Morgunblaðið - 01.03.2013, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2013
Leikstjórinn RobertZemeckis á nokkrar eft-irminnilegar kvikmyndirað baki, sumar hverjar sí-
gildar. Má þar nefna Forrest Gump
og Back to the Future-þrennuna.
Flight fellur því miður ekki í flokk
hinna sígildu en er engu að síður
ágæt kvikmynd og aðalleikarinn,
Denzel Washington, virkilega sann-
færandi í hlutverki flugstjóra sem
glímir við áfengissýki.
Flugstjórinn Whip Whitaker
vaknar á hóteli eftir mikið fyllirí og
þarf að mæta í vinnuna í annarlegu
ástandi, enn undir áhrifum áfengis
eftir gleðskap næturinnar. Hann
tekur kókaín sér til örvunar og
mætir til vinnu eins og ekkert sé
sjálfsagðara. Í flugvélinni fær hann
sér í glas án þess að nokkur sjái til
og blund eftir að hafa stýrt vélinni í
gegnum mikið vonskuveður. Hann
rankar við sér þegar bilun gerir
vart við sig í vélinni. Hún lætur ekki
að stjórn og fer að hrapa stjórnlaust
til jarðar. Whitaker tekst með lygi-
legum hætti (reyndar svo lygilegum
að flugmaður sem undirritaður
þekkir segir þetta tiltekna atriði
óttalegt bull) að afstýra skelfilegu
flugslysi, með hjálp aðstoðarflug-
manns og flugfreyju. Hann nær að
snúa vélinni á hvolf, fljúga henni
þannig yfir byggð, rétta hana síðan
við aftur og nauðlenda á engi
nokkru. Nokkrir um borð láta lífið
en ljóst að flugstjóranum hefur tek-
ist að bjarga lífi tuga farþega með
þessu ævintýralegu uppátæki sínu.
Whitaker er færður á sjúkrahús og
þar kynnist hann ungri konu sem er
eiturlyfjafíkill en á batavegi, laus
við fíknina. Þau fella hugi saman en
áfengisfíkn Whitakers setur þó
strik í reikninginn. Honum er
hampað sem hetju í fjölmiðlum fyrir
björgunina en babb kemur í bátinn
þegar rannsókn hefst á flugslysinu
og upp kemst um annarlegt ástand
flugstjórans. Lipur lögfræðingur
virðist þó ætla að koma honum til
bjargar en til að það takist verður
Whitaker að halda sér allsgáðum og
losa sig við fíknina.
Eins og sjá má er hér mikill
harmleikur á ferð, aðalpersónan bú-
in að brenna allar brýr að baki sér
með áralangri áfengisneyslu en
neitar að horfast í augu við veikindi
sín. Túlkun Washingtons á flug-
stjóranum er afar sannfærandi,
persónan er ógeðfelld og viðkunn-
anleg í senn, maður sveiflast milli
samúðar og fyrirlitningar á henni
líkt og þeir sem næst henni standa.
Aðrir leikarar standa sig einnig
með ágætum, John Goodman fer
mikinn í hlutverki félaga flugstjór-
ans sem útvegar honum eiturlyf og
Kelly Reilly er einnig sannfærandi í
hlutverki unnustu Whips sem þekk-
ir einnig skelfilegan heim fíkn-
arinnar.
Sagan er áhugaverð og þá eink-
um þessi tvískinnungur, að hampa
einhverjum sem hetju en reyna um
leið að draga hann fyrir dóm þó svo
hann hafi bjargað tugum mannslífa.
Gallinn á myndinni er hins vegar sá
að hún dettur í mikla lægð eftir
kraftmikla byrjun en nær sem bet-
ur fer aftur flugi í seinni hlutanum,
þegar Whip neyðist til að horfast í
augu við sjálfan sig og taka ábyrgð
á gjörðum sínum.
Flugstjórinn Denzel Washington í hlutverki flugstjórans Whip Whitaker í
kvikmyndinni Flight. Washington heldur myndinni á lofti með góðum leik.
