Morgunblaðið - 12.03.2013, Side 1

Morgunblaðið - 12.03.2013, Side 1
STRENGDU HEIT SÍN AÐ NÝJU AÐ VORI Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 1 3  Stofnað 1913  59. tölublað  101. árgangur  VEL BÚINN OG SPENNANDI SPARIBAUKUR MIKILL KEPPNISANDI Í HÓPNUM BÍLAR RÖSKIR SELFYSSINGAR 10FLÓRGOÐINN RANNSAKAÐUR 16 Morgunblaðið/Ómar Á þingi Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra gagnrýndi tillögu Þórs.  Ríkisstjórnin stóð af sér van- trauststillögu Þórs Saari með 32 at- kvæðum gegn 29. Þetta er önnur vantrauststillagan sem lögð er fram gegn stjórninni en sú fyrri var felld með jafnmörgum atkvæðum í apríl 2011, þegar Ásmundur Einar Daða- son gekk úr VG yfir í Framsókn. Mikil spenna var í þingsalnum í gær og kom til snarpra orðaskipta í hita leiksins. Tillagan var felld með 32 atkvæðum Samfylkingar, VG og Bjartrar framtíðar en 29 þingmenn studdu tillöguna. Einn sat hjá og einn var fjarverandi. »4 Stjórnin stóðst van- traust í annað sinn á kjörtímabilinu 10-11 verslanir » Verslunarkeðjan 10-11 var áður í eigu Haga hf. » Árið 2010 yfirtók Eigna- bjarg, fasteignafélag Arion banka, fyrirtækið með eignum og skuldum. » Vorið 2011 seldi bankinn fyrirtækið en samningur um aðföng frá félögum í eigu Haga hf. fylgdi með. » Tæpum tveimur árum síðar vilja Hagar hf. ekki lengur stunda viðskipti við fyrirtækið. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Þetta er aðgerð sem er sett fram til að meiða okkur og við teljum að hún sé mjög alvarleg þar sem um er að ræða langstærsta aðilann á matvöru- markaðnum sem er að beita sér gegn tiltölulega litlu fyrirtæki,“ segir Árni Pétur Jónsson, forstjóri Tíu ellefu ehf. sem á föstudag fékk skriflegar uppsagnir um vöruafgreiðslu frá þremur félögum í eigu Haga hf. Fyr- irtækjunum; Aðföngum, Ferskum kjötvörum og Bönunum. „Okkar skoðun er sú að þessi upp- sögn sé ólögleg og við munum fá þar til bæra aðila til að skera úr um hvort svo sé eða ekki,“ segir Árni Pétur. Uppsagnirnar taka gildi frá og með næstu mánaðamótum. Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., staðfesti uppsagnirnar en vildi lítið um þær segja. „Eftir tilmæli frá Samkeppniseftirlitinu var félaginu skipt út og þá var gerður tímabund- inn samningur um að 10-11 hefði heimild til að kaupa hér áfram. Á grundvelli ákvæða í samningnum er honum sagt upp,“ sagði Finnur. Munu fara með málið lengra „Það sem er sérstakt í þessu er að við sölu Eignabjargs [Arion banka] á 10-11 kemur fram í sölugögnum að það fylgja langtímasamningar við þessi þrjú fyrirtæki og þeir eru óuppsegjanlegir til margra ára. Okk- ur kom það mjög á óvart að þetta skyldi hafa komið til,“ segir Árni Pét- ur. „Það eru tíndar til margar ástæð- ur sem ég get ekki tíundað en það er ljóst að það er ágreiningur um hvort þær séu réttmætar eða ekki. Við munum fara með þetta í þann farveg sem við teljum að þetta mál þurfi að fara í og fá úr því skorið,“ segir hann. Hefur ekki áhrif á Iceland Félag í eigu Árna Péturs keypti í janúar 51% hlut í Ísland-Verslun hf. sem rekur verslanir Iceland. Spurður að því hvaða áhrif þetta hafi á rekstur Iceland, sagði hann: „Áhrif þessara uppsagna á Iceland eru engin.