Morgunblaðið - 01.03.2013, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áætlað er að heildarkostnaður við
hitaveitu fyrir Höfn og nágrenni
verði 1,6 til 2 milljarðar. Tryggvi
Þór Haraldsson, forstjóri RARIK,
segir að þetta yrði ekki ódýr hita-
veita í upphafi en rifjar upp að
reynslan sýni að hitaveitur verði
hagkvæmari með tímanum og íbú-
arnir muni njóta þess.
Tryggvi Þór greindi frá stöðu
mála við undirbúning hitaveitu í
erindi sem hann flutti á ráðstefnu
um orkumál á Höfn í gær. RARIK
hefur verið að rannsaka jarðhita í
landi Miðfells og Hoffells og lét
bora djúpa holu í vetur. Tryggvi
segir að rannsóknir bendir til að
holan gefi ekki lakari niðurstöðu
en búast hefði mátt við. Hún er
talin gefa 27 sekúndulítra af 70
gráðu heitu vatni. Hann segir að
látið verða reyna á afköst svæð-
isins með því að dæla upp úr hol-
unni næstu mánuði.
Bora þarf fleiri holur
Verði þetta niðurstaðan er ljóst
að hún mun aðeins gefa um þriðj-
ung af því vatni sem nauðsynlegt
er til að leggja hitaveitu til Hafn-
ar. Því þurfi að bora tvær til þrjár
svipaðar holur til viðbótar.
Segir Tryggvi að framhaldið
verði ákveðið þegar niðurstaða
fæst. Verði hún svipuð og nú er
reiknað með að ráðist verði í frek-
ari boranir. Það yrði þá væntan-
lega á næsta ári. Lagning hita-
veitu verði síðan skoðuð í
framhaldi af því.
Þótt mikill kostnaður yrði við
lagningu hitaveitu segir Tryggvi
Þór að hinn valkosturinn sé slæm-
ur, það er að segja að reka áfram
fjarvarmaveitu þar sem rafmagn
er notað til að hita upp vatnið og
olía til vara.
„Það ríkir mikil eftirvænting hér
á svæðinu um að af þessu geti orð-
ið,“ segir Hjalti Þór Vignisson,
bæjarstjóri Hornafjarðar. Hann
segir að reynslan sýni að búsetu-
skilyrði breytist þar sem heitt
vatn finnst. Hann bætir því við að
einnig hafi fundist heitt vatn í
Skaftafelli og á Hala og það sé
hægt að nýta í hitaveitur á þeim
svæðum.
Hitaveita myndi
kosta 1,6 til 2
milljarða kr.
Áfram verður borað í Hornafirði
Ljósmynd/Maríus Sævarsson
Hoffell Jarðborinn Nasi frá Rækt-
unarsambandi Skeiða og Flóa.
Ákveðið hefur verið að rafvæða
fiskimjölsverksmiðju sem Skinney-
Þinganes rekur á Höfn í Horna-
firði. Til þess að það geti orðið
þarf að hækka spennu á línum inn
á Höfn og byggja nýja spennistöð
og njóta Hafnarbúar góðs af því.
Í vetur hefur verið unnið að raf-
væðingu verksmiðjanna á Norð-
firði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
Nú bætist Hornafjörður við. Að-
alsteinn Ingólfsson forstjóri segir
þetta dýra framkvæmd en raf-
orkan sé ódýrari en olía og vist-
vænni.
Framkvæmdir eru að hefjast og
á að ljúka í haust. Stefnt er að því
að hægt verði að nota rafmagn til
bræðslu á næstu loðnuvertíð og
jafnvel fyrr.
Tryggvi Þór Haraldsson, for-
stjóri RARIK, segir að kostnaður
RARIK og Landsnets nemi um
hálfum milljarði. Hækka þurfi
spennu á línu inn í bæinn og koma
upp nýjum spenni. Viðkomandi
fyrirtæki greiði kostnaðinn, ýmist
beint í upphafi eða í raforkuverði
næstu ár.
Hins vegar komi þessi fram-
kvæmd sér vel fyrir íbúa Hafnar
því afhendingaröryggi aukist með
tvöföldun kerfisins.
Fiskimjölsverksmiðjan kaupir
ótrygga orku og getur því þurft að
skerða hana á álagstímum. Fyr-
irtækið er áfram með olíukyntu
katlana og getur gripið til þeirra
þegar á þarf að halda. helgi@mbl.is
Rafvætt fyrir loðnuvertíð
Íbúar á Höfn njóta góðs af spennistöð sem þarf að byggja
Tískuverslunin Ríta | Bæjarlind 6 | sími 554-7030 www.rita.is
Stærri og glæsilegri
RÍTA BÆJARLIND
Full búð að nýjum vörum
Str. 36 - 56/58
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Karlakórinn Heimir
www.heimir.is
Guðrún Gunnarsd
óttir
Ari Jóhann Sigurð
sson
Stefán R. GíslasonÓskar Pé
tursson
Tónberg á Akranesi, föstudaginn 1. mars, kl. 20:30
Miðasala við innganginn
Langholtskirkja, Reykjavík
laugardaginn 2. mars, kl. 14 :00 og 17:00
Forsala á midi.is
Fyrir hlé er sígild karlakóratónlist á dagskránni.
Eftir hlé er breytt um takt svo um munar, hljómsveit skipuð félögum úr kórnum
stígur fram og Guðrún Gunnarsdóttir kemur til liðs við okkur.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga sem
fram fara 27. apríl 2013, hefst hjá embætti sýslumannsins í
Reykjavík þann 2. mars nk. Atkvæðagreiðslan fer í fyrstu fram
á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, alla virka
daga milli kl. 8:30 – 15:00. Um helgar er opið frá kl. 12:00 –
14:00.
Lokað verður á skírdag þann 28. mars, föstudaginn langa 29.
mars, páskadag 31. mars og annan í páskum 1. apríl nk. Opið
verður laugardaginn 30. mars nk. frá kl. 12:00 – 14:00.
Frá og með 15. apríl nk. fer atkvæðagreiðslan fram í
Laugardalshöll og þá verður opið alla daga frá
kl. 10:00 – 22:00. Á kjördag laugardaginn 27. apríl nk.
verður opið frá kl. 10:00 til kl. 17:00.
Mottumars, árveknis- og fjáröfl-
unarátak Krabbameinsfélagsins
vegna baráttunnar gegn krabba-
meinum hjá körlum, hefst formlega
í dag og stendur í þrjár vikur. Opn-
að var fyrir skráningar á vefsíðuna
mottumars.is sl. mánudag.
Hljómsveitin Hetjurnar leggur
Mottumars lið í ár með laginu Villi-
bráð en þar er m.a. sungið „ég er
karlmaður – ég get veikst og ég get
grátið“. Sveitin leystist upp árið
1985 og var flestum gleymd þar til
upptaka af umræddu lagi fannst
nýverið fyrir röð tilviljana. Í tilefni
af Mottumars ákváðu Hetjurnar að
láta gott af sér leiða og gefa
Krabbameinsfélaginu lagið, sem
þegar er komið í spilun á flestum
útvarpsstöðvum landsins.
Stefnt er að því að safna 30 millj-
ónum króna á mottumars.is.
Hetjurnar leggja átakinu Mottumars lið