Washington á flugi
Laugarásbíó og Sambíóin
Álfabakka, Keflavík, Egilshöll
og Akureyri
Flight bbbnn
Leikstjóri: Robert Zemeckis. Aðalleik-
arar: Denzel Washington, Bruce
Greenwood, John Goodman, Kelly Reilly
og Don Cheadle. Bandaríkin, 2012. 138
mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona
og Óttar Guðmundsson geðlæknir
fremja í kvöld kl. 22 allsérstakan
gjörning á Café Rósenberg við
Klapparstíg, flétta þar saman djass
og Grettissögu. Jóhanna mun flytja
þekktar djassperlur með þeim Jóni
Páli Bjarnasyni, Erik Quick, Reyni
Sigurðssyni og Gunnari Hrafnssyni
og Óttar mun milli laga segja sögur
af draugum við undirleik tónlistar-
mannanna.
Draugadjass Jóhanna og Óttar snúa bökum saman á Rósenberg í kvöld.
Draugar og djass á Rósenberg
Tónlistarmaðurinn Pétur Ben held-
ur útgáfutónleika í kvöld í Bæjar-
bíói í Hafnafirði, vegna sólóplötu
sinnar, God’s Lonely Man, sem kom
út rétt fyrir jól í fyrra. Platan sú
hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda,
var tilnefnd til Íslensku tónlist-
arverðlaunanna og var auk þess ein
af verðlaunaplötum tónlistar-
sjóðsins Kraums.
Pétur kemur fram með hljóm-
sveit en hana skipa Óttar Sæ-
mundsson, Arnar Þór Gíslason,
Þorbjörn Sigurðsson og Kippi Kan-
ínus og strengjakvartettinn Amiina
leikur einnig á tónleikunum. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21 og er það
hljómsveitin The Heavy Experience
sem sér um að hita upp gesti.
Fögnuður Pétur Ben fagnar sóló-
skífu sinni í Bæjarbíói í kvöld.
Útgáfutónleikar Péturs Ben í Bæjarbíói
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
LAGNAEFNI FYRIR
TÖLVUR OG NET
Digitus net lagnaefnið hefur verið á
markaðnum um allan heim
síðan 1994 við góðan orðstýr.
Frá þeim fáum við allt sem
þarf til að gera gott
netkerfi fyrir heimili
eða fyrirtæki.
Mótari sem sendir mynd
frá myndlykli um húsið
með loftnetslögnum sem
er fyrir í flestum húsum.
TRI
AX
TFM
001
MÓ
TAR
I
NÝJUNG HJÁ OKKUR
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
Á TOPPNUM Í ÁR
KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
ÞETTA REDDAST KL. 5:20 - 8 - 10:10
BEAUTIFUL CREATURES KL. 5:20 - 8 - 10:40
BEAUTIFUL CREATURES VIP KL. 5:20 - 8 - 10:40
FLIGHT KL. 5:30 - 8 - 10:10
WARM BODIES KL. 8 - 10:10
HANSEL AND GRETEL KL. 8:20
PARKER KL. 10:50
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 3:40
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 3:40 - 5:50
ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTAL KL. 4 - 6
SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 3:20
KRINGLUNNI
ÞETTA REDDAST KL. 5:50 - 8 - 10:10
BEAUTIFUL CREATURES KL. 8 - 10:40
THIS IS 40 KL. 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6
BEAUTIFULCREATURES KL.5:20-8-10:40
FLIGHT KL.5:20-8-10:10
ARGO KL.5:20-8-10:40
WARM BODIES KL. 5:50 - 8
PARKER KL. 10:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:10
BEAUTIFUL CREATURES KL. 8
FLIGHT KL. 10:30
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6
ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL. 6
AKUREYRI
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:20
BEAUTIFUL CREATURES KL. 8
FLIGHT KL. 10:20
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKA Í VILLTA VESTRINU ÍSLTAL KL. 6
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 6
EMPIRE
EINFRUMLEGASTA
GAMANMYND
SEM GERÐ
HEFUR VERIÐ
FÓRBEINT ÁTOPPINN ÍUSA
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
3ÓSKARSVERÐLAUNÞAR Á MEÐALBESTA MYNDIN
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
ENTERTAINMENT WEEKLY
100/100
LA TIMES
JEREMY IRONSEMMA THOMPSONVIOLA DAVIS
MÖGNUÐ ÆVINTÝRAMYND BYGGÐ Á
METSÖLUBÓKUNUM UM LENU SEM BÝR
YFIR YFIRNÁTTÚRULEGUM KRÖFTUM
STÓRSKEMMTILEG RÓMANTÍSK
GAMANDRAMA MEÐ
BIRNI THORS Í AÐALHLUTVERKI