“ Árni Pétur segir Iceland ekki með neina samninga við um- rædd fyrirtæki í eigu Haga hf. Hagar og 10-11 í hár saman  Hagar hf. sögðu upp samningi við 10-11 um aðföng  Forstjóri 10-11 telur upp- sögnina ólöglega  Forstjóri Haga hf. segir samninginn hafa verið tímabundinn Léttara var yfir loðnusjómönnum í gær en í fyrradag. Þeir fóru úr lokahljóði í mokveiði á einni nóttu. „Þetta eru bestu lóðningar sem við höfum séð á ver- tíðinni,“ sagði Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Aðalsteini Jónssyni SU. Hann var þá í mokveiði á miðjum Breiðafirði. Veiðin var eins mikil og næturnar réðu við. Á myndinni sjást Vilhelm Þorsteinsson EA og Sighvatur Bjarnason VE. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélags Vest- mannaeyja, hafði þær fréttir frá sínum mönnum á Guðmundi VE að ný loðnuganga virtist vera á ferð- inni. Loðnan er smærri en sú sem kom að austan og segir hann að það bendi til vestangöngu. Þorsteinn er sömu skoðunar. Segir að loðnan virðist ganga suður Breiðafjörðinn. Hrognaloðna er í göngunni en Þorsteinn segist ekki viss um að hrognin séu orðin nógu vel þroskuð til frystingar. „Þetta hefur ekki verið almennileg ver- tíð og frekar kjánaleg,“ segir Þorsteinn um vertíðina sem nú er útlit fyrir að ljúki með sóma. helgi@mbl.is Nýtt líf í veiðarnar með vestangöngu Ljósmynd/Kristófer H. Helgason Mokafli hjá loðnuskipunum á miðjum Breiðafirði  Mikil sókn er í útflutningi á heyi frá Íslandi. Í fyrra jókst út- flutningur um 27% en frá árinu 2006 hefur út- flutningur tæp- lega sexfaldast. Andvirðið var 58,5 milljónir króna í fyrra og jókst um 15,7 milljónir á milli ára. Alls voru tæp 1.708 tonn flutt út á síðasta ári og af þeim fóru 1623,4 tonn til Færeyja en auk þess fór hey frá Íslandi til Belgíu, Hollands og Frakklands. Tveir heysalar eru með um 80% markaðshlutdeild. »6 Mikil aukning í útflutningi á heyi Sókn Íslenskt hey er afar vinsælt. Útlit er fyrir að allt að nítján stjórnmála- samtök verði í framboði í komandi alþing- iskosningum en af þeim stefna a.m.k. fjór- tán á framboð á landsvísu. Átján flokkar hafa fengið úthlutaða listabókstafi en um- sókn Regnbogans, framboðs Atla Gísla- sonar, Jóns Bjarnasonar og Bjarna Harð- arsonar, um bókstaf er í vinnslu. Samkvæmt lögum um kosningar til Al- þingis verða tvöfalt fleiri að skipa fram- boðslista en nemur fjölda þingsæta í kjör- dæmi og má enginn bjóða sig fram á fleiri listum en einum. Ef nítján flokkar verða í framboði á landsvísu verður fjöldi fram- bjóðenda því um 2.400, rétt um 100 fleiri en íbúar í Hveragerði. Í kosningalögum er einnig kveðið á um fjölda meðmælenda með hverjum lista en sami kjósandi má ekki mæla með fleirum en einum lista við sömu alþingiskosningar. Fjöldi meðmælenda skal nema margfeldi af þingsætatölu viðkomandi kjördæmis og 30 að lágmarki en 40 að hámarki og þurfa nítján flokkar því að afla stuðnings alls um 36.000 einstaklinga hyggist þeir bjóða fram á landsvísu. Sú tala samsvarar íbúafjölda Kópavogs og Seltjarnarness samanlagt. holmfridur@mbl.is MStefnir í líflega »9 Þurfa allt að 36.000 undirskriftir  Frambjóðendur yrðu fleiri en íbúar Hveragerðis Talning Kosið verður til Alþingis 27. apríl.  Útlendingastofnun hefur lokið umfjöllun um nokkrar nýlegar um- sóknir Króata um hæli hér á landi. Í öllum tilvikum hefur umsóknunum verið hafnað. Þeir geta kært niður- stöðuna til innanríkisráðuneytisins. Á þessu ári hafa 58 sótt um hæli á Íslandi sem er mikil fjölgun. Rúm- lega 40 umsóknir eru frá Króötum, þær nýjustu voru tilkynntar á sunnudag. Reykjanesbær sem sér um mótt- töku hælisleitendanna getur ekki útvegað íbúðir handa öllu þessu fólki og nú hefur tveimur fjöl- skyldum frá Króatíu því verið kom- ið fyrir á hóteli. »14 Hafa hafnað um- sóknum Króata Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.