Morgunblaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 1. MARS 60. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Versta fríið var á Íslandi
2. Allt orðið iðjagrænt
3. Draugaskip rekur í átt til Íslands
4. Missti systur sína og skrifar bók
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Víkingarokksveitin Skálmöld hélt
tónleika í Hnífsdal í gær og sendi
trymbill sveitarinnar, Jón Geir Jó-
hannsson, frá sér yfirlýsingu af því
tilefni. „Ég, Jón Geir Jóhannsson,
heiti því hér með að sýni Ísfirðingar
og nærsveitafólk sitt rétta andlit, og
félögum mínum að Húsavík er ekki
eini rokkbær Íslands, mun ég láta
húðflúra á mig skjaldarmerki míns
gamla heimabæjar, Ísafjarðar.
Ákvörðun verður tekin strax að tón-
leikunum loknum og telst þá end-
anleg,“ sagði Jón Geir m.a. í yfirlýs-
ingu sinni. Í gær fékkst það staðfest
að skjaldarmerkið verður flúrað á
trymbilinn ísfirska.
Morgunblaðið/Ómar
Skjaldarmerki flúrað
á trymbil Skálmaldar
MØ, Metz, Nagano
o.fl. á Airwaves
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves
verður haldin í 15. sinn í Reykjavík
30. október til 2. nóvember og hefur
nú verið kunngjört að fram á henni
muni koma múm, Sin Fang, danska
söngkonan MØ, Bloodgroup, kanad-
íska gruggpönkhljómsveitin Metz,
Young Dreams frá Noregi, Oyama og
sænska söngkonan Sumie Nagano.
Undir lok janúar var tilkynnt að á há-
tíðinni kæmu fram sýrlenski tónlist-
armaðurinn Omar Souleyman, enski
raftónlistarmaðurinn Gold Panda,
rokksveitin Goat frá Svíþjóð, raf-
tónlistarkonan Fatima Al Qadiri frá
Kúveit, sænska tón-
listarkonan
Anna Von
Hauss-
wolff og
hávaða-
pönk-
sveitin No
Joy frá
Kanada.
Á laugardag Fremur hæg vestlæg átt, þurrt og víða vægt frost.
Gengur í SV 8-13 m/s eftir hádegi með rigningu eða slyddu. Hiti 0
til 5 stig. Hægari og áfram úrkomulaust A-til á landinu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG SV 10-18 m/s, en vestan 13-20 N- og A-
lands eftir hádegi. Víða rigning, en síðar skúrir eða él N-til. Minnk-
andi vindur og úrkoma í kvöld. Hiti 2 til 8 stig.
VEÐUR
Aron Kristjánsson, lands-
liðsþjálfari í handknattleik,
er áhyggjufullur eftir að
hafa misst tvo sterka leik-
menn úr sínu liði á und-
anförnum dögum. Hvorki
Vignir Svavarsson né Kári
Kristján Kristjánsson verða
með í leikjunum mikilvægu
gegn Slóveníu í undan-
keppni EM. Hann þarf að
kalla inn nýjan línumann og
þar virðast fjórir koma til
greina. »1
Aron í vanda
vegna meiðsla
„Stefán Rafn er búinn að standa sig
virkilega vel. Ég hef verið afar sáttur
við hans frammistöðu og það eru allir
hjá félaginu. Hann hefur staðið undir
þeim væntingum sem til hans voru
gerðar og meira en það,“ segir Guð-
mundur Þ. Guðmunds-
son, þjálfari þýska
handknattleiks-
liðsins Rhein-
Neckar Löwen,
um Stefán Rafn
Sigurmanns-
son. »1
Guðmundur ánægður
með Stefán Rafn
ÍR-ingar eiga góða möguleika á að
bjarga sér frá falli úr úrvalsdeild karla
í körfuknattleik eftir dramatískan sig-
ur á KFÍ í fallslag liðanna í gær-
kvöld. Ísfirðingar köstuðu frá sér
sigrinum í venjulegum
leiktíma og ÍR nýtti sér
það, jafnaði með 3ja stiga
körfu Hjalta Friðrikssonar í blálokin
og vann síðan í framlengingu. »4
Staða ÍR gjörbreytt eftir
sigur á Ísfirðingum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ólafur Þór Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis í
Hafnarfirði, var kjörinn formaður í
Samtökum golfvallastarfsmanna í
Evrópu (FEGGA, Federation of
European Golf Greenkeepers Asso-
ciations) um nýliðna helgi, en hann
hefur verið í stjórn samtakanna und-
anfarin fjögur ár og þar af sem vara-
formaður undanfarin tvö ár.
