsferli en það er greini-
legt að enn skortir þarna nokkuð á
og þess vegna kallaði ég saman fund
í dag þar sem farið var yfir þessi mál
með fulltrúum úr heilbrigðiskerfinu
og formanni refsiréttarnefndar,“
sagði Ögmundur í samtali við blaða-
mann í gær.
Hann leggur áherslu á að frum-
varpið verði ekki samþykkt nema
áður sé tryggð víðtæk sátt um það.
„Ég vísa því á bug að frumvarpið sé
illa unnið, þetta er mjög vandað
frumvarp og er komið á borðið eftir
góða yfirlegu. Hins vegar virðist enn
skorta á og sjálfsagt að huga að
þeirri gagnrýni sem fram hefur
komið.“ skulih@mbl.is
Segir
frumvarpið
vandað
Ögmundur fundaði
með fagaðilum í gær
Ögmundur
Jónasson
World Outga-
mes-leikarnir
verða haldnir í
Miami Beach ár-
ið 2017. Valið
stóð á milli
Miami Beach og
Reykjavíkur.
Þetta var til-
kynnt á fundi
sem GLISA (Gay
Lesbian International Sports Asso-
ciation) hélt í Antwerpen í gær-
kvöldi.
Jón Gnarr borgarstjóri óskaði
fulltrúum Miami Beach til ham-
ingju. Hann sagði undirbúninginn
fyrir útnefninguna hafa vakið tals-
verða athygli á Reykjavík.
Miami Beach fékk
World Outgames
Jón Gnarr
Matvælastofnun hefur sent bónda á
Brúarreykjum í Borgarfirði bréf þar
sem honum var tilkynnt að sex naut-
gripir yrðu fluttir af bænum í dag
vegna vanfóðrunar.
Bjarni Bærings Bjarnason er
bóndi á Brúarreykjum. Hann segir
að bréfið hafi komið honum í opna
skjöldu. „Kýrnar mínar mjólka yfir
landsmeðaltali, varla geta vannærð
dýr gert það,“ segir Bjarni í samtali í
gærkvöldi.
Starfsleyfi Bjarna var afturkallað
í nóvember, eftir að Matvælastofnun
hafði m.a. get athugasemd við þrif á
tækjum, húsum og hreinleika gripa.
Eins væri svo þröngt um gripina að
álitið væri að það kæmi niður á mat-
vælaöryggi. Bjarni fékk framleiðslu-
leyfi til bráðabirgða í janúar, en jafn-
framt var óskað eftir því að hann
gerði tilteknar úrbætur og fékk hann
frest til þess til 11. febrúar. Bjarni
segir að hann muni kæra ákvörðun
Matvælastofnunar.
annalilja@mbl.is
Nautgripir fjarlægðir
frá Brúarreykjum
Bóndinn hyggst
kæra niðurstöðuna
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Nautgripir Fjarlægja á sex nautgripi.