Golfið hefur leikið stórt hlutverk í
lífi Ólafs Þórs. „Ég hef alla tíð haft
brennandi áhuga á golfi og er fyrsti
Íslendingurinn sem lærir golfvalla-
fræði,“ rifjar hann upp en fyrir um
tveimur áratugum lagði hann stund
á fræðin í Skotlandi. Eftir námið
hafði hann frumkvæði að stofnun
Samtaka íslenskra golfvalla-
starfsmanna sem seinna urðu Sam-
tök íslenskra golf- og íþróttavalla-
starfsmanna. Í kjölfarið sótti hann
ráðstefnur FEGGA og segir að þar
hafi vakið athygli hvað Íslendingum
hafi gengið vel að verða fagmann-
legir í starfinu á stuttum tíma. „Þeir
vildu endilega fá að deila þeirri
reynslu inni í stjórn FEGGA og ég
varð fyrir valinu til að fara fram,“
segir hann um aðkomuna að stjórn
samtakanna, en um 15.000 golfvalla-
starfsmenn í 24 löndum starfa innan
vébanda þeirra.
Í fótspor föðurins
Ágúst Húbertsson, faðir Ólafs
Þórs, var lengi framkvæmdastjóri
Keilis og Ólafur Þór var ekki
gamall þegar hann byrjaði að
vinna hjá föður sínum á
golfvellinum á sumrin.
Hann hafi fylgst með
uppbyggingu golfvalla er-
lendis í erlendum fag-
tímaritum og fljótlega
fundið að fagmennsku hafi
vantað í sambandi við viðhald
á golfvelli Keilis. Stöðugt hafi
verið skipt um vallarstjóra en annað
hafi verið uppi á teningnum erlendis.
„Þá vaknaði áhugi hjá mér að læra
þetta með það í huga að láta gott af
mér leiða,“ segir hann en Ólafur Þór
var vallarstjóri hjá Keili í 16 ár og
tók við framkvæmdastjórastöðunni
af föður sínum fyrir tveimur árum.
Tímamót
Keilir verður 50 ára 2017. Nú er
unnið við endurgerð á seinni níu hol-
unum á Hvaleyrarvelli og er stefnt
að því að framkvæmdum verði lokið
fyrir afmælið. „Við erum að endur-
nýja fjórar nýjar holur á seinni níu
holunum. Þetta er í fyrsta sinn sem
við förum í verkefni án aðkomu
Hafnarfjarðarbæjar, þannig að við
fjármögnum þetta úr eigin rekstri
og ætlum okkur því langan tíma í
verkefnið.“
Talsmaður um 15.000 manna
Ólafur Þór
Ágústsson, for-
maður FEGGA
Morgunblaðið/Kristinn
Stjórnandi Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis og formaður Samtaka golfvallastarfsmanna í Evrópu.
Samtök golfvallastarfsmanna í
Evrópu, FEGGA, eru með fram-
kvæmdastjóra á Englandi en
stjórnarmenn vinna í sjálf-
boðavinnu. Samtökin
vinna til dæmis að sam-
eiginlegum námskrám
fyrir starfsmennina og
aðstoða við að búa til
umhverfisvottunarkerfi
fyrir golfvelli. Þau vinna
að ýmsum verkefnum sem
snúa að iðnaðinum sem slíkum,
veita ráðgjöf og aðstoða við að
móta stefnur í sambandi við golf-
ið, meðal annars hjá Evrópusam-
bandinu. „Við pössum upp á bak-
vinnsluna í golfinu,“ segir Ólafur
Þór.
Ólafur Þór hefur talað fyrir
breytingum á lögum FEGGA í sam-
bandi við félagsgjöld og eins varð-
andi svæðaskiptingu Evrópu til að
hvert svæði eigi fulltrúa í stjórn.
„Þannig tryggjum við raddir sem
flestra í stjórninni,“ segir hann.
Tryggja stöðu golfsins
SAMTÖK GOLFVALLASTARFSMANNA Í EVRÓPU